RÚV
Víðsjá
Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.
Koniecznie odwiedź stronę podcastu i wesprzyj twórcę: www.ruv.is
Gdzie słuchać?
Podcasty w aplikacji Replaio Radio Już wkrótcePodcasty trafią do aplikacji już wkrótce. Zainstaluj teraz i jako pierwszy zobacz nowe podejście do podcastów
Odcinki
Dauðadjúpar sprungur, heimspekihugleiðing Freyju Þórsdóttur, slavenskur söngur 31.03.2025 55:20
Ljósmyndarinn Hallgerður Hallgrímsdóttir segir að það eina sem henni hafi dottið í hug að gera þegar hún kom tómhent heim af fæðingardeildinni hafi verið að taka sjálfsmynd. Nokkrum mánuðum síðar opnaði hún skáp sem áður hafði geymt svarthvítar filmur og áttaði sig á því, án þess að muna almennilega eftir því, að hún hafði tekið á þær allar. Dóttir hennar, Dýrleif, fæddist og dó sama daginn, í lok...
Hringir Orfeusar og annað slúður, Billy Budd, Kafteinn Frábær 27.03.2025 51:19
Goðsagan um Orfeus hefur fylgt okkur frá því að tímatalið hófst og óteljandi lístamenn nýtt hana sem efnivið. Og nú gefst okkur tækifæri til að sjá glænýja útgáfu Ernu Ómarsdóttur og Íslenska dansflokksins. Í verkinu Hringir Orfeusar og annað slúður er gerð tilraun til þess að túlka þessa söguna á nýjan leik, en verkið byggir á uppfærslu sem Erna samdi ásamt Gabríelu Friðriksdóttur og Bjarna Jónss...

Gísli B. Björnsson / Svipmynd 26.03.2025 52:43
Víðsjá lítur í heimsókn til Gísla B. Björnssonar í þætti dagsins. Gísli er fæddur árið 1938 í Reykjavík og listina drakk hann úr umhverfi sínu. Á gullsmíðaverkstæðinu hjá afa sínum fékk hann kennslu í listasögu en honum hundleiddist í skóla. Það átti þó eftir að breytast þegar ný deild var stofnum nokkurn vegin með hann í huga, hagnýt myndlist við Myndlista- og handíðaskóla Íslands. Síðar hélt Gís...

Helena Margrét, Brím og Speglahúsið 25.03.2025 52:53
Helena Margrét Jónsdóttir hlaut á dögunum Hvatningarverðlaun Íslensku myndlistarverðlaunanna fyrir málverk sem, samkvæmt dómnefnd, þykja vönduð og kyrrlát en á sama tíma með nýstárlegan undirtón sem virkjar ímyndunaraflið og færir áhorfandann inn í draumkenndan hugarheim. Við hittum Helenu Margréti á vinnustofu hennar í þætti dagsins og ræðum við hana meðal annars um pensla, köngulær og afmarkaða...

Myndlistarmaður ársins, ECHO LIMA og örvæntingarpistill #4 24.03.2025 52:36
Íslensku myndlistarverðlaunin voru afhent í áttunda sinn síðastliðinn fimmtudag en þar var Pétur Thomsen valinn myndlistarmaður ársins, fyrir sýninguna Landnám í Hafnarborg. Samband manns og náttúru hefur lengi verið megininntakið í ljósmyndaverkum Péturs og er sýningin Landnám engin undantekning. Pétur lítur við í hljóðstofu, en við höldum líka niður í miðbæ, í Gallerí Berg, þar sem einkasýning Ö...

Júlíönuhátíð, Dvelur í Grasagarði, Níels er Napóleon / rýni 20.03.2025 53:08
Hugmyndin að Júlíönu - hátíð sögu og bóka kom til Grétu Sig Bjargardóttur snemma morguns þegar hún var að undirbúa morgunmat á Hótel Egilssen í Stykkishólmi. Gréta heldur að þar hafi Júlíana sjálf verið að verki, og segir að hugmyndin hafi sprottið fram fullsköpuð. Gréta segir okkur nánar af skáldinu Júlíönu og hátíðinni Júlíönu í þætti dagsins. VIð kynnum okkur einnig myndlistarsýningu meistarane...

