Samstöðin

Samstöðin

News IS ↓ 728 episodi

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum. Samstöðin er opin fyrir allt fólk sem vill styðja við baráttuna fyrir réttlæti, jöfnuði og samkennd.

Visita il sito del podcast e sostieni chi lo crea: samstodin.simplecast.com

Autore

Samstöðin

Categoria

News

Sito del podcast

samstodin.simplecast.com

Ultimo episodio

10 nov 2026

Dove ascoltare?

I podcast nell'app Replaio Radio In arrivo

I podcast stanno per arrivare nell'app. Installala ora e scopri per primo un modo tutto nuovo di vivere i podcast

Scaricala su Google Play Installala gratis Android quasi 10 mln di download · valutazione 4,7+ iOS in arrivo

Episodi

Bókaborðið - 9. þáttur: Félag um barnabókasafn 10.11.2026

Þriðjudagur 10. nóvember Bókaborðið - 9. þáttur: Félag um barnabókasafn Félag um barnabókasafn segir farir sínar ekki sléttar. Hver er draumurinn, hvernig hefur vegferðin verið og af hverju í ósköpunum var stofnað félag? Saga félagsins er ævintýri líkust en við vitum ekki hvort þetta ævintýri endar vel eða illa. Sigrún Klara Hannesdóttir og Helga Halldórsdóttir ræða málið með Maríu Hjálmtýsdóttur.

Rauða borðið 9. nóv - Kynlífsglæpir, undanþágur, mistök, hraðakstur og afneitun 09.11.2026

Mánudagur 9. nóvember Kynlífsglæpir, undanþágur, mistök, hraðakstur og afneitun Drífa Snædal, talskona Stígamóta, segir okkur frá ótrúlegum staðreyndum um glæpi sem koma á borð Stígamóta. Því miður er ekkert lát á. Konur sem leiðast út í vændi gera það oft til þess að eiga fyrir mat, fyrir sig og börnin. Sigurjón Magnús ræðir við Drífu. Ill meðferð dýra á svínabúi hefur valdið undrun og fordæmingu...

Rauða borðið - Helgi-spjall: Sigga Kling 09.11.2026

Laugardagur 7. nóvember Helgi-spjall: Sigga Kling Hver er konan á bak við litríku spákonuímyndina? Sigga Kling er engri lík – skrautleg, skemmtileg, skapandi og óhrædd við að fara sínar eigin leiðir. Hún segir frá ástarsorg sem olli straumhvörfum í lífi hennar, móður sinni sem vildi ekki lifa og æskuárunum á Snæfellsnesi hjá ömmu sinni sem þjónaði Thorsurunum og málaði allt húsið blátt til heiðurs...

Manngildi 9. nóv - Þórir Gunnarsson, Listapúkinn 09.11.2026

Manngildi 9. nóv - Þórir Gunnarsson, Listapúkinn Maðurinn, listin og baráttan fyrir jöfnum tækifærum Í þessum þætti af Manngildi er gesturinn Þórir Gunnarsson, betur þekktur sem Listapúkinn. Þórir er litríkur persónuleiki, hæfileikaríkur myndlistarmaður, mikill íþróttaáhugamaður og ötull talsmaður jafnra tækifæra fyrir fólk með þroskahömlun. Við kynnumst manninum á bak við Listapúkann og ræðum æsk...

Sunnudagurinn 8. nóvember Synir Egils: Endalok Trumptímans, svín, uppsagnir, lífskjarakrísa og fjölmiðlar 08.11.2026

Sunnudagurinn 8. nóvember Synir Egils: Endalok Trumptímans, svín, uppsagnir, lífskjarakrísa og fjölmiðlar Við ræðum fréttir vikunnar og stöðu samfélagsins við góða gesti; fyrst koma Alma Ýr Ingólfsdóttir, formaður ÖBÍ, Arna Lára Jónsdóttir, þingkona Samfylkingar og Illugi Jökulsson blaðamaður og ræða helstu fréttir og stöðu mála hér heima og erlendis. Þá koma þau Eyrún Magnúsdóttir stofnandi Gímal...

