RÚV
Víðsjá
Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.
¿Dónde escuchar?
Podcasts en la app Replaio Radio Muy prontoLos podcasts llegarán muy pronto a la app. Instálala ahora y sé el primero en descubrir una forma totalmente nueva de vivir los podcasts
Episodios
Gallery Port / Svipmynd 29.01.2025 53:08
Þeir Árni Már Þórdísar Viðarsson og Skarphéðinn Bergþóruson stofnuðu Gallery Port í litlu bakhúsi í dimmu porti við Laugaveginn árið 2016. Galleríið hefur fest sig rækilega í sessi á undanförnum árum sem eitt framsæknasta rými borgarinnar, en þar er hlúð að grasrótinni og einblínt á unga og upprennandi listamenn, þó eldri og reyndari listamenn sýni þar líka í bland. Eftir fjögur ár í dimmu skúmask...
Innviðir í Árnastofnun, Árið án sumars, Ferðalok 28.01.2025 55:00
Húsnæði Árnastofnunnar í Árnagarði hefur verið táknmynd eða hulstur utan um efnismenningu handritasafns Árna Magnússonar í rúm 50 ár. Nú hefur stofnunin verið flutt yfir Suðurgötuna og í Eddu en um liðna helgi stóð hópur listamanna, fræðimanna, hönnuða og arkitekta að sýningu í yfirgefnu húsnæði Árnastofnunnar sem þau kölluðu Innviði. Um sýningarstjórn sáu þeir Marteinn Sindri Jónsson og Unnar Örn...
Skógarhögg Thomas Berhard, karókílög Alter-Eyglóar á Ölveri, Ungfrú Ísland/rýni 27.01.2025 57:48
Við lítum inn á eina elstu krá bæjarins, Ölver sportbar, en þar stendur tónskáldið og sviðslistakonan Eygló Höskuldsdóttir Viborg fyrir viðburðum í vikunni í nafni hliðarsjálfsins Alter-Eyglóar. Í tilraun til þess að snúa á alræði streymisveitanna og finna leið til að lifa á tónlistinni ákvað Eygló, sem stundaði framhaldsnám í tónsmíðum í Berklee og NYU, að skella í nokkur poppkennd karókílög. Á Ö...
Elín Gunnlaugsdóttir á Myrkum, Anna Rós Árnadóttir ljóðskáld, Rakarinn í Sevilla /rýni, Jelena Ciric pistill 23.01.2025 53:21
Við hefjum þáttinn á því að taka á móti Önnu Rós Árnadóttur, handahafa Ljóðstafs Jóns úr Vör. Anna Rós les sigurljóðið Skeljar og segir frá innblæstrinum að baki. Myrkir músíkdagar hefjast á morgun og standa yfir fram á sunnudagskvöld með fjölda viðburða. Meðal þeirra eru tvær öróperur Elínar Gunnlaugsdóttur fluttar í stigunum í opnu rými Hörpu. Elín segist hafa sérstaklega gaman af því að leika s...
Hjálmar H Ragnarsson / Svipmynd 22.01.2025 50:38
Hjálmar H Ragnarsson er fæddur og uppalinn á Ísafirði, sonur Sigríðar Jónsdóttur Ragnar og Ragnars H Ragnar. Faðir hans var skólastjóri tónlistarskólans á Ísafirði, sem þá var hýstur að stórum hluta á heimili þeirra, svo Hjálmar ólst bókstaflega upp umkringdur tónlist. Hann segir þó að ýmislegt annað hafi komið til greina, þegar hann velti fyrir sér framtíðinni, því á heimilinu voru hin ýmsu mál r...
Listmeðferð Sigríðar Björnsdóttur, David Lynch og Undir eplatrénu/rýni 21.01.2025 54:13
,,Ég treysti sjálfri mér og hef trú á þessu tæki sem listmeðferðin er. Hún er tæki til að tjá tilfinningar sínar og vinna með og losa sig við erfiðar tilfinningar. Myndsköpunin er þá notuð til að vinna með sig persónulega og til að þroskast í gegnum." - er meðal þess sem haft er eftir myndlistarkonunni og listþerapistanum Sigríði Björnsdóttur í bók þeirra Ágústu Oddsdóttur og Egils Sæbjörnssonar u...
