RÚV

Víðsjá

Arts IS ↓ 886 epizód

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Mindenképp látogasd meg a podcast oldalát, és támogasd a készítőjét: www.ruv.is

Szerző

RÚV

Kategória

Arts

A podcast weboldala

www.ruv.is

Legutóbbi epizód

2026. okt. 12.

Hol hallgathatod?

Podcastok az alkalmazásban Replaio Radio Hamarosan

A podcastok hamarosan megérkeznek az alkalmazásba. Telepítsd most, és láss elsőként egy teljesen új megközelítést a podcastokhoz

Letöltés a Google Play-ről Telepítsd ingyen Android közel 10 M letöltés · 4,8-as értékelés iOS hamarosan

Epizódok

Safnasafnið / svipmynd 18.09.2024

Við Svalbarðseyri í Eyjafirði stendur eitt af forvitnilegri söfnum landsins, Safnasafnið. Þetta höfuðsafn myndlistar sjálflærðra listamanna, myndlistar sem oft er kölluð alþýðulist eða utangarðslist, var stofnað árið 1995 af hjónunum Níelsi Hafstein myndlistarmanni og Magnhildi Sigurðardóttur geðhjúkrunarfræðingi. Víðsjá heimsækir þau Magnhildi og Níels í Safnasafnið í þætti dagsins.

Sigurhæðir, snjallhljóðfæri, Hildur-rýni 17.09.2024

,,Gaman að kynnast þér" er yfirskrift tónleika sem fara fram í Mengi í kvöld. Þar mætast sex tónlistarmenn með mjög ólíkan bakgrunn og ólík hljóðfæri; barokkhljóðfæri, víetnömsk hljóðfæri og gervigreindarhljóðfæri. Halla Steinunn Stefánsdóttir, barokkfiðluleikari Nordic Affect, og Nicola Privato, sem leikur á snjallhljóðfærið Stacco segja okkur frá tilraunaverkefninu, sem unnið er í samstarfi við...

Listasafnið Akureyri, Þórunn Jarla í Glerhúsi, eyrnakonfekt, Magnea Guðmundsdóttir 16.09.2024

Á fimmtudag opnaði í Glerhúsinu fyrsta sýning í nýrri sýningaröð um rithöfunda sem stunda myndlist. Það var Þórunn Jarla Valdimarsdóttir sem reið á vaðið og sýnir 17 teikningar í 17 daga. Við ræðum við Kristínu Ómarsdóttur og Þórunni Jörlu í Glerhúsinu. Við lítum í heimsókn í Listasafnið Akureyri og fáum að heyra af fræðslusýningunni Grafísk Gildi þar sem ýmis grafíkverk úr safni eru dregin fram o...

Hallgerður Hallgrímsdóttir, Múkk, Rushdie, tónlistarrýni 12.09.2024

Í ár eru liðin 350 ár frá dánardegi Hallgríms Péturssonar og til að heiðra minningu hans verður boðið upp á veglega hátíðardagskrá í kirkjunni fram að áramótum. Liður í þessum hátíðahöldum er myndlistarsýning Hallgerðar Hallgrímsdóttur sem opnaði síðastliðinn sunnudag. Hallgerður vinnur ljósmyndaverkin út frá lífi og list Hallgríms en rauði þráðurinn er hversdagsleikinn með öllu sem hann inniheldu...

Svipmynd - Snæbjörn Brynjarsson 11.09.2024

Í þætti dagsins verður einmitt boðið upp á svipmynd af nýjum leikhússtjóra Tjarnarbíós. Snæbjörn Brynjarsson er fæddur árið 1984, er með BA-próf í fræðum og framkvæmd frá listaháskóla Íslands og BA-próf í japönsku máli og menningu frá Háskóla Íslands. Hann hefur farið mjög víða á sínum ferli, skrifað fantasíur fyrir ungmenni, ferðast um Evrópu með frönskum leikhópi, starfað sem varaþingmaður og le...

Feneyjatvíæringur í arkitektúr, uppistand innflytjenda, Sigmar Þór Matthíasson 10.09.2024

Feneyjatvíæringurinn í arkitektúr fer fram í 19. sinn á næsta ári og Ísland tekur þá þátt í fyrsta sinn. Tilkynnt var um það í síðustu viku að verkefni s.ap arkitekta, Hraunmyndanir hefur verið valið sem framlag Íslands. Það er Miðstöð hönnunar og arkitektúrs sem hefur umsjón með verkefninu og Gerður Jónsdóttir er verkefnastjóri þátttöku Íslands. Við ræðum við hana í þætti dagisns. Katla Ársælsdót...

