Poppsálin
Poppsálin
Poppsálin er poppmenningarlegt hlaðvarp með sálfræðilegu ívafi. Fjallað er um ýmis sálfræðileg málefni sem tengjast poppmenningu sem og áhugaverðar rannsóknir og pælingar innan sálfræðinnar.
Koniecznie odwiedź stronę podcastu i wesprzyj twórcę: www.facebook.com
Gdzie słuchać?
Podcasty w aplikacji Replaio Radio Już wkrótcePodcasty trafią do aplikacji już wkrótce. Zainstaluj teraz i jako pierwszy zobacz nowe podejście do podcastów
Odcinki
Rofinn persónuleiki: Geðröskun eða athyglissýki? 16.09.2021 1:00:30
Í þessum þætti verður fjallað um nokkuð sérkennilega en sjaldgæfa geðröskun sem nefnist Rofinn persónuleiki. Fjallað verður um helstu einkenni og orsakir. Tengsl við áföll og misnotkun úr æsku verða gerð skil. Rætt verður um þá staðreynd að röskunin hefur verið mjög umdeild og margir telja sálfræðinga og geðlækna hreinleg geta ýtt undir þróun röskunarinnar með rangri meðferð. Einnig verða dæmi úr...
Demi Lovato: Dansað við dauðann 06.09.2021 40:28
Í þessum þætti er fjallað um nokkur viðkvæm málefni. Sagt er frá reynslu og erfiðleikum söngsnillingsins Demi Lovato. Rætt er um einelti, áföll, átraskanir, nauðganir, vímuefnaneyslu og nóttina þar sem Demi fannst nær dauða en lífi eftir að hafa tekið inn of stóran skammt af lyfjum. Hægt er að styrkja Poppsálina með kaffibolla hér: https://www.buymeacoffee.com/poppsalin Endilega followið og læk...
Covid-19: Mótmælendur bólusetninga, samsæriskenningar og Dunning-Kruger áhrifin 31.08.2021 51:16
Í þessum þætti má heyra almennt rant og pælingar um mótmælendur bólusetninga, Covid - 19 samsæriskenningar og tengsl við fyrirbæri innan sálfræðinnar sem nefnist Dunning-Kruger áhrif. Þessi þáttur er með þeim verri. Sorry. En hljóðgæðin ágæt. Það er eitthvað ;) Hægt er að styrkja Poppsálina með því að kaupa kaffibolla hér: Poppsalin (buymeacoffee.com)
Simone Biles: Fimleikadrottning í hættulegum snúningi 27.08.2021 45:50
Í þessum þætti verður fjallað um fimleikadrottninguna Simone Biles. Farið verður í áföll í æsku, erfiðleikana á Ólympíuleikunum í sumar, hættulega snúninga eða The Twisties, andlega heilsu og kynferðislega misnotkun af hálfu landsliðs læknisins Larry Nassar
Vísindakirkjan - Tom Cruise, geimverur og útskúfun 20.08.2021 1:05:31
Í þessum þætti er farið í hugmyndir Vísindakirkjunnar. Skoðað verður hvernig kirkjan lokkar til sín nýja meðlimi og nýtir fræga einstaklinga til þess. Tengsl kirkjunnar við fræga verður rædd og sérstaklega staða Tom Cruise. Útskúfun, stór sérkennileg heimsmynd, fjárkúgun, lygalegir lygamælar ofl ofl
Ross og Rachel - Ást í raunveruleikanum? 12.08.2021 29:26
Í þessum þætti er fjallað um ástarsögu Ross og Rachel úr Friends. Farið verður í þær sögusagnir sem hafa verið á sveimi um að leikararnir Jennifer Aniston og David Schwimmer sem léku Rachel og Ross séu að stinga saman nefjum. Sálfræðin bak við það að leikarar séu líklegri en aðrar stéttir til að hefja ástarsambönd við samstarfsfélaga sína verður skoðuð sem og líffræðin bak við nálægð, nánd og kos...
Leonardo Dicaprio og tyggjóklessu áráttan (OCD) 10.08.2021 1:07:49
Í þessum fyrsta þætti af annarri seríu Poppsálarinnar er farið ansi ítarlega í áráttu og þráhyggju eða OCD, einkenni, reynslusögur og orsakir. Skoðað verður tengslin við söfnunaráráttu eða hoarding. Einnig verður reynsla leikarans Leonardo Dicaprio af OCD reifuð og rætt um leik hans í myndinni The Aviator þar sem hann leyfði röskuninni að magnast upp til að geta leikið hlutverkið betur.
Frægt fólk - Dýrlingar eða ómeðvitaðar hugsanaskekkjur? 08.07.2021 38:08
Í þessum lokaþætti fyrstu seríu er fjallað um aðdáun okkar á frægu fólki. Elva segir frá kynnum sínum af fyrrverandi kærustu Kurt Cobain. Einnig er fjallað um það af hverju við höfum áhuga á frægu fólki og af hverju unglingsárin eru sérstök í því samhengi? Hvað er Halo effect eða geislabaugsáhrif? Hvað eru frumhrif og kunnugleikaáhrif? Af hverju eru hjón oft lík? Af hverju kaupum við rándýru s...
