Jóhannes Bjarni Guðmundsson
Flugvarpið
Fjallað er um flugmál á Íslandi, viðburði, málefni og áhugavert fólk tekið tali. Jói Baddi hefur langa reynslu sem atvinnuflugmaður og flugkennari og starfaði einnig um tíma við fjölmiðla. Flugvarpið er þannig góður farvegur til að sameina þetta tvennt - flugið og fjölmiðlun.
Koniecznie odwiedź stronę podcastu i wesprzyj twórcę: soundcloud.com
Autor
Jóhannes Bjarni Guðmundsson
Kategoria
Strona podcastu
Ostatni odcinek
8 lip 2026
Gdzie słuchać?
Podcasty w aplikacji Replaio Radio Już wkrótcePodcasty trafią do aplikacji już wkrótce. Zainstaluj teraz i jako pierwszy zobacz nowe podejście do podcastów
Odcinki
#37 – ÍS-lendingar á Suðurskautslandinu – leigflug á mörgæsaslóðum 17.12.2021 1:00:48
Rætt er við August Håkansson flugstjóra og verkefnastjóra, Rósu Björg Gunnarsdóttur flugfreyju og Arnar Þór Jóhannsson flugvirkja um leiguflug sem þau hafa verið að sinna til Suðurskautslandsins. Um er að ræða leiguflug þar sem flogið er frá Punta Arenas í Chile og lent á flugbraut sem er nokkur hundruð metra þykk íshella á Suðurskautslandinu. Flugið á lítið skylt við venjulegt áætlunarflug og hef...
#36 – Regluverkið eitt skilar ekki auknu flugöryggi – Kári Guðbjörnsson 26.11.2021 1:32:19
Rætt er við Kára Guðbjörnsson flugstjóra, flugumferðarstjóra og prófdómara til áratuga, en hann hefur m.a. getið sér gott orð fyrir námskeið og öryggisfundi fyrir einkaflugmenn og flugklúbba á síðustu árum og hefur talað fyrir aukinni samvinnu milli grasrótar flugsins og flugmálayfirvalda. Kári er hafstjór af fróðleik um flugmál og er ófeiminn við að gagnrýna ýmislegt sem hann telur að betur mætti...
# 35 - Ævintýri að fljúga fyrir Atlanta um allan heim – Kristín María Grímsdóttir 20.10.2021 46:29
Rætt er við Kristínu Maríu Grímsdóttur flugstjóra á Boeing 747 jumbó breiðþotu hjá Air Atlanta. Kristín María er þrátt fyrir ungan aldur búin að ferðast vítt og breitt um heiminn í starfinu, en hún hóf störf sem atvinnuflugmaður hjá Atlanta aðeins 24 ára gömul og segist alltaf hlakka til nýrra ævintýra í vinnunni. Ýmsar áskoranir eru fyrir unga konu að vinna sem flugmaður á framandi slóðum þar sem...
#34 – Verið hótað og boðnar mútur í starfi hjá ICAO – Þormóður Þormóðsson 24.09.2021 1:03:42
Þormóður Þormóðsson segir hér frá störfum sínum í einni af stærstu deildum ICAO Alþjóðaflugmálastofnunarinnar, en hann annast þar eftirlit með að aðildarríkin sinni því sem þau eiga að sinna í öryggis- og gæðamálum. Þormóður lærði Aircraft maintenance management við Embry-Riddle Aeronautical Háskólanum, hann er lærður atvinnuflugmaður og að auki með meistaragráðu í hagfræði. Hann hefur lent í ýmsu...
# 33 – íslensk-ameríski herflugmaðurinn – John S. Magnusson 13.09.2021 1:01:49
Rætt er við Jón S. Magnússon sem byrjaði sitt flugnám á Íslandi á áttunda áratugnum og hélt síðan áfram flugnáminu í bandaríska sjóhernum. Hann er líkega einn fárra ef ekki eini Íslendingurinn sem hefur flogið í US Navy. Hann segir hér frá stórmerkilegum ferli, hvernig það var að vera í sjóhernum og t.d. að lenda á flugmóðurskipi. Jón átti einnig yfir 30 ára flugmannsferil hjá Northwest Airlines o...
