Kvennakastið, handbolti, handball, Olísdeildin, Grill 66 deildin, kvenna, kast

Kvennakastið

Sports IS ↓ Odcinki: 37

Handboltaumfjöllun um Olís- og Grilldeild kvenna. Handbolti

Koniecznie odwiedź stronę podcastu i wesprzyj twórcę: www.facebook.com

Autor

Kvennakastið, handbolti, handball, Olísdeildin, Grill 66 deildin, kvenna, kast

Kategoria

Sports

Strona podcastu

www.facebook.com

Ostatni odcinek

19 maj 2024

Gdzie słuchać?

Podcasty w aplikacji Replaio Radio Już wkrótce

Podcasty trafią do aplikacji już wkrótce. Zainstaluj teraz i jako pierwszy zobacz nowe podejście do podcastów

Pobierz z Google Play Zainstaluj za darmo Android prawie 10 mln pobrań · ocena 4,8 iOS niedługo

Odcinki

Valur íslandsmeistari og slúðurpakki 19.05.2024

Sólveig Lára þjálfari ÍR var gestur hjá Sillu og Jóa í dag. Farið var yfir úrslitarimmuna þar sem að Valur varð íslandsmeistari. Þau ræddu helsta slúður fyrir næsta tímabil. Jói fór aðeins yfir hvaða verkefni yngri flokka landsliðin okkar eru að brasa í sumar.

Valur með frumkvæðið og Gróttan uppí Olís !! 11.05.2024

Jóhann Ingi var með Árna Stefán og Silllu í þættinum og var farið vel yfir fyrsta leik Vals og Hauka í úrslitum. Einnig var oddaleikur Gróttu og Aftureldingar krufinn. Allt það helsta úr slúðurheiminum og Bónusbomban sprakk með látum.

Valur og Haukar mætast í úrslitum 02.05.2024

Valur og Haukar mætast í úrslitum eftir að hafa sópað ÍBV og Fram út 3-0. Silla og Jói fóru yfir undanúrslitin og ræddu umspilið hjá UMFA og Gróttu. Jói kom með "risa skúbb" í þættinum.

ÍBV og Haukar mæta á flugi inn í undanúrslitin ! Grótta eða UMFA í Olís ! 16.04.2024

Jóhann Ingi og Silla fóru vel og vandlega yfir leikina í 6 liða úrslitum í Olísdeild kvenna. Einnig fóru þau yfir umspilið í Grill66 deildinni en þar er búið að stilla upp í úrslitaeinvígi milli UMFA og Gróttu. Einnig var dregið í búningaleik.

Islenska landsliðið komið á EM 2024 08.04.2024

Þórey Anna Ásgeirsdóttir var gestur Sillu að þessu sinni. Farið var yfir frábært gengi íslenska landsliðið sem tryggði sig á EM 2024 með glæsilegum sigri á Færeyjum. Úrslitakeppnin er handan við hornið og fékk Silla Þóreyju til að spá aðeins í leikina sem framundan eru.

Lið ársins í Olís og Grilli ! Spennandi úrslitakeppni framundan ! 25.03.2024

Jóhann Ingi fékk til sín Árna Stefán Guðjónsson og fóru þeir yfir lokaumferðirnar í Olís og Grill66 deildunum. Lið ársins voru valin og spáð var í spilin fyrir umspil og úrslitakeppni. Leikmaður 21.umferðar var valin. Landsleikir frammundan ræddir.

Mikilvægt að klára deildina á góðum leik segir Hrafnhildur Ósk Skúladóttir 17.03.2024

Hrafnhildur mætti í settið til Sillu og farið varið yfir 20.umferðina. Mikilvægt að spila vel í síðasta leiknum því það gefi grunninn að góðri úrslitakeppni eru skilaboðin frá Hröbbu til liðanna. Leikmaður umferðarinnar tilkynntur og farið var yfir handboltaferilinn hennar Hröbbu.

Valur Powerade-bikarmeistari og hörku endasprettur frammundan í Olís og Grill66 11.03.2024

Jóhann Ingi fékk til sín markverði Vals Hafdísi Renötudóttur og Söru Sif Helgadóttur í Kvennakastið að þessu sinni. Það var því sannkallað markmannsþema í þættinum. Farið var yfir bikarvikuna og framhaldið i Olís og Grill66 deildum ásamt því að markverðirnir fóru yfir erfiðustu skotmenn deildarinnar.

