Fílalag
Fílalag
Fílalag er hlaðvarp um tónlist. Á hverjum föstudegi senda þeir Snorri Helgason og Bergur Ebbi frá sér nýjan þátt þar sem dægurlag er tekið fyrir og fílað í ræmur. Í fíluninni felst að greina menningarleg fyrirbæri sem eru kynnt í laginu, tískustrauma í hljómi og tíðaranda í framsetningu. Farið er um víðan völl og fjallar þátturinn um poppmenningu í stærra samhengi. Um málið er ekkert meira að segja. Fílið þetta bara og fokk svo off.
Koniecznie odwiedź stronę podcastu i wesprzyj twórcę: filalag.is
Gdzie słuchać?
Podcasty w aplikacji Replaio Radio Już wkrótcePodcasty trafią do aplikacji już wkrótce. Zainstaluj teraz i jako pierwszy zobacz nowe podejście do podcastów
Odcinki
Black Hole Sun – Grimmdin, girndin og gáleysið 01.05.2026 1:17:59
Soundgarden – Black Hole Sun Óreimuð hermannastígvél. Hvít frosin mús tekin úr tupperware-boxi. Blautur labrador hundur hleypur eftir engi. Óveðurskýi hrannast upp á himni. Heimsendir nálgast. Jésú í sandölum. Jésú í hettupeysu. Jésú með rafmagnsgítar. Jésú í baði. Jésú fullur. Jésú sorgmæddur Jésú stónd. Jésú einmana. Jésú hræddur.
Anarchy in the UK – Stærsta svindl sögunnar 23.01.2026 56:13
Sex Pistols – Anarchy in the UK Taktu kjötmassa og láttu hann skoppa eins og pinball kúlu á milli blautra skuggasunda og lostaklúbba og hrærðu honum svo ofan í karríkássu þúsund ára gamals stéttskipts þjóðskipulags misjafnra lita og lykta. Stingdu svo rafmagni inn í blautt kjötið, slímugt, vessandi rafleiðandi kjötið og keyrðu upp spennuna í […]
Laura’s Theme – Lerki og lík 05.12.2025 48:42
Angelo Badalamenti og David Lynch – Laura Palmer’s theme (from Twin Peaks) Tré, skógur, rökkur. Móða á gleraugum. Blaut laufblöð. Gulir plastborðar flaksa. Grár himinn. Flannelskyrta, keðjusög. Ófelía í sefinu. Þægindi, velmegun, teppi, draumar, hlýja, nærvera. Sjaldan hefur feelgood og hrylling verið blandað jafn vel saman og í sjónvarpsþáttunum Twin Peaks. En heilinn sendir samt [...
Podobne podcasty
Replaio nie jest wydawcą podcastów; nazwy audycji, okładki i audio należą do ich autorów i są rozpowszechniane przez publiczne kanały RSS