fantasyn

Fantasýn

Sports EN ↓ 50 epizód

Það er betra að vera með  Sýn  þegar þú spilar Fantasy Premier League.   Fantasýn  er Fantasy Premier League hlaðvarp  Sýnar , heimili enska boltans á Íslandi. Þáttastjórnendur eru Albert Þór Guðmundsson og Sindri Kamban. 

Mindenképp látogasd meg a podcast oldalát, és támogasd a készítőjét: fantasyn.podbean.com

Szerző

fantasyn

Kategória

Sports

A podcast weboldala

fantasyn.podbean.com

Legutóbbi epizód

2026. szept. 23.

Hol hallgathatod?

Podcastok az alkalmazásban Replaio Radio Hamarosan

A podcastok hamarosan megérkeznek az alkalmazásba. Telepítsd most, és láss elsőként egy teljesen új megközelítést a podcastokhoz

Letöltés a Google Play-ről Telepítsd ingyen Android közel 10 M letöltés · 4,8-as értékelés iOS hamarosan

Epizódok

Er Thierno Barry næsti Thierry Henry? 23.09.2026

Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið. Albert og Sindri settust niður í Coke stúdíóinu og tóku yfirferð á fimmtu umferð ensku úrvalsdeildarinnar sem lauk á mánudag, fóru yfir liðin sín og gáfu hlustendum góð ráð til að nýta í landsleikjahléinu. 

Pascal engan undra hversu góður Groß er í Fantasy 16.09.2026

Uppgjör á 4. umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Er The blue man group Þríeykið í Chelsea ómissandi, Er einhver Wissa í Newcastle liðinu og er nóttin ennþá ung fyrir þau okkar sem erum í sætum sem telja 6 tölustafi.

Kominn tími á að Hull fái á sig mörk 09.09.2026

Þeir Albert og Sindri settust niður í Coke stúdíóinu og tóku yfirferð á þriðju umferð ensku úrvalsdeildarinnar sem lauk á sunnudag, fóru yfir liðin sín, framtíðarplön og ótrúlega frammistöðu Hull City.

Er hægt að selja Bruno eftir þessa frammistöðu? 02.09.2026

Er hægt að selja Bruno eftir svona frammistöðu? Barcola, er það eitthvað? Og Verða Chelsea meistarar eftir að Martinez er kominn á milli stangana? Albert og Sindri leituðu meðal annars svara við þessum spurningum ásamt því að fara heilt yfir stöðuna í síðasta degi leikmannagluggans. Fresturinn til að gera breytingar fyrir umferð 3 er á föstudaginn kemur kl. 17:30 en umferðin hefst á leik Ipswich o...

Chelsea kom, João og sigraði 26.08.2026

Albert og Sindri tóku yfirferð á fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar sem lauk á mánudag, fóru yfir liðin sín, framtíðarplön og tóku stöðuna á 38 umferðir x Fótbolti.net deildinni þar sem efsta sætið í fyrstu umferð náði sér í 102 stig hvorki meira né minna. Samstarfsaðilar 38 umferða eru Thule léttöl, Visitor, Bullseye, Boltamaðurinn, World Class, Íslenski barinn og Matarkjallarinn. Taktu þátt...

Síðasti upphitunarþátturinn áður en fantasy fer af stað á föstudag 18.08.2026

Kóðinn í Fantasy deild 38 umferða x Fótbolta.net: 10k1ov Þriðji þátturinn af 38 umferðum er kominn í loftið en hlaðvarpið fjallar um draumaliðsleik enska boltans, Fantasy Premier League. Þáttastjórnendur eru Albert Guðmundsson og Sindri Kamban. Þeir settust niður í Coke stúdíóinu og tóku yfirferð á helstu leikmönnum sem þeir eru að íhuga fyrir umferð 1 og fóru yfir liðin sín eins og þau líta út í...

Haaland, eða ekki Haaland, þarna er efinn... 12.08.2026

Albert og Sindri settust niður í Coke stúdíóinu og tóku yfirferð á öllum 20 liðunum í deildinni og fóru yfir tvær mismunandi uppstillingar hvor sem þeir sjá fyrir sér að stilla upp í fyrstu umferð, eitt lið með Haaland og eitt lið án Haaland. Einnig tilkynntu félagarnir um gjafaleik sem er að fara af stað á Instagram og Tiktok miðlum 38 umferða. Glæsilegir vinningar frá Happatreyjum, Thule, Bullse...

38 umferðir framundan 06.08.2026

Í fyrsta þætti tímabilsins settust strákarnir niður í Coke stúdíóinu og kynntu reglur leiksins fyrir hlustendum og fóru yfir sín fyrstu viðbrögð við breytingum leiksins í ár og verðlagningu lykilleikmanna. Félagarnir ræddu helstu félagsskiptin í enska boltanum sem munu hafa áhrif á komandi tímabil og helstu orðróma sem gætu fengið spilara til að endurskoða sína taktík fyrir tímabilið.

Lokauppgjör 26.05.2026

Þá eru tímabilinu lokið og Albert og Sindri mættu í stúdíóið til að horfa yfir farin veg.

38. umferðum síðar 22.05.2026

Þeir segja að þetta sé ekki búið fyrr en feita konan syngur, og þrátt fyrir að Arsenal hafi orðið sófameistarar í síðustu umferð þá hefur hún ekki upp raust sína fyrr en á næstkomandi sunnudag. 

