RÚV

Þetta helst

News IS ↓ 788 episodi

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.

Visita il sito del podcast e sostieni chi lo crea: www.ruv.is

Autore

RÚV

Categoria

News

Sito del podcast

www.ruv.is

Ultimo episodio

6 nov 2026

Dove ascoltare?

I podcast nell'app Replaio Radio In arrivo

I podcast stanno per arrivare nell'app. Installala ora e scopri per primo un modo tutto nuovo di vivere i podcast

Scaricala su Google Play Installala gratis Android quasi 10 mln di download · valutazione 4,7+ iOS in arrivo

Episodi

Það sem kom í ljós í viðskiptum Ólafs í Samskipum 06.11.2026

Salan á skipafyrirtækinu Samskipum til spænsks fyrirtækis vakti mikla athygli í síðustu viku. Með þessari sölu lýkur rúmlega 30 ára eignarhaldi Ólafs Ólafssonar fjárfestis í þessu skipafyrirtæki sem hann hefur verið kenndur við í áratugi. Sonur Ólafs og nafni, Ólafur Örn Ólafsson, heldur hins vegar áfram sem forstjóri Samskipa eftir kaup spænska fyrirtækisins. Fjallað er um sögu eignarhalds Ólafs...

05.11.2026
Týndi kafli Thorsaranna 04.11.2026

Fyrir tuttugu árum var heilu upplagi af bók Guðmundar Magnússonar sagnfræðings um Thorsaranna, fargað og ný og breytt útgáfa prentuð. Útgefandi bókarinnar vildi ekki að fjallað yrði um fyrrverandi eiginmanni konu sinnar en óskaði í staðinn eftir umfjöllun um sig og son sinn. Þannig breytt kom bókin út. Guðmundur Magnússon hefur nú gefið bókina út í sínu upprunalegi handriti. En hvað var svona viðk...

Ríkið leigir hjúkrunarrými fyrir níu milljarða í Urriðahvarfi 03.11.2026

Íslenska ríkið gerði 20 ára óuppsegjanlegan leigusamning við eigendur fasteignar í Urðarhvarfi 16 þar sem í dag er rekið hjúkrunarheimili. Samningurinn var gerður þann 9. september árið 2024, rúmum einum mánuði áður en boðað var til þingkosninga um haustið 2024. Eigendur hússins eru að hluta til þeir sömu og þeir sem eiga einkarekna heilbrigðisfyrirtækið Heilsuvernd sem svo gerði annan samning við...

Heimsókn utanríkisráðherra til Kína 02.11.2026

Í þætti dagsins ræðum við aukin samskipti og viðskipti Kína og Íslands, og afstöðu íslenskra stjórnvalda til Taívan. Utanríkisráðherra fundaði í lok síðustu viku með Wang Yi, utanríkisráðherra Kína, í Beijing, þar sem hún var í opinberum erindagjörðum í vikunni. Rætt er við Geir Sigurðsson, prófessor í kínverskum fræðum við Háskóla Íslands.

Menn með dóma fyrir glæpi sem starfa við barnavernd 30.10.2026

Í Noregi og Svíþjóð hafa komið upp mál þar sem einstaklingar með tengsl við undiheimana og glæpasamtök hafa unnið hjá og jafnvel stýrt einkareknum fyrirtækjum sem sinna barnavernd og börnum með fjölþættan vanda. Í Noregi í lok ágúst sögðu fjölmiðlar frá því að einstaklingar með tengsl við glæpaheiminn í landinu ynnu hjá eða stýrðu sextán barnaverndarfyrirtækjum á tilteknu svæði í Noregi. Norska ef...

Líður landsbyggðin fyrir fækkun lögregluembætta? 29.10.2026

Áform dómsmálaráðherra um sameiningu lögregluembætta hafa farið hátt undanfarið og ljóst er að skoðanir eru skiptar. Hún leggur til að níu lögregluumdæmi verði að þremur, sem hefur fallið í grýttan farveg í dreifðari byggðum landsins. Þar hefur fólk áhyggjur af samþjöppun valds og að ákvarðanir um þeirra heimahaga verði teknar af lögreglustjórum í mörg hundruð kílómetra fjarlægð. Lögreglustjórar s...

Tíðindamikil byrjun nýja meirihlutans i Reykjavík 28.10.2026

Nýi meirihlutinn í borgarstjórn hefur hafið störf af miklum krafti síðustu mánuði. Uppsagnir á fjölda starfsfólks, niðurskurður á þjónustu á Borgarbókasafninu, fyrirhuguð einkavæðing Ljósleiðarans og umræður um einkarekstrarvæðingu á Fjölskyldu- og húsdýragarðinum er meðal þeirra mála sem ratað hafa í fréttir á síðustu vikum. Rætt er um þessa byrjun nýja meirihlutans við prófessorinn Evu Heiðu Önn...

