Thorarinn Hjartarson
Ein Pæling
Hlaðvarp
Koniecznie odwiedź stronę podcastu i wesprzyj twórcę: www.spreaker.com
Autor
Thorarinn Hjartarson
Kategoria
Strona podcastu
Ostatni odcinek
19 paź 2026
Gdzie słuchać?
Podcasty w aplikacji Replaio Radio Już wkrótcePodcasty trafią do aplikacji już wkrótce. Zainstaluj teraz i jako pierwszy zobacz nowe podejście do podcastów
Odcinki
#524 Einar Baldvin - Gervigreindin er skurðgoð 11.02.2026 1:10:21
Þórarinn ræðir við Einar Baldvin, sjálfstætt starfandi listamann og háskólakennara. Einar skrifar greinar þar sem hann ræðir vanhelgun Kristinnar trúar og færir rök fyrir því að stanslaus framfarahyggja sé í raun spírall í átt að botninum. Hann spyr hvað það sé að vera raunverulega frjáls og að listsköpun miðalda geti kennt okkur mikið um söguna og að nýta eigi reynsluspeki fyrri ára til að takas...
#523 Sölvi Tryggva - Heilbrigt fólk er ekki líklegt til að vera í vókinu 08.02.2026 1:14:31
Þórarinn ræðir við kollega sinn, Sölva Tryggvason um heilsu, óhollustu, stjórnlyndi, ríkið, sundrungu og stjórnmálamenn. Sölvi telur að vókið sé tilkomið vegna óheilbrigðis. Hann segir að það sé ólíklegt að fólk sé vók sé það heilbrigt. Hann setur þetta í samhengi við faraldurinn og segir að fólk sem hafði sig mest frammi í því að viðhalda aðgerðum stjórnvalda var fólk sem var ólíklegt til þess að...
#522 Jakob Bjarnar - Eru Temufjölmiðlar framtíðin? 05.02.2026 1:13:46
Þórarinn ræðir við Jakob Bjarnar Grétarsson, blaðamann með meiru, um stjórnmálin, fjölmiðla, rétttrúnaðinn, menntamál og andverðleikasamfélagið. Jakob telur hugmynd almennings um einkenni og hlutverk fjölmiðla vera brenglað. Hann segir að hlaðvörp séu að sjálfsögðu ekki fjölmiðlar og það að endurtaka fréttir annarra geri menn ekki að blaðamönnum. Þá sé það sérstaklega einkennilegt þegar slíkir ein...
#521 Emmsjé Gauti - Þurfa listamenn að ritskoða sig? 04.02.2026 1:32:16
Þórarinn ræðir við Emmsjé Gauta, tónlistarmann með meiru, um ýmislegt. Í upphafi er rætt um samstarfsaðila hlaðvarpa og tónlistarmanna í samhengi við siðferði, veðmálasíður, áfengi og nikótín. Þá er því velt upp hvort að listamenn sæti takmörkunum vegna samstarfsaðila og hvort að þeir hagi sínum skoðunum í samræmi við það. Að því loknu er rætt um samfélagsumræðu, útlendingamál, Gísla Martein, skað...
#520 Þorleifur Örn Arnarson - Ólík sjónarmið verða að takast á 02.02.2026 1:07:47
Þórarinn ræðir við Þorfleif Örn Arnarson, leikstjóra og hugsuð. Rætt er um ýmis mál en aðallega umræðuhefð og hvernig hún hefur breyst Vestanhafs og í Evrópu á undanförnum árum. Rætt er um áhrif samfélagsmiðla á fjölmiðla og velt vöngum yfir því afhverju það virðist ganga illa að eiga samræður. Þorleifur hefur reynslu af því að búa í Þýskalandi og lýsir hann því þegar hann ræðir við fólk sem er á...
#519 Helgi Hrafn Gunnarsson - Almenningur hefur ekki hundsvit á útlendingamálum 31.01.2026 1:32:08
Þórarinn ræðir við Helga Hrafn Gunnarsson, gamla Píratann sem allir elska. Farið er um víðan völl en í stuttu máli rætt um þrjá hluti, uppgang fasisma, útlendingamál og vændi. Helgi er gagnrýninn á slaufunarmenningu og setur það í samhengi við frönsku byltinguna og hvaða félagslegu afleiðingar hlýst af múgæsingi. Spurt er hvaða áhrif það hefði haft ef samfélagsmiðlar hefðu verið til á tímum frönsk...