#32 –Í farabroddi í innanlandsflugi – Sigurður Aðalsteinsson 19.06.2021 58:18
Sigurður Aðalsteinsson segir hér frá upphafsárum sínum í fluginu á Akureyri, þegar hann ásamt fleirum keypti Norðurflug af Tryggva Helgasyni flugstjóra og læriföður sínum. Til varð Flugfélag Norðurlands sem Sigurður tók þátt í að reka í nærri aldarfjórðung frá 1974 til 1997 og skilur eftir sig merkileg spor í flugsögunni. Hann var einnig annar tveggja stofnenda Austurflugs á Egilsstöðum og sinnti...
#31 – Þrautgóður á raunastund - Björn Pálsson sjúkraflugmaður 02.06.2021 1:00:34
Þátturinn er tileinkaður Birni Pálssyni flugmanni. Saga hans er ein merkasta saga íslensks flugmanns því líf hans og flugmannsstarf var helgað því að koma fólki til hjálpar í neyð og að hjálpa veikum og slösuðum. Björn varð þjóðkunnur fyrir frumkvöðlastarf sitt sín við sjúkraflugið og þeir voru margir sem áttu honum líf sitt að launa. Í heilan áratug frá 1950 til 1960 flaug Björn sjúkraflug á eins...
#30 – Icelandair í gang á ný – Bogi Nils Bogason 19.05.2021 54:17
Rætt er við Boga Nils Bogason forstjóra Icelandair Group um stöðuna og sóknarfærin framundan. Icelandair er að koma starfseminni í gang aftur eftir erfiða tíma. Félagið er að fjölga flugferðum hratt og bæta við starfsfólki því eftirspurn eftir flugi er að aukast. Bogi ræðir hér um aukna möguleika með tilkoma Max vélanna, sem eru að nýtast enn betur en reiknað hafði verið með inn í leiðakerfi félag...
#29 – Ferðaviljinn og frelsi að aukast – Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir 27.04.2021 55:51
Það er útlit fyrir viðspyrnu í ferðaþjónustunni á næstu mánuðum og af því tilefni er Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir ferðamálaráðherra gestur í þætti #29. Hún segir ferðaþjónustufyrirtækin merkja aukna eftirspurn á næstunni samhliða auknum bólusetningum og meira frelsi til ferðalaga milli landa. Reynsla stjórnvalda af því að opna landamærin fyrir fólki með bólusetningarvottorð er mjög góð og...
#28 – Air Atlanta á fullu í faraldrinum– Baldvin Már Hermannsson forstjóri 14.04.2021 45:50
Rætt er við Baldvin Má Hermannsson ungan forstjóra Air Atlanta sem hefur á síðustu tveimur áratugum unnið fjöbreytt störf í fluginu og unnið sig til metorða innan fyrirtækisins. Hann segir hér frá þeim ótrúlegu áskorunum sem Air Atlanta hefur staðið frammi fyrir síðustu misserin og gerir enn. Air Atlanta flutti árið 2019 yfir 1,2 milljónir farþega en þegar eftirspurn eftir farþegaflugi hrundi vegn...
#27 – Flugævintýri í Landgræðslu - Páll Halldórsson og Sveinn Runólfsson 31.03.2021 43:53
Rætt er við Pál Halldórsson flugmann og fyrrum flugstjóra hjá Landhelgisgæslunni og Svein Runólfsson fyrrum Landgræðslustjóra. Tilefnið er að þeir félagar hafa tekið saman efni í glæsilega bók sem er að koma út um hið stórmerkilega ævintýri sem unnið var á eins hreyfils flugvélum við að græða upp örfoka land á árunum 1958 til 1992. Þeir Páll og Sveinn segja hér stuttlega frá þessu merka frumkvöðla...
#26 – Allt um rannsóknir flugslysa – Þorkell Ágústsson hjá RNSA 26.03.2021 48:29
Fjallað er um flugslysarannsóknir og hvernig þeim er háttað í þætti #26 með Þorkel Ágústssyni rannsóknarstjóra flugsviðs hjá Rannsóknarnefnd Samgönguslysa. Þorkell hefur unnið lengi við flugslysarannsóknir og segir frá sínum störfum, um það hvernig þessar rannsóknir fara fram og hvernig unnið er með niðurstöðurnar. Rannsóknir á atvikum og slysum eru gríðarlega stór þáttur í að viðhalda og auka flu...