Hallgrímur Árnason/Ró og Æði, David Lynch og árið 2024 í arkitektúr/Magnea Guðmundsdóttir 20.01.2025 54:53
David Lynch sótti Ísland heim árið 2009 og þá tók kvikmyndafræðingurinn Sigríður Pétursdóttir viðtal við hann í útvarpsþættinum Kviku. Þau ræddu meðal annars innhverfa íhugun, en David Lynch hefur verið mikill talsmaður hugleiðslu í sinni nálgun. Hann líkti hugmyndum við fiska; Ef þú vilt veiða litla fiska, haltu þig í grunnu vatni. En ef þú vilt ná stórum fiskum þarftu að fara á dýpið, sagði hann...
Gréta Kristín Ómarsdóttir um Ungfrú Ísland, Schoenberg og bruninn í LA, Helen Cova 16.01.2025 53:56
Annað kvöld verður frumsýnd í Borgarleikhúsinu ný leikgerð upp úr skáldsögu Auðar Övu Ólafsdóttur, Ungfrú Ísland. Sagan hverfist um fjóra einstaklinga í Reykjavík árið 1963 sem allir hafa sína drauma en misjöfn tækifæri til að láta þá rætast. Þetta eru tímar samfélagslegra jarðhræringa og handan við hornið eru baráttur og byltingar. Við ræðum við leikstjórann Grétu Kristínu Ómarsdóttur í þætti dag...
Birnir Jón Sigurðsson 15.01.2025 50:37
Birnir Jón Sigurðsson, sviðslistamaður og rithöfundur, segist ekki hafa átt sterkar fyrirmyndir á unga aldri. En hann dáist almennt að listafólki sem er áhugasamt, jákvætt, spennt og drífandi. Honum líður best í óvissunni, þegar það er ekkert handrit, og planar aldrei langt fram í tímann. Kannski þess vegna er hann svo hrifinn af samsköpun í leikhúsinu. Birnir hefur gefið út bækurnar Strá og Fugla...
Fermented Friendship, Ljósmyndahátíð Íslands og Veðrun 14.01.2025 51:05
Píanóleikarann Magnús Jóhann Ragnarsson og saxófónleikarann Óskar Guðjónsson þarf vart að kynna fyrir hlustendum. Leiðir þessara tveggja listamanna hafa legið saman í gegnum ólík verkefni en nú í vetur gáfu þeir saman út plötuna Fermented Friendship þar sem afrakstur samtals þeirra fær að njóta sín. Við heyrum af samstarfinu í þætti dagsins, og einnig vináttunni sem gerjaðist í sköpunarferlinu. Ei...
Tóma rýmið, Molly Drake og Kundera: Vesturlönd í gíslingu/rýni 13.01.2025 54:08
Í yfirgefnu bílaverkstæði við Skeljanes í Reykjavík hefur hópur sviðslistafólks komið sér fyrir með starfsemi undir yfirskriftinni Tóma rýmið. Þar hafa þau æfingaaðstöðu og rými til þess að prófa áfram og sýna verk á mismunandi stigum í undirbúningsferlinu. Hluti af starfsemi Tóma rýmisins felst í mánaðarlegum tilraunakvöldum, þar sem meðlimir hópsins bera á borð verk í vinnslu eða gera tilraunir...
Vínartónleikar, Áslaug Jónsdóttir og Yerma/rýni 09.01.2025 54:35
Í gær var veisla hér í Útvarpshúsinu þegar Menningarviðurkenningar RÚV fyrir árið 2024 voru afhentar að viðstöddum viðurkenningarhöfum og gestum. Veittar voru tvær viðurkenningar úr Rithöfundasjóði og tilkynnt um styrki úr Tónskáldasjóði Ríkisútvarpsins og STEFs á árinu. Mugison fékk Krókinn, verðlaun fyrir framúrskarandi lifandi flutning, og tilkynnt var um valið á orði ársins 2024, sem er hraunk...