Tíðindaleysi á þingi 27.10.2026

Óvenju lítið hefur verið að frétta af störfum Alþingis það sem af er þingvetri. Rætt er við Ólaf Þ. Harðarson, prófessor emeritus í stjórnmálafræði, um stöðu mála.

Sjö ára baráttu lauk í Hæstarétti 26.10.2026

Um miðjan mánuðinn féll dómur Hæstarétti Íslands í máli sem Elva Björk Haraldsdóttir höfðaði Gegn tryggingafélaginu Verði. Málið getur haft fordæmisgildi fyrir námsmenn og efnaminna fólk sem lendir í slysum og þarf að fá vinnu- og tekjutap sitt bætt vegna örorku. Með þessum dómi lýkur sjö ára ferli í lífi Elvu Bjarkar sem hófst eftir að hún hafði lent í bílslysi í Reykjavík. Ágreiningurinn í máli...

Tekjur rithöfunda rýrna 23.10.2026

Bókaútgáfa hefur gjörbreyst á síðustu árum og áratugum og sala á pappírsbókum dregist saman. Internetið, samfélagsmiðlar og hljóðbækur hófu innreið sína en skila ekki tekjum í sama mæli og prentuð eintök. Tekjur höfunda hafa rýrnað, hvort sem þær eru vegna bóksölu, listamannalauna, útlána á bókasöfnum eða annarra verkefna.

Rifrildið um jarðir og laxveiðiár Jim Ratcliffes 22.10.2026

Í byrjun vikunnar kom upp umræðu um enska fjárfestinn Jim Ratcliffe og umsvif hans á Íslandi sem landeiganda og leigutaka laxveiðiáa. Þetta var eftir að lögfræðingurinn og fyrrverandi forsetaframbjóðandinn Herdís Þorgeirsdóttir tjáði sig um hann í færslu á Facebook. Þar talaði hún meðal annars um hvað Ratcliffe væri stór jarðaeigandi á Íslandi. Bubbi Morthens tónlistarmaður blandaði sér í þessa um...

Gagnrýni á viðvaranakerfi Veðurstofunnar 21.10.2026

Djúp haustlægð gekk yfir landið í síðustu viku. Hvellurinn á Siglufirði reyndist meiri en búist var við og töluvert tjón varð á húsum, bílum og lausamunum í bænum. Í kjölfar veðursins voru lagðar á borð áleitnar spurningar um viðbragð og viðvaranir - þeirra á meðal hvort Veðurstofan ætti að gefa út fleiri staðbundnar litakvarðaðar viðvaranir. Rætt er við Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðing, Jóhann...

Sveitarstjórinn á Laugum í viðskiptum við skreiðarfyrirtæki 20.10.2026

Sveitarstjórinn í Þingeyjarsveit, Katrín Sigurjónsdóttir, er eigandi fyrirtækis sem selur Samherja skreiðarpoka og þurrkgrindur fyrir skreiðarþurrkun útgerðarfyrirtækisins á Laugum í sveitarfélaginu. Fiskþurrkun Samherja er stærsti einkarekni atvinnurekandinn á Laugum með um 20 starfsmenn. Viðskipti fyrirtækis Katrínar, sem heitir Samleið ehf., við Samherja hafa staðið yfir í mörg ár, líka þegar h...

Mótmæli og óeirðir í Frakklandi 19.10.2026

Í þætti dagsins förum við til Frakklands þar sem ekkert lát er á mótmælum og óeirðum. Rætt er við Torfa Tulinius, prófessor við Háskóla Íslands, og Kristínu Jónsdóttur, sem er búsett í París.

Rígurinn á milli kók og pepsí í ljósi rannsóknar Samkeppniseftirlitsins 16.10.2026

Hvort er betra, kók eða pepsí? Þetta er ein af þessum spurningum sem sjálfsagt margir hafa skoðun á. Rígurinn á milli þessara sykruðu gossrykkja er langvinnur og sögulegur, bæði hér á Íslandi sem og annars staðar. Í áratugi hafa íslensku fyrirtækin sem framleiða þessa drykki verið á sitt hvorum pólnum í köldu stríði. Þetta eru Ölgerðin og fyrirtækið sem lengst af hét Vífilfell en heitir nú CCEP. S...

Samkeppnin á tímum lífeyrissjóðanna 15.10.2026

Einstaka lífeyrissjóðir eru eigendur í fyrirtækjum sem á sama tíma eiga að vera keppinautar á markaði. Undir er matvara, bensín, bankastarfsemi og fjarskiptaþjónusta, svo fátt eitt sé nefnt. Prófessor segir þetta áhyggjuefni en framkvæmdastjóri lífeyrissjóðs segir það fela í sér kosti. Lífeyrissjóðir eftirláta öðrum stjórn skráðra fyrirtækja sem þeir eiga stóra hluti í. Óháðar nefndir sjái um að g...

