Natan Kolbeinsson og Erlingur Sigvaldason
Á öðrum bjór!
Bara vinir að ræða pólitík yfir bjór!
Koniecznie odwiedź stronę podcastu i wesprzyj twórcę: www.facebook.com
Autor
Natan Kolbeinsson og Erlingur Sigvaldason
Kategoria
Strona podcastu
Ostatni odcinek
21 lut 2026
Gdzie słuchać?
Podcasty w aplikacji Replaio Radio Już wkrótcePodcasty trafią do aplikacji już wkrótce. Zainstaluj teraz i jako pierwszy zobacz nowe podejście do podcastów
Odcinki
Special um norskar þingkosningar! 03.09.2025 53:07
Natan fær til sín Dóru Sif Tynes og Ingvar Þóroddsson að ræða norskar þingkosningar á mannamáli og greina stöðuna.
Ný sería, nýir tímar! 28.08.2025 55:02
Bjórsnáðarnir ræða við Tómas Þór Þórðarson, aðstoðarmann þingflokks sjálfstæðisflokksins og Pétur Björgvin Sveinsson, aðstoðarmann þingflokks Viðreisnar. Við ræðum pólitíkina í sumar og stóru málin í vetur.
Lokabjór fyrstu seríu - Á öðrum bjór! 21.07.2025 1:17:55
Stjórnmálaspekúlantarnir Eyrún Þórsdóttir og Lísa Margrét Gunnarsdóttir koma til okkar og ræða liðinn þingvetur, við förum yfir lof og last liðins veturs á marga vegu. Hvaða þingmaður fær last Natans? Hvaða flokki lofar Erlingur óvænt? Allt kemur þetta í ljós í lokaþætti þessarar seríu.
Á öðrum bjór með Daða Má Kristóferssyni 09.07.2025 56:10
Bjórsnáðarnir fá Daða Má Kristófersson fjármálaráðherra og varaformann Viðreisnar til sín. Ræða þeir nýtt hlutverk hans sem áfengismálaráðherra, hvernig Natan er sammála Miðflokknum, Erlingur gleymir brúðkaupinu sínu, Daði tekur drengina í stutta hagfræðikennslu auk þess sem veiðigjöldin eru rædd.
Á öðrum bjór með Líf Magneudóttur 30.06.2025 1:21:22
Bjórsnáðarnir fá enga aðra en Líf Magneu til sín. Við ræðum leikskólamálin, næturlífið í Reykjavík, þegar karlmaður vildi mynda meirihlutamyndun með Líf en ræddi það bara við karlmenn í kringum hana, sólmyrkva á næsta ári og stemninguna á vinstrivængnum fyrir komandi kosningar.
Fimmtudagsbjór með Gunnari Ásgrímssyni 19.06.2025 1:00:06
Gunnar Ásgrímsson, framsóknarmaður með meiru, kíkir á bjórsnáðana og ræðir lægð framsóknar í skoðanakönnunum, sóknarfæri á landsvísu og í borg. Við ræðum bjórverðlag og ólík hjól á höfuðborgarsvæðinu ásamt því að kynnast því hver hinn týpíski ungi framsóknarmaður er.
Á öðrum bjór með Júlíusi Viggó Ólafssyni 09.06.2025 1:06:25
Bjórsnáðarnir fá Júlíus Viggó, fyrrverandi formann Heimdalls til sín. Þeir ræða stjórnmálin í dag, stöðu Sjálfstæðisflokksins í borginni og á þingi og tónlistarmenningu stjórnmálanna.
Fimmtudagsbjór með Sverri Páli Einarssyni 05.06.2025 1:08:40
Bjórsnáðarnir ræða við nýkjörinn forseta Uppreisnar, ungliðahreyfingar Viðreisnar. Við ræðum stjórnmálin, meinta landasölu Sverris og veitingastaðinn Metro.
Á öðrum bjór með Heiðu Ingimarsdóttur 26.05.2025 1:06:22
Bjórsnáðarnir hitta Heiðu Ingimarsdóttur, fyrsta varaþingmann Viðreisnar í Norðausturkjördæmi. Við ræðum áherslur hennar á þeim vikum sem hún hleypur í skarðið fyrir Ingvar Þóroddsson, lífið og Múlaþing.