#518 Brynjar Níelsson - Gæti Brynjar hugsað sér að fara í Miðflokkinn? 27.01.2026 2:28:42
Þórarinn ræðir við Brynjar Níelsson, stórvin þáttarins. Líkt og svo oft áður er farið um víðan völl. Rætt er um stöðu Sjálfstæðisflokksins í samhengi við stöðu Miðflokksins. Brynjar telur Miðflokkinn tala tæpitungulaust um raunveruleg vandamál í íslensku samfélagi og að það sé ástæðan fyrir uppgangi Miðflokksins. Þórarinn spyr Brynjar um það hvort að hann gæti betur átt heima í Miðflokknum og hvor...
#517 Kristín Kolbrún Kolbeinsdóttir - Heimavinnandi karlar, skóli án aðgreiningar og þriðja vaktin 25.01.2026 1:01:16
Þórarinn ræðir við Kristínu Kolbrúnu Kolbeinsdóttur um foreldramál en hún er einmitt foreldrafræðingur. Hún telur að þau gildi sem hafa verið hvað hæst í umræðunni undanfarin ár stríða gegn barnvænu samfélagi. Hún telur að skóli án aðgreiningar hafi boðið skipbrot og að yfirbygging menntakerfisins hafi ekki skilað betri árangri. Hún segir skólafólk þurfa að bera ábyrgð en ekki síður foreldrar, kyn...
#516 Sigríður Mogensen - Lífskjör á Íslandi standa og falla með forgangsröðun stjórnvalda um samkeppnishæfni 24.01.2026 1:06:44
Þórarinn ræðir við Sigríði Mogensen, sviðstjóra iðnaðar- og hugverkasviðs Samtaka iðnaðarins um lífskjör á Íslandi, samkeppnishæfni, orkuöflun, gagnaver og menntakerfið. Sigríður segir óvissu einkenna þá tíma sem við nú lifum. Þá telur hún umræðu um orkuöflun hafa verið stýrt af háværum minnihluta sem hafi geta gengið fram með offorsi og séð til þess að halda sjónarmiðum annarra í gíslingu. Þá seg...
#515 Guðlaugur Þór Þórðarson - Íslendingar þeir einu sem gæta hagsmuna Íslands 23.01.2026 1:07:57
Þórarinn ræðir við Guðlaug Þór Þórðarson, fyrrum ráðherra, um alþjóðastjórnmálin. Fjallað er um hagsmunagæslu Íslendinga í nýjum veruleika, varnarmál, fágætismálma, hagsmunir Íslands í samhengi við hagsmuni til Vesturs og Austurs, skuggabann og margt fleira. Upptaka 15. janúar 2026. Þessum spurningum er svarað hér. Til að fá þætti hlaðvarpsins án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á: www.pardus...
#514 Pétur Marteinsson - Nýja Samfylkingin, woke-ið og prófkjör 21.01.2026 1:10:36
Þórarinn ræðir við Pétur Marteinsson, frumkvöðul og kaffihúsaeiganda, en hann stefnir nú á að demba sér í stjórnmál og ætlar sér í prófkjör þar sem hann stefnir á að verða oddvit Samfylkingarinnar í næstkomandi borgarstjórnarkosningum. Þar mun hann etja kappi við Heiðu Björg Hilmisdóttur, núverandi borgarstjóra. Spjallið fer um víðan völl en auk þess að ræða það sem hann telur að betur megi fara í...
#513 Agnar Tómas Möller og Björn Jón Bragason - Alþjóðastjórnmál valda kerfisvillu hjá vinstrimönnum 20.01.2026 1:19:26
Þórarinn ræðir við Agnas Tómar Möller og Björn Jón Bragason um alþjóðastjórnmál og menningu. Rætt er um samfélagslega lofttæmið sem lengi hefur verið við lýði og hvaða áskoranir muni leita á okkar borð á næstunni. Fjallað er um Grænland, Bandaríkin, sögulegt samhengi og hvort að lífskjör á Íslandi séu afleiðing handahófskenndra atburða. Þá er einnig farið yfir það hvað áhrif lestur og nám hefur áh...