Stemming, leikgleði og samstaða er það sem þarf til að komast á stórmót 04.03.2024

Jóhanna Þóra Guðbjörnsdóttir íþróttafræðingur hefur mikinn áhuga á sögu íslenska kvenna landsliðsins. Hún skrifaði áhugaverða ritgerð í náminu um þessi mál. Silla fékk hana í spjall til að heyra aðeins út á hvað þetta gekk. Seinni parturinn af þættinum kom Kristín Þórðardóttir sem er formaður mótanefndar HSÍ og fóru þær yfir landsleikina á móti Svíþjóð og margt fleira.

Valur deildarmeistari og Selfoss búnar að tryggja sig í Olís á næsta ári 26.02.2024

Anna Úrsula og Íris Björk voru gestir Sillu í dag. Valsara eru deildarmeistarar og Selfoss liðið er búið að tryggja sig í Olís á næsta ári. Anna og Íris fóru á persónulegu nóturnar þar sem að mikið var hlegið og ferilinn gerður upp.

Valskonur með 9 fingur á titlinum og úrslitaleikur i Kórnum! 19.02.2024

Jens Gunnarsson þjálfari Berserkja í Grillinu kom í heimsókn til Jóhanns Inga. Rýndu þeir í undanúrslitaleikina í Poweradebikarnum, fóru yfir 18.umferðina í Olís og þá 16. í Grill 66 deildinni. Leikmaður umferðarinnar valin og persónulegu nóturnar að sjálfsögðu á sínum stað.

Selfyssingar stórhuga í kvennaboltanum 12.02.2024

Eyþór Lárusson mætti í spjall til Jóa. Farið var yfir 8 liða úrslit í Poweradebikarnum og 17. umferðinni í Olís deildinni. Leikmaður umferðarinnar var valinn og farið yfir 15. umferð í Grillinu.

Einar Jónsson gerði upp 16 umferðina ásamt því spá í spilin fyrir bikarkeppnina 05.02.2024

Stjarnan burstaði UMFA um helgina og meistararnir voru heppnir fyrir norðan. Einar Jónsson þjálfari Fram mætti í spjall til Sillu og þau gerðu upp 16.umferðina ásamt því að spá hvaða lið fara í höllina í bikarkeppninni.

Hatrömm fallbarátta framundan í Olís! 29.01.2024

Í þessum 25.þætti Kvennakastsins fékk Jóhann Ingi til sín Jón Brynjar Björnsson þjálfara Víkings í Grillinu. Farið var var yfir leikina í 15.umferð Olísdeildar og leikmaður umferðarinnar valin í boði Vellir Sportbar. Einnig var farið yfir 13.umferðina í Grill 66 deildinni. Þá setti Jón Brynjar upp athyglisverðan 5.manna lista mikilvægustu leikmanna Olísdeildar.

Mikill efniviður í kvennaboltanum. 5 manna listi Binga og draumalið Dags úr Grillinu. 22.01.2024

Þeir Dagur Snær Steingrímsson og Björn Ingi Jónsson kíktu á Jóhann Inga í þessum 23.þætti vetrarins. Fókusinn settur á Grillið og ungal leikmenn. Farið yfir 14.umferðina í Olísdeildinni og þá 12. í Grillinu. Leikmaður umferðarinnar valin. Draumalið Dags og 5 manna listi Binga.

Ágúst og Stefán þjálfara mættu í spjall 18.01.2024

Ágúst Jóhannsson og Stefán Arnarson mættu í spjall eftir toppslaginní 13.umferðinni. Farið var risumferðina og leikmaður umferðarinnar útnefndur.

IR - ingar ætla sér stóra hluti 15.01.2024

Karen Tinna og Sigrún Ása komu í heimsókn og fóru yfir 12. umferðina með Jóa. Það var einnig farið yfir Grillið og allt það helsta. Leikmaður 12. umferðarinnar valinn.

