RÚV
Víðsjá
Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.
No dejes de visitar la web del podcast y apoyar a su creador: www.ruv.is
¿Dónde escuchar?
Podcasts en la app Replaio Radio Muy prontoLos podcasts llegarán muy pronto a la app. Instálala ahora y sé el primero en descubrir una forma totalmente nueva de vivir los podcasts
Episodios
Aldrei las ég Laxness / Heimsljós 16.09.2026 55:28
Í Víðsjá dagsins höldum við áfram með bókaklúbbinn okkar; Aldrei las ég Laxness. Skáldsaga dagsins er stórvirkið Heimsljós sem kom út í fjórum bindum árin 1937-1940. Heimsljós fjallar um ævi Ólafs Kárasonar Ljósvíkings, skálds og hreppsómaga, og fylgir vegferð hans á þjáningarbraut lífsins. Nafnið Heimsljós er sótt í síðustu ljóðlínur kvæðisins Söknuður eftir Jónas Hallgrímsson: Hnigið er heimsljó...
Valgerður Briem, 1.h.v og upphitun fyrir Heimsljós 15.09.2026 52:29
Víðsjá hefst að sinni í Gerðarsafni þar sem yfirlitssýning á verkum Valgerðar Briem opnar annað kvöld. Cecilie Gaihede sýningarstjóri og Brynja Sveinsdóttir safnstjóri sögðu frá sýningunni og rannsókninni sem liggur að baki. Vala Sigþrúðardóttir Jónsdóttir kíkti á sýningu Joe Keys og Svövu Björnsdóttur, Glundroða, í heimagalleríinu 1.h.v. að Lönguhlíð 19 og rýnir í sýninguna í myndlistarpistli sín...
Open og sýningarstjórnun 14.09.2026 59:15
Víðsjá kemur við á gjörningi í Open, listamannareknu rými í vesturbænum, þar sem sýningin Lesbíur frá Agoo opnaði um helgina. Pétur Eggertsson ræðir við þær Karin Itturalde Nurnberg og Hildigunni Birgisdóttur um sýninguna. Við hugum að starfi sýningarstjórans. Daria Sól Andrews mun segja frá ferli sínum sem sýningarstjóri, rekja stöðu sýningarstjórnar hér á landi sem og afhjúpa þá margræðu mögulei...
Robert le Diable og Breadcrumbs 10.09.2026 50:29
Fyrir tæpum 200 árum var frumflutt ópera sem hafði feykileg áhrif á tónlistarsöguna en er að mestu gleymd og vanrækt á okkar dögum: Robert le Diable eftir Giacomo Meyerbeer. Egill Arnarsson, ritstjóri, mun fjalla um óperuna í þltti dagsins og setja í samhengi við hina svokölluðu risaóperu (grand opéra) en það óperuform stóð í mestum blóma um 1830 til 1850. Sjöfn Hauksdóttir, bókmenntafræðingur, se...
Úlfur Eldjárn 50 ára, Heimsljós og Töfrafjallið. 09.09.2026 51:47
Úlfur Eldjárn tónlistarmaður og tónskáld fagnaði fimmtusgafmæli fyrir helgi. Alls ekki af því tilefni blés hann til tónleika í Fríkirkjunni síðasta sunnudag en Guðrún Sóley heimsótti hann á æfingu fyrir tónleikana sem hitti einmitt beint á afmælisdaginn. Steinunn Sigurðardóttir, rithöfundur, lítur við í hljóðstöfu og ræðir við okkur um Heimsljós og Töfrafjallið. En hún mun halda fyrirlestur um aða...

Led Zeppelin, íslenska og gríska. 08.09.2026 53:36
Led Zeppelin kom hingað til lands sumarið 1970 sem eins konar varalausn á Listahátíð eftir að annar listamaður, Donovan, reyndist of kostnaðarsamur fyrir tónleikahaldara - í þætti dagsins hleypum við nýjum dagskrárgerðarmanni að hljóðnemanum; Diljá Valsdóttir tekur við stjórninni og mun reyna að setja okkur inn í hugarheim fólksins sem sótti tónleika Led Zeppelin í Laugardalshöll á sínum tíma. Hau...

Hið heilaga og hið vanhelga í íslenskum bókmenntum og Fela Kuti 07.09.2026 54:09
Í fyrra sendi hlaðvarparinn frægi Jad Abumrad, sem þekktur er fyrir Radiolab og Dolly Partons America, frá sér nýja hlaðvarpsseríu um tónlistarmanninn Fela Kuti og arleifð hans. En við munum kynna okkur tónlistarmanninn að gefnu tilefni í þættinum. Nýverið kom út bókin The Sacred and the Profane in premodern Icelandic literature, ca. 1500–1800 (í. Hið heilaga og hið vanhelga í íslenskum bókmenntum...

Tinna Gunnlaugsdóttir, Eiríksþing, Davíð Þór í Heimsljósi og Gao Xingjian 03.09.2026 55:40
Leikkona, fyrrum þjóðleikhússstjóri og doktor í þýingafræðum eru þrír titlar sem allir eiga við um Tinnu Gunnlaugsdóttur. Doktorsnafnbótin er nýjasta rósin í hnappagatið en hún varði nýverið doktorsverkefni sitt sem bar titilinn Lifandi texti - áhrif þýðinga á sögu leiklistariðkunar á Íslandi. Við ræðum við Tunni í þættinum. Gauti Kristmannsson, bókmenntarýnir, segir frá nýútkominni þýðingu Gyrðis...

