Hlaðvarpið 4 vaktin

4. vaktin

Við heitum Sara Rós Kristinsdóttir og Lóa Farestveit Ólafsdóttir og erum mæður á 4. vaktinni. Þegar við tölum um 4. vaktina þá erum við að vitna í þær vaktir sem við erum ósjálfrátt sett á í lífinu okkar. 1 vaktin er þá hefðbundinn vinnudagur, endurhæfing eða annað, 2. vaktin er það sem við þurfum að gera utan vinnutíma og 3. vaktin er huglæg og einsskonar verkstjórn yfir 2 vaktinni. Fyrir foreldra langveikra og eða fatlaðra barna þá er 2 og 3 vaktin umfangsmeiri og þess vegna ætlum við að tala um hana sem 4. vaktina. Við spjöllum um réttindi, þjónustu ofl og við aðra foreldra og fagfólk.

Mindenképp látogasd meg a podcast oldalát, és támogasd a készítőjét: podcasters.spotify.com

Szerző

Hlaðvarpið 4 vaktin

Kategória

Education

A podcast weboldala

podcasters.spotify.com

Legutóbbi epizód

2026. szept. 27.

Hol hallgathatod?

Podcastok az alkalmazásban Replaio Radio Hamarosan

A podcastok hamarosan megérkeznek az alkalmazásba. Telepítsd most, és láss elsőként egy teljesen új megközelítést a podcastokhoz

Letöltés a Google Play-ről Telepítsd ingyen Android közel 10 M letöltés · 4,8-as értékelés iOS hamarosan

Epizódok

92. Hvítblæði 27.09.2026

Í þætti 2 í seríu um hvítblæði förum við yfir helstu tegundir af blóðkrabbameini eða hvítblæði og hvaða meðferðir er helst notast við. Einnig förum við yfir söguna hvenær hvítblæði var fyrst uppgötvað, hvenær og hvernig þessi sjúkdómur var rannsakaður. Það hafa orðið miklar framfarir í læknavísindum og lyfja og meðferðar möguleikum í dag. Lífslíkur fyrir þá sem greinast eru orðnar mun betri á sein...

91. Fræðumst um blóðið okkar 30.08.2026

Fyrsti þáttur í þátta seríu um krabbamein hjá börnum en þetta er viðfangsmikið efni og við fjöllum aðalega um hvítblæði til að byrja með. Þetta málefni stendur mörgum fjölskyldum nærri og við vonum að þættirnir geti hjálpað til við að auka fræðslu og skilning í samfélaginu. Fyrst vildum við fara yfir það hvað blóð og blóðmergur er, því til að skilja hvítblæði betur þá þarf maður að vita aðeins um...

90. Tabú 16.08.2026

Í þætti 90 fengum við Tabú konur til okkar þær Jönu Birtu Björnsdóttur verkefnastýru Tabú  og Þorberu Fjölnisdóttur sem hefur verið virk í starf Tabú lengi og er núna í stjórn NPA miðstöðvarinnar. Öflugar konur sem hafa unnið ötullegt starf í þágu fatlaðs fólks. Við fengum að skyggnast í starfið hjá Tabú, sögu samtakanna og einnig áttum við  virkilega góðar samræður um samfélagsleg málefni sem sný...

89. Unnur Kristín Óladóttir - móðir einhverfs barns 04.08.2026

Við fengum Unni Kristínu Óladóttir til okkar en hún hefur verið mjög opin á samfélagsmiðlinum Instagram, þar deilir hún frá lífinu sínu og sýnir og segir frá á einlægan hátt. Unnur á sjálf 2 stráka ásamt því að vera stjúpmóðir. Yngri strákurinn hennar Zion er einhverfur og hún hefur opnað umræðu um einhverfuna og að vera móðir einhverfs barns. Zion er 4 ára glaður og söngelskur strákur og það er e...

88. Sara og Lóa spjalla um allt eða ekkert 27.07.2026

Þessi þáttur er bara létt spjall Söru og Lóu um allt eða ekkert. Okkur langaði að hafa þátt þar sem þið hlustendur gætuð kynnst okkur betur óformlegu spjalli .... Njótið! Þessi þáttur er í boði: -Góðvildar - Styrktarfélagið Góðvild hefur það markmið að styðja við verkefni sem bæta hag langveikra og fatlaðra barna á Íslandi og fjölskyldna þeirra. Hægt er að styrkja Góðvild og með því er verið að st...