Vaka þjóðlistahátíð, Hlynur Hallsson, Líkaminn er skál-rýni 09.09.2024

Víðsjá þáði morgunbolla í sólríkri stofu í miðbæ Reykjavíkur og fékk að heyra ýmislegt um rímnasöng og langspil. Tilefnið er dagur rímnalagsins og þjóðlistahátíðin Vaka, sem fer fram um næstkomandi helgi. Þau Bára Grímsdóttir og Chris Foster segja okkur af starfi Vökufélagsins og flytja vel valdar rímur. Í dag fáum við líka fyrstu leikhúsrýni vetrarsins. Þennan veturinn verða leikhúsrýnarnir þrír,...

Gabríela Friðriksdóttir, Líkaminn er skál, Sigurður Málari 05.09.2024

Myndlistarkonan Gabríela Friðriksdóttir hefur haldið fjölda sýninga um allan heim og var fulltrúi Íslands á Feneyjatvíæringnum árið 2005. Hún hefur fyrir löngu skapað sitt einstaka tungumál, sinn eigin myndheim, þar sem ýmsar óræðar kynjaverur eiga heimili og hreyfast á milli teikninga, málverka, skúltúptúra og fleiri miðla. Víðsjá lítur inn á yfirstandandi sýningu á verkum hennar, Zúlógíu, í List...

Ólafur Kjartan Sigurðarson / Svipmynd 04.09.2024

Frægðarsól óperusöngvarans Ólafs Kjartans Sigurðarsonar hefur verið á hraðri uppleið síðustu misserin. Hann hefur sungið burðarhlutverk í óperum Verdis og Wagners í mörgum af helstu óperuhúsum heims, þar á meðal á hinni virtu Bayreuthhátíð í Þýskalandi. Ólafur Kjartan var fertugur þegar hann fékk í fyrsta sinn stórt Wagner hlutverk og leið hans upp á stjörnuhimininn hefur krafist þolinmæði og æðru...

Stífluhringurinn, Að safna regni, Listasafn Akureyrar 03.09.2024

Við lítum inn á vinnustofu myndlistarkonunnar Nínu Óskarsdóttur á Hólmaslóð og forvitnumst um sýningu sem hún er með í undirbúningi, opnar á laugardag í Höggmyndagarðinum og heitir Að safna regni. Við tökum einnig á móti tónskáldinu Guðmundi Steini Gunnarssyni en verk hans Stífluhringurinn verður frumflutt af Caput hópnum í Hörpu á morgun. En við hefjum þáttinn á því að heyra fréttir að norðan, þv...

Hildur Elísa Jónsdóttir Ygallerí, Eyrnakonfekt, tónleikaveturinn 02.09.2024

Tónlistin er fyrirferðarmikil í þætti dagsins og undir lok þáttar kynnum við nýjan dagskrárlið, Eyrnakonfektið, sem boðið verður upp á reglulega yfir vetrarmánuðina. Þar kemur til okkar fólk úr ýmsum áttum og segir hlustendum frá sínu uppáhalds tónverki. Í lok þessa þáttar fáum við fyrsta molann, þegar Þórunn Ósk Marinósdóttir, víóluleikari í sinfóníuhljómsveit Íslands, býður upp á Eyrnakonfekt da...

Félagslegt húsnæði, Sumartónleikar í Skálholti, tilfinningaleg berskjöldun og tvær skáldsögur frá Suður Ameríku 27.06.2024

Í þætti dagsins ræðum við við Benedikt Kristjánsson tenorsöngvara og listrænan stjórnanda Sumartónleikar í Skálholti; tónleikaraðar sem hefur verið starfandi frá árinu 1975. Freyja Þórsdóttir flytur pistil þar sem hún veltir fyrir sér þroska og einlægri nánd með hjálp grísku goðsagnarinnar um Pygmalion. Hildigunnur Sverrisdóttir, arkitekt, tekur saman fjögurra pistla seriu sem hún hefur flutt unda...

Svipmynd af saxófónleikara / Guðjón Steinn Skúlason 26.06.2024

Guðjón Steinn Skúlason, saxófónleikari og tónsmiður, er fæddur árið 2004. Hann ólst upp í Reykjanesbæ og var snemma farinn að skapa. Þegar hann var síðar kominn í einkatíma í saxófónleik fékk hann einfalda spurningu: hvort hann ætlaði að sinna djasstónlistinni af alvöru. Svarið var nokkuð klárt og nú stundar Guðjón Steinn nám í saxófónleik við Manhattan School of Music í New York, einn fjórtán sax...

