Linda Pétursdóttir
Podcastið með Lindu Pé
Podcastþættir Lindu Pé sem er master lífsþjálfi. Linda kennir konum að uppfæra hugarfarið, umbreyta sjálfsmynd sinni- og ná árangri. Nánari upplýsingar: www.lindape.com
Mindenképp látogasd meg a podcast oldalát, és támogasd a készítőjét: lmlp.libsyn.com
Szerző
Linda Pétursdóttir
Kategória
A podcast weboldala
Legutóbbi epizód
2026. szept. 23.
Hol hallgathatod?
Podcastok az alkalmazásban Replaio Radio HamarosanA podcastok hamarosan megérkeznek az alkalmazásba. Telepítsd most, és láss elsőként egy teljesen új megközelítést a podcastokhoz
Epizódok
139. Hækkaðu viðmiðin þín 09.08.2023 17:45
Í þessum þætti ætla ég að fara yfir með þér hvernig við ætlum að hætta að skella skuldinni á aðra og lærum að stíga inní kröftugu orkuna okkar til að gera breytingar. Breytingar eru nefnilega erfiðar ef þær eru á valdi einhvers annars. Þegar við höfum ákveðið að hætta að sætta okkur við lífið og kenna öðrum um hvar við erum staddar- þá er næsta skref að ákveða hvað við ætlum að byrja að sætta okku...
138. Berðu ábyrgð á lífinu þínu 02.08.2023 20:31
Þú færð ekki það sem þú vilt, þú færð það sem þú sættir þig við. Það er mjög mikilvægt að átta sig á sannleikanum í þessu. Ef þú spáir virkilega í þetta þá er allt sem þú hefur í lífinu þínu í dag sem þér líkar ekki við tilkomið af því að þú hefur lært að sætta þig við eitthvað sem þú vilt ekki. Alveg sama hvað það er. Eitt af því sem er okkur mjög tamt og við höfum vanið okkur á er að kenna öðru...
Vertu kröftugri á 30 dögum! 28.07.2023 2:03
Þér er boðið! Ókeypis áskorun. Vertu kröftugri á 30 dögum er ókeypis áskorun sem þér er boðið að taka þátt í. Það eina sem þú þarft að gera til þess að taka þátt er að fylgja Lindu á Instagram @lindape → Smelltu hér til að fylgja henni. Við byrjum sunnudaginn 30. júlí nk. Daglega í 30 daga kemur Linda með ráð á Instagram svo þú getir gert kröftugar breytingar á lífi þínu. Láttu þig hlakka til að...
137. Kíktu á bakvið tjöldin 19.07.2023 22:00
Kíktu á bakvið tjöldin! Þessi þáttur er upptaka af vinnustofu í LMLP prógramminu þar sem ég tók meðal annar fyrir hugsunarháttinn og orðin sem við tölum - og þau áhrif sem þau hafa á orkuna okkar. Einnig tók ég fyrir spurningar og svör. LOKAÐ ER FYRIR SKRÁNINGU -BIÐLISTI Aðgangsglugginn í LMLP prógrammið er nú lokaður. Skráðu þig á biðlista og við látum þig vita þegar opnar næst. Skrá mig á BIÐLI...
136. Matarlanganir og þyngdartap 05.07.2023 17:41
Lykillinn að því að grennast er að losna við ákafa löngun í mat. Allar langanir orsakast af hugsunum, en upphaflega eru hugsanirnar hluti af ómeðvitaðri röð endurtekinna hugsana. Löngun er bara hvöt, sterk hvöt sem orsakast af hugsunum þínum. Þegar við látum undan lönguninni viðheldur það henni. Því meira sem við látum undan löngunum okkar því ákafari verða þær. Hvað gerirðu þá ef þú finnur fyrir...
