RÚV

Víðsjá

Arts IS ↓ Odcinki: 969

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Koniecznie odwiedź stronę podcastu i wesprzyj twórcę: www.ruv.is

Autor

RÚV

Kategoria

Arts

Strona podcastu

www.ruv.is

Ostatni odcinek

20 paź 2026

Gdzie słuchać?

Podcasty w aplikacji Replaio Radio Już wkrótce

Podcasty trafią do aplikacji już wkrótce. Zainstaluj teraz i jako pierwszy zobacz nowe podejście do podcastów

Pobierz z Google Play Zainstaluj za darmo Android prawie 10 mln pobrań · ocena 4,8 iOS niedługo

Odcinki

Ný músík með Bogomil Font, Guðrún frá Lundi 138 ára og Lisa O'Neill 03.06.2025

Sigtryggur Baldursson á sér langan og skrautlegan feril en hann er kannski einna helst þekktur sem Bogomil Font, hans auka sjálf í söngnum sem varð til í Júgóslavíu árið 1989. Bogomil Font hefur lítið veri að koma fram upp á síðkastið en nú er hins vegar komin út ný tónlist og stutt tónleikaferðalag í vændum. Sigtryggur leit við í hljóðstofu og ræðir ferilinn og nýja tónlist. Við rifjum einnig upp...

Ný skáldsaga Soffíu Bjarnadóttur og tónleikar með Heather Ragnars 02.06.2025

Soffía Bjarnadóttir, rithöfundur, ljóð- og leikskáld, heimsækir okkur í dag og segir frá nýútgefnu skáldverki sínu sem nefnist Áður en ég brjálast. Um er að ræða feminískt skáldverk um ástir, ólík breytingarferli og lífsreynslu róttækrar móður sem leitar heim í skáldskapinn þar sem goðsagnaverur vappa um. Við hugum einnig að tónlist því listahátíðin Reykjavík Fringe hóf göngu sína í gær og stendur...

Svipmynd af Götuhorni 28.05.2025

Svipmynd Víðsjár er af bókinni Götuhorni; Skáldtextar innblásnir af íslenskri myndlist, sem var gefin var út af Listasafni Íslands og Reykjavík bókmenntaborg UNESCO. Á blaðsíðum birta 15 rithöfundar texta sem þeir skrifa út frá listaverkum í safneign Listasafns Íslands. Textarnir eru í mörgum mismunandi stílum og túlka, prjóna við, líkja eftir og/eða greina listaverkin. Götuhorn er því skemmtilegt...

Tolstoj og Þorvarður Árnason 27.05.2025

Við hugum að rússneska rithöfundinum Leo Tolstoj en bók hans Anna Karenína kom út árið 1878 og hefur svo að segja verið í deiglunni allar götur síðan. Þessi heimsbókmennt verður til umræðu hjá okkur í sjomlahorni dagsins. Rebekka Þráinsdóttir kemur við í hljóðstofu og greinir frá verkinu. Þorvarður Árnason heimsækir þáttinn einnig. Hann er líffræðingur, ljósmyndari, kvikmyndagerðarmaður og umhverf...

Kolkrabbinn, dægurlög, Albertine æfingarnar, skrúfur og tappar 26.05.2025

Kolkrabbinn er ný viðburðaröð Ensemble Adapter í samvinnu við Tjarnarbíó. Á Kolkrabbanum má sjá verk sem dansa á mörkum tónlistar, gjörningalistar, dans og leikhúss, einhverskonar tilrauna-tón-leikhús sem er samt ekki ópera. Kolkrabbinn er með alla anga úti og allt í öllu og annað kvöld verður hann í fyrsta sinn á sviði Tjarnarbíós með verk sem heitir Everything Everywhere. Hörpuleikarinn Gunnhild...

