Ritstjórn Morgunblaðsins

Hringferðin

Society IS ↓ Odcinki: 92

Í tilefni 110 ára afmælis Morgunblaðsins leggjum við land undir fót og ræðum við 110 Íslendingahringinn um landið. Ferðin stendur yfir í heilt ár og í henni verður jafnt og þétt dregin upp spennandi mynd af lífinu í landinu frá sjónarhóli heimamanna á hverjum stað, með sögum af fólki, því sem helst er að frétta og hvar tækifærin liggja til þess að efla samfélagið til framtíðar. Ferðin stendur yfir í heilt ár og mun jafnt og þétt draga upp spennandi mynd af því sem helst er að frétta og hvar tækifærin liggja.

Koniecznie odwiedź stronę podcastu i wesprzyj twórcę: sites.libsyn.com

Autor

Ritstjórn Morgunblaðsins

Kategoria

Society

Strona podcastu

sites.libsyn.com

Ostatni odcinek

15 maj 2026

Gdzie słuchać?

Podcasty w aplikacji Replaio Radio Już wkrótce

Podcasty trafią do aplikacji już wkrótce. Zainstaluj teraz i jako pierwszy zobacz nowe podejście do podcastów

Pobierz z Google Play Zainstaluj za darmo Android 5 mln+ pobrań · ocena 4,8 iOS niedługo

Odcinki

#17 Hnappavellir - Fosshótel Glacier Lagoon 09.03.2024

Mitt í Öræfunum, kippkorn frá Jökulsárlóni, er lúxushótel ekki langt ofan við þjóðveginn, óvenjuleg bygging en þó látlaus í þessu stórbrotna umhverfi. Hrafnhildur E. Karlsdóttir hótelstjóri var tekin tali um lífið undir Öræfajökli.

#16 Öræfi - Fjallsárlón dregur hundruð þúsunda til sín 02.03.2024

Steinþór Arnarson er alinn upp í Öræfum. Þegar hann sá nýtt lón myndast undir Fjallsárjökli fékk hann viðskiptahugmynd og í meira en áratug hefur hann siglt með ferðalanga að jökulsporðinum og breytt sýn þeirra á íslenska náttúru.

#15 Hornafjörður - Mikið líf í atvinnulífi svæðisins 24.02.2024

Sjávarútvegsfyrirtækið Skinney Þinganes er langstærsti vinnuveitandinn á Höfn, ef hið opinbera er undanskilið. Aðalsteinn Ingólfsson hefur stýrt fyrirtækinu í nærri þrjá áratugi og segir stöðuna á svæðinu góða þótt áskoranir séu margar, m.a. vegna loðnuleysis og hruni í humarstofninum.

#14 Hvolsvöllur - Myndasögugerð frá miðöldum 17.02.2024

Í sjö ár, sjö mánuði og sjö daga sátu þær við og saumuðu Njálssögu í 90 metra langan hördúk. Nú bíður þetta magnaða listaverk, sem sækir innblástur í miðaldalistir, þess að verða sett upp í nýjum húsakynnum á Hvolsvelli. Þær Gunnhildur Edda Kristjánsdóttir og Kristín Ragnar Gunnarsdóttir leiða áheyrendur í allan sannleikann um Njálurefilinn svokallaða.

#13 Selfoss - Staðarsmiðurinn Sigfús Kristinsson 13.02.2024

Sigfús Kristinsson hefur fylgst með þorpinu við Sogið breytast úr sveit í bæ. Hann hefur lagt drjúgt til þeirrar uppbyggingar, m.a. með því að reisa sjúkrahúsið og fjölbrautaskólann í bænum. Sigfús hefur sterkar skoðanir á hlutunum.

#12 Suðurnesjabær - Magnús Stefánsson 03.02.2024

Magnús Stefánsson, bæjarstjóri í Suðurnesjabæ, ræðir um lífið í bænum og helstu atvinnuvegi, hvort hugað sé að frekari sameiningu sveitarfélaga á Suðurnesjum og margt fleira. Þá rifjar hann upp þingferil sinn og óvænta endurkomu á þingið.

#11 Reykjanesbær – Kjartan Kjartansson og Páll Ketilsson. 27.01.2024

Æskuvinirnir Kjartan Kjartansson, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, og Páll Ketilsson, ritstjóri og eigandi Víkurfrétta, fjalla um lífið á Suðurnesjum, þær miklu breytingar sem hafa orðið á svæðinu, áhrifin af veru bandaríska hersins og síðar brotthvarf hans og margt annað í nýju hlaðvarpi Hringferðarinnar.

#10 Siglufjörður – Bergþór Morthens í Tynesarhúsi 20.01.2024

Bergþór Morthens býr á Siglufirði og í Gautaborg í Svíþjóð. Fyrir 18 árum keypti hann ásamt konu sinni Tynesarhús í miðju þorpinu fyrir norðan og hefur breytt því í undraveröld. Kannski ekki ósvipaða þeirri sem hann skapar með ótrúlega björtum litum í málverkum sínum. Hann segir litina pólitíska.