Skref fyrir skref, tónlistarmenn af frumbyggjaættum og sumarkveðja 25.06.2024

Við lítum inn í sýningarrýmið Á milli, við ingólfsstræti, en þar hanga upp olíumálverk eftir Sturlu Sigurðarson. Sýningin nefnist Skref fyrir skref og samanstendur af 6 málverkum í abstrakt expressjónískum stíl sem hverfast öll minningar sem eru duldar í líkamanum. Við ræðum við Sturlu í þætti dagsins. Við rifjum upp tónlistarpistil Jelenu Ciric frá því í fyrra um tónlistarmenn af frumbyggjaættum...

Læknar og borgarskipulag, Hallbjörg Bjarnadóttir og afmæliskort frá Hildigunni Birgisdóttur 24.06.2024

Í þættinum kíkjum við inn á Mokkakaffi við Skólavörðustíg. Þar var opnuð á dögunum sýning á pínupínu litlum vatnslitamyndum í stórum álrömmum. Og myndefnið á myndunum kemur allt úr einu og sama afmæliskortinu. Það er Hildigunnur Birgisdóttir, myndlistarmaður sem nú sýnir líka verk sín fyrir Íslands hönd á tvíæringnum í Feneyjum, sem hefur sett þessar litlu dularfullu myndir upp á veggina á Mokka í...

Margrét Blöndal i8, Kúmbíu tónlist, Herdís Anna Við Djúpið 20.06.2024

„Það eru undur allt í kringum okkur, við þurfum bara að gefa þeim gaum,“ segir myndlistarmaðurinn Margrét Blöndal sem sýnir um þessar mundir í i8 galleríi. Þetta er fjórða einkasýning Margrétar í i8, en hún er löngu þekkt fyrir sín fíngerðu og ljóðrænu verk sem unnin eru þvert á miðla, og sem hafa verið sýnd víða, hér heima og erlendis. Þín er vænst / Do not go roughly into that good night, kallas...

Svipmynd af myndlistarmanni / Haraldur Jónsson 19.06.2024

Har­ald­ur Jóns­son myndlistarmaður var getinn í Noregi, fæddist árið 1961 í Helsinki og náði svo að búa í Danmörku áður en hann sigldi með Gullfossi til Íslands á leikskólaaldri. Hann hóf nám í barnaskóla ári á undan jafnöldrum sínum og fluttist til Frakklands þegar hann lauk MR nítján ára gamall. Hann segir framandgervingu alltaf hafa verið hluta af sér, honum líði best í kjarnanum. Haraldur lít...

Þjóð í mynd, Bruce Springsteen í Sjomlahorni 18.06.2024

Sjomlahornið heldur áfram göngu sinni í þættinum en þar skoðum við hin ýmsu menningarfyrirbæri sem karlmenn hafa laðast sérstaklega að í gegnum tíðina með þeim afleiðingum að skapast hefur eins konar gaurastemning í kringum tiltekin verk eða listamenn. Að þessu sinni hugum við að bandaríska tónlistarmanninum Bruce Springsteen og fáum hjálp frá Bergi Ebba til að greina sjomlastemninguna í kringum g...

Skjóta, hýbýlahollusta og Rótarskot 13.06.2024

Skjóta nefnist ný íslensk ópera eftir Sigrúnu Gyðu Sveinsdóttur en hún var frumflutt í Ásmundarsal um síðustu helgi. Óperan fjallar um fótbolta og loftslagsbreytingar og hvernig hálfleikur í fótbolta getur verið myndlíking fyrir afmarkaðan tíma, til ákvarðanatöku, í loftslagsmálum. Verkið blandar saman nýklassískum söng og kraftmikilli danstónlist en leikur sér einnig með rýmið í Ásmundarsal á ska...

Hallgasd a(z) Víðsjá podcastot a Replaióban

Rádió és podcastok egy alkalmazásban - ingyen és regisztráció nélkül. Telepítsd még ma, és ne maradj le a premierről

Letöltés a Google Play-ről

A Replaio nem podcastkiadó; a műsorok nevei, borítóképei és hanganyagai a szerzőiket illetik, és nyilvános RSS-csatornákon keresztül terjednek.