Föstudagur 6. nóvember - Vikuskammtur: Vika 45 06.11.2026

Föstudagur 6. nóvember Vikuskammtur: Vika 45 Í Vikuskammti ræða í beinni útsendingu Lóa Hjálmtýsdóttir listakona, Heiðar Ingi Svansson útgefandi, Heiðar Örn Sigurfinnsson fréttastjóri Rúv, Þorgerður María Þorbjarnardóttir hjá Landvernd og Bragi Páll skáld fréttir vikunnar í umsjá Björns Þorláks. Kjarnorkutíst upplýsingafulltrúa, raðáhrif í kjölfarið, Reykjavík Bangkok norðursins – eða ekki, upphaf...

Fimmtudagur 5. nóvember - Reynsluboltar, meðvirkni, áhugaleikhús og Frakkland 05.11.2026

Fimmtudagur 5. nóvember Reynsluboltar, meðvirkni, áhugaleikhús og Frakkland Reynsluboltar þessa vikuna eru Benedikt Jóhannesson stofnandi Viðreisnar, Óðinn Jónsson fyrrum fréttastjóri RÚV og Þórunn Sigurðardóttir menningarfrömuður. Vandinn vegna Landsvirkjunar, orð Ólafs Ragnars og svar Þorgerðar Katrínar voru á dagskrá, íslenska óperan og fleira. „Áttu erfitt með að biðja um hjálp?“ Þá ertu líkle...

Sjávarútvegsspjallið - 95. þáttur: Fiskveiðistjórnun á Íslandi 05.11.2026

Fimmtudagur 5. nóvember Sjávarútvegsspjallið - 95. þáttur: Fiskveiðistjórnun á Íslandi Grétar Mar ræðir við Jón Kristjánsson fiskifræðing um störf hans og rannsóknir og baráttu við ríkjandi hugmyndir um fiskveiðar.

Rauða borðið 4. nóv - Trumptíminn, fæðingarorlof, pendúlhreyfingar, tónlist og lagaleg álitaefni 04.11.2026

Miðvikudagur 4. nóvember Trumptíminn, fæðingarorlof, pendúlhreyfingar, tónlist og lagaleg álitaefni Friðjón R. Friðjónsson varaborgarfulltrúi, Magnús Helgason sagnfræðingur og Ólafur Þ. Harðarson prófessor fara yfir kosningaúrslitin í Bandaríkjunum í spjalli við Gunnar Smára í auka-Trumptíma. Marka kosningarnar endalok Trumptímans? Ásdís Olsen ræðir við Karítas Ólafsdóttur móður og sálfræðing en h...

Græna borðið - 27. þáttur: Neysluhegðun 04.11.2026

Miðvikudagur 4. nóvember Græna borðið - 27. þáttur: Neysluhegðun Neysla samfélagsins hefur aldrei verið meiri. Í nóvembermánuði fyllast götur og miðlar af auglýsingum til þess að fá fólk til að neyta meira af hlutum sem það þarf ekki á að halda. Í þætti dagsins förum við djúpt í nægjusemi og neyslu. Freyr Eyjólfsson, verkefnastjóri hjá Sorpu og Ragnhildur Katla Jónsdóttir, upplýsingafulltrúi Landv...

Þriðjudagur 3. nóvember - Uppsagnir, norðurslóðir, ópera og lækningar 03.11.2026

Þriðjudagur 3. nóvember Uppsagnir, norðurslóðir, ópera og lækningar Þorvaldur Ingi Jónsson ráðgjafi rýnir í hópuppsagnirnar hjá borginni og gefur aðferðafræðinni laka einkunn. Björn Þorláks heldur áfram umfjöllun Samstöðvarinnar um starfsmannamál og mannúð. Gunnar Smári ræðir við Rasmus Gjedssø Bertelsen prófessor í Tromsø um Grænlandssamning Bandaríkjanna, símtal forsætisráðherra Noregs og forset...

Bókaborðið - 8. þáttur: Myndhöfundar barnabóka 03.11.2026

Þriðjudagur 3. nóvember Bókaborðið - 8. þáttur: Myndhöfundar barnabóka Hvað eru myndhöfundar að bralla? Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir og Linda Ólafsdóttir segja Maríu Hjálmtýsdóttur frá starfinu, mikilvæginu, harkinu og pólitíkinni. Það er nefnilega pólitík í öllu ef vel er að gáð. Meira segja í barnabókabransanum. Er hægt að verða rík af því að teikna barnabækur á Íslandi? Eru íslenskir myndhöfundar í...