Ásgerðarsafn, ný íslensk stórsveitartónlist og arkitektúrpistill #2 22.05.2025

Ásgerður Búadóttir var frumkvöðull í listvefnaði á Íslandi og telst meðal fremstu myndlistarmanna þjóðarinnar. Í síðustu viku opnaði glænýtt safn tileinkað Ásgerði og ævistarfi hennar á veraldarvefnum, á slóðinni asgerdarsafn.is. Umsjónarmaður safnsins og sonur Ásgerðar, Björn Þrándur Björnsson, segir okkur nánar af safninu og vinnunni að baki í þætti dagsins. Samúel Jón Samúelsson segir okkur lík...

Svipmynd - Barbara Hannigan - ensk útgáfa 21.05.2025

Barbara Hannigan er margverðlaunuð sópransöngkona og hljómsveitarstjóri, tónlistarkona í framlínu þess áhugaverðasta og vandaðasta sem gerist í klassíska tónlistarheiminum í dag. Hún er þekkt fyrir hugrekki og frumlegheit í efnisvali og sérlega vandaðar tónleikaefnisskrár, þar sem hún blandar saman gömlu og nýju á músíkalskan og áhrifaríkan hátt. Hannigan er án efa meðal hæfileikaríkustu og eftirs...

Svipmynd - Barbara Hannigan - þýdd útgáfa 21.05.2025

Barbara Hannigan er margverðlaunuð sópransöngkona og hljómsveitarstjóri, tónlistarkona í framlínu þess áhugaverðasta og vandaðasta sem gerist í klassíska tónlistarheiminum í dag. Hún er þekkt fyrir hugrekki og frumlegheit í efnisvali og sérlega vandaðar tónleikaefnisskrár, þar sem hún blandar saman gömlu og nýju á músíkalskan og áhrifaríkan hátt. Hannigan er án efa meðal hæfileikaríkustu og eftirs...

Jakob Bro, merkingarleit og pissuskálin alræmda 20.05.2025

Danski gítarleikarinn Jakob Bro hefur boðað komu sína til landsins. Hann ásamt saxófónleikaranum Óskari Guðjónssyni og bassaleikaranum Skúla Sverrissyni stefnir á tónleikaferð um landið sem mun hefjast á laugardag. En samferða tónleikahaldi munu þeir stunda lagasmíðar. Við mælum okkur mót við Óskar Guðjónsson í þætti dagsins og ræðum Jakob Bro og ferðalagið. Freyja Þórsdóttir flytur pistil þar sem...

DansDagar, Rúmmálsreikningur Solvej Balle, skrif Vals Gunnarssonar 19.05.2025

Dansdagar hefjast í dag og standa yfir fram á laugardagskvöld. Hátíðin er samstarfsverkefni Íslenska dansflokksins og Dansverkstæðisins og markmið hennar er að sögn aðstandenda að bjóða bæði atvinnudönsurum og áhugafólki upp á þjálfun og innsýn inn í ýmsa kima danslistarinnar og vekja þannig athygli á dansinum sem sameiningarafli. Danshöfundurinn og verkefnastjórinn Kara Hergils Valdimarsdóttir lí...

Þórdís Gísladóttir - Maístjarnan, Sköpun í Hallgrímskirkju, Óskar Örn - Arkitektúr og nr 1 15.05.2025

Þórdís Gísladóttir hlaut í gær ljóðaverðlaunin Maístjörnuna fyrir ljóðabókina Aðlögun. Í umsögn dómnefndar segir meðal annars; Í Aðlögun er atferli nútímamannsins skoðað frá ýmsum sjónarhornum, bæði af kímni og alvöru, í fortíð og framtíð, en þó mest í þessari fremur hversdagslegu nútíð sem flest okkar kalla daglegt líf. Vinningshafinn mætir í hljóðstofu og segir okkur frá bókinni. Doktor Óskar Ör...

Svipmynd af Lovísu Ósk Gunnarsdóttur 14.05.2025

Lovísa Ósk Gunnarsdóttir byrjaði snemma að dansa en stefndi þó ekki á atvinnudansarann. Hún bjóst við að þurfa að finna sér annað að gera en sá tími kom hins vegar aldrei. Hún hafði verið fullgildur meðlimur Íslenska dansflokksins í 16 ár þegar hún slasaðist illa og var kippt út af sviðinu um hríð. Um svipað leyti hélt Lovísa Ósk að hún væri að byrja á breytingarskeiðinu og opnaði reynslan augu he...

