Bryndís Wöhler, María Kristín Bjarnadóttir

Blautar blaðsíður

Arts EN ↓ Odcinki: 17

Blautar blaðsíður er stafrænn bókaklúbbur þar sem við köfum niður í mismunandi romantasy bækur í hverjum þætti. Við eru tvær vinkonur, óumbeðnar og algerlega óheflaðar og við lofum hlátri, bleytu og algjörri vitleysu. Hlaðvarpið inniheldur blótsyrði, vín, lýsingar á kynferðislegum senum, álfa, dreka og allt þar á milli.

Autor

Bryndís Wöhler, María Kristín Bjarnadóttir

Kategoria

Arts

Ostatni odcinek

7 lip 2026

Gdzie słuchać?

Podcasty w aplikacji Replaio Radio Już wkrótce

Podcasty trafią do aplikacji już wkrótce. Zainstaluj teraz i jako pierwszy zobacz nowe podejście do podcastów

Pobierz z Google Play Zainstaluj za darmo Android 5 mln+ pobrań · ocena 4,8 iOS niedługo

Odcinki

Rites of the Starling 07.07.2026

Bók nr 2 í The Shield of Sparrows trílógíunni er viðfangsefni 17. þátt Blautra blaðsíðna og lofum við miklu fjöri. Við fylgjumst áfram með Odessu og Zavier, en kynnumst einnig nýjum persónum frá fjarlægum heimum og komumst vonandi aðeins meira til botns í þessum leyndardómsfulla töfra heim. Spice skalinn fer yfir það sem vel er gert og betur má fara, og RDG er á sínum stað. Ekki missa af þessum þæ...

Shield of Sparrows 07.07.2026

Í 16. þætti Blautra blaðsíðna fara Bryndís og María yfir bókina Shield of Sparrow. Heimur skrímsla og leyndarmála, þar sem Odessa og Zavier fara með aðalhlutverkin og leiða okkur í gegnum svik, rómantík og margt margt fleira. Ekki missa af þessum þætti, þar sem föstu liðirnir eru á sínum stað og farið er vel út af sporinu. Ath þátturinn inniheldur grafískar lýsingar og er ekki ætlaður hlustendum y...

Crescent City 24.06.2026

Í 15. þætti Blautra blaðsíðna fylgjumst við með Bryce, Hunt, Ruhn og fleiri eftirminnilegum karakterum í heimi þar sem nánast allar töfraverur eru til Álfar með pabba vandamál, englar með mikilmennsku brjálæði, byssur, bílar og margt fleira. Þetta er að sjálfsögðu " Crescent city " bókaserían eftir Sara J. Maas. Föstu liðirnir eru á sínum stað, umræðurnar fara stundum út af sporinu og við skemmtum...

Morning Glory Milking Farm 13.05.2026

14.þáttur Blautra Blaðsíðna er stuttur og laggóður en þó alls ekki af verri endanum. Við tökum smá U-beygju og förum yfir bókina Morning Glory Milking Farm , sem er með… áhugaverðan söguþráð. Við mælum eiginlega með því að lesa bókina án þess að kynna sér of mikið um hana fyrirfram. Treystu okkur bara, þú munt ekki sjá eftir því. ATH. þátturinn inniheldur grafískar kynferðislegar lýsingar og er ek...

The Knight and the Moth 29.04.2026

Sagði einhver ufsagrýlur og heitir riddarar? Því þessi þáttur er stútfullur af hvoru tveggja. Hlustaðu á 13. þátt Blautra blaðsíðna þar sem við köfum ofan í bókina The Knight and the Moth , kynnumst skemmtilegum aukapersónum, áhugaverðri kvennpersónu og nýjum töfraheimi. Bókin skipti okkur aðeins í fylkingar og við erum mjög spenntar að heyra hvað þér, kæri hlustandi, finnst. Ath. þátturinn innihe...

When The Moon Hatched 18.04.2026

Drekar, forboðin örlög og skrítinn, hálf íslenskur víkinga ættbálkur.... þurfa konur eitthvað meira? Í 12. þætti af Blautum blaðsíðum köfum við ofan í When the Moon Hatched eftir Sarah A. Parker. Við kynnumst nýjum og öðruvísi töfraheimi s, karakterum sem sitja lengi eftir og ræðum að sjálfsögðu allt og ekkert á milli himins og jarðar. Ef þú ert fyrir verndandi karlpersónur, sterkar og ákveðnar kv...

Alchemised 11.02.2026

Varst þú líka hrifin af Harry Potter, en vildir óska að Hermione og Draco hefðu farið í sleik? Við líka. Þess vegna lásum við bókina Alchemised. 11.þáttur Blautra Blaðsíðna kafar inn í hinn magnaða töfra heim SenLin Yu og þessara frábæru spin-off bók sem er byggð á persónum úr töfraveröld Harry Potters. Hlustaðu með þegar við köfum niður í bókina og förum yfir allt á milli himins og svarta galdurs...

Brimstone ft. TBR listinn 14.01.2026

Í 10. þætti af Blautum blaðsíum fáum við til okkar Ölmu og Fjólu úr TBR listanum, og saman tökum við loksins fyrir bókina Brimstone. Hinn sjóðheiti Kingfisher, Saeris, Carion og Onyx, refurinn sem stal hjörtum okkar, snúa aftur í annarri bók Fae and Alchemy seríunni eftir Callie Hart, og við urðum ekki fyrir vonbrigðum. Ef þú ert fyrir vampíur, skuggapabba, gott (mjög gott) spice og umræður sem he...

