RÚV

Víðsjá

Arts IS ↓ 874 epizód

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Mindenképp látogasd meg a podcast oldalát, és támogasd a készítőjét: www.ruv.is

Szerző

RÚV

Kategória

Arts

A podcast weboldala

www.ruv.is

Legutóbbi epizód

2026. okt. 12.

Hol hallgathatod?

Podcastok az alkalmazásban Replaio Radio Hamarosan

A podcastok hamarosan megérkeznek az alkalmazásba. Telepítsd most, és láss elsőként egy teljesen új megközelítést a podcastokhoz

Letöltés a Google Play-ről Telepítsd ingyen Android közel 10 M letöltés · 4,8-as értékelés iOS hamarosan

Epizódok

Steingrímur Eyfjörð, Laura Marling, Skrípið / Rýni 04.11.2024

Við lítum inn á sýningu á verkum Steingríms Eyfjörð í Gallerí Listval. Sýningin kallast 1978 og á henni vinnur Steingrímur með avant-garde tímabilið í íslenskri listasögu. Verkin sjálf eru hugleiðingar um tímabilið 1957-1980 en upphaf tímabilsins miðar hann við komu Dieter Roth til landsins og endalok þess miðar hann við upphaf markaðsvæðingar á myndlist. Við heyrum einnig af nýrri plötu söngvaská...

Slökkvistöðin, Elva Rún Kristinsdóttir, Þú ringlaði karlmaður /rýni, Aftökunóttin 31.10.2024

Í Slökkvistöðinni í Gufunesi opnar á morgun ljósmyndasýning á verkum Helga Vignis Bragasonar sem kallast Ábati: hugleiðing um efni. Ljósmyndun kom seint inn í líf Helga sem starfaði frá 10 ára aldri við byggingarframkvæmdir. Nú beinir hann fyrst og fremst linsunni að þeim iðnaði og með nokkuð gagnrýnu auga, sé vel að gáð. Síðustu ár hefur Helgi einbeitt sér að stærstu byggingarframkvæmd Íslandssög...

Melkorka Sigríður Magnúsdóttir / svipmynd 30.10.2024

Mel­korka Sig­ríður Magnús­dótt­ir, danshöfundur, nýsköpunarfræðingur og tónlistarkona var bara fimm ára þegar hún fór að sjá Þrjár systur Tchekhovs og fannst það alveg jafn skemmtilegt og að sjá Skógarlíf. Hún varð snemma heilluð af leikhúsinu svo það var í raun rökrétt skref að fara í dansnám þó röð tilviljana hafi líka átt þar hlut að máli. Sautján ára gömul flutti hún til Amsterdam til að læra...

Kristín Ómarsdóttir/Móðurást:Draumþing, Óperudagar/Örlagasögur kvenna, Við erum hér/rýni 29.10.2024

Við lítum við í bláu húsi í gamla vesturbænum og ræðum við Kristínu Ómarsdóttur um nýútkomna bók, Móðurást: Draumþing. Þar segir hún skáldaða sögu langömmu sinnar á ofanverðri nítjándu öld í Biskupstungum, en að sögn Kristínar er bókin líka óður til vatnsins. Draumþing er annar hluti frásagnarinnar sem hófst með Móðurást: Oddnýju fyrir ári síðan, en fyrir hana hlaut Kristín Fjöruverðlaunin. Traust...

Elín Sigríður María Ólafsdóttir, List án landamæra, Þessir djöfulsins karlar, Tóm hamingja 28.10.2024

Hvað væri lífið án listar, spyr Elín Sigríður María Ólafsdóttir, í samtali við Víðsjá í Hafnarborg. Elín er listamaður Listar án landamær í ár og við hittum hana á sýningu hennar Við sjáum það sem við viljum sjá. Einleikurinn Orð gegn orði hefur verið á fjölunum í tæpt ár og komið að leiðarlokum. Við hittum þær Þóru Karítas Árnadóttur leikstjóra og Ebbu Katrínu Finnsdóttur leikkonu og forvitnumst...

Glerþræðirnir, Dagurinn sem Ísland stöðvaðist, Litla hryllingsbúðin-rýni, Víkingur og Wang-rýni 24.10.2024

Magnús Sigurðsson rithöfundur verður gestur okkar í dag en hann var að gefa út bókina Glerþræði, etnógrafísk brot. Í Glerþráðunum fléttar Magnús atvikum og persónum úr sögu landsins listilega saman og tengir við sögur úr nútímanum á einstakan hátt. Þetta er form sem Magnús hefur áður unnið með, en í þetta sinn vinnur hann einungis úr rammíslenskum heimildum. Heimildum sem margar hverjar komu úr bó...

