Landsnet
Hlaðvarp Landsnets
Við stjórnum og rekum flutningskerfi raforku á Íslandi. Fylgstu með hlaðvarpinu okkar þar sem við fjöllum reglulega um málefni líðandi stundar í raforkukerfinu.
Koniecznie odwiedź stronę podcastu i wesprzyj twórcę: soundcloud.com
Gdzie słuchać?
Podcasty w aplikacji Replaio Radio Już wkrótcePodcasty trafią do aplikacji już wkrótce. Zainstaluj teraz i jako pierwszy zobacz nowe podejście do podcastów
Odcinki
Sjálfbærni og samfélagsábyrgð 05.01.2024 28:29
Við hjá Landsneti höfum sett okkur þá stefnu að vinna markvisst að því að lágmarka neikvæð áhrif sem hljótast af rekstri og uppbyggingu flutningskerfis raforku á umhverfið. Engilráð Ósk Einarsdóttir verkefnastjóri samfélagsábyrgðar og umbóta settist við hljóðnemann í Landsnetshlaðvarpinu og spjallaði við Steinunni Þorsteinsdóttur upplýsingafulltrúa um eitt og annað sem snýr að þessum mikilvæga mál...
Verkefnastjóraspjall - nýliðinn og reynsluboltinn 05.12.2023 39:08
Áttu einhver tips handa mér ? Kristján Ari Úlfarsson var búinn að vera hjá okkur í mánuð þegar hann settist við hljóðnemann í Landsnetshlaðvarpinu og spurði Daníel Scheving Hallgrímsson um eitt og annað sem viðkemur starfi verkefnastjóra hjá Landsneti.
"Það þarf heilt þorp til að gera við streng" - sagan af viðgerðinni á Vestmannaeyjastreng 3 26.10.2023 52:07
Þann 30. janúar 2023 kom upp bilun á Vestmannaeyjastreng 3, sæstrengnum sem liggur frá Rimakoti og út Eyjar. Í upphafi óraði engan fyrir því að fram undan væri ríflega hálft ár þar til strengurinn væri kominn aftur í rekstur. Okkar fólk var ótrúlega lausnamiðað þegar kom að undirbúningi, viðgerðinni og að halda ljósunum á eyjunni logandi allan tímann. Til að segja okkur söguna af af viðgerðinni fe...
Raforkuspáin og orkuskiptin 09.10.2023 46:30
Nýlega kom út ný raforkuspá Landsnets. Í henni kemur meðal annars fram að ekki sé útlit fyrir að fullum orkuskiptum verði náð árið 2040 eins og markmið stjórnvalda ganga út á, heldur 10 árum síðar. Hún Svala Birna Þórisdóttir vann að útgáfu Raforkuspárinnar og kom í heimsókn í Orkuskiptaskólann til þeirra Magna Þórs Pálssonar og Gnýs Guðmundssonar og sagði frá helstu niðurstöðum vinnunnar.
Með byggðalínuna á heilanum 28.08.2023 40:58
Heimildarmyndin Rafhringur Íslands var sýnd í sjónvarpinu sunnudaginn 27. ágúst. Myndin er saga af stórhuga uppbyggingu, saga af fólki, hugrekki, dugnaði, elju, sorgum, sigrum og meira að segja ást. Steinunn Þorsteinsdóttir upplýsingafulltrúi Landsnets settist niður með framleiðendum myndarinnar þeim Hans Orra Kristjánssyni og Sigurði Frey Björnssyni kvikmyndagerðarmanni og fór yfir söguna, tilurð...
Með blik í auga náum við árangri 28.06.2023 30:03
Í Landsnetshlaðvarpinu að þessu sinni eru þær Margrét Eva Þórðardóttir og Maríanna Magnúsdóttir að ræða breyturnar og drifkraftana sem verða til þess að vinnustaðamenning innleiði stefnu fyrirtækisins. Það er ákveðin list að horfa á rekstur fyrirtækja heildrænt og sjá hvað mannlegi þátturinn vegur mikið. Það setja fókus á helgun starfsmanna skiptir þar höfuðmáli, jafnt starfsþróun og persónulega þ...