Björk og ástsjúki eltihrellirinn 08.07.2021 43:16
Í þessum þætti er fjallað um söngkonuna Björk og eltihrellinn Lopez, sem var með þráhyggju fyrir henni. Einnig er farið í ýmsa flokka stalkera eða eltihrella, einkenni, hegðun, áhættuþætti og normalíseringu ástar-eltihrella-hegðunar. Mjög áhugavert allt saman :) Hægt er að styrkja Poppsálina með einum kaffibolla: https://www.buymeacoffee.com/poppsalin
Undarlegt hvarf Richey úr Manic Street Preachers 01.07.2021 33:16
Í þessum þætti er fjallað um undarlegt mannshvarf. Þann 1. febrúar 1995 hvar gítarleikari Manic Street Preachers, Richey Edwards. Margt bendir til þess að hann hafi tekið sitt eigið líf en sérkennileg atburðarás bendir þó einnig til þess að hann hafi mögulega horfið sjálfviljugur. Í þættinum verður fjallað um sjálfsskaða og sálfræðilegar hugmyndir um það. Hægt er að styrkja Poppsálina með rjúka...
Britney Spears (5. þáttur) - I'm a Slave 4 U 25.06.2021 52:23
Farið er í nýjustu vendingar í máli Britney Spears en hún tjáði sig loksins um frelsissviptinguna sem hún er búin að lifa við í 13 ár. Hvað sagði hún í dómsal? Út á hvað gengur #FreeBritney hreyfingin? Hvernig virkar þetta kerfi á Íslandi og hver er staðan hér á landi þegar kemur að frelsissviptingum?
Munchausen by proxy: Sögur, einkenni og orsakir 22.06.2021 52:50
Í þessum þætti af Poppsálinni verður farið í sérkennilega uppgerðarröskun sem nefnist Munchausen by proxy. Einnig verður farið almennt í Munchausen heilkenni, einkenni og mögulegar orsakir. Rætt verður um vöggudauða og tengingu þess röskunina. Farið verður í nokkur þekkt Munchausen by proxy mál eins og Gypsy Rose og rapparann Eminem.
Ástar - "költið" 11.06.2021 39:37
Í þessum þætti er farið í sérkennilegan hóp sem nefnist Love has won. Leiðtogi hópsins Amy Carlson fannst látin fyrir stuttu síðan. Hún var vafin inn líkt og múmía, með ljósaseríu utan um sig og þakin glimmeri. Amy taldi sig vera margra milljarða ára gömul og hafa verið Marilyn Monroe í fyrra lífi. Einnig taldi hún að leikarinn Robin Williams heitinn væri hennar helsti samstarfsmaður. Stórskrýti...
Friends - Welcome to the real world! It sucks. You're gonna love it! 03.06.2021 46:08
Welcome to the real world! It sucks. You're gonna love it! Í þessum þætti mætir Sólrún Ósk Lárusdóttir sálfræðingur og snillingur í Poppsálina og ræðir sjónvarpsþættina Friends. Elva Björk þáttastjórnandi og Sólrún ræða um vinsældir þáttanna, sálfræðilegar hugmyndir um vinsældirnar og af hverju fólk í dag horfir enn. Einnig ræða þær um ólíku karakterana í þættinum og hvaða karakter var "...
Latifa - Týnda prinsessan frá Dubai 28.05.2021 46:14
Í þessum þætti er farið í stór sérkennilegt mál sem flótti Latifu prinsessu frá Dubaí er. Farið verður yfir sögu Latifu, stöðuna í dag og þær óskýru myndir sem hafa birst af henni sem einhvers konar sönnun fyrir því að hún sé á lífi. Hver er Latifa? Hver er faðir hennar, hvernig og af hverju er hún að flýja?
Kurt Cobain - andlát og samsæriskenningar 19.05.2021 38:33
Í þessum þætti er farið í mjög viðkvæmt mál. Fjallað er um andlát Kurt Cobain, söngvara Nirvana.. Farið er í ýmsar staðreyndir og kenningar um dauða hans, ástæður, aðdragandann og mögulegar gerendur. Í þessari viku fylgir auka þáttur með þessum þætti. Í þeim þætti spjallar Elva við Heiðar, söngvara Botnleðju um Grunge tónlist og áhrif Nirvana. Fjallað er um sjálfsvíg og hvet ég þá sem finna fyr...
Heiðar Örn - Grunge áhrifin og Botnleðja 19.05.2021 38:16
Í þessum þætti fær Elva til sín meistarann Heiðar Örn söngvara Botnleðju. Þau ræða um Grunge tónlistarstefnuna, Nirvana og Kurt Cobain og áhrif þeirrar hljómsveitar á heila kynslóð. Heiðar segir frá þeim Botnleðju gaurum og ævintýrum þeirra .