Diddú / Svipmynd 23.10.2024

Diddú steig fyrst á svið sem söngkona 19 ára gömul með Spilverki þjóðanna og hefur verið þar nær stanslaust síðan. Hún stefndi á leiklist en var bent á það í söngnámi í London að til Ítalíu skyldi hún fara til að þjálfa sína háu sópranrödd. Eftir nám í Mílanó sneri Diddú aftur heim og fór beint upp á svið í Íslensku óperunni sem Olympia í Ævintýrum Hoffmans. Hún segir mikið líf hafa verið í Íslens...

Usli Hallgríms Helgasonar, Límonaði frá Díafani-rýni, Blómljóð 22.10.2024

Uslavaldið er eina valdið sem listin hefur, segir Hallgrímur Helgason en yfirlitssýning á verkum hans opnaði um liðna helgi á Kjarvalsstöðum. Á sýningunni, sem nefnist Usli, má sjá hvernig Hallgrímur þroskast sem listamaður í Reykjavík, Munchen, New York og París. Verk Hallgríms eru pólitísk, kaldhæðin og fyndin en líka leitandi og persónuleg, bæði hvað varðar viðfangsefni og stíl. Mörg hver eru ú...

Ófeigur Sigurðsson um Skrípið, Magnea Guðmundsdóttir-pistill, ljóðabækur Skriðu 21.10.2024

Í skáldsögunni Skrípinu, eftir Ófeig Sigurð, segir frá ónefndu og ástríðufullu tónskáldi sem ætlar sér að endurskapa sögulega tónleika píanóleikarans Vladimirs Horowitz með heilmyndarflutningi á Eldborgarsviði Hörpu. Tónskáldið dreymir um endurreisn evrópskrar menningar og finnst að allt hafi verið betra árið 1986, þegar fólkið var ekki eins sjúkt í deyfð og flatneskju og stjórnmálamenn hlustuðu á...

Örn Alexander Ámundason, Víkingur Heiðar og Yuja Wang, State of the Art-rýni 17.10.2024

Víkingur Heiðar kemur í heimsókn og segir frá tónleikaferð þeirra Yuja Wang sem hefst í Hörpu um helgina. Bæði teljast þau til stórstjarna í hinum alþjóðlega tónlistarheimi, en það er óvenjulegt að tveir píanóleikarar fari í tónleikaferð saman, hvað þá listamenn af þessu kaliberi. Meira um það í þætti dagsins. Við heyrum líka af forvitnilegri sýningu Arnar Alexanders Ámundasonar sem nú stendur yfi...

Svipmynd / Linda Vilhjálmsdóttir 16.10.2024

Linda Vilhjálmsdóttir er fædd árið 1958 og ólst upp á Seltjarnarnesi. Hún fann ung að hún væri góð í að setja saman orð, hóf að skrifa ljóð í barnaskóla og las allt sem hún komst í á bókasafni Seltjarnarness. Hún var líka ung þegar hún fór að vinna fyrir sér, fyrst með barnapössun og síðar í fiski. Þegar hún hóf nám við Menntaskólann í Reykjavík upplifði hún í fyrsta sinn stéttarvitund en uppgötva...

Yo-Yo Ma, Ólafur Sveinn Gíslason, Óskaland/rýni 15.10.2024

Á laugardaginn næsta í Hörpu munu sellóleikarinn Yo-Yo Ma, í samstarfi við Sinfóníuhljómsveit Íslands, Marvöðu og fjölda annarra listamanna, flytja listgjörningi í anda helgiblóts. Sellóleikarinn heimsfrægi átti frumkvæði að verkinu, sem kemur úr hugsmiðju leikstjórans Arnbjargar Maríu Danielsen og tónskáldsins Viktors Orra Árnasonar. Við ræðum við þau Arnbjörgu og Viktor Orra í þætti dagsins. Við...

Gerður Helgadóttir / Hamskipti 14.10.2024

Sýningin Hamskipti á Gerðarsafni leggur áherslu á skúlptúrverk Gerðar og varpar ljósi á sköpunarkraft, framúrstefnu og tilraunamennsku listakonunnar. Sýningarstjóri er Cecilie Cedet Gaihede og segir hún titil sýningarinnar bera vitni um margbreytileika og sterka þróun listakonunnar. Við ræðum við Cecilie í þætti dagsins, en einnig heyrum við í Benedikti Hjartarsyni, Hallgerði Hallgrímsdóttur, Bryn...

