fantasyn

Fantasýn

Sports EN ↓ 50 epizód

Það er betra að vera með  Sýn  þegar þú spilar Fantasy Premier League.   Fantasýn  er Fantasy Premier League hlaðvarp  Sýnar , heimili enska boltans á Íslandi. Þáttastjórnendur eru Albert Þór Guðmundsson og Sindri Kamban. 

Mindenképp látogasd meg a podcast oldalát, és támogasd a készítőjét: fantasyn.podbean.com

Szerző

fantasyn

Kategória

Sports

A podcast weboldala

fantasyn.podbean.com

Legutóbbi epizód

2026. szept. 23.

Hol hallgathatod?

Podcastok az alkalmazásban Replaio Radio Hamarosan

A podcastok hamarosan megérkeznek az alkalmazásba. Telepítsd most, és láss elsőként egy teljesen új megközelítést a podcastokhoz

Letöltés a Google Play-ről Telepítsd ingyen Android közel 10 M letöltés · 4,8-as értékelés iOS hamarosan

Epizódok

Huga ber að "chip" strategíunni 13.01.2026

Sindri er mættur aftur við hljóðnemann eftir fjarveru yfir jólahátíðina. Í þættinum fara þeir Albert yfir fasta liði eins og venjulega, auk þess sem þeir velta fyrir sér hvernig best sé að nýta endurnýjuðu „chipsana“ í komandi umferðum.

Rice Rice Baby 05.01.2026

Albert fékk Róbert Daða Hansson með sér til að gera upp síðustu umferð og spá í spilin fyrir þá næstu.

Markaþurrð á nýju ári 02.01.2026

Albert mætti í stúdíóið á Nýárskvöldi beint eftir lok 19. umferðar ásamt Ragnari Lúðvíki Jónssyni sem er með 16 ára Fantasy-reynslu á bakinu. Nú þarf að hafa hraðar hendur því næsta deadline er laugardaginn 3. janúar klukkan 10:00

Ár Skyttanna 29.12.2025

Þeir Arnar Sveinn Geirsson forseti leikmannasamtaka Íslands og geðþekki skagamaðurinn Kristófer Daði Garðarsson mættu í þennan síðasta þátt ársins til þess að spá í spilin með Alberti. 

Malt og Fantasýn 23.12.2025

Guðmundur Felixson úr lélega fantasy podcastinu mæti sem sérstakur gestur í þetta skiptið og fór yfir 17. umferð og spáði í spilin fyrir 18. umferð.

Fantasy-guðirnir gefa og fantasy-guðirnir taka. 19.12.2025

Fórum yfir allt það helsta fyrir 17. umferð ensku úrvalsdeildarinnar ásamt föstum liðum einsog venjulega s.s. stjörnulið vikunnar og spurningum hlustenda. 

Fantasy-skiptingar á fæðingardeildinni 10.12.2025

Að þessu sinni mætti Pálína Axelsdóttir Njarðvík til okkar í stúdíóið til að fara yfir allt það helsta fyrir næstu umferð í ensku úrvalsdeildinni. Fórum yfir allt frá því hver á að fá fyrirliðabandið í næstu umferð yfir í það hvernig maður kemur því að á fæðingardeildinni að gera breytingar á fantasy-liðinu sínu.

Við tölum ekki um Bruno 05.12.2025

Fórum yfir 14. umferð, en bæði Albert og Sindri voru með fyrirliða-bandið á Bruno. Stundum þarf að taka áhættur, stundum gengur það upp en stundum bara alls ekki. Blessunarlega er stutt í næstu umferð svo það er bara áfram gakk.  

Salah á spýtunni 01.12.2025

ATH. að „deadline“ fyrir næstu umferð er þriðjudaginn 2. desember kl 18:00. Í þættinum var farið yfir allt það helsta, þar á meðal hvernig leikjaálagið fer að þéttast í yfir jólahátíðina, hvort sé komin tími á að gefa Bruno tækifæri á að bera fantasy-fyrirliðabandið og margt fleira.

Líða fer að jólum 25.11.2025

Fyrrum fótboltamaðurinn og núverandi fantasy-stjórinn Eysteinn Þorri Björgvinsson mætti til okkar til að fara yfir hlutina. Fórum næstu umferð m.t.t. Free hit og triple captain.

Tveir á toppnum 18.11.2025

Albert fékk til sín tvo fyrrum Íslandsmeistara í Fantasy Premier League, Þá Gunnar Björn Ólafsson og Heiðmar Eyjólfsson. Þeir eiga það einnig sameiginlegt að hafa verið hluti af hinu goðsagnakennda hlaðvarpi Fantabrögð. Þeir þrír ræddu tímabilið hingað til, meiðsli í landsleikjaléinu og fóru yfir nokkrar sviðsmyndir fram að áramótum þegar kemur að Chip Strategy í kringum Afríkukeppnina.