Bríet - Frosið hjarta verður hlýtt 12.05.2021 41:38
Í þessum þætti af Poppsálinni ræðir Elva við yndislegu söngkonuna Bríeti. Ástarsorgin, uppgjörið, textarnir og tónlistin, útlitspælingar og álit annarra. Einnig er farið í það af hverju við hlustum á sorglega tónlist þegar okkur líður illa. Af hverju veljum við að hlusta á sorgleg ástarlög þegar við erum í ástarsorg? Hljóðgæðin eru ekki 100% þar sem þátturinn var tekinn upp í gegnum Zoom en aul...
Kurt Cobain og sjálfsvígssmit 05.05.2021 45:23
Í þessum þætti er farið í mjög viðkvæmt mál. Fjallað er um ævi Kurt Cobain, söngvara Nirvana. Rætt er um andlát hans, dagana fyrir það og þau áhrif sem það hafði á samfélag hans. Farið verður í smitáhrif sjálfsvíga eða Copycat suicide og í rannsókn á því hvernig dauði Kurt Cobains hafi áhrif á samfélagið í Seattle. Fjallað er um sjálfsvíg og hvet ég þá sem finna fyrir vanlíðan og upplifa sjálfvíg...
Af hverju "elskum" við morð? 23.04.2021 42:34
Í þessum þætti mætir Margrét Valdimarsdóttir doktor í afbrotafræði og lektor í lögreglufræði við Háskólann á Akureyri og spjallar um af hverju við höfum svona mikinn áhuga á morðum og öðrum glæpum. Af hverju eru hlaðvörp um glæpi svona vinsæl sem og þættir um raðmorðingja? Einnig ræða þær Margrét og Elva um þá hugmynd að konur sæki frekar í svona efni og sæki jafnvel í að kynnast morðingjum persón...
Amanda Bynes: Frelsissvipt barnastjarna 16.04.2021 50:39
Í þessum þætti af Poppsálinni er farið í mál Amöndu Bynes sem var vinsæl barnastjarna sem lék í mörgum barna og unglingamyndum og þáttum. Fjallað er um möguleg veikindi hennar, langvarandi frelsissviptinguna og óhugnanlegar kenningar um aðal framleiðanda barnaþáttanna sem hún lék í, Dan Schneider. Hægt er að styrkja Poppsálina með því að splæsa í einn kaffibolla eða svo: https://www.buymeacoffee....
Britney Spears (4. þáttur) - Hvað er að frétta elskan? 09.04.2021 38:44
Í þessum fjórða þætti um hina yndislegu Britney Spears mæta Britney sérfræðingarnir Daniel Oliver og Fjóla Heiðdal í þáttinn og fara yfir stöðu mála. Þau spjalla um sérkennilega hegðun hennar á Instagram undanfarið, sjálfræðissviptinguna, yfirlýsingu samfélagsmiðla konu sem starfar með Britney og rose eða red/pink verkefnin hennar Britney.
Meint andlát Avril Lavigne 31.03.2021 43:02
Í þessum þætti verður farið í sérkennilegt mál sem tengist popp pönk söngkonunni Avril Lavigne. Fyrir nokkrum árum fóru sögur á kreik um andlát hennar og telja margir að hún hafi látist árið 2003 og að leikkona að nafni Melissa Vandella hafi upp frá því leikið Avril Lavigne. Þetta er stór skrýtið mál. Í þættinum verður líka farið í samsæriskenningar og afhverju það getur verið þægilegt að trúa á...
Michael Jackson - Líkamsskynjunarröskun, lýtaaðgerðir og andlát 25.03.2021 46:56
Í þessum öðrum þætti um Michael Jackson er fjallað um útlitsþráhyggju hans, útlits áhyggjur og líkamsskynjunarröskun eða Body dysmorphic disorder. Einnig er farið í aðdragandann að andláti hans og þátt einkalæknis í dauða Jackson. Fjallað er um það sem hefur áhrif á þróun líkamsskynjunarröskunar og leiðir til að bæta líðan. Minni á kaffibolla síðuna þar sem hægt er að styrkja Poppsálina um kaffi...
Michael Jackson og Pétur Pan heilkennið 17.03.2021 39:01
Í þessum fyrsta þætti um Michael Jackson verður fókusinn á sérkennilega og barnalega hegðun hans og tengsl við hegðunarmynstur eða röskun sem nefnist Pétur Pan heilkennið. Í næsta þætti verður farið í fleiri sálfræðileg fyrirbæri sem tengja má við söngvarann. Ég minni á að hægt er að styrkja Poppsálina með einum kaffibolla ;) https://www.buymeacoffee.com/poppsalin
Podobne podcasty
Replaio nie jest wydawcą podcastów; nazwy audycji, okładki i audio należą do ich autorów i są rozpowszechniane przez publiczne kanały RSS