#25 – Prakkari, veiðimaður og flugmaður – Ásgeir Guðmundsson 17.03.2021 49:15
Ásgeir Guðmundsson flugmaður segir hér frá litríkum ferli sínum í fluginu og ýmsum prakkarastrikum. Ásgeir hefur mætt áföllum af æðruleysi, er lífsglaður og þekktur fyrir alls konar uppátæki og sögur. Hann var flugstjóri hjá Cargolux þegar þegar hann lenti í alvarlegu flugslysi ásamt vini sínum á lítilli einkaflugvél á Austurlandi í júlí árið 2009. Þá breyttist líf hans á svipstundu. Ferlinum sem...
#24 – Flugöryggi og varavellirnir – Ingvar Tryggvason form. ÖFÍA 10.03.2021 43:10
Ingvar Tryggvason formaður Öryggisnefndar Félags íslenskra atvinnuflugmanna og flugstjóri ræðir hér um ýmis öryggismál í fluginu. Ingvar hefur á liðnum árum verið ötull talsmaður flugöryggis í tengslum við starf sitt. Nú er vakning í uppbyggingu og viðhaldi innviða eins og helstu flugvalla landsins, sem m.a. þjóna sem varaflugvellir fyrir flugumferð. Það má samt alltaf gera betur varðandi öryggisb...
#23 – Forstjóri Icelandair í 10 ár - Björgólfur Jóhannsson 03.03.2021 1:26:38
Björgólfur Jóhannsson var nýbyrjaður sem forstjóri Icelandair Group þegar efnhagshrunið varð haustið 2008. Hann sigldi félaginu í gegnum erfiða tíma í kjölfar hrunsins og í mörg ár þar á eftir stýrði hann Icelandair á mesta blómaskeiði þess frá upphafi. Björgólfur segir hér frá þessum merkilega tíma í flugsögunni, frá samkeppninni við WOW og fleiri flugfélög, samskiptum við stéttarfélögin, fjárfes...
#22 – Flugmaður í nær 60 ár - Hallgrímur Jónsson, Moni 24.02.2021 1:03:19
Hallgrímur Jónsson flugmaður og fyrrverandi yfirflugstjóri hjá Icelandair segir frá viðburðum og upplifunum á ótrúlega löngum ferli í fluginu. Hallgrímur, eða Moni eins og hann er kallaður, hóf ferilinn 1960 og er enn að. Eftir 42 ára starf sem atvinnuflugmaður í farþegaflugi hefur hann unnið við þjálfanir og tekið á annað þúsund flugnema í próf á öllum stigum flugnámsins. Hann er enn starfandi og...
#21 - Unga fólkið, flugnámið og kreppan – Hildur og Leó Freyr 17.02.2021 58:17
Rætt er við tvo fulltrúa úr hópi ungra flugmanna á Íslandi. Hildur Þórisdóttir Kjærnested útskrifaðist með skírteini atvinnuflugmanns í árslok 2019 og fékk svo kreppuna í fangið. Hún telur að sumir muni gefa flugið upp á bátinn, en sjálf sér hún ekki fyrir sér starfsframa í neinu öðru. Leó Freyr Halldórsson gegnir stöðu Flight operations manager hjá Flugakademíu Íslands þar sem tugir sitja nú í bó...
#20 - Í forystusveit fyrir flugmálum Íslands – Leifur Magnússon 10.02.2021 44:56
Leifur Magnússon segir hér frá þeim merkilega tíma þegar hann starfaði við hlið Agnars Kofoed-Hansen þá flugmálastjóra Íslands á sjöunda og áttunda áratugnum og barist var fyrir hagsmunum Íslands á alþjóðlegum vettvangi. Leifur starfaði við flugið með einum eða öðrum hætti um áratuga skeið og var árið 1979 heiðraður með riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu fyrir störf á sviði flugmála. Auk þess...
#19 – Ábyrgð flugvirkja er við farþegana – Guðmundur form. Flugvirkjafélagsins 03.02.2021 41:47
Guðmundur Úlfar Jónsson formaður Flugvirkjafélags Íslands segir frá störfum flugvirkja og stöðunni í þessari iðngrein, sem Íslendingar hafa lagt fyrir sig allt frá því að fyrstu flugvélarnar flugu hérlendis. Hátt í 500 flugvirkjar í Flugvirkjafélagi Íslands eru starfandi í dag þrátt fyrir kreppuna í fluginu. Ásókn í flugvirkjun er góð og vinnan fjölbreytt og skemmtileg að sögn Guðmundar. Störfin e...