135. 5 atriði sem þú þarft að hætta að gera 21.06.2023 32:19
Þú átt skilið að lifa þínu æðsta lífi-og njóta draumalífsins þíns á heildrænan hátt. Vera í þínu besta andlega og líkamlega formi, eiga meiri peninga, láta gott af þér leiða, vera í draumastarfinu þínu og eiga í samskiptum við fólk sem bætir líf þitt. Til þess að geta tekið á móti draumalífinu þínu sem bíður þín, þá þarftu alltaf að fara í gegnum umbreytingar fyrst. Þú getur ekki náð lengra og li...
134. Dramað í lífinu 07.06.2023 17:43
Á hverjum degi skrifa ég niður markmiðin mín. Sama hver markmiðin eru skrifa ég þau niður. Þú vilt aldrei láta heilann gleyma því sem er þér mikilvægast. Okkur finnst auðvelt að einblína á það sem er að eða virkar ekki en ef þú vilt vera manneskjan sem hugsar um markmiðin sín þegar lífið er erfitt, þá þarftu að vera sú sem hugsar um markmiðin sín með virkum hætti og með því að skrifa þau niður á h...
133. Skiptir fegurð máli? 24.05.2023 29:54
Þegar kemur að fegurð trúi ég því að allar konur hafi sína einstöku fegurð. Hana er að finna innra með okkur og hana er að finna í umhverfi okkar. Vi ð höfum hana allar en því miður höfum við margar eytt meirihluta lífsins í að segja okkur að okkur skorti fegurð. Við erum búnar að fóðra hugsanir sem hafa dregið úr okkur og gefið okkur þá mynd af okkur sjálfum að fegurð sé eitthvað sem sé ekki okka...
132. Sumarplanið mitt 10.05.2023 10:27
Vorið er minn uppáhaldstími og það er einhver aukin von í loftinu. Eftir að hafa tekið upp síðasta podcastþátt minn, um vorhreingerningu hugans, hef ég tekið ákvörðun sem ég segi ykkur frá í þessum þætti. Ég hef útbúið sumarplan fyrir mig - og eins og þið vitið legg ég áherslu á að þið hlúið að ykkur sjálfum og mitt sumarplan snýst einmitt um það. Það er margt mjög spennandi að gerast í fyrirtækin...
131. Vorhreingerning hugans 03.05.2023 19:35
Nú þegar vorið og sumarið er að skella á er gott að fara í það sem ég kalla vorhreingerningu hugans. Þ á á ég við skipulagða vinnu þar sem þú skoðar það sem fer í gegnum kollinn á þér á hverjum degi . Með því að verða meðvituð um hugsanir þínar getur þú valið þær hugsanir sem þjóna þér og koma þér þangað sem þú vilt fara. LOKAÐ ER FYRIR SKRÁNINGU -BIÐLISTI Aðgangsglugginn í LMLP prógrammið er nú...
130. Tilfinningar og velgengni í viðskiptum 26.04.2023 22:40
Fyrir stuttu var ég beðin um að halda fyrirlestur í Viðskiptadeild Háskóla Íslands. Það var mikill heiður að fá þetta tækifæri til að segja söguna mína úr viðskiptaheiminum. Ég hef upplifað mikla velgengni í viðskiptum, misst allt og staðið upp sterkari sem aldrei fyrr. Ég talaði við stóran hóp af viðskiptafræðinemum um þetta ferðalag mitt og talaði sérstaklega um það hvernig tilfinningar og hug...
129. 4 stig þyngdartaps 19.04.2023 17:43
Í þætti dagins ætla ég að kenna þér að gera þyngdartapið auðveldara. Ég ætla að fara yfir fjögur skref þyngdartaps. Margar okkar tala þyngdartapið niður vegna þess að við eigum ömurlegar sögur af því að reyna að léttast. Það er svo erfitt. Það er ómögulegt. Það útheimtir að ég sé viðkvæm, finni til, þurfi að grafa djúpt og fleira og fleira. En sjáðu til. Það er ekki þyngdartapið sjálft sem er óv...
