Kop.is
Gullkastið
Gullkastið er hlaðvarpsþáttur Kop.is sem hóf göngu sína í maí árið 2011.
Koniecznie odwiedź stronę podcastu i wesprzyj twórcę: www.kop.is
Gdzie słuchać?
Podcasty w aplikacji Replaio Radio Już wkrótcePodcasty trafią do aplikacji już wkrótce. Zainstaluj teraz i jako pierwszy zobacz nowe podejście do podcastów
Odcinki
Gullkastið – Æfingaleikir, sölur og samningar 21.07.2021 52:36
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Æfingaleikjatímabilið hófst með óvenjulegum hætti í dag þegar Liverpool spilaði tvo hálftíma leiki í Austurríki. Það er svo venjulegur leikur á föstudaginn gegn Mainz. Liverpool seldi tvo leikmenn í þessari viku og það gæti verið stutt í sölu á fleiri mönnum. Eitthvað sem gæti losað um fyrir kaupum á nýjum mönnum. Svo voru áhugaverðar frét...
Gullkastið - Nýtt tímabil 05.07.2021 1:10:50
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Maggi og Steini skelltu sér í heimsreisu austur fyrir fjall og var nýtt tímabil í enska boltanum formlega hafið á Selfossi að þessu sinni, bullandi sumar, nokkrar Egils Gullstundir og almenn gleði. Það má fara klára þetta landsliðamót og fara hefja alvöru fótbolta á ný.
Gullkastið - Þjálfarakapall 31.05.2021 1:11:49
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Spáum í helstu vendingar á leikmanna og þjálfaramarkaðnum, horfum aðeins til baka á þetta tímabil og tókum snúning á úrslitaleikjunum í Evrópu sem voru í þessari viku
Gullkastið – Þetta er loksins búið! 25.05.2021 1:29:17
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Gullkastið er 10 ára í dag en fyrsti þáttur fór í loftið á Istanbul daginn árið 2011. Til hamingu við sjálfir. Djöfull sem þetta hefur verið gaman og það var sannarlega létt yfir okkur í þætti vikunnar. Höfðum reyndar ekki hugmynd um þessi tímamót þegar á upptöku stóð en það breytir því ekki að Liverpool er komið í Meistaradeildina og náði...
Gullkastið - Heilagur Alisson Becker 17.05.2021 56:55
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Þvílíka vikan! Endurkoma gegn United þar sem Salah kláraði dæmið í uppbótartíma. Það var þó ekkert miðað við fagnaðarlætin þegar Alisson, já Alisson Becker skoraði sigurmarkið eftir að uppbótartíminn var liðinn gegn liði sem Sam Helvítis Allardyce stjórnar og er nú þegar fallinn með. Þetta einfaldlega galopnar baráttuna við Leicester og Ch...
Gullkastið - Vonarneisti 10.05.2021 56:17
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn, Maggi og Guðlaugur Þór Þórðarson Guðlaugur Þór Þórðarson Utanríkisráðherra mætti í hellinn með okkur og fórum við yfir það helsta úr boltanum undanfarnar vikur. Sigur á Southampton, fíaskóið í kringum leikinn á Old Trafford, helstu væringar í Evrópuboltanum o.fl.
Gullkastið - Þar fór það 26.04.2021 53:55
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Vonbrigðin þetta tímabilið ætla bara engan enda að taka. Enn einu sinni kastar Liverpool frá sér leik sem ætti að öllu eðlilegu að vera löngu búinn. Tímabilið fjaraði svo gott sem endanlega út fyrir vikið.
Gullkastið – PR hamfarir hjá FSG 20.04.2021 55:52
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Það tók ekki langan tíma að kála hugmyndum um European Super League
Gullkastið - European Super League 19.04.2021 43:13
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Fyrstu viðbrögð við ESL
Gullkastið – Meistaradeildin í aðalhlutverki 12.04.2021 1:13:59
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Meistaradeildarsæti á næsta tímabili er orðið raunhæfara í dag en það fyrir ekki svo löngu síðan en baráttan um sæti í 8-liða úrslitum á þessu tímabili er orðin töluvert snúnari. Fórum yfir misjafna leiki gegn Aston Villa og Real Madríd. Liverpool hefur auðvitað séð það svartara gegn spænskum risa fyrir leik á Anfield. Leeds bíður svo hand...
Gullkastið – Frá höfuðborg Englands til höfuðborgar Spánar 06.04.2021 1:06:49
Stjórnandi: Maggi Viðmælendur: SSteinn og Einar Matthías Real Madríd bíður í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar og hressandi yfirspilun á Emirates var einmitt upphitunin sem við þurftum fyrir það. Reyndar líka þessi upphitun frá því í gær. Baráttan um Meistaradeildarsæti er síður en svo búin en Liverpool nær að spila svona áfram.
Gullkastið - Lokaspretturinn 30.03.2021 1:01:35
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælandi: Maggi Síðasta landsleikjahléi tímabilsins lokið og alvöru prógramm framundan sem hefst með stórleik gegn Arsenal á laugardagskvöldið. Ræðum nýjasta slúðrið af leikmannamarkaðnum en Liverpool var í vikunni nokkuð sterklega orðað við miðvörð frá Leipzig. Framtíð Salah, breytingar á Meistaradeild, arftaki Aguero hjá City o.fl.
