Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

Hlaðvarp

Koniecznie odwiedź stronę podcastu i wesprzyj twórcę: www.spreaker.com

Autor

Thorarinn Hjartarson

Kategoria

Society

Strona podcastu

www.spreaker.com

Ostatni odcinek

19 paź 2026

Gdzie słuchać?

Podcasty w aplikacji Replaio Radio Już wkrótce

Podcasty trafią do aplikacji już wkrótce. Zainstaluj teraz i jako pierwszy zobacz nowe podejście do podcastów

Pobierz z Google Play Zainstaluj za darmo Android prawie 10 mln pobrań · ocena 4,8 iOS niedługo

Odcinki

#499 Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir - Við verðum að opna augun 11.12.2025

Þórarinn ræðir við Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur um útlendingamál, stjórnmálin á Íslandi, jafnrétti kynjanna, heiðursmorð, hælisleitendur, myndir af árásarrifflum, Helga Magnús, Úlfar Lúðvíksson, vopnaburð unglinga og ESB. Þorbjörg segir að gagnrýni um útlendingastefnu ríkisstjórnarinnar sé vanstillt og að þau skref sem tekin hafa verið hafi alltaf verið á stefnu ríkisstjórnarflokkanna.  - Á a...

#498 Arndís Anna K. Gunnarsdóttir - Orðræða dómsmálaráðherra ástæða hræðslu við flóttafólk 09.12.2025

Þórarinn ræðir við Arndísi Önnu Kristínar- Gunnarsdóttur um flóttafólk, landamærin og skipulagða afbrotahópa. Arndís telur að alið sé á ótta með því að blanda þessum atriðum saman og að dómsmálaráðherra hafi aukið tortryggni gagnvart erlendu fólki með sinni orðræðu.  Hún segir að fleiri stjórnmálamenn á borð við Snorra Másson hafi skaðað stöðu flóttafólks og að í praktík sé hann að tala fyrir dauð...

#497 Kolbeinn H. Stefánsson - Vinstrið flutti inn menningarstríðið 07.12.2025

Þórarinn ræðir við Kolbein H. Stefánsson, kennara við félagsfræðadeild Háskóla Íslands um stefnu, menningu og áhrif akademíunnar á Íslandi. Fjallað er um hvernig akademísk umræða hefur tekið breytingum undanfarin ár í kjölfar mikillar bómullarvæðingar þar sem beinskeyttar umræður voru kveðnar í kútinn til þess að þóknast þeim sem telja slík orðaskipti vera of hvöss.  Kolbeinn segir þetta hafa veri...

#496 Jóhann Páll Jóhannsson - Mun ekki standa í vegi fyrir rannsóknum á olíuleit á Drekasvæðinu 06.12.2025

Þórarinn ræðir við Jóhann Pál Jóhannsson, orku-, umhverfis- og loftslagsráðherra um orkumál, Drekasvæðið og útlendingamál. Í upphafi er rætt um efnahagsmál og hvernig ríkisstjórnin hyggst takast á við kólnandi hagkerfi. Rætt er um virkjanakosti og hvernig Jóhann sér fyrir sér að takast á við flókið regluverk í virkjanakostum. Í kjölfarið er rætt um loftslagsaðgerðir og fyrirhugaða olíuleit Heiðars...

#493 Unnar Stefán Sigurðsson - Skólastjóri Háaleitisskóla við Ásbrú 04.12.2025

Þórarinn ræðir við Unnar Stefán Sigurðsson, skólastjóra Háaleitisskóla í Reykjanesbæ. Unnar hefur getið sér gott orðspor fyrir sérstaklega góðan árangur við skólann sem staðsettur er á Ásbrú. Í þættinum ræðir hann áskoranir sem fylgir því að taka á móti fólki með ólíkan menningarbakgrunn og hvaða undirstöður þurfa að vera fyrir hendi til þess að taka vel á móti fólki sem hingað leitar. Unnar segir...