Feathers So Vicious 21.12.2025

Er skammdeigið að fara illa í þig? Vantar þig spice, spice og meira spice til að létta undir með jólastressinu? Langar þig að lesa um forboðna ást á milli einmana prinsessu og prins sem skiptir um ham? Þá erum við með svarið fyrir þig. Feathers So Vicious hefur allt þetta og meira til. En við vörum þig við. Hún er myrk. Og fer með þig á staði sem þú vissir ekki að þig langaði að fara á. En þú munt...

Serpent and the Wings of night 19.11.2025

Vampírur, vampírur og meiri vampírur. Þáttur 8 í Blautum blaðsíðum fjallar um vampíru heim Carrisu Broadbent og inniheldur ja, vampírur, lífshættulega stríðsleika, stríð og guða erjur.  Við kynnumst Oraya, Raihn, Vincent og fleirum í þessu æsispennandi duology þar sem forboðin ást, galdrar og guðir mætast og ekki allir labba heilir frá þeim fundi.  Vorum við búnar að nefna að bækurnar fjalla um va...

Eldritch 22.10.2025

Töfra skógur, forboðnar tilfinningar og nöfn sem við getum ekki borið fram. Í 7. þætti Blautra blaðsíðna sökkvum við dýpra inn í heim The Eating Woods með bókinnni Eldritch — þar sem Zevander og Mayvith glíma áfram við Cadavros og gömul leyndamál koma upp á yfirborðið. Eldritch er 2. bókin í seríunni og við höfum beðið eftir henni með mikilli eftirvæntingu! ATH þessi þáttur inniheldur efni sem gæt...

Anathema 17.09.2025

Nýr skuggapabbi in the mix?? Já takk. Hlustaðu með þegar við köfum niður í hinn myrka heim Anathemu eftir Keri Lake, þar sem skrítin skrímsli fara á stjá og nornir og drekar berjast hlið við hlið. Það skemmir ekki fyrir að ein af höfuðpersónum bókarinnar, Zevander er vægast sagt sjóðheitur. ATH þessi þáttur inniheldur efni sem gæti framkallað ónotatilfinningar hjá fólki þar sem rætt er um kynferði...

Ice Planet Barbarian 03.09.2025

Bláir geimveru menn, heitur feldur og barátta upp á líf og dauða? Ef þetta hljómar eins og eitthvað fyrir þig, smelltu þá 5. þætti Blautra blaðsíðna í gang og komdu með okkur í þessa óvenjulegu vegferð þegar við kynnumst Vektal og Georgie á ísplánetu mörgum ljósárum frá jörðu. ATH hlaðvarpið inniheldur grafíska lýsingar og spoilera. Trigger warning: kynferðislegur ásetningur án samþykkis.

Throne Of Glass ( og Assasins blade) 20.08.2025

4. þáttur Blautra blaðsíðna fer yfir byrjunina á hinni víðfrægu bókaseríu Throne of Glass eftir Sara J. Maas. Í þættinum hittum við Celeana, Arobyn, Dorian, Kálið og fleiri góða karaktera, RDG er á sínum stað og við kynnum til leiks næstu bók sem, að öllum líkindum, kemur vel á óvart. Komið með okkur í þetta ferðalag þar sem við flettum, skvettum og skemmtum okkur saman.

Onyx Storm 30.07.2025

3.þáttur Blautra Blaðsíðna fjallar um bókina Onyx storm, 3.bókina í the Empyrean series, einnig þekkt sem Fourth wing. Í þættinum fara Bryndís og María yfir helstu kenningar hingað til og hvað muni gerast í næstu bókum, og fara aðeins út fyrir ramman í fasta liðnum Ríða-drepa-giftast. Komið með og flettið, skvettið og skemmtið ykkur með okkur þegar við köfum niður í drekakynlíf, skuggapabba og all...

Quicksilver 16.07.2025

Í öðrum þætti bókaklúbbsins Blautar blaðsíður kynnumst við sögupersónum úr bókinni Quicksilver. Við ræðum um vampírur, álfa og allt þar á milli... bókstaflega. Komið með okkur í þetta ferðalag, þegar við flettum, skvettum og skemmtum okkur með Saeris, Kingfisher, Malcolm og fleiri. Ath. Hlaðvarpið inniheldur spoilera, blótsyrði og grafískar lýsingar.

ACOTAR 09.07.2025

Í fyrsta þætti kafar bókaklúbburinn Blautar blaðsíður niður í bókaseríuna sem byrjaði þetta allt saman, A Court Of Thorn And Roses. Komið með í þetta ferðalag þar sem við flettum, skvettum og skemmtun okkur saman með Feyre, Rhys og fleiri skemmtilegum karakterum.

Słuchaj podcastu Blautar blaðsíður w Replaio

Radio i podcasty w jednej aplikacji - za darmo, bez zakładania konta. Zainstaluj już dziś i nie przegap premiery

Pobierz z Google Play

Replaio nie jest wydawcą podcastów; nazwy audycji, okładki i audio należą do ich autorów i są rozpowszechniane przez publiczne kanały RSS