Fimmtudagsbjór með Margréti Erlu Þórsdóttur 22.05.2025 1:03:05
Við fáum Margréti Erlu Þórsdóttur til okkar. Margrét er súperstjarna, master í heimspeki og meðframleiðandi hjá RIFF. Við ræðum um raunir hennar, hot gaura og lítilmennskubrjálæði.
Á öðrum bjór með Grími Grímssyni 12.05.2025 53:22
Bjórsnáðarnir ræða líðandi stundir og hitta Grím Grímsson, alþingismann og fyrrverandi lögreglumann. Rætt er um áfengisverslun, fangelsismál, hugvíkkandi efni og persónuna Grím.
Á öðrum bjór með Kötlu Ársælsdóttur! 05.05.2025 1:04:19
Bókmennta- og leikhúsfræðingurinn Katla Ársælsdóttir kíkir á bjórsnáðana. Leikhúsin eru rædd, frelsisbarátta Írlands og hagsmunabarátta stúdenta.
Á öðrum bjór með Friðriki Schram! 28.04.2025 1:07:04
Bjórsnáðarnir ræða ævintýri sín á sunnanverðum Vestfjörðum, hitta Friðrik Schram sem heldur úti hlaðvarpinu Z & Guð, ræðum um ungt fólk sem leitar í trúnna, hans persónulegu vegferð og lífið.
Á öðrum bjór með Ármanni Leifssyni! 14.04.2025 1:10:37
Bjórsnáðarnir hitta Ármann Leifsson, varaformann Ungra Jafnaðarmanna og gjaldkera, landsfundur Samfylkingarinnar er ræddur, ríkisstjórnina, ungt fólk í pólitík og vegferð flokksins yfirhöfuð.
Á öðrum bjór með Evu Pandoru! 30.03.2025 1:08:03
Fyrrum þingmaðurinn og fyrrum Píratinn hittir bjórsnáðana og ræðir samband sitt með Helga Hrafni pírata, Sauðárkrók og hvernig hún fór út í stjórnmál.
Á öðrum bjór með Sigríði Ingibjörgu Ingadóttur! 23.03.2025 1:10:40
Verkalýðskempan og fyrrum þingmaðurinn Sigríður Ingibjörg Ingadóttir mætir til bjórsnáðanna og ræðir kvenfrelsismál, stjórnmálaferil sinn, verkalýðsbaráttuna og vegferð núverandi ríkisstjórnar. Mikil gleði og mikið hlegið.
Á öðrum bjór með Silju Báru! 16.03.2025 58:33
Natan og Erlingur ræða við Dr. Silju Báru R. Ómarsdóttur frambjóðanda til rektors Háskóla Íslands, þau ræða framboðið, bandarísk stjórnmál og Drekktu betur á Ölstofunni.
Á öðrum bjór með leynigesti! 09.03.2025 50:52
Dularfullur leynigestur kíkir á bjórsnáðana, á mjög persónulegum nótum og er gleði ríkjandi.
BJÓRDAGSSPECIAL 1. MARS - Á öðrum bjór með Magneu Gná og Ingvari Þóroddssyni! 01.03.2025 53:44
Yngstu kjörnu fulltrúar landins í fullu starfi ræða landsmálin, borgarmálin og góðan bjór.
Á öðrum bjór með Þórdísi Lóu! 23.02.2025 1:16:30
Gestur þáttarins að þessu sinni er Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, borgarfulltrúi Viðreisnar, skógræktarbóndi og Eurovision-spekingur.
Á öðrum bjór með Vigdísi Hauks! 18.02.2025 1:05:55
Fyrsti þáttur af Á öðrum bjór! Gestur þáttarins er Vigdís Hauksdóttir blómaskreytingakona, lögfræðingur, fyrrum borgarfulltrúi og þingkona.
Podobne podcasty
Replaio nie jest wydawcą podcastów; nazwy audycji, okładki i audio należą do ich autorów i są rozpowszechniane przez publiczne kanały RSS