Ölgerðin í ÁTVR: „Ríkið í Ríkinu“ 14.10.2026

Ölgerðin hefur verið til umfjöllunar í fréttum síðustu daga út af húsleit Samkeppniseftirlitsins hjá fyrirtækinu út af meintri misnotkun á markaðsráðandi stöðu. Fréttaskýringaþátturinn Kveikur hefur fjallað ítarlega um þessi meintu brot. Ölgerðin er orðið að risa á drykkjarvöru- og matvörumarkaði á Íslandi. Sala áfengra drykkja frá Ölgerðinni nemur um helmingi af allri sölu áfengis hjá ÁTVR. Þetta...

Sjálfkeyrandi bílar ryðja sér til rúms 13.10.2026

Í dag beinum við sjónum okkar að sjálfkeyrandi bílum. Rætt er við Rósu Guðbjartsdóttur, þingmann Sjálfstæðisflokksins, Björn Kristjánsson, bílasérfræðing og ráðgjafa hjá FÍB, og Þórhildi Elínu Elínardóttur hjá Samgöngustofu. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson

Tímakaup Wolt-sendla 12.10.2026

Þegar talað er um tímakaup Wolt-sendla á Íslandi er ekki verið að tala um tímakaup í sömu merkingu og flestir leggja í þetta orð. Tímakaup Wolt-sendla er tengt því hversu margar sendingar þeir fá beiðnir um að fara og hversu margar þeir samþykkja. Wolt sendlar geta fengið 0 krónur á tímann þrátt fyrir að þeir séu að keyra um merktir Wolt, skráðir inn í kerfið þar sem þeir fá sendingar og bíða efti...

Glæpur og refsing í Manchester City 09.10.2026

Stærð og umfang hneyklisins í kringum fótboltaliðið Manchester City stækkar dag frá degi með nýjum fréttum af málinu. Ólíkar hugmyndir hafa til dæmis komið fram á opinberum vettvangi um hvaða afleiðingar hneykslið muni hafa fyrir fjárfestingar auðmanna frá Abu Dhabi í Bretlandi. Verður eigandi Manchester City, Sheik Mansour, núna svo fúll að hann muni vilja hætta öllum viðskiptum í Bretlandi eða m...

Manchester City-hneykslið snýst um miklu meira en fótbolta 08.10.2026

Hneykslið í kringum enska fótboltaliðið Manchester City hefur verið nær stöðugt í fjölmiðlum víða um heim síðastliðna viku. Stærð þessa skandals hefur magnast upp frá því að málið kom fyrst upp í lok september og er nú líka orðið að pólitísku og viðskiptalegu hneyksli sem teygir anga sína frá Englandi til arabíska furstadæmisins Abu Dhabi. Rætt er við Sigrúnu Davíðsdóttur, blaðamann og stjórnmálas...

Nýtt vígbúnaðarkapphlaup þegar afvopnunar er minnst 07.10.2026

Um helgina verða liðin 40 ár frá leiðtogafundinum í Höfða þar sem skref voru stigin í átt að afvopnun. Þessara tímamóta er nú víða minnst – á sama tíma og útgjöld til varnar- og hernaðarmála eru aukin. Í þætti dagsins beinum við sjónum að nýju vígbúnaðarkapphlaupi á tímum þar sem árangur í afvopnun er rifjaður upp. Rætt er við Rósu Magnúsdóttur, prófessor í sagnfræði, og Eirík Bergmann, prófessor...

Ógagnsæi í íslenska dómskerfinu 06.10.2026

Í þætti dagsins fjöllum við um aðgengi almennings að íslenska dómskerfinu, sér í lagi hjá héraðsdómum á landsbyggðinni. Fréttastofa RÚV og aðrir fjölmiðlar hafa ítrekað orðið að ganga á eftir birtingum dóma og oft gengið erfiðlega að fá upplýsingar um réttarhöld. Héraðsdómur Norðurlands eystra birti tuttugu og níu dóma í sumar, eftir að fréttastofa gerði athugasemd við vinnulag dómstólsins. Sumir...

Baráttan um Brasilíu 05.10.2026

Við förum til Brasilíu í þætti dagsins þar sem forsetakosningar fóru fram í gær. Hægrisinnaði öldungadeildarþingmaðurinn Flavio Bolsonaro, sonur fyrrverandi forsetans Jair Bolsonaro, fékk flest atkvæði, rúm 47 prósent gegn rúmum 45 prósentum sitjandi forseta, Luiz Inácio Lula da Silva, leiðtoga Verkamannaflokksins. Hvorugur fékk hreinan meirihluta og þess vegna verður kosið aftur eftir tæpar þrjár...

Ascolta il podcast Þetta helst su Replaio

Radio e podcast in un'unica app - gratis e senza registrazione. Installala oggi e non perderti il lancio

Scaricala su Google Play

Replaio non è un editore di podcast; i nomi dei programmi, le copertine e l'audio appartengono ai rispettivi autori e vengono distribuiti tramite feed RSS pubblici