Miles Davis, Jazzhátíð og Miles Davis 02.09.2026 50:51
Sigurður Flosason, tónlistarmaður, lítur við í hljóðstofu og segir frá Miles Davis. Í tilefni af því að 100 ár eru liðin frá fæðingu þessa trompetbákns blæs stórsveit reykjavíkur til tónleika honum til heiðurs nú á sunnudag þar sem leikin verða lög af tveimur merkilegum stórsveitaplötum sem Miles sendi frá sér á 6. áratugnum. Tumi Árnason flytur stutta samantekt á Jazzhátíð Reykjavíkur og dregur s...

Svipmynd af Magnúsi Jóhanni 01.09.2026 50:50
Í þætti dagsins spjöllum við við tónlistarmanninn Magnús Jóhann Ragnarsson sem hefur getið sér gott orð í tónlistarsenu þessa lands fyrir eigin verk og sem meðleikari margra. Hann stendur nú fyrir stórtónleikum í Háskólabíói sem fara fram 17. september en þar fagnar hann 30 ára afmæli og tíu ára starfsafmæli sem tónlistarmaður. Á tónleikunum verður mörgu af helsta samstarfsfólki Magnúsar smalað sa...

Saumó og Bifreiðarstöð Oddeyrar 31.08.2026 51:05
Sýningin Saumó er hluti af sýningaröðinni Heimsókn á Hönnunarsafni Íslands og er viðfangsefnið hlutverk og form saumaklúbba nú á tímum. En á sýningunni upplifa gestir sig sem „flugu á vegg“ og fá að gægjast inn í ólíka klúbba. Katla Einarsdóttir, grafískur hönnuður, er sýningarstjóri Saumó en hún hefur áður rannsakað viðhorf til hönnunar, handverka og föndurs. Við ræðum við Kötlu í þættinum. Áki F...

Bjarmaband Frosta Fjalars, Olga Tokarczuk og rannsókn á gagnkynhneigð 27.08.2026 55:04
Það er ekki á hverjum degi sem nær óþekktur listamaður uppgötvast í íslensku samfélagi. Hvað þá maður sem setur mark sitt á listasöguna með einkennandi abstraktverkum sem hann vann í einrúmi í nær fjóra áratugi. Í kvöld opnar í Hafnarborg einkasýning Frosta Fjalars, Bjarmaband. Sýningin veitir innsýn í ævistarf listamannsins, sem hefur verið flestum hulið, þar til nú. Við ræðum við Ásdísi Spanó, s...

Hamraborg Festival, Dolly Parton og frændtungur íslenskunnar 26.08.2026 53:51
Hamraborg Festival er árlegur, vikulangur fögnuður lista og samfélags í hjarta Kópavogs sem hefst á föstudag og er byggð upp í nánu samstarfi við nærsamfélagið. Við bregðum okkur í Náttúrusafn Kópavogs til að hitta þar tvö tónskáld, sem bæði eru meðal listamanna á Hamraborg Festival, þau Þórð Hallgrímsson og Ásu Önnu Ólafsdóttur, eða Asalaus. Haukur Þorgeirsson, rannsóknarprófessor á Árnastofnun,...

Roman Signer á Seyðisfirði, Hljóð í ljóði og Tu Ha? Tu Bjö! 25.08.2026 56:00
Þáttur dagsins er að mestu tileinkaður jazzi, enda Jazzhátíð í Reykjavík að hefjast í kvöld. Við kynnum okkur tvær jazzplötur sem koma út um þessar mundir, útgáfum sem verður fagnað sérstaklega á hátíðinni. Tilrauna- og rannsóknarverkefnið Tu Ha? Tu Bjö! sendi frá sér plötu um liðna helgi. Hljómsveitin er skipuð tveimur trompetleikurum og tveimur tenór saxófónleikurum; þeim Tuma Torfasyni, Hannesi...
Brotnar línur, Heyrðu mig og The Band 24.08.2026 50:00
Nú fyrir helgi kom út fyrsta ljóðabók Védísar Evu Guðmundsdóttur, Brotnar línur. Ljóðsagan segir frá ungri konu sem heldur úr borginni út á land til að vinna í sláturhúsi. Þar kynnist hún köldum veruleika blóðugrar matvælaframreiðslu í neonlýstum slátursalnum, en jafnframt fólkinu í þorpinu og samfélaginu að baki. Védís Eva heimsækir hljóðstofu og segir frá bókinni. Sjöfn Hauksdóttir, bókmenntafræ...
Örn Alexander, Sjónarafl og Skriftamál einsetumannsins 20.08.2026 55:14
Síðustu ár hefur á Listasafni Íslands verið unnið að metnaðarfullu fræðsluverkefni í myndlæsi undir yfirskriftinni Sjónarafl. Þar fá nemendur og áhugasamir spurningar og lykla sem opna dyr að heimi myndlistar fyrir alla að njóta. Ragnheiður Vignisdóttir, fræðslu- og útgáfustjóri Listasafns Íslands, upplýsir okkur nánar um verkefnið. Sölvi Halldórsson rýnir í sögufrægt verk eftir Sigurjón Friðrikss...
Podcasts similares
Replaio no es editor de podcasts; los nombres de los programas, las portadas y el audio pertenecen a sus autores y se distribuyen a través de canales RSS públicos