#512 Kolbeinn H. Stefánsson og Jökull Sólberg - Verður framtíðin duct-tape-uð? 18.01.2026 1:05:07
Þórarinn ræðir við Kolbein H. Stefánsson, kennara við félagsfræðideild háskóla Íslands, og Jökul Sólberg, frumkvöðul og sósíalista. Kastljósinu er beint að alþjóðastjórnmálunum og er rætt um það hvaðan uppspretta nýju strauma heimsvaldastefnunnar er að finna. Fjallað er um Venezuela, þjóðernishyggju, peningastefnu Evrópu, Þorgerði Katrínu, Rússland og Úkraínu. - Eru til jákvæðar hliðar þjóðernishy...
#511 Guðmundur Fylkisson - Rauði krossinn vann gegn störfum Guðmundar 16.01.2026 1:21:41
Þórarinn ræðir við Guðmund Fylkisson, lögreglumann sem hefur gerst frægur við einstaklega gott lag á því að aðstoða börn í neyslu. Hann telur skaðaminnkandi úrræði vera skaðræðisfyrirbæri og segir Rauða krossinn hafa staðið í vegi fyrir því að hann gæti aðstoðað börn í neyð. Hann segir að skaðaminnkandi úrræði í samfloti við eiturlyfjabílinn sé ekki farsæl lausn fyrir börn í neyslu. Guðmundur tel...
#510 Omar Rondon - Allir ættu að samgleðjast Venezuelabúum 13.01.2026 1:01:12
Þórarinn ræðir við Omar Rondon en hann er flóttamaður frá Venezuela. Omar telur að allir ættu að samgleðjast Venezuelabúum nú þegar Nicolás Maduro hefur verið steypt af stóli og situr nú í bandarísku fangelsi í New York. Hann segir að Venezuelabúum sé sama um það hvernig olíunni verði ráðstafað nú þegar Bandaríkjamenn segjast vilja stýra landinu einfaldlega vegna þess að um langt skeið hafi íbúar...
#509 Hilmar Freyr Gunnarsson - Afhverju getur maður ekki byggt eigið heimili? 08.01.2026 1:03:24
Þórarinn ræðir við Hilmar Frey Gunnarsson, húsasmíðameistara, um húsnæðismál, stjórnsýsluna, Grindavík og fleira. Hilmar telur að kerfið sporni við því að fólk geti byggt eigið heimili og að það sé nær ómögulegt miðað við áherslur stjórnvalda. Fjallað er um þetta í samhengi við aðgerðir stjórnvalda í Grindavík og hugmyndafræðilegan ágreining sem fylgir náttúruhamförum og frelsi íbúa til þess að sn...
#508 Ómar Annisius - Hryðjuverkaógn minni en samt til staðar á Íslandi 30.12.2025 1:18:43
Þórarinn ræðir við Ómar Annisius er fyrrum sérstaveitarmaður en starfar nú sem aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá Lögreglustjóranum á Suðurnesjum. Þetta er í annað skiptið sem Ómar mætir en nú telja bæði Ómar og Þórarinn að staðan hafi breyst töluvert frá því að þeir ræddu saman síðast. Rætt er um breytt kerfi á landamærunum sem er til þess ætlað að tryggja öryggi betur gagnvart þeim borgurum sem koma...
#507 Stefán Máni - Slaufunarmenningin eins og í skáldsögu Kafka 28.12.2025 1:08:33
Þórarinn ræðir við Stefán Mána, rithöfund með meiru. Fjallað er um list, listamannalaun, faraldursárin, Kafka, slaufunarmenningu, hagsmunagæslu stjórnmálamanna, umburðarlyndi, GÍsla Martein og afhverju það er verið að reyna að slaufa Stefáni. - Eru jólin hundaflauta? - Afhverju er verið að reyna að slaufa Stefáni Mána? - Afhverju er Stefáni Mána ekki boðið í Gísla Martein? Þessum spurningum er sva...
#506 Jónas Már Torfason - Hversu lengi yrði Íslendingur að aðlagast í Afghanistan? 26.12.2025 1:14:19
Þórarinn ræðir við Jónas Már Torfason, lögfræðing, sem hyggur mögulega á stjórnmálaferil. Jónas er Samfylkingarmaður með sterkar skoðanir og ófeiminn við að tjá þær. Hann telur útlendingamál vera málaflokk sem mikilvægt sé að taka á og að skiljanlegt sé að ónotatilfinning fylgi auknum innflutningi fólks með ólíkan menningabakgrunn. Hann er hrifinn af Paul Collier, hagfræðingi sem meðal annars hefu...
