Óskar Heiðar Hansson og Kristbergur Ómar Steinarsson

Tveir Loðnir

Lausnamiðuðu vandræðagemsarnir Óskar og Kristbergur leysa öll þín vandamál

Autor

Óskar Heiðar Hansson og Kristbergur Ómar Steinarsson

Categoría

Comedy

Web del podcast

redcircle.com

Último episodio

20 de nov. de 2023

¿Dónde escuchar?

Podcasts en la app Replaio Radio Muy pronto

Los podcasts llegarán muy pronto a la app. Instálala ahora y sé el primero en descubrir una forma totalmente nueva de vivir los podcasts

Descárgala en Google Play Instálala gratis Android casi 10 M de descargas · valoración de 4,8 iOS muy pronto

Episodios

121.Þáttur - Útskrift 20.11.2023

Ef þið hlustið á einhvern þátt á ævinni, hlustið þá á þennan og þið munið útskrifast. 🎓

120.þáttur - Bíltúr og Leikir 13.11.2023

Við skreppum aftur í bíltúr, keyrum út í auðnina og ræðum um tölvuleiki og vandamálinu sem fylgir þeim

119.þáttur - Haust 30.10.2023

Brrr! Haustið er komið, eða.. er það á leiðinni? Allavega, við þurfum að ræða það svo enginn fari blind/ur inn í haustið!

118.þáttur - RoadTrip! 23.10.2023

Tveir Loðnir í bíltúr! Já þið lásuð rétt, Óskar og Kristbergur ákváðu að taka upp þátt á leiðinni heim til Reykjavíkur og ræða allskonar um akstur, sögur og annað. Vesgú! 🚗

117.þáttur - að Byrja 16.10.2023

Ahh alveg rétt 😁 Tími til að byrja að alvöru! Núna erum við að komast í gang aftur og þá þurfum við að fara yfir hvernig það ferli hefur verið.  Endilega byrjið á þessum ef að þið eruð að "stilla inn" í fyrsta skipti! 🎙🎙

116.þáttur - Hvadda búinn að gera? 09.10.2023

Við erum komnir aftur! 🎉 Mikið fjör framundan en til að byrja með ákváðum við að hafa þetta afslappað, nice og fara aðeins yfir stöðuna. Hlökkum til að halda áfram!

115.þáttur - Timburmenn 05.06.2023

Timburmenn koma stundum og smíða í kollinum á manni, oftast nær um helgar. en hvað er þá til ráða? hvernig losar maður sig við þessa menn? þú þarft ekki að leita lengra því við erum lausnamiðaðir vandræðagemsar sem leysa öll vandamál.

114.þáttur - Týna 22.05.2023

Ef að þú týndir þessum þætti þá fundum við hann fyrir þig. Við erum alveg vissir um að þú átt ekki eftir að týna neinu framar eftir að hafa hlustað á þennan þátt!

113.þáttur - Endur 15.05.2023

Við erum alltaf að prófa e-ð nýtt, í þetta skipti fáið þið að fara með okkur í göngutúr, gefum að borða og gerum tilraun til að búa til ASMR, gjörið svo vel.

112.þáttur - Matvöruverslanir 08.05.2023

Það er enginn að fara út i búð fyrr en þið eruð búin að hlusta á þennan þátt. Við ræðum bestu aðferðirnar við að versla, bestu búðirnar og fullt fullt fleira! 🛒

111.þáttur - tíminn 01.05.2023

Tíminn er endalaus en ekki vandamálalaus! boom ! hvað er klukkan? skíttu á puttan

110.þáttur - Sumardagurinn frysti 24.04.2023

Gleðilegt sumar! Það er ekki oft sem að við fáum sumar á Íslandi en sumarið er samt komið og því ber að fagna. Hvað er til ráða ef að maður þarf að skafa rúðurnar í júní?

109.þáttur - Grænmeti 16.04.2023

Þá er komið að special númer tvö, í þessum þætti borðum við grænmeti ótrúlega hátt eins og sellerí, blómkál og kartöflur, namminamm eða hvað?

108.þáttur- Svefn 03.04.2023

Góður svefn skiptir ótrúlega miklu máli, en svo að við getum náð sem besta svefninum hafa Tveir Loðnir tekið tíma úr sinni svefn rútínu fyrir ykkur til að ræða um svefninn og hvernig er hægt að sofa sem best.