Svipmynd af tónlistarnema í Georgíu: Ólína Ákadóttir 19.03.2025 54:43
Píanóleikarinn Ólína Ákadóttir segist vera bæði forvitin og hvatvís. Þeir dýrmætu eiginleikar urðu til þess að hún ákvað að fara til Georgíu í skiptinám og dvelja þar í eitt ár, en hún stundar annars framhaldsnám í píanóleik við tónlistarháskólann í Osló. Georgía er um margt ólík Noregi, og Íslandi, og áherslurnar í tónlistarnáminu sömuleiðis. Víðsjá skoraði á Ólínu að mæta í stúdíó 12 og segja hl...

Garg bókabúð, Eiríkur Örn Fimm ljóð, Stormur/rýni 18.03.2025 51:06
Það er ekki á hverjum degi sem nýjar bókaverslanir opna dyr sínar hér á landi. En það gerðist í síðustu viku í Vesturbæ Reykjavikur. Bókabúðin kallast Garg og á bak við hana stendur bókahönnuðurinn Helga Dögg Ólafsdóttir sem dreymir um að búðin verði félagsmiðstöð bókanörda. Við lítum inn í Garg í þætti dagsins. Eiríkur Örn Norðdahl sendi nýverið frá sér nýja ljóðabók sem ber titilinn Fimm ljóð. B...