Tími til kominn að taka sénsa. 14.05.2026

Nú þegar það eru bara tvær umferðir eftir af tímabilinu ræddu Albert og Sindri um hvaða lið hefðu eitthvað til að spila uppá og hvað lið væru mætt á ströndina.

Þessi tvöfalda umferð er tálsýn 06.05.2026

Tvöföld umferð er yfirleitt fagnaðarefni í fantsy-heimum en er komandi tvöfalda umferð tálsýn ein?

Allt í járnum á öllum vígstöðvum (Bombuspecial) 29.04.2026

Albert fékk engan annan en Gunnar Hilmar Kristinsson eða Gunna bombu í settið til að taka stöðuna á milli 34. og 35. umferðar. 

Við fengum ekki að João Pedro 23.04.2026

Nú er umferð 33. að baki og eftir situr að takast á við þynnkuna sem kemur í umferð 34. en þar leynast gullin tækifæri til að skjóta sér upp töfluna.

Stórasta umferð í heimi. 14.04.2026

Þá er Albert mættur aftur og ekki seinna vænna því loksins er komið að því, stærsta umferð tímabilsins er handan við hornið. Sex lið spila tvöfalda umferð og því nauðsynlegt að taka "deep dive" á það.

Lognið á undan storminum. 08.04.2026

Eftir langt landsleikjahlé tökum við upp þráðinn og rýnum í stöðuna fyrir umferð 32. Líkt og salt og pipar fara umferðir 32 og 33 saman, svo við horfum einnig fram á veginn og metum möguleikana þar. Hvernig ætlar þú að stilla upp chip-strategíunni? Gestastjórnandi er Daníel Franz Davíðsson, markaðsfulltrúi HSÍ og fantasý spekúlant.

Einn dagur í einu. 18.03.2026

Nú þegar óvissan er alltumlykjandi varðandi hvenær verða tvöfaldar umferðar er mikilvægt að taka einn dag í einu, og gott að hafa bandið á okkar áreiðanlegasta manni, Bruno Fernandes.

What to Expect When You're Expecting 12.03.2026

Deadline fyrir næstu umferð er laugardaginn 14. mars. kl 13:30. Aron Fantabragðabróðir mætti í stúdíóið til að þessa að spá í spilin í fjarveru Alberts. 

Góður, betri, bestur. 02.03.2026

29. umferð hefst þriðjudaginn 3. mars og lokar fyrir breytingar á liðunum kl 18:00. Fórum yfir allt það helsta ásamt því að fara yfir hver væri góður, betri, og bestur sem fyrirliði fyrir umferðina.

Šeško Time 24.02.2026

Næsta umferð hefst föstudaginn 27. febrúar og er Deadline-ið því klukkan 18:30. Ef þú ert að velta fyrir þér hvern þú átt að hafa sem fyrirliða þá fórum  við yfir hvað væri góði pakkinn, betri pakkinn og besti pakkinn í þeim efnum. Pedro vaktin var á sínum stað og svo er spurning hvort það sé ekki að bresta á með Šeško Time!

Úlfarnir bíta frá sér 19.02.2026

Löng umferð að baki þar sem allra augu voru á Gabriel og stóra spurningin er: stóð hann undir væntingunum?  Við horfðum líka fram á vegin og tókumst á við spurningar eins og er Thiago súrt, eða safaríkt epli og hver fær fyrirliðabandið frá Gabriel.

Triple Captain Gabriel? 08.02.2026

Fyrsta tvöfalda leikvika tímabilsins er framundan og stóra spurning er er þá ekki tími til kominn að setja fyrirliðabandið á Gabriel og jafnvel virkja triple captain í leiðinni? 

Nautaat á brúnni 04.02.2026

Í þessum þætti bjóðum við meðal annars upp á áhugavert "take" á næstu tvöföldu umferð og þá höldum við uppá vaxtaákvörðunardag seðlabankans og skoðum leitum svara við því hvor stofnunin, Seðlabankinn eða Fjármálaráðuneytið, er að standa sig betur í fantasy. 

Bandið á Bruno? 29.01.2026

23. umferðin krufin, misgóður árangur hjá Sindra og Alberti og stór spurning tekin fyrir: er Bruno Fernandes rétti fyrirliðinn fyrir næstu umferð? Við svörum spurningum hlustenda, skoðum prógrammið framundan og förum yfir stjörnulið vikunnar, sem að þessu sinni er lið Bjarka Más hornamanns íslenska handboltalandsliðsins. 

Never back the early kick off 20.01.2026

Fórum yfir 22. umferð ensku úrvalsdeildarinnar og tókum fasta liði eins og venjulega. Stjörnulið vikunnar kom hins vegar úr óvæntri átt, en fyrir valinu varð enginn annar en Viktor Gísli, markvörður íslenska handboltalandsliðsins, sem er í toppformi. Bæði á handboltavellinum og í Fantasy. Að lokum hitnaði heldur betur í kolunum þegar Albert og Sindri tókust á um hvort skynsamlegt væri að selja Phi...

Hallgasd a(z) Fantasýn podcastot a Replaióban

Rádió és podcastok egy alkalmazásban - ingyen és regisztráció nélkül. Telepítsd még ma, és ne maradj le a premierről

Letöltés a Google Play-ről

A Replaio nem podcastkiadó; a műsorok nevei, borítóképei és hanganyagai a szerzőiket illetik, és nyilvános RSS-csatornákon keresztül terjednek.