#18 - Flugsveit LHG flýgur í öllum veðrum – Sigurður yfirflugstjóri 27.01.2021 57:59
Sigurður Heiðar Wiium yfirflugstjóri á björgunarþyrlum Landhelgisgæslunnar segir hér frá öflugri flugstarfsemi LHG og ýmsum erfiðum björgunarferðum við ómögulegar aðstæður, þar sem gæða þjálfun og útsjónarsemi þarf til að allt gangi upp. Flugsveit LHG fer af stað í hvaða veðri sem er þegar kallið kemur, að nóttu sem degi. Sigurður segir að gera megi betur í innviðum fyrir björgunarþyrlurnar og set...
#17 – Lifði flugskeytaárás og brotlendingu á 45 ára ferli – Harald Snæhólm flugstjóri 20.01.2021 41:57
Harald Snæhólm flugstjóri hefur upplifað ótrúlega hluti á um 45 ára löngum ferli sem flugmaður. Hann hóf atvinnuflugmannsferil á sjóflugvélum í Noregi og lauk ferlinum á Boeing 767 breiðþotu hjá Icelandair. Á einhvern óskiljanlegan hátt slapp hann ómeiddur frá flugskeytaárás þegar hann sinnti hjálparflugi til Biafra og hann var einn þeirra sem komst lífs af úr brotlendingu DC-8 þotu Loftleiða á Sr...
#16 - Flugfreyjan. Starfið, ævintýrin, glamúrinn og álagið með Dillý flugfreyju 13.01.2021 1:01:45
Sigurlaug Halldórsdóttir flugfreyja eða Dillý eins og hún er kölluð, hefur starfað sem flugfreyja í nær 40 ár. Hér segir hún frá starfinu, ferlinum, ferðalögum og ævintýrum. Sjálf segist alla tíð hafa ætlað í flugið, en móðir hennar var flugfreyja um borð í Hrímfaxa, Viscount flugvél Flugfélags Íslands, sem fórst við Osló 1963 þegar Dillý var aðeins 3 ára. Stórmerkileg frásögn einstaklega drífandi...
#15 - Nýtt ár - nýtt upphaf Icelandair – verðum tilbúin segir yfirflugstjórinn – stutt í MAXinn 06.01.2021 50:32
Linda Gunnarsdóttir yfirflugstjóri Icelandair fer yfir ýmsa viðburði í rekstri félagsins árið 2020 og áskoranir sem þeim hefur fylgt. Alvarlegt flugatvik í Keflavík, Kínaflug, kófið og margt fleira. Hún segist bjartsýn í upphafi nýs árs og félagið verði tilbúið að bregðast hratt við þegar markaðir taka við sér. Hún vonast til að Max vélarnar verði komnar í leiðakerfið í mars/apríl.
#14 - Ernir 50 ára - Elsta starfandi félagið á sömu kennitölu - Hörður og Jónína 30.12.2020 1:22:43
Hjónin Hörður Guðmundsson og Jónína Guðmundsdóttir stofnuðu stórhuga flugfélagið Ernir í Bolungarvík árið 1970 og hófu rekstur á Ísafjarðarflugvelli. Hér er rætt við þau hjónin í tilefni 50 ára afmælisins og stiklað á nokkrum þáttum í stórmerkilegri sögu flugfélagsins; félags sem þau hafa verið vakin og sofin yfir alla tíð.
#13 – Gerviverktaka = undirboð og ólíðandi meinsemd - Sara Hlín Sigurðardóttir 23.12.2020 47:06
Sara Hlín Sigurðardóttir er flugstjóri og lögfræðingur sem hefur vakið athygli á meinsemd sem gerviverktaka er í fluginu og reyndar fleiri atvinnugreinum. Hún kallar eftir breytingum þegar flugfélög rísa upp að nýju úr Covid-kreppunni. Að stjórnvöld beiti sér fyrir samfélagslega ábyrgum flugsamgöngum og komi í veg fyrir ójafna samkeppni flugfélaga á grundvelli undirboða á vinnumarkaði.
Podobne podcasty
Replaio nie jest wydawcą podcastów; nazwy audycji, okładki i audio należą do ich autorów i są rozpowszechniane przez publiczne kanały RSS