87. Íslenska barnahjálpin í Kenía  10.07.2026

Íslenska barnahjálpin í Kenía  Heimasíða: islenskabarnahjalpin.is Það er magnað að hlusta á þessar  þrjár konur segja frá sjálfboðaliða starfinu og lífinu úti í Kenía þar sem Íslenska Barnahjálpin er að reka barnaskóla ásamt því að aðstoða einstæðar mæður. Þær Unnur Kristín Óladóttir , móðir, gullsmiður og einkaþjálfari og Alexandra Noor Douglas , frumkvöðull eru nýkomnar úr sinni fyrstu ferð til...

86. Team Rynkeby hjólarar sem safna fyrir Umhyggju 26.06.2026

Nýjustu gestir hlaðvarpsins ​ vaktin eru Steffy Þórólfs sem er hluti af Team Rynkeby hjólahópnum núna í ár og Louisa Sif sem hefur tvisvar sinnum verið þátttakandi með liðinu. Team Rynkeby samtökin eiga 25 ára afmæli í ár. Þátttakendur hjólaárið 2025-2026 eru um 2500 hjólarar og um 500 aðstoðarfólk í 68 liðum frá 9 löndum auk evrópu liðs. Ísland hefur tekið þátt frá árinu 2017 og er þetta því 10....

85. Jafningastuðningur inn á geðdeild 19.06.2026

Þessi þáttur er kannski nokkuð óhefðbundinn fyrir 4.vaktina en þó sáum við þessa umræða gagnast okkar hlustendahópi.  Við viljum byrja á að taka það fram að það er talað um sjálfsvíg og sjálfsvígshugsanir í þessum þætti. Umræðan endurspeglar ekki allt sem kemur að þessu málefni. Ef þú ert að upplifa sjálfsvígshugsanir þá mælum við alltaf með að leita aðstoðar. Sem aðstandendi er hægt að leita sér...

84. Spjall við systkini fatlaðra barna - Hera og Vala 28.05.2026

Í þessum þætti fengum við til okkar Heru Arnardóttur og Völu Fanneyju Farestveit . Þær eru báðar á menntaskólaárunum, Hera að kveðja þau og útskrifaðist í vor og Vala að ljúka fyrsta ári.  Þær komu til okkar í þáttinn til að ræða það einstaka hlutverk sem þær eru báðar deila en þær eru systur fatlaðra barna.  Í þættinum fáum við að hlusta á einlæga lýsingu þeirra af því hlutverki og hvernig það er...

83. Börn með fötlun á Íslandi. Þáttur á pólsku - Dzieci z niepełnosprawnością na Islandii. 27.05.2026

Þessi þáttur er á pólsku Draumurinn okkar í hlaðvarpinu 4.vaktin er að gera upplýsingar aðgengilegar fyrir sem fjölbreyttasta hópinn.   Að geta boðið upp á fræðslu á fleiri tungumálum en Íslensku er einn liður í þeim draumi. Það hefðum við aldrei getað gert nema með Kötu og Kasiu sem að sáu um nánast allt! Eina sem við gerðum var að segja þeim okkar hugmynd og hvað myndum helst vilja að kæmi fram....

82. Þroskahjálp - Landssamtök 19.05.2026

Til okkar komu Guðmundur Ármann Pétursson formaður og  Anna Lára Steindal framkvæmdastjóri frá Þroskahjálp. Þroskahjálp vinnur að fjölbreyttum verkefnum í hagsmunagæslu fatlaðs fólks.  Við hvetjum alla þá sem hafa tök á að styðja við starf Þroskahjálpar með eingreiðslu, mánaðarlegu framlagi eða versla vefverslun throskahjalp.is Landssamtökin Þroskahjálp voru stofnuð haustið árið 1976 í því skyni a...

81. Hjálpartæki sem bæta lífsgæði, hjálpartæki fyrir fatlaða, langveika og alla sem þurfa 03.05.2026

Við fengum til okkar 2 aðila til að segja okkur frá ýmislegu tengdu hjálpartækjum fyrir þá sem þurfa vegna fötlunar, veikinda, verkja eða öðru.  Þeir fræða okkur um úrvalið, þróunina, möguleikana og hvað þarf að hafa í huga. Þeir koma með sitthvort sjónarhornið en Bergur kemur inn sem notandi og Sigurður sem faðir stúlku sem er notandi.  Sigurður Jóhannesson er faðir hennar Sunnu sem er með AHC ta...