Rauða borðið 2. nóv - Hópuppsagnir, Trump, uppreisnir, heimshvörf og samfélagsmiðlar 02.11.2026

Mánudagur 2. nóvember Hópuppsagnir, Trump, uppreisnir, heimshvörf og samfélagsmiðlar Ómannúðlegar aðferðir við uppsagnir starfsfólks og áhrif þess, persónubundin og samfélagsleg, verða til umræðu hjá Viðari Eggertssyni leikara og Sigríði Kristjánsdóttur kvikmyndasérfræðingi. Þau urðu vitni að því sem Viðar kallar “slátrun” í hópuppsögn hjá Ríkisútvarpinu þar sem Sigríður missti vinnuna og lýsir nú...

Sunnudagurinn 1. nóvember Synir Egils: Uppsagnir, atvinnuleysi, stöðnun, umrót og pólitísk straumhvörf 01.11.2026

Sunnudagurinn 1. nóvember Synir Egils: Uppsagnir, atvinnuleysi, stöðnun, umrót og pólitísk straumhvörf Við ræðum fréttir vikunnar og stöðu samfélagsins við góða gesti; fyrst koma Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir þingkona Miðflokksins, María Rut Kristinsdóttir þingkona Viðreisnar og Guðmundur Ari Sigurjónsson þingmaður Samfylkingar og ræða helstu fréttir og stöðu mála, stöðu flokka, ríkisstjórnar og s...

Rauða borðið - Helgi-spjall: Haraldur Erlendsson 31.10.2026

Laugardagur 31. október Helgi-spjall: Haraldur Erlendsson Hvar liggja mörkin milli geðrænna einkenna og andlegrar reynslu? Haraldur Erlendsson geðlæknir hefur frá barnæsku upplifað andlegan veruleika, orðið fyrir margs konar dulrænni reynslu, upplifað eigin fæðingu, fengið innsýn og vitranir en umfram allt upplifað mikinn unað og kærleika. Haraldur fagnar sjötugsafmæli sínu um þessar mundir og seg...

Föstudagur 30. október Vikuskammtur: Vika 44 30.10.2026

Föstudagur 30. október Vikuskammtur: Vika 44 Vikuskammtur, umræða um fréttir líðandi stundar, er í umsjá Björns Þorláks. Gestir hans, Oddný Harðardóttir fyrrum þingmaður, Jón Trausti Reynisson blaðamaður, Jasmina Vazjovic ráðgjafi og Ólafur Arnarson blaðamaður rýna í uppsagnir í borginni, niðurstöður kosninga utan landsteinanna, pólitík og efnahagsmál innanlands, fordóma, nýjar og áhugaverðar bæku...

Rauða borðið 29. okt - Reynsluboltar, heimsmál, heimsveldi, vók, Mímir og takkarnir 29.10.2026

Fimmtudagur 29. október Reynsluboltar, heimsmál, heimsveldi, vók, Mímir og takkarnir Kári Jónsson, Sirrý Arnardóttir og Álfheiður Ingadóttir eru reynsluboltarnir sem ræða við Sigurjón Magnús þessa vikuna, um fréttir og stöðu samfélagsins. Gunnar Smári ræðir við Hilmar Þór Hilmarsson prófessor um símtal Støre og Stubb til Pútín, Úkraínu, smáríki og norðurslóðir. Valur Gunnarsson, sagnfræðingur og r...

Rauða borðið 28. okt - Naza, heimahagkerfið, sprútt, enfants terrible, Pár Guðs 28.10.2026

Miðvikudagur 28. október Naza, heimahagkerfið, sprútt, enfants terrible, Pár Guðs Sanna Magdalena Mörtudóttir borgarfulltrúi, Hjálmtýr Heiðdal formaður Félagsins Ísland-Palestína, Qussay Odeh, Íslendingur af palestínskum ættum og Laufey Líndal Ólafsdóttir ræða við Gunnar Smára um heimildarmyndina Naza sem fjallar um hvernig ísraelski herinn notar gervigreind og háþróaða tækni til að fremja þjóðarm...

Græna borðið 28. október - Stökkbreytingar í stofnunum 28.10.2026

Græna borðið 28. október - Stökkbreytingar í stofnunum Heilbrigðisfulltrúum sem sagt var upp hjá sveitarfélögum verður boðinn ráðningarsamningur hjá Umhverfis og orkustofnun í vikunni. Starf Náttúruverndarstofnunar breiðist yfir landið þegar utanvegaakstur, allsstaðar, en ekki bara í friðlöndum, verður undir eftirliti hennar. Gestur Pétursson og Sigrún Ágústsdóttir, forstjórar eru gestir Græna bor...