Guðrún Bergsdóttir á Gerðarsafni, Silence of Reason og stjörnur í Árósum 13.05.2025

Textíllistakonan Guðrún Bergsdóttir skapaði á jaðrinum en ævistarf hennar hefur markað djúp og mikilvæg spor í íslenskri listasögu. Nýverið opnaði yfirlitssýning á verkum hennar í Gerðarsafni og við hittum þar sýningarstjórann, myndlistarkonuna Hildigunni Birgisdóttur í þætti dagsins. Við heyrum líka viðtal við kvikmyndagerðarkonuna Kumjönu Novakovu um kvikmyndina Silence of Reason, sem fjallar um...

Þóra Jónsdóttir skáld, listakonan Auður Sveinsdóttir Laxness og Jötnar hundvísir /rýni 12.05.2025

Eftir Auði Sveinsdóttur Laxness liggur fjöldi textílverka og greinaskrifa um hannyrðir og textíl, en mörg af verkum hennar eru varðveitt á Gljúfrasteini. Safnafræðingurinn Marta Guðrún Jóhannesdóttir segir okkur frá verkum hennar, en hún vann um þau sýningu og útvarpsþætti árið 2014. Soffía Auður Birgisdóttir fjallar um verðlaunabók Ingunnar Ásdísardóttur, Jötnar hundvísir, Norrænar goðsagnir í ný...

Málþing um Vasulka hjónin, tónleikar til heiðurs Kurt Weill og Soft Shell/rýni 08.05.2025

Með áherslu á ferlið, fremur en útkomuna, festu hjónin Steina og Woody Vasulka sig í sessi meðal áhrifamestu vídeólistamanna 20. aldarinnar. Á laugardaginn verður haldið málþing í Norræna húsinu þar sem varpað verður ljósi á varanleg áhrif þeirra brautryðjandi starfs á samtímalistir og tækni. Í ár er 125 ára ártíð og 75 ára dánartíð hins merka þýska tónskálds Kurt Weill. Brynhildur Björnsdóttir bl...

Hraunmyndanir - framlag Íslands á Feneyjatvíæringnum í arkitektúr 07.05.2025

Árið er 2150. Við erum stödd í framtíðarsamfélagi þar sem okkur hefur tekist að beisla hraunrennsli, eins og okkur tókst með gufuaflið á 20. öld. Með framsæknum lausnum nýtum við hraun sem byggingarefni og umbreytum staðbundinni ógn í auðlind. Þetta er í stuttu máli grunnhugmyndin að Hraunmyndunum, framlagi Íslands á Feneyjatvíæringnum í arkitektúr, sem opnar um helgina. Arkitektastofan s.ap arkit...

Andrými Jónu Hlífar, Svarthol Tunglsins og heimspekihugleiðing Freyju Þórsdóttur 06.05.2025

„Ég held að líf okkar sé á mörgum tíðnisviðum. Það er einhver tíðni sem ljóðið tilheyrir þar sem ekkert annað er. Ef maður sinnir ekki þessari tíðni verður lífið fátækara og leiðinlegra," segir Ragnar Helgi Ólafsson, en þeir Dagur Hjartarson hafa síðustu tólf ár staðið fyrir ýmsum gjörningum, viðburðum og útgáfu undir formerkjum Tunglsins. Félgarnir koma við í hljóðstofu í Víðsjá dagsins, segja ok...

Słuchaj podcastu Víðsjá w Replaio

Radio i podcasty w jednej aplikacji - za darmo, bez zakładania konta. Zainstaluj już dziś i nie przegap premiery

Pobierz z Google Play

Replaio nie jest wydawcą podcastów; nazwy audycji, okładki i audio należą do ich autorów i są rozpowszechniane przez publiczne kanały RSS