Linda Pétursdóttir

Podcastið með Lindu Pé

Podcastþættir Lindu Pé sem er master lífsþjálfi. Linda kennir konum að uppfæra hugarfarið, umbreyta sjálfsmynd sinni- og ná árangri. Nánari upplýsingar: www.lindape.com

Mindenképp látogasd meg a podcast oldalát, és támogasd a készítőjét: lmlp.libsyn.com

Szerző

Linda Pétursdóttir

Kategória

Education

A podcast weboldala

lmlp.libsyn.com

Legutóbbi epizód

2026. szept. 23.

Hol hallgathatod?

Podcastok az alkalmazásban Replaio Radio Hamarosan

A podcastok hamarosan megérkeznek az alkalmazásba. Telepítsd most, és láss elsőként egy teljesen új megközelítést a podcastokhoz

Letöltés a Google Play-ről Telepítsd ingyen Android közel 10 M letöltés · 4,8-as értékelés iOS hamarosan

Epizódok

161. Sigur ársins 10.01.2024

Í þættinum ræðum við um mikilvægi lífsþjálfunar og þær breytingar sem þú mátt eiga von á þegar þú skráir þig í LMLP prógrammið og temur þér þessi kraftmiklu fræði sem lífsþjálfun er. Við tökum fyrir „Sigur ársins" þar sem konur í LMLP prógramminu segja sjálfar hvað þær hafa upplifað og hver þeirra stærsti sigur var sl. ár. - - -  LMLP prógrammið  SMELLTU HÉR TIL AÐ SKRÁ ÞIG  → www.lindape.com/skra...

160. Markmiðasetning og orð ársins 2024 03.01.2024

Í upphafi árs er nauðsynlegt að setja sér ásetning fyrir árið. Orð ársins, markmið og skilgreining framtíðarsjálfsins eru allt gríðarlega kröftugar nálganir sem byggja á þeim ásetningi sem við höfum ásett okkur. Í þættinum fer Linda yfir hvernig hún persónulega vinnur markmiðsetningu og velur sér orð ársins og gefur þér 3 ráð þar að lútandi. Hver vil ég vera 2024?    Þér er boðið á 2ja daga markmi...

Vertu hugrökk- og láttu vaða 2024! 28.12.2023

Mig langar að láta þig vita að ég er að byrja með frábæra, ókeypis áskorun á Instagram í dag: Vertu hugrökk og láttu vaða 2024! Og mig langar að bjóða þér að taka þátt.   Ég set inn nýja áskorun daglega í 10 daga til að þú getir farið hugrakkari inn í nýja árið. Við þurfum nefnilega að hrista upp í hlutunum og setja okkur í stellingar til að gera breytingar. Ekkert breytist ef við gerum það ekki s...

159. Brot af því besta 2023 27.12.2023

Brot af því besta árið 2023  Á tímamótum sem þessum finnst mér við hæfi að líta um öxl og rifja upp það fjölbreytta efni sem við höfum tekið fyrir hér í podcastinu á líðandi ári. Njóttu þess að hlusta á brot af því besta úr þáttunum árið 2023. - - - 

158. Ljós og skuggar (þáttur 2 af 2) 20.12.2023

Reynir Traustason ritstjóri og ævisöguhöfundur og Linda eru hér í áhugaverðu viðtali í tilefni 35 ára Miss World krýningarafmælis Lindu, 17. nóvember 2023. Þau fóru um víðan völl og sögðu m.a skemmtilegar sögur frá því þegar þau ferðuðust saman um Bandaríkin þegar Reynir var að skrifa bókina Linda, ljós og skuggar, fallinu, upprisunni og mörgu fleira!   4 æðislegar jólagjafir sem Linda mælir með!...

157. Ljós og skuggar (þáttur 1 af 2) 13.12.2023

Reynir Traustason ritstjóri og ævisöguhöfundur og Linda eru hér í áhugaverðu viðtali í tilefni 35 ára Miss World krýningarafmælis Lindu, 17. nóvember 2023. Þau fóru um víðan völl og sögðu m.a skemmtilegar sögur frá því þegar þau ferðuðust saman um Bandaríkin þegar Reynir var að skrifa bókina Linda, ljós og skuggar, fallinu, upprisunni og mörgu fleira!   4 æðislegar jólagjafir sem Linda mælir með!...

156. Af hverju gerirðu ekki það sem þú ætlaðir að gera? 06.12.2023

Þetta er sú spurning sem við veltum flest öll fyrir okkur. Hversu oft höfum við lent í því að langa til að hafa eitthvað í lífi okkar, vitandi upp á hár hvað við þurfum að gera til að öðlast það en við fáum okkur ekki til að gera það sem þarf til? Og við endum pirraðar, vonlausar og förum að segja okkur að við getum ekki gert þetta. Þetta sé ekki fyrir okkur og að þetta sé fullreynt. Svarið við þe...

