Kop.is

Gullkastið

Sports IS ↓ Odcinki: 412

Gullkastið er hlaðvarpsþáttur Kop.is sem hóf göngu sína í maí árið 2011.

Koniecznie odwiedź stronę podcastu i wesprzyj twórcę: www.kop.is

Autor

Kop.is

Kategoria

Sports

Strona podcastu

www.kop.is

Ostatni odcinek

12 paź 2026

Gdzie słuchać?

Podcasty w aplikacji Replaio Radio Już wkrótce

Podcasty trafią do aplikacji już wkrótce. Zainstaluj teraz i jako pierwszy zobacz nowe podejście do podcastów

Pobierz z Google Play Zainstaluj za darmo Android prawie 10 mln pobrań · ocena 4,8 iOS niedługo

Odcinki

Gullkastið - Dansað við Úlfa 07.12.2020

Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  SSteinn og Maggi Ajax var skúrað af Anfield í miðri viku og Úlfarnir étnir í gær. Áhorfendur loksins aftur á Anfield og liðið í fínum málum þrátt fyrir allt. Stefnir í áhugaverða og harða toppbaráttu eins og þetta er að spilast núna og næsta vika verður áhugaverð hvað liðsval Klopp varðar.

Gullkastið – Bullandi mótvindur 30.11.2020

Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  SSteinn og Maggi Það er ekki margt sem dettur með Liverpool þessa dagana og ljóst að liðið er í smá krísu á toppi deildarinnar eins og Bill Shankly orðaði það einu sinni. Það hefur ekki fallið vafaatriði með Liverpool það sem af er tímabili og videodómgæslukerfið í heild sinni hefur undirstrikað það sem áður var haldið fram um enska dómara, þeir eru ekki n...

Gullkastið - Bakkað yfir Leicester 23.11.2020

Það var ekki að sjá á leik Liverpool að menn hefðu teljandi áhyggjur af endalaust löngum meiðslalista þegar Leicester kom á Anfield, svokölluð yfirpilun. Áhugverð úrslit í öðrum leikjum og næsta vika er mjög þétt með tveimur leikjum á dagskrá. Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  SSteinn og Maggi

Gullkastið – Erfitt að ná í lið 16.11.2020

Þetta tímabil stefnir í að verða eitt það versta í sögu félagsins er kemur að meiðslum lykilmanna og vondufréttirnar héldu heldur betur áfram að koma í þessari viku. Ef menn eru ekki meiddir eru þeir veikir af Covid. Það er stórleikur um næstu helgi gegn toppliði deildarinnar og gríðarlegt leikjaálag fram að áramótum. Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  SSteinn og Maggi

Gullkastið - Góður punktur 09.11.2020

Liverpool skellti sér á toppinn um helgina með góðum endurkomusigri á West Ham, annar sigurinn í Meistaradeildinni og næsti leikur er annaðkvöld í Bergamo. Fórum einnig yfir það helsta úr umferð vikunnar á Englandi. Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  SSteinn og Maggi

Gullkastið - Liverpool á toppnum 02.11.2020

Liverpool skellti sér á toppinn um helgina með góðum endurkomusigri á West Ham, annar sigurinn í Meistaradeildinni og næsti leikur er annaðkvöld í Bergamo. Fórum einnig yfir það helsta úr umferð vikunnar á Englandi. Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  SSteinn og Maggi

Gullkastið – Kirkja Alisson Becker 27.10.2020

Liverpool komst aftur á beinu brautina með tveimur baráttusigrum, VAR áfram í sviðsljósinu og svipuð vika framundan. Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  SSteinn og Maggi

Gullkastið – Skyggnst inn í heim umboðsmannsins 19.10.2020

Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  SSteinn, Maggi og Aggi Magnús Agnar umboðsmaður Stellar Group og fyrrum samherji okkar hérna á Kop.is fór yfir hörmungar helgarinnar með okkur, bransann sem hann er í og auðvitað var spáð í spilin fyrir stórleikinn sem er framundan í Meistaradeildinni. Aggi stofnaði fyrirtæki sem hét Total Football og því vel viðeigendi gestur fyrir viðureign gegn Ajax.

Gullkastið - Kristján Finnboga í spjalli 15.10.2020

Maggi Beardsley fékk sjálfan Kristján Finnbogason í spjall fyrir nágrannaslaginn enda ljóst að markmenn beggja liða hafa verið í fókus undanfarið.

Gullkastið - NBA / Project Big Picture / Meistaradeildin / Everton 12.10.2020

Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  SSteinn og Maggi Liverpool vann eiginlega NBA í vetur, ræddum aðeins Project Big Picture sem forráðamenn Liverpool og Man Utd er sagðir vera á bakvið og snúa að töluverðum breytingum á deildarfyrirkomulaginu á Englandi. Jurgen Klopp í fimm ár, Covid í Liverpool borg, Interlull - sóttkví og einangrun. Stórleikurinn gegn toppliði Everton. Úrvals klukkutími a...

Gullkastið – WTF 06.10.2020

Liverpool gerði hressilega í buxan sín á Villa Park. Varaliðið féll með sæmilegri sæmd úr deildarbikarnum Leikmannaglugganum lokaði Meiðsli og Covid smit lykilmanna Dregið í Meistaradeildinni Galið landsleikjahlé Þétt dagskrá og langt síðan Liverpool átti svona slæma viku.