Framtíð íslenska raforkukerfisins 07.06.2023 39:37
Svandís Hlín Karlsdóttir framkvæmdastjóri viðskipta- og kerfisþróunar, Jón Skafti Gestsson sérfræðingur í hagfræðilegum greiningum og Gnýr Guðmundsson forstöðumaður kerfisþróunar settust fyrir framan hljóðnemann og töluðu m.a. um framtíðina í íslensku raforkukerfi. Áhrif væntanlegrar uppbyggingar vindorkukosta, nýja tegund stórnotenda og aukið hlutverk markaðslausna til að tryggja stöðugleika, hag...
Hvað þarf margar vindmyllur til að knýja eina flugvél ? 16.05.2023 42:53
Hvað þarf margar vindmyllur til að knýja eina flugvél? Þetta og margt fleira fróðlegt og skemmtilegt í glænýjum þætti af Orkuskiptaskólanum þar sem þeir Gnýr Guðmundsson og Magni Þór Pálsson eru við stjórnvölinn.
Menningarvegferða leiðtogarnir Margrét Eva og Arna Ósk 24.04.2023 32:40
Í þessu skemmtilega spjalli fara þær Margrét Eva Þórðardóttir okkar leiðsögumaður í menningarvegferðinni og Arna Ósk Arnarsdóttir hjá Isavia um víðan völl þegar kemur að menningu og þeirri vegferð sem fyrirtækin hafa verið á.
Tveir af öruggustu mönnum Landsnets 16.03.2023 37:27
Öryggismál skipta okkur hjá Landsneti miklu máli og því fannst okkur tilvalið að fá öryggisstjórana okkar í raf- og raunheimum þá Styrmir Geir Jónsson og Halldór Halldórsson við hljóðnemann. Þeir voru auðvitað öryggið uppmálað þegar fóru yfir málin með Steinunni Þorsteinsdóttur upplýsingafulltrúa.
Anna Sigga og línan með langa nafnið - Holtavörðuheiðarlína 3 27.02.2023 28:30
Anna Sigga Lúðvíksdóttir er verkefnastjóri Holtavörðuheiðarlínu 3. Í hlaðvarpsþætti dagsins förum við með henni yfir holt og heiðar í spjalli um línuna, leiðina og framtíðina sem í okkar huga er ljós. Sem sagt allt sem þú þarft að vita um Holtavörðuheiðarlínu 3 : )
Framtíðin er stafræn, tækifærin eru óendanleg 03.02.2023 47:46
Veröldin er að breytast og verða snjallari enn áður og því þótti okkur tilvalið að fá tvo snjalla samstarfsfélaga, þá Theodór Jónsson og Birki Heimisson, í hlaðvarpsspjall þar sem þeir segja okkur m.a. að þeir séu að vinna á sviði sem heilinn okkar gæti aldrei unnið á . Áhugavert, ekki missa af þessum þætti þar sem horft er til framtíðar sem í þeirra huga er ótrúlega spennandi.
Árni Jón, byggðalínan, ísingarannsóknir og lífið á línunni 04.01.2023 36:46
Árni Jón Elíasson og allt sem þig langar að vita um byggðalínuna, ísingar og heimildarmyndina sem gerð var um upphafið og lífið hjá þeim sem reistu byggðalínuhringinn fyrir um 50 árum síðan.
Smári Jónasson, fótsporin og netþjónustan 16.12.2022 39:06
Smári Jónasson forstöðumaður netþjónustunnar okkar mætti í hlaðvarpið og ræddi arfleifðina, óveður, hann sjálfan og lífið á línunni við Steinunni Þorsteinsdóttur upplýsingafulltrúa sem sagði netþjónustuna vera í hennar huga hjartað í starfsemi Landsnets.
Ímynd, orðspor, vörumerkið og við hjá Landsneti. 26.11.2022 32:54
Einar S. Einarsson framkvæmdastjóri Stjórnunarsviðs og Steinunn Þorsteinsdóttir upplýsingafulltrúi settust við hljóðnemann og ræddu um eitt af uppáháhalds umræðuefnum þeirra, vörumerkið Landsnet.
Umhverfismat - hvað er það ? 13.11.2022 35:46
Rut Kristinsdóttir sérfræðingurinn okkar í umhverfismati framkvæmda mætti í Landsnetshlaðvarpið og sagði okkur allt um það hvað umhverfismat er mikilvægt þegar kemur að okkar stóru framkvæmdum. Hún sagði okkur líka aðeins frá leiðinni til Landsnets en við gleymdum að fjalla um Rán sem er með Rut á myndinni en hún hefur stundum komið við sögu þegar við höfum verið að spjalla.
