RÚV
Víðsjá
Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.
¿Dónde escuchar?
Podcasts en la app Replaio Radio Muy prontoLos podcasts llegarán muy pronto a la app. Instálala ahora y sé el primero en descubrir una forma totalmente nueva de vivir los podcasts
Episodios
Innrými í Einarssafni, Vík prjónsdóttir og Hús dags, hús nætur/rýni 05.05.2025 54:08
Myndlistarmaðurinn Sigurður Guðjónsson er þekktur fyrir tímatengd verk, þar sem hann beinir sjónum að hinu innra í stækkaðri mynd og rannsakar efnisheiminn með hljóðum, ljósum, litum og hreyfingu. Verk hans hafa oftar en ekki verið unnin í hrá rými með skýrum tengingum við ýmis vélræn fyrirbæri, en innsetning hans í Hnitbjörgum Listasafns Einars Jónssonar krafðist annars konar nálgunar, enda salur...
Svipmynd - Janus Bragi Jakobsson 30.04.2025 49:43
Janus Bragi er íslenskur heimildarmyndagerðarmaður. Hann útskrifaðist sem leikstjóri frá danska kvikmyndaskólanum árið 2009 og hefur síðan þá framleitt, stýrt og klippt heimildarmyndir fyrir sjónvarp og bíó, sömuleiðis gert auglýsingar og tónlistarmyndbönd. Hann hefur kennt heimildarmyndagerð við Kvikmyndadeild Listaháskóla Íslands, sem og verið stjórnandi Skjaldborgar, hátíð íslenskra heimildamyn...
The Clock/Christian Marclay, ROR/Auga og hugleiðing um takt á degi dansins 29.04.2025 54:47
Nú á föstudaginn gefst áhugasömum kostur á að leggja leið sína í Listasafn Íslands og berja augum verk sem telst meðal merkustu listaverka 21. aldarinnar. The Clock (2010) eftir svissnesk-bandaríska listamanninn Christian Marclay hlaut gullna ljónið á Feneyjatvíæringnum árið 2011 og hefur síðan farið sigurför um heiminn. Vídeóverk Marclays er klippt saman úr mörg þúsund myndbrotum, sem hvert og ei...
Ný íslensk ópera í Berlín, Adrianne Lenker og Stefán sigrar atvinnulífið 28.04.2025 50:48
Í gærkvöldi var ný íslensk ópera frumflutt í Berlín. Óperan ber heitið Cave, og kemur úr smiðju tónskáldsins Hauks Þórs Harðarsonar, sem var einn þriggja vinningshafa í keppni sem ber yfirskriftina Neue Szenen, og er ætlað að vekja athygli á nýjum og áhugaverðum röddum í heimi klassískrar tónlistar og óperu. Við sláum á þráðinn hjá Hauki Þór í upphafi þáttar. Kalta Ársælsdóttir rýnir í einleikinn...
Svipmynd af Ara Braga Kárasyni 23.04.2025 52:46
Ari Bragi Kárason eyddi öllum fermingarpeningunum í geisladiskabúð og tæmdi þar trompetrekkann. 16 ára stakk hann af til New York til þess að sjá átrúnaðargoðin í jazzklúbbum borgarinnar. Hann einsetti sér að flytja þangað og læra en eftir fimm ára dvöl og útskrift með láði fór hann að tvístíga frammi fyrir raunveruleika tónlistarbransans. Þá gerði hann sér lítið fyrir, varð afreksmaður í íþróttum...
Data gígar, veruleikaflótti og Guðmundur Steinsson 22.04.2025 55:01
Við komum við í Þulu gallerýi við Austurbakka og skoðum þar fyrstu einkasýningu Kristínar Helgu Ríkharðsdóttur, Data Gígar, sem hverfast um eldgos á Reykjanesskaga, gagnagnótt, birtingarmyndir dægurmenningar og áferðir stafrænna og efnislegra miðla. Freyja Þórsdóttir flytur pistil um ólíkar og misjafnlega uppbyggilegar tegundir veruleikaflótta. Við rifjum einnig upp viðtal sem Eiríkur Guðmundsson...