#495 Einar Þorsteinsson - "Ég vil mynda borgarstjórn til hægri" 02.12.2025

Þórarinn ræðir við Einar Þorsteinsson, fyrrum borgarstjóra og borgarfulltrúa Framsóknarflokksins. Einar ætlar sér að leiða Framsókn aftur í næstu borgarstjórnarkosningum og segist vilja leiða borgarstjórn til hægri. Í þættinum er rætt um samning sameinuðu þjóðanna við þjónustu við fatlað fólk, stjórnmálin á Íslandi, kulnun, fjármál borgarinnar, menntamál, móttökudeildir fyirr börn með erlendan bak...

#494 Arna Lára Jónsdóttir - Tilefni til bjartsýni í efnhagslífinu 01.12.2025

Þórarinn ræðir við Örnu Láru Jónsdóttur sem er alþingismaður Samfylkingarinnar og formaður viðskipta- og efnahagsnefndar.  Í upphafi þáttar er rætt um stöðu Íslands og efnahagskerfið. Arna Lára telur of mikla svartsýni einkenna umræðuna og að hægt sé að horfa björtum augum til framtíðar þrátt fyrir áskoranir sem hún segir vera tímabundnar. Fjallað er um húsnæðispakkkann, kólnun hagkerfisins, hlutd...

#492 Stefán Atli Rúnarsson - Gervigreind - Útópía eða dystópía? 29.11.2025

Þórarinn ræðir við Stefán Atla Rúnarsson en hann heldur námskeið um hvernig best megi aðlaga persónulegt líf að gervigreind og hámarka afköst. Rætt er um ýmis mál er varðar gervigreind, þar á meðal hvernig maður gefur gervigreind fyrirmæli, dómsdagsspár, börn og gervigreind, hvort að Ísland geti orðið leiðandi á sviði gervigreindar og hvort að hún muni koma til með að taka yfir. Til að fá þætti hl...

#491 Þorsteinn Víglundsson - Ríkisafskipti á húsnæðismarkaði eru of mikil 29.11.2025

Þórarinn ræðir við Þorstein Víglundsson, fyrrum ráðherra og núverandi forstjóri eignarhaldsfélagsins Hornsteins ehf. Rætt er um húsnæðispakka ríkisstjórnarinnar en Þorsteinn hefur verið opinberlega gagnrýninn á þá stefnubreytingu sem ríkisstjórnin hefur tekið með honum. Hann telur það óeðlilegt hvernig forgangsröðun sveitarfélaga hefur verið gagnvart úthlutunum lóða og segir að opinber afskipti le...

#490 Iva Adrichem og Jóhanna Jakobsdóttir - Fjölmiðlar, háskólinn og kvennaklefar 22.11.2025

Þórarinn ræðir við Ivu Adrichem og Jóhönnu Jakobsdóttur, hugsuði.  Rætt er um stöðu fjölmiðla, fjölmiðlanefnd, breytt viðhorf, RÚV, stöðu hins opinbera, kynjafræði, inngildingu, íslamisma, háskólasamfélagið, vísindi og fötlunarfræði. - Er Reykjavík örugg fyrir hinseginfólk? - Eru fatlaðir einsleitur hópur með sameiginlegar langanir? - Hver eru tengsl inngildingar við vinstrimenn? Þessum spurningum...

#489 Vilhjálmur Birgisson - Það er kjaftæði að það halli á opinbera starfsmenn 18.11.2025

Þórarinn ræðir við Vilhjálm Birgisson, formann Starfsgreinasamband Ísland, um kjaramál, efnahagsástandið og stjórnmál á Íslandi. Vilhjálmur er gagnrýninn á það hvernig útfærsla styttingu vinnuvikunnar átti sér stað og segir að verkafólk fái enn ekki að njóta góðs af þeim samningum líkt og fólk sem starfar hjá hinu opinbera. Það sem þurfi fyrst og fremst að gera er að bæta kjör verkafólks á Íslandi...

#488 Björn Berg Gunnarsson - Öll heimili þurfa að undirbúa sig undir veturinn 14.11.2025

Þórarinn ræðir við Björn Berg Gunnarsson, fjármálaráðgjafa og frumkvöðul, um stöðu efnahagsmála á Íslandi. Rætt er um hvort að seðlabankinn sé í þeirri stöðu að geta lækkað vexti, húsnæðismarkaðinn, hlutdeildarlán, opinber afskipti, ungt fólk, óhagnaðardrifin leigufélög, lífeyrismál og það hvernig heimilin þurfa að undirbúa sig fyrir veturinn. - Eru efnahagsmálin að fara að versna? - Eru óhagnaðar...