80. Barnaheill - Ungheill ungmennaráð 21.04.2026

Ungheill er rödd unga fólksins, ungmennaráð Barnaheilla eða Save the children á Íslandi. Við fengum til okkar þær Miu Ðuric og Karitas Leu sem eru báðar í Ungheill til að segja okkur frá starfinu. Þær eru að vinna virkilega flott starf ásamt hinum í ráðinu. Við í samfélaginu þurfum að styðja við og efla ungmennaráð og hlusta á þeirra raddir og vinna saman.  Að hlusta á þær segja frá starfinu og vi...

79. Reykjadalur - Gló stuðningsfélag 27.03.2026

Andrea Rói forstöðumaður Reykjadals og Hildur aðstoðar forstöðumaður komu til okkar og sögðu okkar allt frá starfinu í Reykjadal. Það heyrist strax hvað þær hafa báðar ástríðu fyrir starfinu sínu og það sem maður heyrir frá þeim sem kynnast Reykjadal er að staðurinn snertir stað í hjartanu hjá flestum. -- glofelag.is Hlutverk Reykjadals er að skapa vettvang þar sem fötluð börn og ungmenni: ​fá rau...

78. Eva Hrund - Fæddist á viku 27 17.03.2026

Við fengum hana Evu Hrund til okkar sem fæddist sjálf fyrirburi og var á vökudeildinni. Eva fæddist um viku 27 , var í hitakassa í um 5 mánuði og þurfti að fara í hjartaaðgerð fljótlega eftir fæðingu. Eva sagði okkur frá sinni sögu og hvað er búið að breytast í málum fyrirbura frá því að hún fæddist. Eva er með bæði heyrna og sjónskerðingu og það er vitað núna í dag að sjónskerðingin er vegna þess...

77. Steinunn Helga Sigurðardóttir - 5 barna móðir sem eignaðist tvíbura á viku 28 26.02.2026

Við fengum til okkar hana Steinunni Helgu Sigurðardóttir sem segir okkur frá reynslu sinni sem fimm barna einstæð móðir og sem móðir tvíbura stelpna sem fæddust langt fyrir tímann eða á viku 28. Þær þurftu að vera á vökudeildinni í töluverðan tíma en þær eru báðar með Cerebral palsy (CP) og segir Steinunn okkur líka frá hvernig það hefur haft áhrif á líf þeirra. Börnin hennar eru í dag 9,7,4 og 2...

76. Hafdís Priscilla Magnúsdóttir -Fyrirbura móðir 19.02.2026

Við fengum hana Hafdísi Priscillu Magnúsdóttir til okkar sem eignaðist fyrirbura fyrir um 16 árum síðan. Stelpan hennar fæddist um það bil 2 mánuðum fyrir tímann og voru þau með hana á vökudeild lengi. Í dag gengur henni vel en á fyrstu árunum í lífi sínu var hún að kljást við veikindi sem má rekja til þess að hún hafi fæðst fyrir tímann. Hafdís sagði frá þeirri upplifun að eignast fyrirbura og að...

75. Herdís Gísladóttir - Vökudeild Barnaspítala Hringsins 10.02.2026

Við fengum hana Herdísi Gísladóttir hjúkrunarfræðing til okkar til að segja okkur frá starfi Vökudeildar Barnaspítala Hringsins sem er nýburagjörgæsludeild og er sú eina sinnar tegundar á Íslandi. Deildin sinnir fyrirburum og veikum nýburum. Herdís hefur starfað þar í fjölda ár og hefur mikla þekkingu. Í dag starfar hún bæði á vökudeild og erfðadeild Landspítalans.  Vökudeildin varð 50 ára 2. Febr...

74. Fyrirburar - Sagan 03.02.2026

Við förum yfir söguna þegar kemur að fyrirburum og læknavísindum tengdum fyrirbura lækningum. Sagan er löng og sagan er ótrúleg satt best að segja. Virkilega áhugavert að fræðast um söguna sjálfa og hvað við erum komin langt þegar kemur að vitneskju og vísindum. Á Íslandi: Er Vökudeild Barnaspítala Hringsins sem er nýburagjörgæsludeild og sú eina sinnar tegundar á Íslandi. Deildin er staðsett á þr...