Svipmynd af Herbie Hancock 16.04.2025 53:38
Þrír vendipunktar á ævi Herbie Hancock
Ljóð frá Gaza, Siddharta, slaufunarmenning 15.04.2025 57:04
Haustið 2023 var ljóðskáldið Mosab Abu Toha tekinn höndum þegar hann reyndi að flýja Gaza og PEN samtökin og fleiri kölluðu eftir upplýsingum um afdrif hans. Þá var liðið ár frá því að Abu Toha gaf út sína fyrstu ljóðabók, Things You May Find Hidden in My Ear, sem farið hefur sigurför um heiminn. Móheiður Hlíf Geirmundsdóttir, skáld og bóksali, þýddi bókina á íslensku og lítur við í hljóðstofu. Ga...
Hugur, gervigreindartónlist og Rúmmálsreikningur 14.04.2025 53:19
Hugur, tímarit Félags áhugamanna um heimspeki kemur formlega út í dag og ræðum við við ritstjóra blaðsins, Gústav Adolf Bergmann Sigurbjörnsson í þættinum. Þema tímaritsins er tækni og að því tilefni rifjum við upp viðtal sem Lestin tók við Þórhall Magnússon, rannsóknarprófessor við Háskóla Íslands og prófessor í framtíðartónlist við háskólann í Sussex, um gervigreindartónlist. Síðan hugum við að...
Reykvíska snemmtónlistarhátíðin, Kynslóðir jökla og Hringir Orfeusar/rýni 10.04.2025 54:46
Á nýliðnum alþjóðadegi jökla, þann 21. mars, opnaði sýning undir yfirskriftinni Kynslóðir jökla í nýtilkominni menningarmiðstöð í Loftskeytastöðinni við Suðurgötu. Sýningin er ferðalag í gegnum sögu jöklabreytinga og myndefnið spannar tímabil mikilla breytinga á hvorutveggja, hinni sjónrænu arfleifð og ásjónu jökla. Jöklafræðingurinn Hrafnhildur Hannesdóttir og sýningarstýran Anna Diljá Sigurðardó...
Svipmynd af Herdísi Egilsdóttur 09.04.2025 52:27
Í tilefni af Barnamenningarhátíð endurflytjum við Svipmynd af Herdísi Egilsdóttur, kennara og rithöfundi, sem hefur tileinkað líf sitt menntun barna og barnamenningu. Herdís fæddist á Húsavík þann 18. júlí árið 1934 og fagnaði því níræðisafmæli sínu í sumar. Hún hóf kennslu í Ísaksskóla árið 1953 og starfaði þar í 45 ár, eða fram til ársins 1998. Herdís hefur skrifað fjölda bóka, leikrit, sjónvarp...
Innlyksa, plötuverslanadagurinn og Rammana 08.04.2025 54:33
Í Víðsjá dagsins setjumst við niður með höfundum smásagnasafnsins Innlyksa, þeim Rebekku Sif Stefánsdóttur, Díönu Sjöfn Jóhannsdóttur og Sjöfn Asare og veltum þessu athyglisverða bókmenntaverki fyrir okkur. Við leggjum leið okkar niður í plötubúð miðbæ Reykjavíkur og hugum að plötuverslanadeginum með Jóhanni Ágústi Jóhannssyni plötusala. Síðan kynnum við okkur plötuna Rammana úr smiðju tælensku tó...
Hinn mildi vefur kynslóða, Fjallabak og Megas 07.04.2025 54:37
Við lítum inn á Hlöðuloftið á Korpúlfsstöðum. Þar opnaði um helgina ný sýning á vegum Félags íslenskra myndlistarmanna. Sýningin ber titilinn Hinn mildi vefur kynslóðanna, og er fyrsta sýningarverkefni FÍM um nokkurt skeið. Birta Guðjónsdóttir sér þar um sýningarstjórn. Við ræðum við hana í þætti dagsins. Nína Hjálmarsdóttir rýnir í leikritið Fjallabak sem byggir á smásögu Annie Proulx og kvikmynd...