Nóbelsverðlaun í bókmenntum, Listasafn Íslands 140 ára, Miguel Atwood-Ferguson, Undir-rýni 10.10.2024

Við hefjum þáttinn að sjálfsögðu á stórfréttum dagsins, Nóbelsverðlaununum í bókmenntum. Rétt fyrir hádegi var tilkynnt um handhafa verðlaunanna við hátíðlega athöfn og í beinu streymi Sænsku akademíunnar. Nóbelinn í ár hlýtur Suður-kóreski rithöfundurinn Han Kang. Kang, sem fæddist árið 1970, er þekkt fyrir ljóðrænan prósa, sem dregur fram söguleg áföll og afhjúpar viðkvæmni mannlífsins. Hún vakt...

Íslenski bærinn / Svipmynd 09.10.2024

Að Austur-Meðalholtum í Flóa stendur einn af fáum varðveittum torfbæjum landsins. Myndlistarmennirnir Hannes Lárusson og Bryndís Hrönn Ragnarsdóttir búa í Austur-Meðalholti og reka þar Íslenska bæinn. Hann hefur að geyma, auk gamla torfbæjarins, sýningarrými, samkomustað, vinnustofur, verkstæði, timburhús af þeirri tegund er spratt úr torfbænum, og einnig hýbýli þeirra sjálfra. Við heimsækjum þau...

Ummælagreining, Magga Eddudóttir og Herbergi Giovanni 08.10.2024

Við kynnum okkur viðamikið verkefni, Ummælagreiningu, sem gefur almenningi tækifæri til að móta færni íslenskrar gervigreindar og stuðla að því að gagnasöfn íslenskra gervigreindarforrita endurspegli íslenskt gildismat og menningu. Verkefnið felst í því að skoða ummæli af internetinu og meta ýmsa þætti eins og tilfinningalegt innihald, kurteisi og það hvað telst óviðeigandi eða særandi orðræða. Þa...

Bjarni Frímann Bjarnason, Arðsemi menningar, Eltum veðrið 07.10.2024

Við hittum Bjarna Frímann Bjarnason hljómsveitarstjóra og píanóleikara á bílaverkstæði við Smiðjuveg í þætti dagsins. Bjarni mun halda þar tónleika um næstu helgi sem eru hluti af tónlistarhátíðinni State of the Art sem hefst á morgun og stendur til 12.október. Við munum einnig kynna okkur skýrslu sem heitir Framlag menningar og skapandi greina til verðmætasköpunar á Íslandi. Hún er unnin fyrir Me...

Arnheiður Eiríksdóttir, Gallerí Undirgöng, Ólafur á Söndum 03.10.2024

Við förum á Hverfisgötu þar sem Geirþrúður Finnbogadóttir Hjörvar sýnir veggverk í Gallerí Undirgöngum. Verkið,sem hún kallar Eftirlits- og hagsmunaaðilar, varpar fram spurningum um opinbera fagurfræði, valdajafnvægi og manngerð kerfi með aðstoð tákna og lógóa. Við komum einnig við í Eddu og hittum þar fyrir þær Margréti Eggertsdóttur og Þórunni Sigurðardóttur, en þær unnu að útgáfu bókar sem kom...

Svipmynd - Lilja Ingólfsdóttir 02.10.2024

Kvikmyndagerðarkonan Lilja Ingólfsdóttir var komin með nóg af klisjukenndum kvenpersónum þegar hún hófst handa við að skrifa Elskling. Aðalpersóna Elskling er ófullkomin og þreytt fjögurra barna móðir sem reynir að sinna starfsframanum um leið og hún reynir að halda hjónabandinu gangandi. Elskling hefur sópað að sér verðlaunum og góðri gagnrýni frá því að hún var frumsýnd í sumar, en hún er er fyr...

Tarotspil norrænna goðsagna, Ólöf Arnalds-Teens, Voðaverk í Vesturbænum-rýni 01.10.2024

Á dögunum komu út hjá Bókabeitunni eftirtektarverð tarotspil. Spilin eru eftir hefðbundinni forskrift en höfundur þeirra, Kristín Ragna Gunnarsdóttir, hefur endurhugsað þau út frá norrænni goðafræði, sér í lagi sögnum úr Snorra-Eddu og Eddukvæðum. Kristín Ragna er höfundur myndanna en hefur líka skrifað ítarlega skýringarbók með spilunum, sem inniheldur bæði leiðbeiningar fyrir lagnir og túlkun og...

Hallgasd a(z) Víðsjá podcastot a Replaióban

Rádió és podcastok egy alkalmazásban - ingyen és regisztráció nélkül. Telepítsd még ma, és ne maradj le a premierről

Letöltés a Google Play-ről

A Replaio nem podcastkiadó; a műsorok nevei, borítóképei és hanganyagai a szerzőiket illetik, és nyilvános RSS-csatornákon keresztül terjednek.