73. Erna Sigurðardóttir, barnabóka höfundur. Óskar elskar lestir-bróðir minn er einhverfur. 18.01.2026

Erna Sigurðardóttir og maðurinn hennar voru nýlega búin að eiga strákinn sinn, hann var aðeins 7 vikna gamall þegar stelpan þeirra þá aðeins 6 ára gömul lenti í slysi og hlaut alvarlega áverka og þar á meðal áunninn heilaskaða sem hefur haft áhrif á og litað hennar líf. Hún segir okkur frá bæði slysinu, heilaskaðanum, einhverfu greiningu sonar þeirra, systkina sambandi þeirra og lífi þeirra í Nore...

72. Spjallþáttur með gervigreind 07.01.2026

Við prófuðum að fá spurningar frá gervigreindinni og við fengum 10 spurningar um 4.vaktina og svo 3 random spurningar. Það kom á óvart hvað það varð mikið flæði en við svöruðum bara frekar hrátt og eins einlægt og við gátum. Vonandi hafið þið gaman að því að hlusta..... Þessi þáttur er í boði: -Góðvildar - Styrktarfélagið Góðvild hefur það markmið að styðja við verkefni sem bæta hag langveikra og...

71. Auður Ákadóttir -Formaður Einhverfusamtakanna 27.12.2025

Auður Ákadóttir kom til okkar í spjall en hún er formaður Einhverfusamtakanna og hefur komið að ýmsu starfi þegar kemur að vitundarvakningu um einhverfu. Auður er sjálf einhverf og á einnig 2 einhverfar dætur.  Hún kom til okkar til að fræða okkur um Einhverfusamtökin en þegar leið á samtalið og við vorum búnar að taka upp heillengi þá föttuðum við að við höfðum ekkert farið í samtal um samtökin þ...

70. Eva Rós - Bergið Headspace 10.12.2025

Eva Rós Ólafsdóttir framkvæmdastjóri Bergsins Headspace kom til okkar til að segja okkur frá starfinu, hugmyndafræðinni, framtíðarsýn og til að ræða um líðan ungmenna. Bergið er stuðnings- og ráðgjafasetur fyrir ungt fólk upp að 25 ára aldri. Markmið Bergsins er að bjóða upp á lágþröskuldaþjónustu með áherslu á stuðning, fræðslu og ráðgjöf. Í Berginu er lagt upp með að skapa notalegt og öruggt umh...

69. Málþing Umhyggju - 4.vaktin 03.12.2025

Fjórða vaktin Kulnun - Foreldrakulnun - Burn ON  Við fengum þann heiður að vera fundastjórar á málþingi Umhyggju sem bar nafnið Fjórða vaktin og snerist einmitt um þessa aukavakt sem foreldrar langveikra og fatlaðra barna eru oft á. Erindin voru öll virkilega bæði áhugaverð og áhrifarík og við vildum taka einn þátt þar sem við rýnum aðeins í erindin sjálf. Samtalið um þessa kulnun sem foreldrar er...

68. Gunnhildur Þórðardóttir - Móðir einhverfs barns 21.11.2025

Við fengum hana Gunnhildi Þórðardóttir sem er móðir einhverfs drengs. Hún hefur verið ötull talsmaður fyrir hans réttindum og stuðning og almennt málaflokk fatlaðra barna. Gunnhildur hefur verið áberandi á samfélagsmiðlinum TikTok að fræða og sýna frá þeirra daglega lífi. Ásamt því að fræða almennt um einhverfu og mörgu tengdu. Hún nær að fræða á skemmtilegan máta en hún nær oft að fræða með að ha...

Hallgasd a(z) 4. vaktin podcastot a Replaióban

Rádió és podcastok egy alkalmazásban - ingyen és regisztráció nélkül. Telepítsd még ma, és ne maradj le a premierről

Letöltés a Google Play-ről

A Replaio nem podcastkiadó; a műsorok nevei, borítóképei és hanganyagai a szerzőiket illetik, és nyilvános RSS-csatornákon keresztül terjednek.