Fram, ÍBV, Stjarna og Valur byrja árið vel 08.01.2024

Eva Björk Davíðsdóttir og Helena Rut Örvarsdóttir mættu í Kvennakastið og farið var yfir 11. umferðina. Eva og Helena hafa verið vinkonur í mörg ár og gaman að heyra hvernig þær enda saman í Stjörnunni.

Hvað gerist á nýju ári í Olísdeildinni 03.01.2024

Olísdeildin: Nýtt ár, ný tækifæri. Jói og Silla fengu Guðmund Helga Pálsson þjálfara Aftureldingar til að spá í framhaldið í Olísdeildinni. Hvernig koma liðin stemmd fyrir seinni hlutann. Grill66 deildin hefst, hvaða lið eru að fara að berjast um sæti í Olísdeildinni ?

Forsetabikarinn heim 14.12.2023

Rakel Dögg Bragadóttir mætti til Jóa og Sillu og leikur íslenska liðsins var krufinn til mergjar. Þau ræddu bæði Posten Cup, riðilinn og forsetabikarinn. Fóru yfir hvað var gott og hvað er hægt að vinna áfram með. Dregið var í búningaleik: Heppinn vinningshafi fékk búning frá Díönu Dögg Magnúsdóttir

Lokaþáttur frá Stavanger og jafntefli í síðasta leik 04.12.2023

Jói og Silla fórum yfir riðilinn beint eftir lokaleikinn. Viðtöl við Elín Rósu og Díönu sem voru eðlilega mjög svekktar eftir jafntefli á móti Angólu. Ágúst Jóhannsson aðstoðar þjálfari fór yfir leikinn ásamt frammistöðuna í þessum riðli. Liðið er á leiðinni í Forseta bikarinn.

Bónusþáttur: Bakvið tjöldin 04.12.2023

Sérsveitin, sjúkra- og styrktarþjálfarar koma í viðtal til Sillu og Jóa. Þau segja okkur frá ólíkum bakgrunni og nálgun en eiga það öll sameiginlegt að vilja gera allt fyrir íslenska kvennlandsliðið. Það eru fullt af allskonar vinnu í kringum landsliðið til að stelpurnar okkar geti einbeitt sér að ná hámarks árangri á vellinum.

Elín Jóna frábær gegn sterkum Frökkum. Úrslitaleikur í riðli framundan 03.12.2023

Ásdís Þóra og Hrafnhildur Hanna komu í létt HM spjall í Kvennakstið. Farið var vel yfir sviðið og að sjálfsögðu farið á persónlegu nóturnar. Leikurinn gegn Frökkum skoðaður og spáð í spilinn fyrir úrslitaleikinn gegn Angóla í riðlinum Viðtöl við Berglindi, Söndru, Þóreyju Rósu og Hlyn markvarðaþjálfara.

Perla spilaði sinn besta leik í fyrsta tapi á HM 01.12.2023

Gestir hjá Jóa og Sillu voru ekki verri kantinum en þau fengu eyjahjónin Erling Richardson og Vigdísi Sigurðardóttur. Þau eru foreldra landsliðkonunannar Söndru Erlingsdóttir. Farið var yfir fyrsta leik á Heimsmeistaramótinu sem var grátlegt tap á móti Slóveníu. Stiklað var á stóru yfir glæsileg handboltaferil þeirra hjóna. Viðtöl við landsliðkonurnar Elínu Jónu, Hildigunni, Katrínu Tinnu og Perlu...

Kvennakastið: Þáttur 13- Elín Klara var gestur í þessum frábæra þætti rétt áður en heimsmeistaramótið byrjar 28.11.2023

Það vour blendnar tilfinningar þegar Elín Klara mætti sem gestur í Kvennakastið til Jóa og Sillu. Þau fóru yfir æfingamótið sem íslenska kvennalandsliðið var að klára, óvæntu meiðslin rétt fyrir brottför og reyndu að spá í spilin fyrir riðlakeppnina.

Słuchaj podcastu Kvennakastið w Replaio

Radio i podcasty w jednej aplikacji - za darmo, bez zakładania konta. Zainstaluj już dziś i nie przegap premiery

Pobierz z Google Play

Replaio nie jest wydawcą podcastów; nazwy audycji, okładki i audio należą do ich autorów i są rozpowszechniane przez publiczne kanały RSS