128. Viltu vera með okkur? 12.04.2023 39:18
Í þessum þætti spjallar Linda, við starfsmenn í LMLP prógramminu, og þær segja þér frá því af hverju þeim finnst svo gaman og gefandi að vinna við að hjálpa konum að bæta líf sitt. Þær tala um hvernig þær hafa sjálfar gert breytingar á eigin lífi og hvað þeim finnst skipta mestu máli - og margt fleira. Teymið er með breiða menntun og reynslu og eru sérfræðingar á sínum sviðum. LMLP prógrammið, ...
Aðgangsglugginn í LMLP er OPINN! 09.04.2023 3:06
Æðislegar fréttir fyrir þær ykkar sem hafið verið að bíða eftir að komast inn í LMLP prógrammið! Nú er aðgangsglugginn OPINN í örfáa daga þannig að þetta er tækifærið þitt. Þú vilt ekki missa af þessu, skráðu þig núna - og þín bíða spennandi breytingar á lífi þínu. Þú skapar stærri og meira spennandi framtíð en þig órar fyrir í dag. Það er ástæða fyrir því að margar LMLP konurnar segja það að haf...
127. Árangurssaga Elínar: „Ég sjálf var vandamálið" 05.04.2023 40:42
Í þætti dagsins heyrum við árangurssögu Elínar Káradóttur, 32 ára LMLP konu. „Mér finnst að allar konur eftir tvítugt ættu að koma í prógrammið því þá hafa þær svo mikinn tíma framundan til þess að læra aðferðir til að lifa sínu besta lífi. Ég er búin að kafa djúpt og læra margt um sjálfa mig í LMLP prógramminu . Ég var búin að fara á mörg námskeið áður, sem hafa virkað , nema hvað hausinn á mér...
126. Vigtin og spegillinn 29.03.2023 17:47
Vigtin og spegillinn eru verkfæri til að vinna í sambandi þínu við sjálfa þig. Að horfa í spegil og að stíga á vigtina eru leiðir til þess að vinna í sambandinu sem þú átt við þig í dag. Vigt in leiðbeinir þér á þyngdartaps ferðalagi þínu. Ekki til láta þér líða illa þegar þú stígur á vigtina - hún hefur ekki vald yfir líðan þinni. Það eru alltaf hugsanir þínar um vigtina sem gera það. Þyngd...
125. Tvær tegundir af framtíð 22.03.2023 16:56
Þegar við tökum ákvörðun festumst við oft í að sjá fyrir okkur rétta og ranga ákvörðun byggða á þeirri framtíð sem við höldum að ákvörðunin gefi okkur. Við festumst í óttanum við að taka ranga ákvörðun og þetta veldur vanlíðan í langan tíma. En við getum trúað því sem við viljum um lífið okkar í framtíðinni. Fullt af fólki er alveg staðráðið í að trúa að framtíðin sé mjög neikvæð og ríghalda í bö...
124. Ég er... 15.03.2023 18:12
Ábyrgð og orka fylgir orðunum okkar og þar með talið samtalinu sem við eigum við okkur sjálfar. Allt sem kemur á eftir „ég er" eru kröftugustu orð sem þú segir, því það sem kemur á eftir þessum orðum mun verða að veruleika. Heilinn okkar trúir því sem við segjum við hann og fer á fullt að sanna þessi orð rétt. Þessi orð tengjast beint þeirri sjálfsmynd sem þú hefur, við ræðum um þessi mikilvægu o...
123. Fimm leiðir að árangri 08.03.2023 27:12
Hvað er það sem býr til árangur? Allar höfum við einhverja drauma um það sem við viljum gera. Ég hvet ykkur allar til að átta ykkur á því hvað það er sem ykkur dreymir um að gera. Það er að mínu mati það sem gerir lífið svo skemmtilegt. Draumarnir okkar eru eins og innri áttaviti. Hlustaðu til að læra 5 leiðir að árangri. LOKAÐ ER FYRIR SKRÁNINGU -BIÐLISTI Aðgangsglugginn í LMLP prógrammið er nú...