155. Krafturinn í skipulaginu 29.11.2023

Flestir vita að það væri gott að plana hlutina en samt gera þeir það ekki. Þetta er svipað og með líkamsrækt. Það vita flestir að það væri gott fyrir þá að stunda líkamsrækt en samt gera þeir það ekki. Mig langar að tala um kraftinn sem fylgir því að plana fram í tímann og ég vonast til þess að þið íhugið að byrja að tileinka ykkur það eftir að hafa hlustað á þennan þátt.   LOKAÐ ER FYRIR SKRÁNING...

154. 6 atriði sem ég geri þegar ég er veik 22.11.2023

Hvað er best að gera þegar maður er með stór markmið og þéttsetna dagskrá og eitthvað óvænt kemur uppá eins og flensa? Linda deilir hér með þér 6 atriðum sem hún gerir þegar hún er veik til að hlúa að sjálfri sér.   LOKAÐ ER FYRIR SKRÁNINGU-BIÐLISTI Aðgangsglugginn í LMLP prógrammið er nú lokaður. Skráðu þig á   biðlista   og við látum þig vita þegar opnar næst. Skrá mig á BIÐLISTA   NÁNARI UPPLÝS...

153. Yfirþyrming 15.11.2023

Í nútímaþjóðfélagi er mjög auðvelt að upplifa hálfgerða drukknun í öllum skyldunum sem okkur finnst að við eigum að uppfylla. Þetta virðist vera mjög algeng líðan hjá fólki. Fólk upplifir að það sé að svamla í djúpu lauginni og nái aldrei í bakkann. Í þættinum fer Linda yfir þetta og gefur ráð hvernig hægt er að yfirstíga yfirþyrmingu og stress. - Ekki missa af þessu boði! Mig langar að bjóða þér...

Þér er boðið! Aukið sjálfstraust á einni kvöldstund 09.11.2023

Mig langar að bjóða þér á örnámskeið sem ég verð með fimmtudaginn 16. nóvember 2023 kl.20.00 sem ber heitið „Aukið sjálfstraust á einni kvöldstund með Lindu Pé" Ef þú vilt þiggja boðið smelltu þá endilega á hnappinn hér að neðan og skráðu nafn þitt og netfang (ókeypis!) og ég mun senda þér allar nánari upplýsingar á netfangið þitt. Ég hlakka til að verja kvöldstund með þér á netinu fimmtudaginn 16...

152. Hvað er lífsþjálfun? 08.11.2023

í þættinum leiða lífsþjálfar LMLP prógrammsins, þær Linda og Dögg þig í gegnum hvað lífsþjálfun er og af hverju allir eiga að vera með sinn eigin lífsþjálfa.   LOKAÐ ER FYRIR SKRÁNINGU-BIÐLISTI Aðgangsglugginn í LMLP prógrammið er nú lokaður. Skráðu þig á   biðlista   og við látum þig vita þegar opnar næst. Skrá mig á BIÐLISTA   NÁNARI UPPLÝSINGAR: Magasínið Lífið með Lindu Pé Ókeypis áskrift! Í v...

151. Hvernig náðu þær árangri? 01.11.2023

Dagný Þóra, Þóra Ingibjörg og Þórdís Jóna eru hér mættar í spjall við Lindu. Þær deila með þér hvernig þær hafa náð árangri og forsendur þess að þær skráðu sig upphaflega í LMLP prógrammið. Þessar frábæru konur segja hér frá reynslu sinni á einlægan hátt. „Ég var komin í algjört þrot með sjálfa mig, andlega og líkamlega, ég var alltof þung og orðin nokkuð vonlaus. Ég var að leita að einhverju til...

150. Að taka ákvarðanir 25.10.2023

Ertu ein af þeim sem burðast með ákvarðanir í margar vikur og jafnvel mánuði áður en þú tekur þær? Og þú tekur ekki ákvarðanir af ótta við að taka ranga ákvörðun. Tekur þú kannski helst engar ákvarðanir og upplifir þig ákvarðanafælna?  Í þætti dagsins fer Linda yfir með þér hvernig þú getur hætt að lifa í „kannskilandi" og að óttast að þú sért ekki að taka rétta ákvörðun -og verið kona sem tekur á...

149. Að þora að upplifa sorg 18.10.2023

Í þætti dagsins ræðir Linda um tilfinningar. Þessar vikurnar er Linda að kenna „Haminguseríuna" í LMLP prógramminu en á sama tíma er hún að upplifa sorg þar sem hún kvaddi nýverið hundinn sinn Stjörnu, hennar besta vin til fimmtán ára. Og í þessum þætti ræðir hún af einlægni litróf tilfinninganna sem hún er að ganga í gegnum, þar sem sorgin er þó ráðandi og hvernig hún tekst á við það.   LOKAÐ ER...

148. Hamingja og vellíðan 11.10.2023

Hversu miklum tíma eyðir þú í að hugsa um framtíðina? Flestar okkar eyða miklum tíma í að hugsa um fortíðina og núið. Hvað er ekki að virka vel og hvað allt er vonlaust. Ef flestar hugsanir okkar koma úr fortíðinni þá verðum við góðar í að endurtaka fortíðina. Það er talað um að um 90% hugsana okkar séu endurteknar hugsanir gærdagsins.  Í þættinum lærirðu hverju þú þarft að breyta til að búa til n...

