RÚV
Víðsjá
Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.
No dejes de visitar la web del podcast y apoyar a su creador: www.ruv.is
¿Dónde escuchar?
Podcasts en la app Replaio Radio Muy prontoLos podcasts llegarán muy pronto a la app. Instálala ahora y sé el primero en descubrir una forma totalmente nueva de vivir los podcasts
Episodios
Djöfulsins snillingur, Listbókamessa, Óbragð 30.03.2023 55:00
Reykjavík Art Book Fair / Listbókamessa eða Bókverkamessa fer fram um helgina í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi. Þetta er í annað sinn sem listbókamessan fer fram hér á landi en sambærilegar messur eru haldnar um allan heim. Þar koma saman listamenn og hönnuðir sem nota bókverkið sem listform, lítil listbókaforlög, gallerí og söfn sem stunda útgáfu á prentuðu efni af öllum toga, allt frá ljóða-...
Svipmynd af listamanni: Melanie Ubaldo 29.03.2023 52:52
Melanie Ubaldo fæddist árið 1992 á Filippseyjum en býr nú og starfar í Reykjavík. Hún útskrifaðist með meistaragráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2022, hefur tekið þátt í fjölda sýninga hérlendis og erlendis og eru verk hennar í eigu helstu safna landsins. Melanie hlaut styrk úr Styrktarsjóði Svavars Guðnasonar og Ástu Eiríksdóttur fyrir efnilega listamenn 2021 og hún hlaut, ásamt félö...
Fikta, Vanþakklái flóttamaðurinn, Gork 28.03.2023 55:00
Harmonikkuliekarinn Jónas Ásgeir Ásgeirson hlaut á dögunum íslensku tónlistarverðlaunin í flokki sígildrar og samtímatónlistar fyrir plötuna Fikta. Platan er nefnd eftir verkinu Fikta eftir Friðrik Margrétar - Guðmundsson en einnig er á henni að finna verk eftir Atla Heimi Sveinsson, Þorkel Sigurbjörnsson, Atla Ingólfsson og Finn Karlsson. Jónas Ásgeir er einn af fáum íslendingum með framhaldspróf...
Fyrirbæri, Hugo Llanes, Prinsessuleikarnir, leiklistardagurinn 27.03.2023 51:55
Fyrirbæri kallast rými við Ægisgötu, rekið af listamönnum og hýsir vinnustofur fjölbreyttra listamanna - vel yfir þrjátíu talsins. Þetta eru listamenn á öllum aldri með ólíkan bakgrunn og ólíka reynslu, sum að taka sín fyrstu skref önnur eiga langan og farsælan feril að baki. Í Fyrirbæri er sýningarsalur en þetta er líka vettvangur fyrir fólk til að kaupa samtímalist beint af vinnustof...
Kjarvalstaðir 50 ára, sannleikur í sjónrænu efni, Íslandsklukkan 23.03.2023 53:31
Myndlistarhúsið á Miklatúni sem í daglegu tali heitir Kjarvalsstaðir og er hluti af Listasafni Rvk er fimmtíu ára. Þetta fallega hús hannað af Hannes Kr. Davíðssyni arkitekt sem var þar m.a. undir áhrifum af japönskum innblæstri í norrænan módernisma, þar sem áhersla var lögð á ómeðhöndluð náttúruefni bygginga ásamt léttleika og einföldun allra drátta. Vígsla hússins fór fram 24. Mars 1973 undir l...
Svipmynd af Ágústi Guðmundssyni 22.03.2023 55:00
Ágúst Guðmundsson kvikmyndaleikstjóri fékk heiðursverðlaun íslensku kvikmyndaakademíunnar á Eddu verðlaununum. Ágúst er fæddur 1947, gekk í Menntaskólann í Reykjavík, lærði leiklist en fór svo í nám til Bretlands, í The national Film School, þaðan sem hann útskrifaðist 1977. Fjórum árum síðar frumsýndi hann sýna fyrstu kvikmynd í fullri leng, Land og syni. Ágúst tók þátt í því sem hefur verið kall...
Að rekja brot, menning á mannöld, fegurðin í hversdagsleikanum 21.03.2023 55:57
Í Gerðarsafni stendur nú yfir sýningin Að rekja brot, þar sem sex erlendir listamenn rannsaka nýlenduhyggju, rasisma og kúgun. Með því að rekja brot sinnar eigin sögu og sjálfsmyndar rannsaka listamennirnir um leið stöðu sína í samfélaginu og setja fram á fjölbreyttan hátt. Daría Sól Andrews er hugmyndasmiður og sýningarstjóri sýningarinnar en hún segir viðfangsefnið hafa verið sér hugleikið til f...