Gullkastið - Hið raunverulega Liverpool 30.09.2020

Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  SSteinn og Maggi Arteta og félgar fengu heldur betur að sjá hið raunverulega Liverpool á Anfield. Hrikalega flottur leikur hjá okkar mönnum sem vonandi setur tóninn fyrir tímabilið. Það er svo deildarbikarleikur næst gegn sama mótherja áður Liverpool fer á Villa Park

Suðurlandsins eina von í Arsenal upphitun 25.09.2020

Suðurlandsins eina von Arilíus Marteinsson kom í spjall um sína menn í Arsenal  Stjórnandi: Magnús Gunnlaugur Þórarinsson  Viðmælandi: Arilíus Marteinsson

Gullkastið - Tökum Willan fyrir verkið 25.09.2020

Hlóðum í upphitun fyrir helgina í Hellinum. Lincoln afgreitt með yfirflæði af jákvæðum frammistöðum, áhugaverð byrjun tímabilsins hjá helstu andstæðingum Liverpool og stórleikur gegn Arsenal framundan um helgina. Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  SSteinn og Maggi

Gullkastið – Gleðivísitalan í hæstu hæðum 21.09.2020

Þvílík helgi, Thiago var staðfestur á föstudaginn, Jota staðfestur á laugardaginn og Liverpool var staðfest upp á sitt besta á sunnudaginn. Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  SSteinn og Maggi

Liverpool með flöskudag á leikmannamarkaðnum - aukaþáttur 19.09.2020

Liverpool er farið að láta til sín taka á leikmannamarkaðnum og stuðnignsmenn almennt hressir, fórum yfir kaupin á Thiago og Jota.  Stjórnandi: Einar Matthías  Viðmælendur: Magnús Gunnlaugur Þórarinsson og Ólafur Haukur Tómasson  

Gullkastið: Leeds með læti 14.09.2020

Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  SSteinn og Maggi Það var bullandi kraftur í nýliðum Leeds á tómum Anfield í fyrsta leik og nóg fyrir Klopp að vinna með á æfingasvæðinu í þessari viku fyrir stórleikinn á Stamford Bridge eftir viku

Gullkastið - Ballið að byrja 09.09.2020

Spáð í spilin fyrir nýtt og spennandi tímabil Nýliðar Leeds mæta á Anfield - skoðum það félag  Þætti númer 300 fagnað!  Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  SSteinn og Maggi

Gullkastið - Fordómalausir tímar 31.08.2020

Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  SSteinn og Maggi Vesen á Wembley í samfélagsskildinum eftir stopult undirbúningstímabil. Hvað gerir Messi og hefur möguleg brottför hans dómínóáhrif sem gætu komið við Liverpool? Landsleikjahlé framundan en óvenju fáir í landsliðaverkefnum.

Gullkastið – Næsta tímabil byrjar um helgina 25.08.2020

Stjórnandi:  Maggi Viðmælendur:  SSteinn og Einar Matthías Síðasta tímabil er loksins búið og Liverpool eru "bara" ríkjandi Heims- og Englandsmeistarar. Næsta tímabil byrjar næstu helgi og það verður líka okkar! Stutt pre-season er í fullum gangi, spáðum í Meistaradeildarsigri FC Bayern, slúðri tengdu Liverpool og öðrum liðum og ýmsu öðru að vanda.

Gullkastið - L´OL 17.08.2020

Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  Maggi og SSteinn Síðasta vika var bara nokkuð hressandi út frá schadenfreude sjónarmiðum í ljósi þess að Liverpool átti ekki leik og er satt að segja bara að hefja sitt undirbúningstímabil fyrir næsta vetur.

Gullkastið - Liverpool er búið að kaupa leikmann! 11.08.2020

Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi  Það er ekkert í hverjum leikmannaglugga sem Liverpool kaupir leikmann og því ber heldur betur að fagna kaupnum á Grikkjanum Kostas Tsimikas sem skrifaði undir samning við Liverpool í dag. Fórum yfir það ásamt helstu fréttum af okkar mönnum og boltanum almennnt.

Gullkastið – Uppgjör á fárbæru tímabili 29.07.2020

Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  Maggi og SSteinn Jordan Henderson er búinn að lyfta Englandsmeistaratitlinum sem fyrirliði Liverpool, meira fórum við svosem ekki fram á fyrir þetta tímabil. Það hefur aldrei verið eins gaman að gera upp tímabilið.

Gullkastið – Titillinn á loft í þessari viku 21.07.2020

Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur: Maggi, SSteinn og meistari Sverrir Jón Gylfason. Stóra stundin er formlega á dagskrá eftir leik á miðvikudaginn þegar Jordan Henderson lyftir bikarnum á loft. Við fengum einn besta vin þáttarinn Sverri Jón með okkur í þáttinn til að fara yfir helstu fréttir í þessari viku. Sverrir er stjórnarmaður í Liverpool klúbbnum á Íslandi og fór yfir það hvernig þeir...

Gullkastið - Afslappaður endasprettur 07.07.2020

Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  Maggi og SSteinn Liverpool var ekki alveg komnir af djamminu þegar þeir fóru til Manchester en tapið þar var leiðrétt um helgina með sex stiga sveiflu okkur í hag. Ungu strákar eru farnir að grípa sénsinn á meðan Origi og Ox eru í veseni. Thiago frá Bayern er nýjasta leikmannaslúðrið og Leicester er að klúðra Meistaradeildarsætinu.

Słuchaj podcastu Gullkastið w Replaio

Radio i podcasty w jednej aplikacji - za darmo, bez zakładania konta. Zainstaluj już dziś i nie przegap premiery

Pobierz z Google Play

Replaio nie jest wydawcą podcastów; nazwy audycji, okładki i audio należą do ich autorów i są rozpowszechniane przez publiczne kanały RSS