Þriðjudagur 27. október - Fjöldauppsagnir, fangelsi, landbrot, heilbrigðiskerfið, ástin og samhygðin 27.10.2026

Þriðjudagur 27. október Fjöldauppsagnir, fangelsi, landbrot, heilbrigðiskerfið, ástin og samhygðin Nýr meirihluti í Reykjavík hefur sagt upp fjölda fólks sem starfar hjá borginni Kári Sigurðsson formaður Sameykis og oddvitar úr minnihlutanum; Pétur Marteinsson Samfylkingu og Sanna Magdalena Mörtudóttir, Vinstrinu ræða við Gunnar Smára um stöðuna. Vilhjálmur Egilsson fyrrum þingmaður og rektor telu...

Bókaborðið 7. þáttur - Jólabókaspjall 27.10.2026

Þriðjudagur 27. október Bókaborðið 7. þáttur - Jólabókaspjall Vigdís Gríms spjallar við Hermann Stefánsson og Kristínu Ómars um bók Hermanns Sauðburð og bók Kristínar Móðurást;Lausnargjaldið. Farið verður vítt og breitt yfir feril höfundanna og þau segja skoðanir sínar á bókum hvors annars. Valdi, vinur Hermanns, mun taka smávegis þátt í spjallinu, en hann er brúða Hermanns sem hefur ekki alltaf m...

Rauða borðið 26 okt - Trump, rasismi, Landsréttur, Serbía, Brasilía, stjörnuspeki og Steinunn 26.10.2026

Mánudagur 26. október Trump, rasismi, Landsréttur, Serbía, Brasilía, stjörnuspeki og Steinunn Hafsteinn Einarsson stjórnmálafræðingur, Þorsteinn Þorgeirsson hagfræðingur og Guðmundur Hálfdanarson sagnfræðingur ræða við Gunnar Smára um stöðu Trump í aðdaganda þingkosninga í Bandaríkjunum. Sigursteinn Másson fréttamaður og Magnea Marínósdóttir stjórnmálafræðingur ræða aukinn rasisma og leiðir til úr...

Manngildi - 2. þáttur: Sögur sem breyta sýn okkar 26.10.2026

Mánudagur 26. október Manngildi - 2. þáttur: Sögur sem breyta sýn okkar Í þessum þætti Manngildis er gesturinn Magnús Orri Arnarson, kvikmyndagerðarmaður sem hefur meðal annars komið að gerð þáttanna Með okkar augum og 50 ára afmælisþáttar Þroskahjálpar. Magnús vinnur nú að heimildarmynd um íslensku þátttakendur á Special Olympics 2027, undirbúning þeirra, upplifun og fólkið á bak við afrekin. Við...

Sunnudagurinn 25. október Synir Egils: Mótmæli, átök, fylgi og fall 25.10.2026

Sunnudagurinn 25. október Synir Egils: Mótmæli, átök, fylgi og fall Við ræðum fréttir vikunnar og stöðu samfélagsins við góða gesti; fyrst koma Andrea Sigurðardóttir blaðakona, Rakel Þorbergsdóttir samskiptaráðgjafi og fyrrum fréttastjóri Ríkisútvarpsins og Róbert Marshall fjallamaður, fyrrum þing- og blaðamaður og ræða átök í Evrópu og innan flokka á Íslandi, niðurskurð hjá Borginni, umdeildan sý...

Rauða borðið - Helgi-spjall: Einar Bárðar 24.10.2026

Laugardagur 24. október Helgi-spjall: Einar Bárðar „Það eru sirka tveir á Íslandi sem ég hef ekki hringt í,“ segir Einar Bárðarson, athafnamaður og alþýðuskáld sem hefur komið víða við, allt frá tónlistarbransanum og viðburðahaldi til hjólreiðakeppna, plokks og umhverfismála. Hann segir samskiptahæfni sína helsta styrkleika, á auðvelt með að setja sig í spor annarra og hugsar frekar „Hvað get ég g...

Ascolta il podcast Samstöðin su Replaio

Radio e podcast in un'unica app - gratis e senza registrazione. Installala oggi e non perderti il lancio

Scaricala su Google Play

Replaio non è un editore di podcast; i nomi dei programmi, le copertine e l'audio appartengono ai rispettivi autori e vengono distribuiti tramite feed RSS pubblici