#9 Grindavík - Halla María Svansdóttir og Pétur Hafsteinn Pálsson. 13.01.2024

Blaðamenn Morgunblaðsins settust niður með tveimur atvinnurekendum í Grindavíkurbæ og ræddu um fortíð, nútíð og framtíð Grindavíkur. Grindvíkingar hafa mátt þola margt á undanförnum mánuðum og framtíðin er óráðin.

#8 Árskógssandur - Arctic Heli Skiing, Bjórböðin og Kaldi. 06.01.2024

Agnes Anna Sigurðardóttir stofnaði brugghúsið Kalda í kjölfar ótrúlegs hugboðs. Jökull Bergmann hefur þvælst um öll svakalegustu fjöll heims og stundað og sinnt fjallaskíðaleiðsögn. Þau eru burðarásar í ferðaþjónustu á Árskógsströnd og segja tækifærin á svæðinu óþrjótandi.

#7 Borgarnes - Svava Víglundsdóttir og kaffi kyrrð 30.12.2023

Svava Víglundsdóttir, eigandi Kaffi Kyrrðar og Blómasetursins í Borgarnesi, var búin að missa allt eftir að hótel sem hún rak á Vopnafirði varð gjaldþrota. Ástin dró hana í Borgarnes þegar hún kynntist Unnsteini Árnasyni. Síðan eru liðin 22 ár.

#6 Ólafsfjörður - Eyþór Eyjólfsson og styrjueldið 23.12.2023

Á leið okkar um landið er næsti áfangastaður Ólafsfjörður. Við ökum gegnum Héðinsfjarðargöngin eftir stutt stopp á Siglufirði og beint niður á kajann. Þar tekur á móti okkur Eyþór Eyjólfsson sem fyrir margt löngu festi kaup á innstu jörðinni í Ólafsfirði – Bakka. Hann býður okkur inn fyrir dyrnar á húsi sem lengst af hýsti saltfiskverkun á staðnum en hefur nú skipt um hlutverk og búning, að minnst...

#5 Hvanneyri - Bryndís Geirsdóttir 16.12.2023

Bryndís Geirsdóttir hefur áhuga á því hvernig maðurinn mætir náttúrunni og hvernig hægt er að nýta gjafir jarðar betur. Það var þess vegna sem hún hóf nám í landslagsarkitektúr við Landbúnaðarskóla Íslands á Hvanneyri eftir að hafa lært bókmenntafræði í Háskóla Íslands. Bryndís er alin upp í Reykholti en foreldrar hennar fluttu þangað 1978 þegar faðir hennar varð prestur á staðnum. Fyrir 11 árum f...

#4 Hótel Húsafell - Unnar Bergþórsson. 12.12.2023

Stefnt er á frekari stækkun Hótels Húsafells á komandi misserum. Þetta upplýsir Unnar Bergþórsson, framkvæmdastjóri ferðaþjónustunnar á Húsafelli um í nýjasta þætti Hringferðarinnar sem efnt er til í tilefni 110 ára afmælis Morgunblaðsins.   Viðtalið er aðgengilegt á mbl.is og öllum helstu hlaðvarpsveitum.            

#3 - Jólagarðurinn - Benedikt og Ragnheiður 09.12.2023

Stefán Einar og Hólmfríður María hittu hjónin sem eiga Jólagarðinn. Þátturinn var tekinn upp undir berum himni í þrettán stiga frosti í jólafíling.

#2 Stykkishólmur - Sturla Böðvarsson & Erla Friðriksdóttir 01.12.2023

Morgunblaðið tekur hús á Íslendingum vítt og breitt um landið í tilefni af 110 ára afmælis blaðsins. Sturla Böðvarsson og Erla Friðriksdóttir eru viðmælendur á Hringferð Morgunblaðsins en þau eiga samanlagt rúman aldarfjórðung að baki í stóli bæjarstjóra í Stykkishólmi. Þau ræddu stöðuna í bænum og á Snæfellsnesi en þau hafa bæði langvarandi tengsl við svæðið. Sturla er úr Ólafsvík en rifjar upp h...

#1 Hótel Holt - Ólafur Ragnar Grímsson. 24.11.2023

Morgunblaðið tekur hús á Íslendingum vítt og breitt um landið í tilefni 110 ára afmælis blaðsins. Fyrsti viðmælandi okkar er Ólafur Ragnar Grímsson sem gegndi embætti forseta Íslands á árunum 1996-2016. Í viðtalinu er farið vítt og breitt yfir sviðið, bæði skyggnst yfir liðna tíð en ekki síður horft til framtíðar.

Słuchaj podcastu Hringferðin w Replaio

Radio i podcasty w jednej aplikacji - za darmo, bez zakładania konta. Zainstaluj już dziś i nie przegap premiery

Pobierz z Google Play

Replaio nie jest wydawcą podcastów; nazwy audycji, okładki i audio należą do ich autorów i są rozpowszechniane przez publiczne kanały RSS