Hipsumhaps

Ást & praktík

Music IS ↓ Odcinki: 12

Hlaðvarpssería um plötuna Ást & praktík með Hipsumhaps.

Koniecznie odwiedź stronę podcastu i wesprzyj twórcę: hipsumhaps.is

Autor

Hipsumhaps

Kategoria

Music

Strona podcastu

hipsumhaps.is

Ostatni odcinek

22 sie 2024

Gdzie słuchać?

Podcasty w aplikacji Replaio Radio Już wkrótce

Podcasty trafią do aplikacji już wkrótce. Zainstaluj teraz i jako pierwszy zobacz nowe podejście do podcastów

Pobierz z Google Play Zainstaluj za darmo Android prawie 10 mln pobrań · ocena 4,8 iOS niedługo

Odcinki

Þrjú orð (feat. Kiddi) 22.08.2024

Í þessum þætti spjalla Fannar & Orri við Kristin Þór Óskarsson. Til umræðu var tónlistargróska Garðabæjar, harmonikkuhljómsveitin Klaxons og auðvitað afurð blómlegs samstarfs þeirra Fannars og Kidda, platan Ást & praktík. Lokalag plötunnar, Þrjú orð, var svo auðvitað krufið. Takk fyrir að hlusta.

1, 31 (feat. Bragi Reynir) 24.04.2024

Í þessum þætti fengu Orri & Fannar frían sálfræðitíma þegar Bragi Reynir Sæmundsson velti með þeim steinum varðandi það hvernig maður getur verið besta útgáfan af sjálfum sér, ásamt því auðvitað að rýna í ellefta lag plötunnar: 1, 31. Takk fyrir að hlusta.

Ást & praktík (feat. Atli Bollason) 12.04.2024

Í þessum þætti spjalla Fannar & Orri við Atla Bollason. Hlustendur fá að kynnast lífssýn Atla og samfélagsrýni í hæsta gæðaflokki auk þess sem Atli & Fannar rifja upp tilurð titillags plötunnar Ást & praktík. Takk fyrir að hlusta.

Skattemus (feat. Mugison) 27.03.2024

Í þessum þætti spjalla Fannar & Orri við prins krúttkynslóðarinnar, sjálfan Mugison. Til umræðu var töffararembingur, frosinn kjúklingur og vitaskuld níunda lag plötunnar; Skattemus. Takk fyrir að hlusta.

Ástið (feat. Andrea Jónsdóttir) 21.03.2024

Í þessum þætti fræðir Andrea Jónsdóttir Fannar & Orra um Bítlana, bransavæðingu tónlistarinnar og auto-tune. Af hverju vill reynslumesti DJ landsins helst bara nota geisladiska?  Takk fyrir að hlusta.

Annan heim (feat. Erla Björnsdóttir) 07.03.2024

Í þessum þætti ræða Fannar & Orri við Dr. Erlu Björnsdóttur um svefn frá ýmsum hliðum. Hvers vegna sækir kvíðinn að okkur rétt fyrir svefninn? Hvernig í ósköpunum svaf Fannar svona illa, svona lengi?   Takk fyrir að hlusta.

Hugmyndin um þig (feat. Ragnhildur Steinunn) 22.02.2024

Í þessum þætti rætist bernskudraumur Fannars þegar Ragnhildur Steinunn tekur hann í viðtal. Hún reyndar rekur úr honum garnirnar. Við ræddum um dagskrárgerð, ofurkonuímyndina og  Söngvakeppni Sjónvarpsins ásamt því auðvitað að rýna í sjötta lag plötunnar: Hugmyndin um þig. Takk fyrir að hlusta.

SMS (feat. Bergur Ebbi) 16.02.2024

Í þessum þætti líta Orri & Fannar ekki bara til framtíðar, heldur líka um öxl í spjalli við Berg Ebba um samfélagsmiðla, gervigreind og nostalgíu, ásamt því auðvitað að rýna í fimmta lag plötunnar: SMS Takk fyrir að hlusta.

Góðir hlutir gerast hææægt (feat. Dr. Gunni) 08.02.2024

Í þessum þætti þurftu Orri & Fannar kliníska nálgun. Dr. Gunni settist með þeim og ræddi um hvað Netflix er orðið leiðinlegt, Gylfa Ægis og mikilvægi tónlistarumfjöllunar,  ásamt því auðvitað að rýna í fjórða lag plötunnar: Góðir hlutir gerast hææægt Takk fyrir að hlusta.

Á ég að hafa áhyggjur? (feat. Snorri Barón) 02.02.2024

Í þessum þætti tylla Orri & Fannar sér við fótskör meistarans, Snorra Baróns Jónssonar, og spjalla um óttann við að verða leiðinlegur, tónlist og fleiri mikilvæg mál ásamt því að rýna í þriðja lag plötunnar: Á ég að hafa áhyggjur? Takk fyrir að hlusta.

Hjarta (feat. Tómas Guðbjartsson) 25.01.2024

Í þessum þætti spjalla Orri & Fannar við Tómas Guðbjartsson um náttúruna, lýðheilsu og fleiri hjartans mál ásamt því að rýna í annað lag plötunnar: Hjarta. Takk fyrir að hlusta.

Gleðitíðindi (feat. Fannsi) 18.01.2024

Í þessum þætti spjallar Orri við Fannar um allt og eiginlega ekki neitt ásamt því að rýna í fyrsta lag plötunnar: Gleðitíðindi. Takk fyrir að hlusta.

Słuchaj podcastu Ást & praktík w Replaio

Radio i podcasty w jednej aplikacji - za darmo, bez zakładania konta. Zainstaluj już dziś i nie przegap premiery

Pobierz z Google Play

Replaio nie jest wydawcą podcastów; nazwy audycji, okładki i audio należą do ich autorów i są rozpowszechniane przez publiczne kanały RSS