122. Leyndir draumar 01.03.2023 14:19
Stundum er talað um að allir hafi köllun eða tilgang í lífinu. Ég trúi því að okkar dýpstu þrár og langanir séu áttavitinn að því sem okkur er ætlað að gera. Það er svo ótrúlega auðvelt að fara í gegnum dagana sína á sjálfsstýringu, algjörlega ómeðvituð um dýpstu langanir okkar og hreinlega velta þessu aldrei fyrir sér. Í þessum þætti tala ég um það sem er kraumandi undir niðri og við horfumst ekk...
121. Markmið frá auðvídd 22.02.2023 19:54
Í heimi lífsþjálfunar er lögð mikil áhersla á að vera alltaf með einhvers konar markmið. Ég er stundum spurð út í það hvort öll þessi áhersla á markmið stangist ekki á við það að lifa í núinu. Núvitundina sem er líka svo mikilvæg. Þegar ég hélt áfram námi mínu og jók skilning minn á því hvernig við vinnum með markmið kom þetta allt heim og saman í huga mínum og í þessum þætti ætla ég að útskýra þe...
120. Að takast á við erfiða daga 15.02.2023 18:20
Mörgum finnst skammdegið erfitt, og ég skil það vel. Fyrir þá sem eru annars í góðu jafnvægi - líkamlega og andlega - og eiga ekki við andleg veikindi að ræða, er mjög gott að temja sér hugsanastjórnun. Þegar ég lærði að temja mér hugsanastjórnun breyttist andleg líðan mín mjög mikið. Allt í einu hætti ég að láta annað fólk eða lífsreynslu úr fortíðinni stjórna því hvernig mér líður í dag. Að átta...
119. Óður til LMLP kvenna 08.02.2023 32:05
Þegar ég byrjaði með LMLP prógrammið átti ég mér draum. Ég átti mér draum um að prógrammið mitt yrði kröftugt samfélag dásamlegra kvenna sem myndu hvetja og styðja við hverja aðra, á meðan þær uppgötvuðu sinn innri kraft undir minni leiðsögn. Ég sá fyrir mér byltingu sterkra kvenna úr öllum áttum og á öllum aldri sem sameinuðust í því að sætta sig ekki við hlutina heldur hanna lífið sitt meðvitað...
118. Viljastyrkur er ekki nóg 01.02.2023 13:32
Það þarf úthald til að gera breytingar á lífi sínu, því alvöru breytingar gerast ekki á einni nóttu. Þegar þú gerir stórar breytingar á lífsstíl þínum þarftu að setja þér nýjar reglur. Þar spila bæði sjálfsagi og viljastyrkur stórt hlutverk. En hver er munurinn á viljastyrki og sjálfsaga? LOKAÐ ER FYRIR SKRÁNINGU -BIÐLISTI Aðgangsglugginn í LMLP prógrammið er nú lokaður. Skráðu þig á biðlista...
117. Mistök fortíðar 25.01.2023 14:00
„ Framtíðin ræðst af því sem þú gerir í dag " - Mahatma Ghandi Eitt af því mikilvægasta sem ég kenni í LMLP prógramminu mínu er að við látum fortíðina ekki spá fyrir um framtíðina. Við látum mistök fortíðar ekki spá fyrir um hvernig okkur á eftir að vegna í framtíðinni. Við erum alltaf bara einni ákvörðun frá því að breyta lífi okkar og þá ákvörðun er hægt að taka í dag. Dagurinn í dag er sá dagur...
Hasonló podcastok
A Replaio nem podcastkiadó; a műsorok nevei, borítóképei és hanganyagai a szerzőiket illetik, és nyilvános RSS-csatornákon keresztül terjednek.