Íslensku myndlistarverðlaunin 2023 20.03.2023 55:00
Víðsjá dagsins er tileinkuð þeim listamönnum og sýningum sem hlutu verðlaun á Íslensku myndlistarverðlaunum þann 16.mars síðastliðinn. Við grípum niður í viðtöl við Hrafnkel Sigurðsson sem er myndlistarmaður ársins, Ásgerði Birnu Björnsdóttur sem hlaut hvatningarverðlaunin, Ragnheiði Gestsdóttur sem átti eitt verkanna í samsýningu ársins, Hjólið V: Allt í góðu, og Ragnheiði Jónsdóttur sem hlaut he...
Myndlist á Íslandi: ný myndlistarstefna og framtíðarsýn 16.03.2023 55:00
Íslensku myndlistarverðlaununum verða afhent í kvöld við hátíðlega athöfn í Iðnó, en þetta er í sjötta sinn sem verðlaunin eru veitt. Í dag stendur svo yfir ráðstefna í Þjóðmenningarhúsinu, þar sem staða myndlistar í íslensku samfélagi er reifuð. Að ráðstefnunni standa Menningar- og viðskiptaráðuneytið og Myndlistarmiðstöð. Af þessu tilefni verður Víðsjá dagsins með öðruvísi sniði, við fáum til ok...
Svipmynd af Jónmundi Grétarssyni, Millibilsmaður 15.03.2023 55:00
Jónmundur Grétarsson leikari ólst upp í Vesturbænum í Reykjavík og Garðabæ. Hann sló í gegn í söngleiknum Bugsy Malone sem settur var á svið í Loftkastalanum árið 1997 en ætlaði samt ekkert endilega að verða leikari. Þónokkrum árum síðar, eftir glæstan feril í fótbolta, fór Jónmundur til San Francisco að læra leiklist. Stuttu eftir heimkomu stofnaði hann ásamt félögum sínum leikhópinn Elefant, en...
Ljósmyndir Rúnars Gunnarssonar, Draumaþjófurinn, Smithsonian 14.03.2023 55:00
Rúnar Gunnarsson ljósmyndari er fæddur árið 1944. Hann fékk sína fyrstu myndavél árið 1957 og fór þá beinustu leið út að mynda og hefur verið að mynda síðan. Ljósmyndasýnin á verkum Rúnars opnaði dyr sínar í myndasal Þjóðminjasafns Íslands síðastliðinn laugardag og kallast sýningin Ekki augnablikið heldur eilífðin Rúnar segir drifkraftinn á bak við ævistarfið vera þörfina fyrir að fanga andblæ tím...
Prinsessuleikarnir, Kerfi í Berg contemporary, Roni Horn 13.03.2023 52:34
Í Berg Contemporary við Klapparstíg var opnuð um liðna helgi sýningin Kerfi þar sem ný verk eftir Heklu Dögg Jónsdóttur myndlistarkonu eru til sýnis. Verkin á sýningunni eru þrenns konar: þarna er vídeóverk þar sem þrír litir blandast saman á vatnsyfirborði, í öðru verki rúlla hvítir og svartir textar yfir vegginn á plastrúllum, og svo eru þarna stór pappírs verk, sem ná frá gólfi og upp í loft. M...

María Mey, Velkomin til Téténíu 09.03.2023 54:15
María Mey sem hin hreina mær hefur verið einn helsti innblástur listamanna af öllu tagi frá því að hún kom fram á sjónarsviðið. Hin hreina og óflekkaða mær er þó ekki svo óflekkuð í huga allra og í seinni tíð hafa femínískir guðfræðingar varpað ljósi á allskyns annarskonar útgáfur af Maríu, sem í sumum tilfellum er nærbuxnalaus og dónaleg. Sigríður Guðmarsdóttir guðfræðingur er ein þeirra sem teku...
Svipmynd af Ingibjörgu Jóhannsdóttur, ritstjórn og ritskoðun 08.03.2023 55:00
Ingibjörg Jóhannsdóttir hefur verið safnstjóri Listasafns Íslands í rétt rúma viku. Hún var skipuð í starfið í desember af menntamálaráðherra eftir að hafa verið valin úr hópi sex umsækjenda, og tók við starfinu þann fyrsta mars síðastliðinn. Ingibjörg var skólastjóri Myndlistarskólans í Reykjavík og Landskotsskóla samanlagt hátt í þrjá áratugi. Áður hafði hún starfað um þriggja ára skeið við List...