Skiptir það máli fyrir vinnustað eins og Landsnet að huga að jafnréttismálum ? 30.10.2022 18:59
Gerðum upp jafnréttisdaga í hlaðvarpi dagsins með Svandísi Hlín Karlsdóttur formanni jafnréttisnefndar Landsnets.
Hlustum, miðlum og skiptumst á skoðunum - Elín Sigríður Óladóttir samráðsstjóri 21.07.2022 31:53
Steinunn Þorsteinsdóttir upplýsingafulltrúi hitti hana Ellu , Elínu Sigríði, samráðsstjóra hjá Landsneti og leit í baksýnisspegilinn með henni. Þær ræddu m.a. hvað við höfum gert og hvað við getum gert betur þegar kemur að samtali, samráði og framtíðinni sem í þeirra og okkar huga verður bara rafmagnaðri.
Margrét Eva og menningarvegferðin okkar. 01.07.2022 45:08
Hvernig endar sérfræðingur í Stjórnstöð sem verkefnastjóri menningarvegferðar ? Þetta er spurning sem Margrét Eva Þórðardóttir hefur oft fengið en okkur í LandsnetsHlaðvarpinu fannst tilvalið að fá hana að hljóðnemanum í spjall um vegferðina og lífið hjá Landsneti og heyra um leið hvernig hún fékk menninguna í fangið.
Mannauðsmálin, menningarvegferðin og mánuðirnir hjá Landsneti 07.06.2022 35:38
Jason Már Bergsteinsson sérfræðingur í mannauðsmálum hjá Landsneti settist við hljóðnemann og ræddi lífið og tilveruna við Steinunni Þorsteinsdóttur upplýsingafulltrúa - já og helstu verkefni síðustu mánaða en Jason hefur verið hjá Landsneti í hálft ár.
Jón Bergmundsson, ferlinn, flakkið og framtíðin 31.05.2022 50:22
Það eru tímamót hjá Jóni Bergmundssyni verkefnastjóra á framkvæmda- og rekstrarsviði sem kíkti í spjall og ræddi m.a um Tom Swift, Bosníu, Kosovo og lífið með Landsneti. Fyrir næstum 55 árum heillaðist hann af rafmagni sem hefur fylgt honum yfir heiðar og haf síðan þá - nú er komið að öðru og fram undan er tími til að njóta.
"Orkuskiptin, innviðir og orkuskortur - Förum vel með auðlindina" 03.01.2022 36:20
Verið velkomin í Orkuskiptaskólann þar sem þeir Gnýr Guðmundsson og Magni Þór Pálsson leiða þig í allan sannleika um orkuskiptin. Hvað felst í orkuskiptum, hafa orkuskiptin áhrif á mitt líf eða er þetta kannski bara spurning um að koma öllum á rafmagnsbíla? #þriðjiþáttur
Eigum við orku í orkuskiptin, mun orkuskortur ráða hraða orkuskipta, er hægt að geyma rafmagn ? 13.12.2021 46:30
Hlustið og fræðist með þeim Gný Guðmundssyni skólastjóra Orkuskiptaskólans og Magna Pálssyni yfirkennara en þeir eru okkar helstu sérfræðingar í þessum málaflokki. #þátturnúmertvö #orkuskiptaskólinn
Orkuskiptin - hvað, hvernig, hvenær ? 26.11.2021 48:38
Verið velkomin í Orkuskiptaskólann þar sem þeir Gnýr Guðmundsson og Magni Þór Pálsson leiða þig í allan sannleika um orkuskiptin. Hvað felst í orkuskiptum, hafa orkuskiptin áhrif á mitt líf eða er þetta kannski bara spurning um að koma öllum á rafmagnsbíla? #fyrstiþáttur
Smári Jóhannsson og sagan af Suðurnesjalínu 2 20.11.2021 43:32
Sagan af Suðurnesjalínu 2
Podobne podcasty
Replaio nie jest wydawcą podcastów; nazwy audycji, okładki i audio należą do ich autorów i są rozpowszechniane przez publiczne kanały RSS