Gullkastið – Real Madríd á leiðinni til Istanbul 22.03.2021 50:54
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Ljót þrjú stig gegn Úlfunum og annar sigur á RB Leipzig léttu aðeins andann fyrir langt þriggja vikna hlé. Real Madríd kom upp úr pottinum í Meistaradeildinni og Liverpool á sannarlega harma að hefna gegn þeim. Óvenjulegt landsleikjahlé nýtist Klopp svo vonandi vel fyrir lokakafla tímabilsins.
Gullkastið - Gleðivísitalan í lágmarki 08.03.2021 59:18
Enn ein hörmungarhelgin og nákvæmlega ekkert gengur á Anfield, Meistaradeildarsætisbaráttan svo gott sem búin en Liverpool er þó ennþá inni í núverandi tímabili í Meistaradeildinni. Fengum formann Liverpoolklúbbsins og fréttamanninn Hallgrím Indriðason með okkur til að fara yfir síðustu viku og til að kynna nýjan hlaðvarpsþátt Liverpoolklúbbsins sem fór í loftið á miðvikudaginn.
Gullkastið - Loksins sigur 01.03.2021 51:21
Loksins loksins sigur í deildarleik þrátt fyrir ennfrekari brottföll í leikmannahópnum, framundan er eru svo tveir ólíkir leikir við höfuðborgarliðin og nágrannana í Chelsea og Fulham. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi
Gullkastið - Þegar sýður uppúr þá þrífur maður eldavélina 15.02.2021 59:01
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Það blæs verulega á móti hjá okkar mönnum og alls kyns furðusögur verið á lofti um helgina eftir slæmt tap gegn Leicester í leik sem var reyndar að svona 75% leiti vel spilaður af okkar mönnum. Leipzig í Meistaradeildinni annað kvöld, Everton um helgina og meiðslalistinn svo langur að Ingó Tóta er að semja lag um hann.
Gullkastið - Það er alltaf næsta tímabil 08.02.2021 55:37
Veik von um alvöru titilbaráttu dó í síðstu viku og ljóst að Liverpool er í bullandi erfiðri baráttu um Meistaradeildarsæti ef gengi liðsins fer ekki að breytast til batnaðar. Afar erfið vika á dagskrá að þessu sinni. Framundan eru svo þrír stórir leikir.
Gullkastið – Leikmannaglugginn og leikir í London 01.02.2021 1:05:56
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Ensku meistararnir skelltu sér tvisvar til London í þessari viku og náðu í sex risastór stig. Þetta var allt annað að sjá en þessa 2010 útgáfu af Liverpool sem við fengum megnið af janúar. Auk þess var síðasti dagur leikmannagluggans í dag og Liverpool lét til sín taka með panic kaupum á tveimur miðvörðum, ekki veitir af. Brigton sem vann...
Gullkastið – Déjà vu 25.01.2021 1:01:43
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Það er eins og við séum stanslaust að horfa á sama leikinn þessa dagana, tveir vondir tapleikir í þessari viku og áframhald á ömurlegu gengi. Aðalvandamálið blasir við en eigendur félagsins eru ekki aðeins farnir að fara í taugarnar á stuðningsmönnum liðsins heldur stjóranum líka sem er meira áhyggjuefni. Frank var sparkað hjá Chelsea og f...
Gullkastið - Þurr janúar 18.01.2021 52:54
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Liverpool er í smá krísu, vond töpuð stig á Anfield gegn Man Utd liði sem mætti fyrst og fremst til að halda stiginu. Næstu leikir eru gegn Dyche, Mourinho og Moyes þannig að það er hætta á sömu sýningu áfram ef Liverpool nær ekki að breyta um takt sóknarlega.
Gullkastið – United í deild og bikar 11.01.2021 50:30
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Börnin hjá Aston Villa stóðu sig vel en þar sem það dugði ekki til er Liverpool á leiðinni á Old Trafford í næstu umferð bikarsins. Fyrst er reyndar deildarleikur á Anfield við sama lið.
Gullkastið 2020 > 2021 05.01.2021 54:54
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Tap gegn Southampton ofan á tvö afleit jafntefli fyrir áramót. Liverpool er á barmi þess að vera í sinni fyrstu krísu í nokkuð langan tíma. Það er rosalegt prógramm framundan næstu mánuði og spurning hvort hópurinn verði eitthvað styrktur fyrir þau átök. Fórum yfir vonda byrjun á nýju ári.
Gullkastið - 2020 28.12.2020 1:27:59
Svekkjandi jafnteflistap gegn Allardyce fótbolta kom ekki í veg fyrir að við gerðum árið upp í lokaþætti fyrir áramót. 2020 var þrátt fyrir allt árið okkar, loksins loksins. Spáið í hversu ömurlegt ár þetta var fyrir þá sem halda alls ekki með Liverpool? Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi
Gullkastið - Rauð Jól 22.12.2020 1:11:08
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Þriðja árið í röð er Liverpool á toppnum yfir hátíðarnar, Bobby Firmino kláraði Jose og félaga í toppslagnum og Roy Hodgson og hans menn áttu sannarlega ekki sjö dagana sæla. Það verður áfram rútubílafótbolti næst því Big Sam er mættur aftur og mætur á Anfield með sína menn í WBA.
Gullkastið – Gérard Houllier 15.12.2020 1:16:05
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Gérard Houllier féll frá í gærkvöldi og var þess mikla fagmanns minnst, Nagelsmann og hanns menn í RB Leipzig bíða í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar, vikan var erfið í deild og Meistaradeild og næsta vika virkar voðalega þung vegna leikjaálags og meiðslalista.
Podobne podcasty
Replaio nie jest wydawcą podcastów; nazwy audycji, okładki i audio należą do ich autorów i są rozpowszechniane przez publiczne kanały RSS