Smámunir sem þessir, Þrenna frá Ars Longa 07.03.2023 55:00
Smámunir sem þessir eftir írska rithöfundinn Claire Keegan kom út í íslenskri þýðingu Helgu Soffíu Einarsdóttur í síðustu viku. Þetta er fjórða bók höfundarins sem er margverðlaunuð fyrir verk sín. Bókin gerist á Írlandi níunda áratugarins og segir frá kolakaupmanni í smábæ nokkrum þar sem lífið snýst um fjölskylduna, vinnuna, kirkjuna og kannski barinn. Söguhetjan lifir frekar reglubundnu lífi þa...

Ingunn FJóla Ingþórsdóttir, Eyþór Gunnarsson um Wayne Shorter, Sólrún 06.03.2023 55:00
Endurvarp kallast sýning Ingunnar Fjólu Ingþórsdóttur í Listvali á Granda. Á sýningunni kannar Ingunn Fjóla mörk málverks og vefnaðar, þar sem verkin verða hugleiðing og tilraun til að fanga óstöðugt ástand lita. Og jafnvel óstöðugt ástand yfirleitt, því Ingunn Fjóla segist að einhverju leyti vera að leita uppi fegurð í heimi sem mætti stundum vera stöðugri, og fallegri. Meira um það í þætti dagsi...

Skilaboð að handan, Kammerkór Norðurlands, súrrealistar 02.03.2023 54:22
Mikilvæg skilaboð að handan eru hvatinn að baki nýrri sýningu GJörningaklúbbsins sem opnar dyr sínar í Gallerí Porti um helgina. Þær Eirún Sigurðardóttir og Jóní Jónsdóttir, sem hafa starfað saman í rúma tvo áratugi að listinni, hafa í auknum mæli nýtt sér sjáendur við upphaf sköpunarferlis, aðferð sem þær kalla miðil-miðil. Sýningin í Gallerí Porti mun hverfast um miðilsfund sem átti sér stað í h...
Óbærilegur léttleiki knattspyrnunnar,Öllum hnútum kunnug, ímyndunarafl 01.03.2023 55:00
Einn af hápunktum ársins í heimi hönnunar er hönnunarvikan í Stokkhólmi fer fram í febrúar ár hvert. Íslenskir hönnuðir kynntu þar áhugaverkt verkefni í þetta sinn, sem enn er til sýnis í Stokkhólmi, verk sem kallast Knowing the Ropes , eða Öllum hnútum kunnug. Verkefnið er unnið á mörkum hönnunar og myndlistar og skoðar táknræna vídd reipisins í norrænni samtímamenningu, en grunnur þess hverfist...

Hjónaband rauðu fiskanna, Ghost Choir, Jarðsetning 28.02.2023 55:00
Tveir félagar úr hljómsveitinni Ghost Choir verða gestir þáttarins í dag. Sveitina mynda Hannes Halldórsson, Magnús Tryggvason Elíassen, Pétur Hallgrímsson og Jóhannes Birgir Pálmason en þeir Hannes og Magnús kíkja í spjall til okkar. Ný út er komin glæsileg tveggja vínilplatna útgáfa sem heitir Cosmic Cedar, þetta er önnur plata Drauga-kórsins en við þessa fjórmenninga bætast síðan einir sex aðri...
Óbragð, verkföll, Vatnið og landið 27.02.2023 55:00
Í dag kemur út skáldsagan Óbragð. Þetta er fyrsta skáldsaga höfundarins, Guðrúnar Brjánsdóttur, en hún vann samkeppni Forlagsins, Nýjar raddir 2020, með nóvellunni Sjálfstýringu. Óbragð fjallar um verkfræðinemann Hjalta og leit hans að sjálfum sér, en hann virðist hafa misst fótana eftir Covid einangrun, fær kvíðaköst og er með þráhyggju. En líf hans tekur óvæntan snúning þegar hann kynnist Kakófy...
Hreinsunaraðferðir, Stephen Hough, bókmenntaverðlaun og Brimhólar 23.02.2023 55:00
Rétt fyrir hádegi í dag var tilkynnt um tilnefningar til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs í ár. Ljóðabókin Laus blöð eftir Ragnar Helga Ólafsson, sem Bjartur gefur út, og skáldsagan Ljósgildran eftir Guðna Elísson, sem Lesstofan gefur út, eru tilnefndar til verðlaunanna fyrir Íslands hönd. Dómnefndir Norðurlandanna tilnefna í ár samtals 14 verk til verðlaunanna, en sameigi...
Podcasts similares
Replaio no es editor de podcasts; los nombres de los programas, las portadas y el audio pertenecen a sus autores y se distribuyen a través de canales RSS públicos