Innkaupapokinn, kynbundið ofbeldi í þjóðsögum og örvæntingarpistill #3 17.03.2025 52:55
Innkaupapokinn eftir leikhópinn Kriðpleir og Elísabetu Jökulsdóttur, sem nú er í sýningu í Borgarleikhúsinu, byggir á 30 ára gömlu verki Elísabetar, Mundu töfrana. Verkið hefur fylgt Elísabetu í meira en þrjá áratugi og líka skotið rótum í öðrum verkum hennar. Hún reyndi að koma verkinu á fjalirnar en fékk oftast þau svör að það væri of ljóðrænt og vantaði allan strúktúr. En nú hefur leikhópnum Kr...
Tónlist og sjálfstæðisbarátta Grænlands, Þetta er Laddi/rýni 13.03.2025 51:02
Fyrir ofan Nuuk stendur stytta af trúboðanum Hanse Egede, en koma hans til Vestur-Grænlands árið 1721 markar upphaf nýlendutímans í sögu landsins. Styttan hefur margsinnis verið skemmd, hausinn jafnvel fengið að fjúka og á hana krotað; DECOLONIZE. Við skoðum samvirkni grænlensku sjálfstæðisbaráttunnar og tónlistarsögu landsins í þætti dagsins. Nína Hjálmarsdóttir rýnir líka í leiksýninguna Þetta e...
Drífa Viðar / Svipmynd 12.03.2025 52:57
Í Víðsjá dagsins kynnum við okkur myndlistarkonuna, rithöfundinn og gagnrýnandann Drífu Viðar. Drífa fæddist í Reykjavík árið 1920 og ólst upp ásamt stóru systur sinni Jórunni Viðar hjá móður sinni, Katrínu Viðar píanókennara. Eftir menntaskóla sótti hún tíma í myndlist og norrænum fræðum áður en hún sigldi til Bandaríkjanna árið 1938. Hún lærði myndlist í New York á sama tíma og Nína Tryggvadótti...
Brím, Skartgripaskrín Ursulu Andkjær Olsen, Menningarnótt á Grænlandi 11.03.2025 53:38
Við kynnum okkur Brím, nýja íslenska óperu sem verður frumsýnd í Tjarnarbíói á fimmtudagskvöldið. Höfundur tónlistarinnar, Friðrik Margrétar Guðmundsson og höfundur texta og leikstjóri verksins, Adolf Smári Unnarsson, segjast vilja takast á við samtímann og stóru spurningarnar í verkinu, en ódauðleg list, auðvald og nepótismi eru meðal viðfangsefna þess. Við ræðum einnig við Maó Alheimsdóttur og H...
Stefán Ragnar Höskuldsson, grænlenska rokksveitin Sumé og Örvæntingarpistill Birnis Jóns#2 10.03.2025 51:28
,,Ég vissi að ég vildi verða flautuleikari um leið og ég prófaði fyrst að spila á flautu 8 ára gamall. Frá þeim tíma varð flautan það eina sem komst að í mínu lífi," segir flautuleikarinn Stefán Ragnar Höskuldsson. Hann hreppti fyrir helgi stöðu 1. flautuleikara við Berlínarfílharmóníuna, sem að margra mati er fremsta sinfóníuhljómsveit heims. Við hringjum til Chicago í upphafi þáttar og heyrum hl...
Darraðarljóð á 75 ára afmæli, 60 kílóa þríleikurinn, bókamarkaðurinn 06.03.2025 55:12
Í kvöld og annað kvöld heldur Sinfóníuhljómsveit Íslands upp á 75 ára afmæli sitt með stapp-uppseldum tónleikum í Eldborg, þar sem öllu verður tjaldað til. Meðal verka á efnisskránni er 60 ára gamalt tónverk Jóns Leifs, Darraðarljóð. Verkið er skrifað fyrir nokkuð stóra hljómsveit og kór, er gífurlega krefjandi og hefur aldrei verið flutt áður. Víðsjá leit við á lokaæfingu í Hörpu í morgun og hitt...
Svipmynd af Hennar rödd 05.03.2025 55:45
Hennar rödd eru félagasamtök stofnuð af þeim Chanel Björk Sturludóttir og Elínborgu Kolbeinsdóttur með það að markmiði að vekja athygli á stöðu kvenna af erlendum uppruna í íslensku samfélagi. Innblástur verkefnisins kom frá Letetia B. Jonsson, móður Chanel, en hún er af jamaískum og breskum uppruna og bjó hér á landi fyrir um það bil 10 árum síðan og tók virkan þátt í samfélagi kvenna af erlendum...
Úthverfa, Sólon í Slunkaríki, Innkaupapokinn 04.03.2025 57:16
Síðastliðinn föstudag opnaði ný sýning í Gallerí Úthverfu á Ísafirði. Þetta er samsýning fjögurra listamanna, þeirra Önnu Hrundar Másdóttur, Eyglóar Harðardóttur, Ingibjargar Sigurjónsdóttur og Katrínar Agnesar Klar. Sýningin kallast í Í lit, sýningarstjóri er Ingólfur Arnarsson, en hann var einmitt fyrsti listamaðurinn til að sýna í Úthverfu, sem áður hét Slunkaríki, fyrir akkúrat 40 árum síðan....
Karnival hefðin, Ólga, Birnir Jón Sigurðsson: Örvæntingarpistill 03.03.2025 51:51
Ólga er samsýning sem fjallar um hlutverk kvenna í mótun íslenskrar listasenu á níunda áratugnum. Önnur bylgja femínisma hafið skollið með látum á vestrænan heim áratuginn á undan með tilheyrandi umbreytingum og auknum sýnileika kvenna á öllum sviðum þjóðfélagsins, líka í myndlistinni. Við ræðum við sýningarstjórann Becky Forsythe í þætti dagsins. Einnig verður rætt við Gunnellu Þorgeirsdóttur um...
Bækur og brjáluð fræði, tónlistarpistill Jelenu Ciric og Stífluhringurinn 27.02.2025 55:18
Þegar vísindasagnfræðingurinn og rithöfundurinn Steindór J Erlingsson hlustaði á nýja hljómplötu Inga Bjarna Skúlasonar fylltist hann skyndilega fítonskrafti og lagði í að lesa óhreyft ljóðahandrit sem hann hafði skrifað á myrkum tíma í lífi sínu. Steindór er meðal fjögurra fyrirlesara á málþingi undir yfirskriftinni Bækur og brjáluð fræði, sem fer fram í Norræna húsinu á laugardag. Gunnhildur Una...
Podobne podcasty
Replaio nie jest wydawcą podcastów; nazwy audycji, okładki i audio należą do ich autorów i są rozpowszechniane przez publiczne kanały RSS