147. Fegurðin í einfaldleikanum 04.10.2023

Það er fátt sem aftrar okkur meira í að ná árangri í lífinu en óvissa og yfirþyrming. Stanslausar hugsanir okkar um hvað það er mikið að gera og lítill tími, að við vitum ekki hvernig og hvað við eigum að gera og svo framvegis, býr til stress og yfirþyrmandi ástand sem dregur alltaf úr okkur. Þetta er einn af stærstu þáttunum sem leiða af sér algjöra vanvirkni og frestun. Í þætti dagsins fer Linda...

146. Þetta hindrar þig í að léttast 27.09.2023

Þú ert kannski ein af þeim sem hefur reynt að léttast en ekki náð því til langframa, og það er af því að þú hefur ekki unnið með það sem skiptir í raun og veru máli - og það er ekki hvað þú borðar! Hlustaðu til að læra hvernig þú gerir þetta sem auðveldast fyrir þig. Það eru mörg atriði sem þarf að hafa í huga, og þau eru ekki endilega það sem þú hefur lagt áherslu á fram til þessa. En í þessum þæ...

145. Talaðu lífið til þín 20.09.2023

Í þessum þætti ræðir Linda hvernig við getum talað framtíðina inn í líf okkar og hversu mikilvægt það er að átta sig á að o rð okkar bera orku. Orðin sem þú talar hafa mátt til að hvetja þig og styrkja þig , eð a letja þig og draga úr þér. Það er mjög mikilvægt að auka meðvitund um hvernig við tölum við okkur -og aðra.   Ertu að tala þig niður og nota fortíðina sem mælikvarða eða talar þú til þín...

144. Á persónulegum nótum (þáttur 2 af 2). 13.09.2023

Þetta er seinni hluti þáttarins „Á persónulegum nótum" þar sem Linda situr fyrir svörum en þátturinn var tekinn upp nýverið inn á Óstöðvandi námskeiðinu sem hún bauð uppá nýverið. Ef þú hefur ekki hlustað á þátt nr. 143, á undan þessum, skaltu endilega gera það fyrst og koma svo og hlusta á þennan sem er síðari hlutinn. Spurningarnar sem konurnar spurðu hana voru allskonar og hún svaraði þeim bers...

143. Á persónulegum nótum (þáttur 1 af 2) 06.09.2023

Linda situr fyrir svörum í þessum þætti, sem var tekinn upp nýverið inn á Óstöðvandi námskeiðinu sem hún bauð uppá í sl. viku. Spurningarnar sem konurnar spurðu hana voru allskonar og hún svaraði þeim berskjölduð og einlæg eins og við má búast frá henni. Allt frá ástinni, morgunrútínu, gjaldþroti, förðun, ferðalögum, atvinnurekstri, að vera einstæð móðir og margt fleira. Þetta er þáttur 1 af 2 þar...

142. Valdeflandi samfélag 30.08.2023

Í þætti dagsins eru mættar þær Dögg og Lilja sem eru í draumteyminu með Lindu. Þær fara hér allar yfir allt það spennandi efni sem er í boði hjá okkur núna, og að á þriðja þúsund konur eru að taka þátt í námskeiðinu Óstöðvandi , það er svo gaman! Og rúsínan í pylsuendanum er að nú loks  opnum við aðgangsgluggann inn í LMLP prógrammið sem verið hefur lokað. Þið hafið nú örfáa daga til að skrá ykkur...

141. Kröftugar aðgerðir 23.08.2023

Þetta er síðasti þátturinn í fjögurra þátta seríu sem ég hef verið með nú í ágústmánuði sem ég tileinka  kröftugu konunni og nú ætla ég að tala við þig um kröftugar aðgerðir. Þótt ég kenni mátt hugsanastjórnunar þá er ekki nóg að sitja í sófanum og hugsa eitthvað. Það þarf að nota kröftugar hugsanir til að grípa til kröftugra aðgerða og þannig breytast niðurstöðurnar. Kröftugar aðgerðir eru þær að...

140. Farðu á eftir draumum þínum 16.08.2023

Ég er kona sem fer á eftir draumum mínum. Ég hef alltaf haft hvöt sem knýr mig áfram og ég er kappsöm og metnaðarfull kona. Nú á ég mér þann draum að hvetja sem flestar íslenskumælandi konur áfram og hjálpa þeim að lifa sínu besta lífi. Ég vinn að því að vera dæmi um hvað er mögulegt og ég er svo stolt af því samfélagi kvenna sem ég hef búið til af því að ég var tilbúin að fara á eftir draumum mín...

Allt um lífsþjálfun 11.08.2023

Hallgasd a(z) Podcastið með Lindu Pé podcastot a Replaióban

Rádió és podcastok egy alkalmazásban - ingyen és regisztráció nélkül. Telepítsd még ma, és ne maradj le a premierről

Letöltés a Google Play-ről

A Replaio nem podcastkiadó; a műsorok nevei, borítóképei és hanganyagai a szerzőiket illetik, és nyilvános RSS-csatornákon keresztül terjednek.