Stöngin inn á Hönnunarmars, Illgresin í Tjarnarbíói, Í skugga trjánna/rýni 03.04.2025 50:30
Í dag hefst Hönnunarmars með pompi og prakt og á þriðja tug sýninga af mjög fjölbreyttu tagi. Meðal þeirra er sýningin Stöngin inn, í Hegningarhúsinu, þar sem áhugasamir geta kynnt sér umbreytingar sem framundan eru á Stangarbænum í Þjórsárdal. Verkefnið markar að sögn aðstandenda ákveðin þáttaskil í opinberum byggingum hér á landi og setur Stangarbæinn í sérstöðu sem fyrsta minjastaðinn á Íslandi...
Svipmynd - Kristinn Sigmundsson 02.04.2025 51:31
Kristinn Sigmundsson ætlaði sér lengi vel alls ekki að verða söngvari. Faðir hans var lengst af á sjó, mamma hans líka útivinnandi og sem strákur gerði hann mikið af því að passa bróður sinn og dorga niðri á höfn. Foreldrar þeirra lögðu áherslu á að bræðurnir fengju góða menntun og leið Kristins lá í Menntaskólann við Hamrahlíð, þar sem hann var plataður í kórinn hjá Þorgerði Ingólfsdóttur, en hél...
Stalker, hönnun borgarumhverfis og Bára Gísladóttir 01.04.2025 57:19
Gunnar Þorri Pétursson, fræðimaður og þýðandi, stendur fyrir námskeiði við opna listaháskólann um heimskvikmyndina Stalker úr smiðju sovéska kvikmyndagerðarmannsins Andrej Tarkovskí. Á námskeiðinu mun hann rýna í myndina og skoða frá sögulegu, bókmenntalegu og pólitísku sjónarhorni en einnig setja hana í samhengi við bókmenntir, kvikmyndir og tölvuleiki svo fátt eitt sé nefnt. Í þættinum segir Mag...
Dauðadjúpar sprungur, heimspekihugleiðing Freyju Þórsdóttur, slavenskur söngur 31.03.2025 55:20
Ljósmyndarinn Hallgerður Hallgrímsdóttir segir að það eina sem henni hafi dottið í hug að gera þegar hún kom tómhent heim af fæðingardeildinni hafi verið að taka sjálfsmynd. Nokkrum mánuðum síðar opnaði hún skáp sem áður hafði geymt svarthvítar filmur og áttaði sig á því, án þess að muna almennilega eftir því, að hún hafði tekið á þær allar. Dóttir hennar, Dýrleif, fæddist og dó sama daginn, í lok...
Hringir Orfeusar og annað slúður, Billy Budd, Kafteinn Frábær 27.03.2025 51:19
Goðsagan um Orfeus hefur fylgt okkur frá því að tímatalið hófst og óteljandi lístamenn nýtt hana sem efnivið. Og nú gefst okkur tækifæri til að sjá glænýja útgáfu Ernu Ómarsdóttur og Íslenska dansflokksins. Í verkinu Hringir Orfeusar og annað slúður er gerð tilraun til þess að túlka þessa söguna á nýjan leik, en verkið byggir á uppfærslu sem Erna samdi ásamt Gabríelu Friðriksdóttur og Bjarna Jónss...
Gísli B. Björnsson / Svipmynd 26.03.2025 52:43
Víðsjá lítur í heimsókn til Gísla B. Björnssonar í þætti dagsins. Gísli er fæddur árið 1938 í Reykjavík og listina drakk hann úr umhverfi sínu. Á gullsmíðaverkstæðinu hjá afa sínum fékk hann kennslu í listasögu en honum hundleiddist í skóla. Það átti þó eftir að breytast þegar ný deild var stofnum nokkurn vegin með hann í huga, hagnýt myndlist við Myndlista- og handíðaskóla Íslands. Síðar hélt Gís...