Ifigenía í Ásbrú, Unnar Örn í Óminnissafni, Moldin heit/rýni 07.01.2025 53:34
Í Glerhúsinu stendur nú yfir sýning sem ber titilinn Óminnissafnið - varðveislu- og rannsóknardeild. Þar sýnir myndlistarmaðurinn Unnar Örn Auðarson afrakstur vangaveltna um tilraunir okkar til að skjalfesta tímann með söfnun og skrásetningu á upplýsingum úr umhverfi og samfélagi. Við hittum Unnar Örn í þætti dagsins. Við heyrum einnig bókarýni en að þessu sinni rýnir Gréta Sigríður EInarsdóttir í...
Mörsugur, Augljós í Neskirkju, Köttur á heitu blikkþaki / rýni 06.01.2025 53:03
Við hefjum þáttinn á því að fara í kirkju. Augljós kallast sýning sem opnaði þann 8.desember í Neskirkju og stendur yfir fram til 20.janúar. Þar sýnir Þórdís Erla Zoega ljósaverk sem sækja innblástur í kirkjuglugga og vinnur með sjónrænar skynvillur sem hvetja áhorfandann til að líta inn á við. Við kynnum okkur einnig nýtt verk, Mörsugur, óperu fyrir rödd með rafhljóðum og myndbandsverki, byggða á...
Víðsjá og Lestin líta yfir farinn veg og til framtíðar - Fyrri hluti 02.01.2025 50:41
Sameiginlegur þáttur Víðsjár og Lestarinnar í upphafi ársins 2025. Í þáttum dagsins höldum við úr húsi, förum inn í lágvöruverslunina Prís í Kópavogi, verslunarmiðstöðina Eiðistorg á Seltjarnarnesi, vöðum slabbið út í strætóskýli og tökum líka upp tólið og hringjum út á land: austur, vestur, norður og suður. Hvað var fólk í Prís að hugsa rétt eftir jólin og hvað finnst unglingum á Eiðistorgi um bæ...
Menningarárið 2024 30.12.2024 51:31
Víðsjá og Lest setjast niður í hljóðstofu og rifja upp árið 2024.
Jólalag ríkisútvarpsins 2024, Guðrún Hannesdóttir - Kallfæri, Sporðdrekar/rýni, Himintungl yfir heimsins ystu brún/rýni 19.12.2024 47:53
Í lok Víðsjár verður jólalag ríkisútvarpsins árið 2024 frumflutt, ásamt kynningu höfundar á laginu. Frá því í október hafa umfjallanir um bækur raðast inn í vikurnar í Víðsjá, eins og jólaskraut á tré. Bókarýnarnir okkar þrír hafa tínt upp úr jólakistlinum fjölbreyttar gjafir flóðsins og fært í samhengi og í dag veljum við úr kistlinum dýrindis gripi. Soffía Auður Birgisdóttir fjallar um skáldsögu...
Bára Gísladóttir í Svipmynd, Flaumgosar / rýni 18.12.2024 49:07
Bára Gísladóttir tónskáld og kontrabassaleikari er fædd í Reykjavík árið 1989. Fjölskyldan fluttist í nokkur ár til Noregs þegar Bára var fimm ára og það var þar sem hún hóf nám á fiðlu. Hún segist þó aldrei hafa náð tengingu við fiðluna og það var ekki fyrr en hún kynntist kontrabassanum 17 ára gömul í Nýja Sjálandi að hún upplifði djúpa og sterka tengingu við hljóðfæri. Bára nam tónsmíðar við Li...
Rifsberjadalurinn, Tríó Esja, Friðsemd / rýni 17.12.2024 49:30
Ásdís Óladóttir samdi sitt fyrsta ljóð níu ára gömul en sýndi það ekki nokkurri manneskju. Hún tók upp þráðinn á ný átján ára gömul og byrjaði þá markvisst að skrifa. Ásdís var greind með geðklofa rúmlega tvítug og síðan þá hefur skáldskapurinn verið haldreipi hennar í lífinu. Hún hefur gefið út níu ljóðabækur og í þeirri nýjustu sem kallast Rifsberjadalurinn fjallar Ásdís í fyrsta sinn um þá lífs...