107.þáttur - Nýr Starfsmaður 27.03.2023

Ertu að leita þér að vinnu en veist ekki hvað á að gera? Þá erum við með þátt fyrir þig! Förum yfir allt sem þú þarft að vita þegar kemur að nýrri vinnu.

106.þáttur - Pólland 20.03.2023

Austur Evrópa er skemmtileg.. en sko flugvélar geta verið óþægilegur ferðamáti, annars eru Pólverjar mjög skemmtilegir.. en flugvélar eru þröngar, of kaldar og heitar og þú getir ekki farið neitt. Vorum við búnir að tala um að Varsjá er eins og Breiðholtið? En flugvélar eru samt vesen. Við tölum semsagt mikið um flugvélar og austur Evrópu í þessum þætti.

105.þáttur - Súkkulaði 13.03.2023

SÚKKULAÐI! Páskarnir eru á leiðinni og vorum við beðnir um að smakka öll páskaeggin. Við getum því miður ekki borðað öll páskaegg landsins en við fórum út í búð og keyptum súkkulaði sem að er einnig notað í páskaeggin og ekki nóg með það heldur komu Omnom okkur til hjálpar og gáfu okkur heilan helling af sínu súkkulaði líka! Bara fyrir ykkur og ekki reyna þetta heima (nema þið viljið það).

104.þáttur - Snjór 06.03.2023

Stundum er snjór, stundum er enginn snjór. Sama hvort það er þá þurfum við að ræða það og vera tilbúin í allar aðstæður, hvernig á að skafa rúðuna? Hvernig á að losa bílinn? Við leysum það hér! ❄️🚗🎙

103.þáttur - Reykingar 27.02.2023

Reykir þú? Hættu því! Við allavega hjálpum þér að komast yfir þetta vandamál, enda er það ekki lengur cool!

102.þáttur - of útskýring 20.02.2023

Okkur finnst ótrúlega gaman að vita hvað ykkur finnst gaman að hlusta á þáttinn okkar. Sérstaklega hvað við eigum til með að tala um allt og ekkert og svoleiðis, stundum útskýrir maður hlutina samt of mikið sem veldur því að fólk missir athygli eins og kennari sem talar alltaf um sjálfan sig í staðinn fyrir námið sem er náttúrulega pínu skrítið, afhverju erum við að tala um kennara? Veit það ekki...

101.þáttur - Mistök 13.02.2023

Við gerðum mistök! En mistök fylgja okkur öllum hvert sem við förum. Einnig eru mistökin til þess að læra af og ekki alltaf alslæm, við förum yfir það í þættinum í dag þegar þú hlustar á hann.

100.þáttur - Bakstur 30.01.2023

Ef þið kunnið ekki brauð að baka þá erum við með þáttinn fyrir þig! Við tölum nefnilega ekki bara í míkrafón heldur erum við líka bakarar. 🍞🍰 Viljum einnig þakka ykkur fyrir að hlusta á okkur hundrað sinnum, án ykkar værum við ekki hér! 🎙🎊❤️

99.þáttur - Heimsóknir 23.01.2023

Þið eruð öll alltaf velkomin að koma og hlusta á okkur á öllum helstu streymisveitunum. ... Endilega látið okkur vita með góðum fyrirvara samt, við erum ekki alltaf tilbúnir í heimsóknir en við förum allavega yfir það í þættinum í dag, gjörið svo vel.

98.þáttur - Heimilisverk 16.01.2023

Við erum komnir aftur! 🎊 Gaman að sjá vita af þér kæri hlustandi. Á nýju ári fylgir stundum áramótaheit sem við ætlum reyndar ekkert að tala um en ef þig langar að hafa hreint heima hjá þér í ár þá þarftu bara að hlusta á nýja þáttinn okkar!

97.þáttur - Jólalög 19.12.2022

Jólin eru að koma og ákváðum við að gefa ykkur smá jólalaga pælingar þangað til. Svo erum við einnig farnir í stutt frí, takk fyrir að hlusta! Við óskum ykkur gleðilegrar hátíðar og farsælt nýtt ár. 🎄🎆 Þangað til næst!

Escucha el podcast Tveir Loðnir en Replaio

Radio y podcasts en una sola app - gratis y sin registro. Instálala hoy y no te pierdas el estreno

Descárgala en Google Play

Replaio no es editor de podcasts; los nombres de los programas, las portadas y el audio pertenecen a sus autores y se distribuyen a través de canales RSS públicos