Gunnar Smári Egilsson
Rauða borðið
Róttæk samfélagsumræða. Við Rauða borðið er rætt um málefni dagsins, hagsmunamál almennings, samfélagið sem við eigum saman og hvernig við getum byggt það upp á grunni réttlætis, mannvirðingar, jöfnuðar og samkenndar.
Koniecznie odwiedź stronę podcastu i wesprzyj twórcę: rauda-bordid.simplecast.com
Autor
Gunnar Smári Egilsson
Kategoria
Strona podcastu
Ostatni odcinek
16 paź 2026
Gdzie słuchać?
Podcasty w aplikacji Replaio Radio Już wkrótcePodcasty trafią do aplikacji już wkrótce. Zainstaluj teraz i jako pierwszy zobacz nowe podejście do podcastów
Odcinki
Rauða borðið 26. ágúst - ESB, samvinna, Múlakaffi, samræðusiðfræði og kennarar 26.08.2026 4:00:31
Miðvikudagur 26. ágúst ESB, samvinna,, Múlakaffi, samræðusiðfræði og kennarar Svandís Svavarsdóttir fyrrum ráðherra, þingmaður, borgarfulltrúi og formaður VG segir Gunnari Smára hvers vegna hún ætlar að segja nei á laugardaginn. Þóroddur Ingvarsson svæfingalæknir á Akureyri ræðir mikilvægi alþjóðlegrar samvinnu í tengslum við björgun sjúklinga og tengir við þjóðaratkvæðagreiðsluna fram undan. Björ...
Rauða borðið 25. ágúst - Fréttir dagsins, heilbrigðismál, sakhæfisaldur og vending 25.08.2026 3:24:38
Þriðjudagur 25. ágúst Fréttir dagsins, heilbrigðismál, sakhæfisaldur og vending Nei eða já í Evrópukosningunni, uppsagnir í borginni, menntamál og fleira verður krufið í fréttaspjalli Björns Þorlákssonar við Jón Trausta Reynisson blaðamann, Lárus Guðmundsson athafnamann og Margréti Tryggvadóttur rithöfund. Brýn þörf er á að auka við hjúkrunarrými og legupláss. En hvaða fólk á að starfa þar? Steinu...
Rauða borðið 24. ágúst - ESB, já eða nei, evra, króna og allt það 24.08.2026 3:18:15
Mánudagur 24. ágúst ESB, já eða nei, evra, króna og allt það Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar útskýrir fyrir Gunnari Smára hvers vegna hún ætlar að segja nei á laugardaginn. Er ESB bandalag hnignunar eða á minni hagvöxtur sér eðlilegar skýringar? Jean-Rémi Chareyre, sjálfstætt starfandi blaðamaður, ræðir við Björn Þorláksson. Ólafur Margeirsson hagfræðingur í Sviss ræðir ESB við Gunnar Sm...
Synir Egils 23. ágúst - Ísland og Evrópusambandið, staða og horfur 23.08.2026 2:10:00
Sunnudagurinn 23. ágúst Synir Egils: Ísland og Evrópusambandið, staða og horfur Við ræðum fréttir og stöðu samfélagsins við Þóru Kristínu Ásgeirsdóttur og þrjá prófessora: Sigrún Ólafsdóttur félagsfræðing og stjórnmálafræðingana Evu H. Önnudóttur og Eiríki Bergmann. Síðan reyna þingmennirnir Guðlaugur Þór Þórðarson og Pawel Bartoszek að sannfæra okkur að segja nei eða já í þjóðaratkvæðagreiðslunni...
Rauða borðið - Helgi-spjall: Óttar Guðmunds 22.08.2026 2:33:11
Laugardagur 22. ágúst Helgi-spjall: Óttar Guðmunds Óttar Guðmundsson geðlæknir kemur í Helgi-spjall og segir okkur frá æsku sinni og uppruna, mótunarárum og því ýtti undir þroska hans og hefti hann.
Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 34 21.08.2026 1:32:47
Föstudagur 21. ágúst Vikuskammtur: Vika 34 Þau koma að Rauða borðinu Hallveig Rúnarsdóttir sópran, Bragi Páll Sigurðsson rithöfundur, Sanna Magdalena Mörtudóttir borgarfulltrúi og Samúel Guðmundsson, smíðanemi, dyravörður og trommari og ræða við Gunnar Smára um fréttir vikunnar sem einkenndust af hækkandi vöxtum og matarverði, Evrópudeilum, kjaradeilum og öðru þjarki en líka sigrum og árangri.
