RÚV
Víðsjá
Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.
No dejes de visitar la web del podcast y apoyar a su creador: www.ruv.is
¿Dónde escuchar?
Podcasts en la app Replaio Radio Muy prontoLos podcasts llegarán muy pronto a la app. Instálala ahora y sé el primero en descubrir una forma totalmente nueva de vivir los podcasts
Episodios
Freyjufest, Dáin heimsveldi, fjall og lúðrasveit 17.01.2023 53:40
Litla-Sandfell er eins og nafnið gefur til kynna ekki stórt fell á íslenskum eða erlendum mælikvarða en það er samt eftirsótt. Við hugum að jarðefnavinnslu og lúðrasveitartónlist hér eftir stutta stund, óvæntum tengslum þarna á milli sem hafa komið fram í fjölmiðlaumfjöllun bara alveg á síðustu dögum. Jazzpíanóleikarinn Sunna Gunnlaugsdóttir segir jazzheiminn vera mjög karllægan, það halli á konur...
Hildur Hákonardóttir 16.01.2023 54:41
Síðastliðinn laugardag, 14.janúar, var opnuð á Kjarvalsstöðum yfirlitssýning á verkum Hildar Hákonardóttur. Sýningin, sem kallast Rauður þráður, er afrakstur rannsóknar sýningarstjórans, Sigrúnar Hrólfsdóttur. Hildur hefur á löngum ferli fjallað um málefni samtíma síns, og nýtt myndlistina, og þá fyrst og fremst vefnað, í pólitíska og femíníska baráttu. Hún hefur einnig fjallað um náttúruna og gil...
Rauður þráður Hildar Hákonardóttur, Vincente Lusitano, Tugthúsið 12.01.2023 55:00
Næstkomandi laugardag, 14 janúar, opnar á Kjarvalstöðum yfirlitssýning á verkum myndlistarkonunnar Hildar Hákonardóttur. Hildur hefur á löngum ferli fjallað um málefni samtíma síns, kynjapólitík, stéttapólitík, og utanríkispólitík en auk þess um náttúruna og gildi hennar fyrir manneskjuna. Hildur hefur lifað og fjallað um umbreytingartíma, samfélagslega og hugmyndafræðilega en einnig umbreytingart...
Hildigunnur Birgisdóttir og handknattleikur 11.01.2023 55:00
Í desember var tilkynnt að Hildigunnur Birgisdóttir myndlistarkona verður okkar næsti fulltrúi á Feneyjartvíæringnum. Frá því að Hildigunnur útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2003 hefur hún haldið fjölda samsýninga og einkasýninga, en í dag er hún á mála hjá i8 gallerí. Á ferli sínum hefur Hildigunnur rannsakað hugmyndir okkar um notagildi, fegurð og sannleika og þau kerfi sem liggja að baki öl...
Fay Weldon, Hvíta tígrisdýrið 10.01.2023 54:53
Breski rithöfundurinn Fay Weldon lést í síðustu viku, 91 árs að aldri. Rithöfundurinn sem kafaði í samskipti kynjanna og blæbrigði kynjapólitíkur með beittan stíl að vopni. Weldon talaði með verkum sínum inn í kvennabaráttu sjöunda og áttunda áratugarins, er ein af röddum þess sem kallað hefur verið annarar bylgju femínismi, og hafa bækur hennar stundum verið kallaðar sjálfbjargarbækur fyrir konur...
Ráðningar stjórnenda í menningarstofnanir, Ég lifi enn - sönn saga 09.01.2023 55:00
Talsverð umræða hefur skapast á síðustu mánuðum og misserum um stöðuveitingar og tilfærslur æðstu stjórnenda menningarstofnanna landsmanna og svo er enn. Deilt hefur verið á orðalag í auglýsingum og er nýjasta dæmið auglýsing um rektorsstöðuna við Listaháskóla Íslands. Við reifum þessi mál og ræðum við Þórunni Sigurðardóttur og Karl Ágúst Þorbergsson í þætti dagsins. En við hefjum þáttinn á rýni E...
Hvíta tígrisdýrið, prentaraverkfallið 1923 og tónlist frumbyggja 05.01.2023 51:02
Samskipti barna og fullorðinna, sem og feluleikurinn sem oft á sér stað í fjölskyldum er eitthvað sem hefur lengi verið sviðshöfundinum Bryndís Ósk Ingvarsdóttir hugleikið. Bryndís frumsýnir um helgina nýtt leikverk í Borgarleikhúsinu. Hvíta tígrísdýrið er fantasíuverk fyrir alla fjölskylduna, sem fjallar um þrjú börn sem búa uppi á háalofti undir ógnarstjórn Konunnar með kjólfaldinn. Þeim hefur v...
GJörningalist á stríðstímum, Svipmynd af Magnúsi Jóhanni 04.01.2023 55:00
Magnús Jóhann Ragnarsson, píanóleikari, tónskáld og upptökustjóri, hefur tekið þátt í að semja og útsetja margt af því vinsælasta í íslensku popptónlistarsenunni síðustu ár. Hann hefur gefið út þrjár sólóplötur, Pronto, Without listening og Skissur, og auk þess plötuna Án tillits í samstarfi við Skúla Sverrisson bassaleikara og Tíu íslensk sönglög í samstarfi við GDRN. Þar að auki hefur ha...
Auglýsingahlé, Dorothy Iannone, Mátulegir 03.01.2023 55:00
Upplýsingar og sjálfsmyndir eru fyrirbæri sem skilgreina samtíma okkar, að mati myndlistarmannsins Sigurðar Ámundasonar, en hann sýnir um þessar mundir teikningar á auglýsingaskiltum borgarinnar. Frá því að nýja árið hófst hafa verk Sigurðar yfirtekið ljósaskilti og í stað auglýsinga sjáum við nú merkingarlaus vörumerki sem túlka ekkert og hafa ekki upp á neitt að bjóða nema kannski sjálf sig. Sig...
Auglýsingahlé, Dorothy Iannone, Mátulegir 03.01.2023 55:00
Upplýsingar og sjálfsmyndir eru fyrirbæri sem skilgreina samtíma okkar, að mati myndlistarmannsins Sigurðar Ámundasonar, en hann sýnir um þessar mundir teikningar á auglýsingaskiltum borgarinnar. Frá því að nýja árið hófst hafa verk Sigurðar yfirtekið ljósaskilti og í stað auglýsinga sjáum við nú merkingarlaus vörumerki sem túlka ekkert og hafa ekki upp á neitt að bjóða nema kannski sjálf sig. Sig...
Podcasts similares
Replaio no es editor de podcasts; los nombres de los programas, las portadas y el audio pertenecen a sus autores y se distribuyen a través de canales RSS públicos