#487 Diljá Mist - Kulnun, Reykjavíkurborg og kvenfrelsi 11.11.2025

Þórarinn ræðir við Diljá Mist Einarsdóttur um hið ýmsa.  Í upphafi þáttar er fjallað um kulnun, áhrif þess fyrirbæris á samfélagið og hvaða undirliggjandi þættir kunna að liggja að baki því að fólk fer í kulnun.  Nú er stutt í sveitarstjórnarkosningar og því er rætt um stöðu Reykjavíkurborgar, samgöngur og hvort að Guðlaugur Þór Þórðarson sé að fara í borgina til að leiða Sjálfstæðisflokkinn.  Að...

#486 Jónas Atli Gunnarsson - Óvissa og húsnæðispakki ríkisstjórnarinnar 10.11.2025

Þórarinn ræðir við Jónas Atla Gunnarsson, hagfræðing og teymisstjóra Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um húsnæðispakka ríkisstjórnarinnar og framtíðarhorfur á fasteignamarkaði. Rætt er um hvaða áhrif húsnæðispakkinn kann að hafa á næstunni og hvernig það mun koma til með að birtast í efnahagskerfinu og á hinum pólitíska vettvangi. Fjallað er um leiguverð, fasteignaverð, óhagnaðardrifin úrræði, eft...

#485 Jökull Sólberg - Núans er nýja n-orðið 09.11.2025

Þórarinn ræðir við Jökul Sólberg, frumkvöðul og sósíalista, um heimspekileg og hugmyndafræðileg ágreiningsefni. Fjallað er um samþykktan kúltúr, afhverju stjórnmál eru horfin úr tónlist og öðrum listgreinum, Kína, woke-ið, Gísla Martein og margt fleira. - Er Kína með lausnirnar? - Er Gísli Marteinn þverskurður þjóðarinnar? - Afhverju er pólitík horfin úr tónlist? Til að fá þætti hlaðvarpsins án au...

#484 Sverrir Helgason - Þessir ungu strákar þola ykkur ekki 04.11.2025

Þórarinn ræðir við Sverra Helgason um ýmis mál. Hann hefur verið sagður vera öfgamaður en hann lætur fram sín sjónarmið á hvassan hátt á samfélagsmiðlinum X.  Rætt er um skólakerfið, ungu strákana, öfgahægrið, leikreglur leyfilegrar umræðu, skautun, kynjastríðið, að sundra og drottna. RÚV, stöðu kirkjunnar og margt fleira. - Er allt hægramegin við miðju öfgahægri? - Hvernig sér Sverrir fyrir sér f...

#483 Hlédís Maren Guðmundsdóttir - Konur eiga ekki að þurfa að þjóna hugmyndafræðinni 26.10.2025

Þórarinn ræðir við Hlédísi Maren Guðmundsdóttir, félagsfræðing, um bakslag í femíniskri baráttu. Hlédís er gagnrýnin á framgöngu kvenréttindabaráttunnar undanfarin ár og telur að innflutt orðræða sé beggja megin á hinum pólitíska ás. Rætt er um félagslegt taumhald, athugasemdakerfin, femínisma, stalíníska skoðanakúgun, útlendingamál og útlendingastofnun, móðurhlutverkið, faraldursárin, háskólasamf...

#482 Sölvi Tryggvason og Gunnar Dan - Samsæri, slaufanir og ábyrg umræða 23.10.2025

Þórarinn ræðir við Sölva Tryggvason, hlaðvarpsstjórnanda og Gunnar Dan sem einnig er hlaðvarpsstjóri og margt fleira. Farið er um víðan völl og rætt um samsæriskenningar, lyfjanotkun, skjánotkun barna, samfélagsmiðla, geimverur, stjórnmálin, almenningsumræðu, slaufanir og margt fleira. - Afhverju var Sölvi Tryggva valinn til þess að vera slaufaður? - Er lyfjanotkun barna í dag skynsamleg? - Hverni...