#505 Dóri DNA - Afhverju tekst vinstrinu ekki að farma áru? 23.12.2025 1:09:51
Þórarinn ræðir við Dóra DNA um samfélagið. Dóri hefur áhyggjur af leiðtogaleysi vinstrimanna en að timburmenn vinstrimanna eftir rétttrúnaðarárin muni leiða að lokum til góðs. Þá snúa umræðurnar einnig að kvíða, gervigreindar, samfélagsmiðla og ljótum húsum. - Afhverju á vinstrið ekki leiðtoga? - Þurfa hús alltaf að vera ljót? - Leiðir aukin notkun samfélagsmiðla til kvíða eða kvíði til aukinnar s...
#504 Valmar Väljaots - Slaufun Glerárkirkju minni á uppvaxtarárin í Sovétríkjunum 22.12.2025 1:11:21
Þórarinn ræðir við Valmar Väljaots, fyrrum organista Glerárkirkju um atvik sem leiddi til þess að Valmar hætti störfum í kirkjunni. Málið hófst þegar umræður áttu sér stað um kynfræðslu Siggu Daggar í Glerárkirkju þar sem mörgum blöskraði það hvernig kynfræðslan átti sér stað. - Afhverju minna slaufanir á Sovíetríkin? - Er eðlilegt að setja typpa og píkumyndir upp á vegg í kirkjum? - Afhverju fæk...
#503 Bergur Ebbi - Ekkert jafn öflugt og ný kynslóð með skoðanir 19.12.2025 1:21:51
Þórarinn ræðir við Berg Ebba Benediktsson, frumkvöðul, hugsuð og uppistandara um fjármál og framtíðina. Bergur Ebbi er í samfloti með fleirum að kynna nýjung á fjármálamarkaði sem nefnist Spesía. Hugmyndin er ný lausn sem auðveldar fólki að fjárfesta í erlendum eignasöfnum. Þar að auki er rætt um lífeyrissjóðina, bankana, tækninýjungar og áhrif þeirra á fjármála- og efnahagsmál, gervigreind og mar...
#502 Árni Helgason - Aftenging 17.12.2025 1:11:55
Þórarinn ræðir við Árna Helgason um nýja bók sem Árni skrifaði. Bókin er skáldsaga sem snertir á hinum einkennilega nútíma þar sem sítenging breytir samskiptum, tjáskiptum og öllu öðru sem við kemur samfélaginu. Auk bókarinnar er rætt um Covid, samfélagsmiðla, stjórnmálin, Sjálfstæðisflokkinn, nútímastjórnmálamanninn, fjölmiðla og RÚV. - Hvernig er hinn ideal-stjórnmálamaður? - Hvað varð um "ég tr...
#501 Þórður Pálsson - Blómaskeið Evrópu var ekki undir ESB 15.12.2025 1:16:36
Þórarinn ræðir við Þórð Pálsson um stöðuna í efnahagskerfinu og ESB. Þórður telur að líkur séu á því að húsnæðisverð muni lækka og að blikur séu almennt á lofti á ýmsum sviðum, eins og hættumerkjum í tölum um atvinnuleysi. Þórður hefur miklar efasemdir gagnvart Evrópusambandinu og telur ófýsilegt að Ísland gangi þar inn. Hann segir blómaskeið Evrópu ekki hafa verið á tímum Evrópusambandsins og að...
#500 Heiðar Guðjónsson - Að útfasa jarðefnaeldsneyti í dag myndi færa lífskjör hundrað ár aftur í tímann 13.12.2025 1:20:53
Þáttur 500 skákar fram Heiðari Guðjónssyni, frumkvöðli sem nú hyggur á olíuævnitýri á Drekasvæðinu. Rætt er um sögulegt samhengi þess að sækja olíu á þessu svæði og hvernig vegferðin hefur litið út hingað til. Einnig er fjallað um pólitískar takmarkanir, orkuskiptin, öryggismál, menningarleg áhrif, hugarfarsbreytingu, lýðræðið, orkumál Evrópu og margt fleira. Eftir drjúgar samræður um þessi mál f...
Podobne podcasty
Replaio nie jest wydawcą podcastów; nazwy audycji, okładki i audio należą do ich autorów i są rozpowszechniane przez publiczne kanały RSS