Helena Margrét, Brím og Speglahúsið 25.03.2025 52:53
Helena Margrét Jónsdóttir hlaut á dögunum Hvatningarverðlaun Íslensku myndlistarverðlaunanna fyrir málverk sem, samkvæmt dómnefnd, þykja vönduð og kyrrlát en á sama tíma með nýstárlegan undirtón sem virkjar ímyndunaraflið og færir áhorfandann inn í draumkenndan hugarheim. Við hittum Helenu Margréti á vinnustofu hennar í þætti dagsins og ræðum við hana meðal annars um pensla, köngulær og afmarkaða...
Myndlistarmaður ársins, ECHO LIMA og örvæntingarpistill #4 24.03.2025 52:36
Íslensku myndlistarverðlaunin voru afhent í áttunda sinn síðastliðinn fimmtudag en þar var Pétur Thomsen valinn myndlistarmaður ársins, fyrir sýninguna Landnám í Hafnarborg. Samband manns og náttúru hefur lengi verið megininntakið í ljósmyndaverkum Péturs og er sýningin Landnám engin undantekning. Pétur lítur við í hljóðstofu, en við höldum líka niður í miðbæ, í Gallerí Berg, þar sem einkasýning Ö...
Júlíönuhátíð, Dvelur í Grasagarði, Níels er Napóleon / rýni 20.03.2025 53:08
Hugmyndin að Júlíönu - hátíð sögu og bóka kom til Grétu Sig Bjargardóttur snemma morguns þegar hún var að undirbúa morgunmat á Hótel Egilssen í Stykkishólmi. Gréta heldur að þar hafi Júlíana sjálf verið að verki, og segir að hugmyndin hafi sprottið fram fullsköpuð. Gréta segir okkur nánar af skáldinu Júlíönu og hátíðinni Júlíönu í þætti dagsins. VIð kynnum okkur einnig myndlistarsýningu meistarane...
Svipmynd af tónlistarnema í Georgíu: Ólína Ákadóttir 19.03.2025 54:43
Píanóleikarinn Ólína Ákadóttir segist vera bæði forvitin og hvatvís. Þeir dýrmætu eiginleikar urðu til þess að hún ákvað að fara til Georgíu í skiptinám og dvelja þar í eitt ár, en hún stundar annars framhaldsnám í píanóleik við tónlistarháskólann í Osló. Georgía er um margt ólík Noregi, og Íslandi, og áherslurnar í tónlistarnáminu sömuleiðis. Víðsjá skoraði á Ólínu að mæta í stúdíó 12 og segja hl...
Garg bókabúð, Eiríkur Örn Fimm ljóð, Stormur/rýni 18.03.2025 51:06
Það er ekki á hverjum degi sem nýjar bókaverslanir opna dyr sínar hér á landi. En það gerðist í síðustu viku í Vesturbæ Reykjavikur. Bókabúðin kallast Garg og á bak við hana stendur bókahönnuðurinn Helga Dögg Ólafsdóttir sem dreymir um að búðin verði félagsmiðstöð bókanörda. Við lítum inn í Garg í þætti dagsins. Eiríkur Örn Norðdahl sendi nýverið frá sér nýja ljóðabók sem ber titilinn Fimm ljóð. B...
Innkaupapokinn, kynbundið ofbeldi í þjóðsögum og örvæntingarpistill #3 17.03.2025 52:55
Innkaupapokinn eftir leikhópinn Kriðpleir og Elísabetu Jökulsdóttur, sem nú er í sýningu í Borgarleikhúsinu, byggir á 30 ára gömlu verki Elísabetar, Mundu töfrana. Verkið hefur fylgt Elísabetu í meira en þrjá áratugi og líka skotið rótum í öðrum verkum hennar. Hún reyndi að koma verkinu á fjalirnar en fékk oftast þau svör að það væri of ljóðrænt og vantaði allan strúktúr. En nú hefur leikhópnum Kr...
Podcasts similares
Replaio no es editor de podcasts; los nombres de los programas, las portadas y el audio pertenecen a sus autores y se distribuyen a través de canales RSS públicos