Rauða borðið 20. ágúst - Fréttir dagsins, Evrópumál, bráðnun jökla og menntamál 20.08.2026 3:26:03
Fimmtudagur 20. ágúst Fréttir dagsins, Evrópumál, bráðnun jökla og menntamál Oddný Harðardóttir, fyrrum þingkona, Yngvi Ómar Sigrúnarson formaður Leigjendasamtakanna og Anton Helgi Jónsson skáld ræða Evrópukosninguna fram undan, ofurvexti, Menningarnótt fram undan og fleira. Björn Þorláks stýrir umræðunni. Ragnar Baldursson stjórnmála- og Kínafræðingur ræðir við Gunnar Smára um aðildarumsókn Íslan...
Rauða borðið 19. ágúst - ESB, refur, vextir, áfengissala og Fjalla Eyvindur 19.08.2026 4:01:07
Miðvikudagur 19. ágúst ESB, refur, vextir, áfengissala og Fjalla Eyvindur Gunnar Smári ræðir við Bjarka Þór Grönfeldt stjórnmálasálfræðing um hvað veldur því að einn ætlar að segja já en annar nei út frá sömu greiningum á stöðu mála. Ester Rut Unnsteinsdóttir líffræðingur er sérfræðingur í refastofninum á Íslandi. Að auki fylgist hún með stöðu annarra spendýra, svo sem minks og fugla. Hún ræðir vi...
Rauða borðið 19. ágúst - Hvalir og kvalir, ESB: já, nei og orðræðan og tónlistarkeppnir 18.08.2026 4:35:31
Þriðjudagur 18. ágúst Hvalir og kvalir, ESB: já, nei og orðræðan og tónlistarkeppnir Rósa Líf Darradóttir læknir og hvalavinur ræðir ákvörðun Kristjáns Loftssonar að hætta að reyna að selja Japönum hvalkjöt en stefna þess í stað að framleiðslu á járnpillum. Ásgeir Brynjar Torfason ritstjóri Vísbendingar ræðir við Gunnar Smára kosti og galla aðildar Íslands að ESB. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor h...
Rauða borðið 17. ágúst - ESB, nei eða já, menning, umhverfismál og köngulær 17.08.2026 2:40:25
Mánudagur 17. ágúst ESB, nei eða já, menning, umhverfismál og köngulær Væri umhverfismálum Íslendinga betur borgið ef Íslendingar nytu aðildar að ESB? Þessari spurningu leitast Árni Finnsson hjá Náttúruverndarsamtökunum við að svara. Björn Þorláks ræðir við Árna. Gunnar Smári ræðir við listamanninn Atla Bollason um ESB og Ísland, menningarlega stöðu landsins og álfunnar. Dr. Ingi Agnarsson líffræð...
Synir Egils 16. ágúst - Evrópusambandið, þjóðaratkvæði og klofin þjóð 16.08.2026 2:36:50
Sunnudagurinn 16. ágúst Synir Egils: Evrópusambandið, þjóðaratkvæði og klofin þjóð Við ræðum fréttir vikunnar og stöðu samfélagsins við þau Sonju Ýr Þorbergsdóttur formann BSRB, Kristinn Hrafnsson ritstjóra Wikileaks og Piu Elizabeth Hansson forstöðumann Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands. Síðan koma fulltrúar frá Ungum Evrópusinnum og Ung gegn ESB-aðild og ræða kosti og kalla umsóknar um aðild...
Rauða borðið - Helgi-spjall: Halldóra Björnsdóttir 15.08.2026 1:45:28
Laugardagur 15. ágúst Helgi-spjall: Halldóra Björnsdóttir Halldóra Björnsdóttir íþróttafræðingur var með morgunleikfimi á RÚV í 40 ár. Hún segir hér Ásdísi Olsen frá lífi sínu og störfum.
Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 33 14.08.2026 1:21:03
Föstudagur 14. ágúst Vikuskammtur: Vika 33 Þau Þuríður H. Aradóttir Braun verkefnastjóri, Magga Stína tónlistarkona, Valgarður Guðjónsson söngvari Fræbblana og Þórunn Lárusdóttir leikkona ræða fréttir vikunnar við Gunnar Smára, fréttir sem einkenndust af karpi, myrkva, deilum, óvissu og gleði.
Rauða borðið 13. ágúst - Reynsluboltar, vinstri ESB, heilun í stríði, húsnæðismál og landsbyggðin 13.08.2026 4:26:01
Fimmtudagur 13. ágúst Reynsluboltar, vinstri ESB, heilun í stríði, húsnæðismál og landsbyggðin Erna Bjarnadóttir hagfræðingur, Björn Leví Gunnarsson fyrrum þingmaður og Björg Eva Erlendsdóttir, Landvernd, ræða fréttir vikunnar. Sólmyrkvinn og ESB-umræðan verða meðal umfjöllunarefna, Björn Þorláks stýrir þættinum. Stefán Pálsson sagnfræðingur og varaborgarfulltrúi Vinstrisins útskýrir sína afstöðu...
Rauða borðið 12. ágúst - ESB plús og mínus, geðheilsa og Megas 12.08.2026 3:24:43
Miðvikudagur 12. ágúst ESB plús og mínus, geðheilsa og Megas Gunnar Smári ræðir við Ögmund Jónasson fyrrum ráðherra og formann BSRB um þjóðaratkvæðagreiðslu um umsókn Íslands í ESB. Ögmundi list ekki á blikuna. Þorvaldur Gylfason hagfræðingur ræðir kosti aðildar að ESB, íslensku krónuna fjármálaspillingu og fleira í samtali við Björn Þorláks. Ólafur Ævarsson geðlæknir og Björn Þorláksson kryfja sa...
Rauða borðið 11. ágúst - Skólabyrjun, ESB, menningarbrunnur og sólmyrkvahátíð 11.08.2026 2:38:00
Þriðjudagur 11. ágúst Skólabyrjun, ESB, menningarbrunnur og sólmyrkvahátíð Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, var gestur Rauða borðsins. Nú styttist óðum í að skólarnir hefji störf eftir. Hvernig ætli gangi að ráða kennara, hvað með námsgögnin og hvað með einkunnir, með tölustöfum eða bókstöfum. Gunnar Smári ræðir við Gauta B. Eggertsson prófessor í hagfræði við Brown-háskólann...
Rauða borðið - 10. ágúst - ESB, hinsegin öldruð, sólmyrkvi og orkumál 10.08.2026 3:30:32
Mánudagur 10. ágúst ESB, hinsegin öldruð, sólmyrkvi og orkumál Guðmundur Hálfdanarson sagnfræðingur ræðir fullveldishugtakið og átökin vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar í lok mánaðarins á sögulegum nótum. Björn Þorláks ræðir við hann. Björgvin Huldar Soffíuson hjúkrunarfræðingur ræðir hinsegin miðaða öldrunarþjónustu. Andrea Jónsdóttir, plötusnúður og dagskrárgerðarmaður á Rás 2, tekur einnig þátt í...
Synir Egils 9. ágúst - Evrópusambandið, kosningar, kjarasamningar og fjölmiðlar 09.08.2026 2:33:22
Sunnudagurinn 9. ágúst Synir Egils: Evrópusambandið, kosningar, kjarasamningar og fjölmiðlar Synir Egils, þeir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári, fá gesti og ræða stöðu mála og stjórnmálin. Í fyrri hluta þáttarins koma þau Bjarni Benediktsson framkvæmdastjóri SA, Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra og Halla Gunnarsdóttir formaður VR og ræða þjóðaratkvæðagreiðsluna um ESB, klofna þjóð og fallna k...
Rauða borðið 30. júní - Neyðarréttur, demókratar, öryrkjar, mæðgur og bragðlaukar 30.06.2026 4:37:57
Þriðjudagur 30. júní Neyðarréttur, demókratar, öryrkjar, mæðgur og bragðlaukar Tekist er á um það fyrir dómstólum þessa dagana hvort akstur undir áhrifum megi réttlæta með neyðarrétti. Gísli Tryggvason lögmaður ræðir við Björn Þorláks. Gunnar Smári ræðir við Svein Mána Jóhannesson doktor í sagnfræði um bandaríska Demókrataflokkinn, ólíkar deildir hans, stefnu og markmið í aðdraganda kosninganna í...