Æskuteikningar Alfreðs Flóka, Veður í Æðum og Þegar sannleikurinn sefur/rýni 16.12.2024 51:50
Ragnheiður Lárusdóttir steig fram á ritvöllinn 2020 með ljóðabókina 1900 og eitthvað og hlaut í kjölfarið Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar og tilnefningu til Maístjörnunnar. Þessi fyrsta ljóðabók hennar byggði á bernskuminningum að vestan, en sú næsta, Glerflísakliður, fjallaði meðal annars um veikindi móður Ragnheiðar og erfiðan skilnað. Í síðustu bók sinni, Kona/Spendýr sem kom út 2022 be...
Parabóla Finnboga Péturssonar, jól í 12 tónum, Kul / rýni, Innanríkið Alexíus /rýni 12.12.2024 53:15
Parabóla nefnist ný sýning eftir Finnboga Pétursson, myndlistarmann, sem opnuð var í Gerðarsafni í október. Tómas Ævar lagði leið sína í safnið og ræðir í þættinum við Finnboga. Við lítum einnig inn til Lárusar Jóhannessonar í 12 tónum og heyrum af jólatónlist. Gréta Sigríður Einarsdóttir rýnir í Kul eftir Sunnu Dís Másdóttur en við hefjum þáttinn á rýni Sölva Halldórssonar í Innanríkið Alexíus ef...
Þórarinn Eldjárn - Svipmynd 11.12.2024 51:04
Þórarinn Eldjárn fæddist í Reykjavík árið 1949. Megnið af uppvaxtarárunum bjó hann í Þjóðminjasafninu, eða þar til að faðir hans, Kristján Eldjárn, varð forseti Íslands og fjölskyldan flutti á Bessastaði. Heimilislífið einkenndist af húmor og unun af skáldskap og bestu tilsvörin voru í bundnu máli. Þórarinn lærði bókmenntafræði og heimspeki í Lundi í Svíþjóð og segist kannski meðvitað hafa reynt a...
Auður Lóa Í rósrauðum bjarma, Múffa / rýni, jazzperlur í Múlanum 10.12.2024 50:26
Hakk og spagetti af blendnum tilfinningum, segir Auður Lóa Guðnadóttir um sýninguna Í rósrauðum bjarma / In watermelon sugar sem nú stendur yfir í gallerí Þulu í Marshallhúsinu. Auður Lóa sækir fanga víða þegar kemur að innblæstri, en í verkunum má sjá þekkt minni úr dægurmenningunni. Vinnuaðferðir hennar vísa í keramikhefð og það sem hefur löngum verið kallað kvennalist, og segist Auður Lóa að ei...
Gluggagallerí, Stargate og Leiðin í hundana 09.12.2024 49:48
Við höfum aðeins spilað og rætt um jólalög og jólatónlist, sem er sérstaklega til þess fallin að koma okkur í jólaskapið á aðventunni. Og við höfum vissulega rætt um bækur og hið svokallaða jólabókaflóð, þó þar séu fáar bækur sem beinlínis teljast jólasögur. En það leynist samt amk ein slík í flóðinu, norska skáldsagan Stargate, eftir Ingvild Rishøi. Sagan minnir um margt á eina þekktustu jólasögu...
Ásta Fanney til Feneyja 2026, Mikilvægt rusl /rýni, Nokkur jólaleg lög, leikhús í Helsinki 05.12.2024 50:42
Í gær var tilkynnt að Ásta Fanney Sigurðardóttir verður fulltrúi Íslands á Feneyjatvíæringnum í myndlist árið 2026. Valið var tilkynnt við hátíðlega athöfn í Listasafni Íslands í gær þar sem kampavín og kaka komu við sögu. Við ræðum við Ástu Fanneyju í þætti dagsins. Fyrir skömmu sendu GDRN og Magnús Jóhann frá sér sönglagaplötuna Nokkur jólaleg lög. Á plötunni flytja þau þekkt jólalög og vetrarlö...
Podcasts similares
Replaio no es editor de podcasts; los nombres de los programas, las portadas y el audio pertenecen a sus autores y se distribuyen a través de canales RSS públicos