#481 Gale Pooley - Superabundance, Iceland, and the European Union 21.10.2025

Þórarinn talks with Gale Pooley, co-author of the book Superabundance, written together with Marian Tupy. They discuss the ideas in the book and how they challenge conventional views about scarcity, economic growth, and the future. The conversation also touches on Iceland, the European Union, and the United States’ perspective on Europe, as well as topics like ideology, politics, knowledge, and in...

#479 Sambandsþing ungra sjálfstæðismanna 18.10.2025

Þórarinn tekur hús á ungum sjálftæðismönnum á sambandsþingi SUS. Rætt er um stöðu flokksins, hlutverk ungra sjálfstæðismanna, húsnæðismál, væl ungmenna, Miðflokkinn og margt annað. Rætt er við, í þessari röð, Hermann Nökkva Gunnarsson, Höllu Margréti, Júlíus Viggó, Steinar Inga, Tómas Orra, Unni Elínu og Viktor Pétur.  Til að fá þætti hlaðvarpsins án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á: www.pa...

#477 Kristján Ra Kristjánsson - Kerfið letur rekstur á Íslandi 14.10.2025

Kristján Ra hefur marga fjöruna sopið á Íslandi, Svíþjóð og Bandaríkjunum. Hann hefur 30 ára reynslu í viðskiptum, kom að stofnun Skjás eins sem nú er Sjóncarp Símans, fjölmörgum leikhúsverkefnum, veitingarekstri og öðrum rekstri. Kristján hefur hins vegar áhyggjur af rekstrarumhverfi á Íslandi. Hann segir að það séu óveðurský er varðar fjölmiðlaumhverfi á Íslandi og að fjölmiðlar reki sig að mikl...

#480 Landsþing Miðflokksins 11.10.2025

Þórarinn mætir á landsþing Miðflokksins og ræðir þar við Sigmund Davíð, Björn Inga Hrafnsson, Kjartan Magnússon, Snorra Másson, Bergþór Ólason og Sigríði á Andersen í þessari röð.

#478 Ugla Stefanía Kristjönu- Jónsdóttir - "Er Snorri að segja að ég sé bara karlmaður?" 10.10.2025

Þórarinn ræðir við Uglu Stefaníu Kristjönu- Jónsdóttur um transmálin á Íslandi. Fjallað er um hvernig umræðan hefur breyst, bakslagið, trans börn, hversu mörg kyn það séu, leikjafræði umræðunnar, afhverju transfólk er alltaf vinstrisinnað, hatursorðræðu, búningsklefamálin, hvort að trans konur eigi að vera í kvennaklefa í sundi, hormónameðferðir, stöðuna í Bandaríkjunum og Bretlandi og margt fleir...

#476 Júlíus Viggó Ólafsson - Villta vinstrið er horfið 07.10.2025

Þórarinn ræðir við Júlíus Viggó Ólafsson en hann er nýr formaður Samtaka ungra sjálfstæðismanna. Farið er um víðan völl og rætt um stöðu Sjálfstæðisflokksins, Charlie Kirk, tjáningarfrelsi, villta vinstrið, útlendingamál, viðhorfsbreytingar ungs fólks og margt fleira. - Ætti Sjálfstæðisflokkurinn að hætta að hafa áhyggjur af villta vinstrinu? - Hvernig mun Sjálfstæðisflokkurinn takast á við vinsæl...

#475 Lilja D. Alfreðsdóttir -Hagsmunir Íslands í öndvegi verði Lilja formaður Framsóknar 03.10.2025

Þórarinn ræðir við Lilju Dögg Alfreðsdóttir um stöðu Framsóknar, stjórnmálin á Íslandi, hælisleitendamál, verðbólgu á Íslandi, fæðingartíðni, gildi, menningu og menntamál og menntamálaráðherra. Lilja segir að Framsóknarflokkurinn myndi breytast töluvert undir hennar stjórn. Flokkurinn yrði bæði meira hugmyndafræðilegur en einnig myndi Lilja vilja að flokkurinn myndi einbeita sér að hagsmunu Ísland...

Słuchaj podcastu Ein Pæling w Replaio

Radio i podcasty w jednej aplikacji - za darmo, bez zakładania konta. Zainstaluj już dziś i nie przegap premiery

Pobierz z Google Play

Replaio nie jest wydawcą podcastów; nazwy audycji, okładki i audio należą do ich autorów i są rozpowszechniane przez publiczne kanały RSS