Rauða borðið 29. júní - Frost, evran, Suður-Kínahaf og besta útgáfan af okkur sjálfum 29.06.2026 4:55:51
Mánudagur 29. júní Frost, evran, Suður-Kínahaf og besta útgáfan af okkur sjálfum Páll Heiðar Pálsson fasteignasali ræðir stöðuna á fasteignamarkaði í samtali við Björn Þorláks og hvernig sótt er að nafni hans fasteignasölu. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor ræðir um Evrópu við Gunnar Smára, um Úkraínu, Evrópusambandið og evruna, veltir fyrir hvort rekja megi fólksflótta frá ríkjum Austur-Evrópu til...
Rauða borðið - Helgi-spjall: Örnólfur Árna 27.06.2026 1:41:28
Laugardagur 27. júní Helgi-spjall: Örnólfur Árna Örnólfur Árnason segir okkur frá lífshlaupi sínu, blaðamennsku, ferðamennsku, bókum, leikritum, óperum og listahátíðum, frá gildi þess að ferðast og leyfa heiminum að breytast sér og samfélagi sem mætti breystast til betra vegar.
Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 26 26.06.2026 1:46:14
Föstudagur 26. júní Vikuskammtur: Vika 26 Ásdís Olsen sér um Vikuskammt að þessu sinni með gestum sínum, þeim Árelíu Eydís Guðmundsdóttur dósent, rithöfundi og fráfarandi borgarfulltrúa, Einari Skúlasyni þjóðfræðingi og göngugarpi, Halldóri Baldurssyni myndlistarmanni og skopteiknara, og Stefáni Ingvari Vigfússyni sviðshöfundi og uppistandara.
Rauða borðið 25. júní - Dýravernd, framhaldsskólinn, ofbeldi, gervigreind og bekkurinn 25.06.2026 4:38:11
Fimmtudagur 25. júní Dýravernd, framhaldsskólinn, ofbeldi, gervigreind og bekkurinn Tófan, hvalurinn og selurinn eru hluti af verðmætum sem Íslendingum ber að vernda. Þetta segir Rósa Líf Darradótir læknir sem segir að manninn hafi borið af leið eins og lýsi sér í svokallaðri “”mannmiðjuvillu”. Björn Þorláks ræðir við hana. Helga Þórey Önnudóttir Jónsdóttir og María Hjálmtýsdóttir, framhaldsskólak...
Rauða borðið 24. júní - Trump, framhaldsskólinn, átök, heimur að farast og kórsöngur 24.06.2026 4:35:43
Miðvikudagur 24. júní Trump, framhaldsskólinn, átök, heimur að farast og kórsöngur Sveinn Máni Jóhannesson sagnfræðingur, Þorsteinn Þorgeirsson hagfræðingur og Ólafur Páll Jónsson heimspekingur ræða við Gunnar Smára Egilsson um tíma Trump. Sigurjón Magnús ræðir við Guðmund Hálfdánarson um átökin innanlands í samtímanum. Guðjón Hreinn Hauksson, formaður Félags framhaldsskólakennara ,ræðir við Gunna...
Rauða borðið 23. júní - Þjóðaratkvæðisgreiðslan, lagaleg álitamál, myndlæsi og heiður 23.06.2026 3:45:26
Þriðjudagur 23. júní Þjóðaratkvæðisgreiðslan, lagaleg álitamál, myndlæsi og heiður Óðinn Freyr Baldursson formaður Ungra Evrópusinna og Þórhildur Pálsdóttir stjórnarkona í Ungum gegn ESB útskýra fyrir Gunnari Smára hvers vegna þjóðaratkvæðagreiðslan í lok ágúst skiptir máli. Gísli Tryggvason lögmaður fer yfir lagaleg álitamál í fréttum líðandi stundar. Utanvegaakstur, hvalveiðar, réttur fólks til...
Podobne podcasty
Replaio nie jest wydawcą podcastów; nazwy audycji, okładki i audio należą do ich autorów i są rozpowszechniane przez publiczne kanały RSS