Góð vika til að eiga slæma viku 11.11.2025

Gunnar Ormslev lýsandi á SÝN situr sem stendur í 5. sæti SÝN deildarinnar okkur fannst því tilvalið fá hann til okkar til að spá í spilin. 

Aftur til framtíðar 06.11.2025

Ágúst Þór Ágústsson a.k.a. Gústi from the future mætti í stúdíóið til fara yfir allt það helsta varðandi síðustu umferð og spá í spilin varðandi þá næstu. 

Van De Ven í eyðimörkinni 29.10.2025

Fórum yfir allt það helsta í tengslum við 9. umferð ensku úrvalsdeildarinnar, spurningar frá hlustendum og stjörnulið vikunnar.

Brókaði Frakkinn 22.10.2025

Tókumst á við stóru spurningarnar, eins og: Er Jean-Philippe Mateta  á leiðinni beint á bekkinn á móti Arsenal, eftir að hann kom sá og sigraði í síðustu umferð? 

Fantabrögð í Fantasýn 16.10.2025

Þeir Aron og Gylfi Tryggva a.k.a. GT-geitin úr goðsagnakennda hlaðvarpinu Fantabrögð, mættu til okkar til í stúdíóið meðal annars til að gera upp dramatísk endalok Fantabragða, hatramman ríg á milli þeirra og Lélega fantasy hlaðvarpsins ásamt því að fara yfir wild card draftið hjá Alberti og transfer masterplan án punchlines hjá Sindra.

Rétt ákvörðun, röng útkoma. 06.10.2025

Í þættinum svara Albert fyrir athugasemdir sínar um Semenyo, förum yfir úrslit 7. umferðar og svörum spurningum hlustenda m.a. hvaða framherjar koma til greina til að fylla plássin við hliðina á Haaland.

Fótboltaleikur er 90 mínútur plús 01.10.2025

Í þættinum fórum við yfir allt það helsta í leikjum 6. umferðar m.t.t. fantasyleiksins. Fyrir umferðina nýtti Sindri sér Wildcard og Albert, Triple Captain. Í ljósi nýjustu atburða í íslensku samfélagi kíktum við yfir hvernig helstu leikendur í flugbransanum eru að standa sig í fantasy.

Glæpasögur og fantasy - Ragnar Jónasson 24.09.2025

Ragnar Jónasson rithöfundur og fjórði besti fantasy spilari landsins mætti í stúdíóið og ræddi við okkur um sína nálgun á leikinn. Fórum svo yfir 5. umferð, drög að wild card-liði og svöruðum innsendum spurningum.

Lömbin þagna á Turf Moor 17.09.2025

Förum yfir það helsta sem gerðist í 4. umferð og hver ætti að bera fyrirliðabandið í næstu umferð. Veltum fyrir okkur hvernig mögulegt Wildcard gæti litið út og svörum innsendum spurningum. Förum svo í nýjan lið stjörnulið vikunnar.

Landsleikjahlé og foreldrafrí 11.09.2025

Hver elskar ekki góða endurkomusögu, Pálmi Freyr Hauksson verktaki og einn af þáttarstjórnendum hins sögufræga hlaðvarps "Lélega fantasy Podcastið" mætti í stúdíóið til að leggja línurnar. Er Er myglusveppur í búningsherberginu á Old Trafford, Er Grealish orðin ráðsettur fjölskyldufaðir hjá Everton, Lucas Paquetá skoraði í fyrir Brasilíu, en horfa Monneyball lið í landsleikjatölfræði? 

Rúrik hjálpar okkur með þýsku meðvirknina. 04.09.2025

Hringdum í alles möglich Mann Rúrik Gíslason meðal annars til að ræða þá félaga Florian Wirtz og Niclas Füllkrug. Ásamt því að fara yfir leikina í 3. umferð ensku úrvalsdeildarinnar og svara innsendum spurningum hlustenda.

Wirtz-case scenario 27.08.2025

Hefði Bayindir gott af því fara í íslenska sveit og hversu lengi ætlum við að handhnoða hjartað í Florian Wirtz?

Höldum að okkur höndum 20.08.2025

Farið yfir fyrstu leikviku ensku úrvalsdeildarinnar og spáð í spilin fyrir þá næstu. Á að kaupa, selja eða halda?

... Þá fer fantasy boltinn brátt að rúlla - Farið yfir sviðið fyrir fyrstu leikina. 12.08.2025

Í þessum fyrsta þætti fara Albert og Sindri yfir hvernig Fantasy leikur Ensku úrvaldsdeildarinnar virkar, helstu reglubreytingar og förum svo yfir sviðið fyrir fyrstu leikvikuna í Enska boltanum.

Hallgasd a(z) Fantasýn podcastot a Replaióban

Rádió és podcastok egy alkalmazásban - ingyen és regisztráció nélkül. Telepítsd még ma, és ne maradj le a premierről

Letöltés a Google Play-ről

A Replaio nem podcastkiadó; a műsorok nevei, borítóképei és hanganyagai a szerzőiket illetik, és nyilvános RSS-csatornákon keresztül terjednek.