Sonja og Svanhildur
Þetta Reddast
Tvær bugaðar, þreyttar mæður á besta aldri sem ákváðu,í augnabliki af ofmati á eigin getu, að byrja podcast. Hugarfarið okkar hefur alltaf verið að þetta reddist… einhvern veginn. Og hingað erum við komnar, með kaffi í annarri og taugaáfall í hinni. Við getum ómögulega lofað neinu þema, enda er lífið sjálft nógu mikið rugl og við fylgjum bara straumnum (og stundum ekki einu sinni því). En eitt er víst: við hlæjum, kvörtum, deilum og lifum af – og vonandi hlæið þið með okkur… eða að okkur.
Autor
Sonja og Svanhildur
Categoría
Web del podcast
Último episodio
30 de jun. de 2026
¿Dónde escuchar?
Podcasts en la app Replaio Radio Muy prontoLos podcasts llegarán muy pronto a la app. Instálala ahora y sé el primero en descubrir una forma totalmente nueva de vivir los podcasts
Episodios
Aperol, skyldfólk og Tenerife 30.06.2026 51:27
VÁ! Dásemdar ferð á enda til eyju allra Íslendinga, Tenerife. Hugsa að brosið fari ekki af okkur næstu mánuðina. Mikið hlegið, borðar og drukkið. Svo kom það á daginn að Svanhildur á bara heilmikið af skyldfólki á Tene! Who would have thought! Vonandi náið þið að skemmta ykkur yfir þessum! Við erum svo komnar í smá frí en komum hressar til baka í ágúst :)
Fæddar til að ferðast saman 10.06.2026 1:05:43
Smá ferðalag hjá okkur vinkonum um memory lane. Við fórum yfir ferðalögin sem við höfum farið í saman gegnum árin OG fórum yfir fyrirhugaða ferð sem er bara handan við hornið! Mögulega smá yfirspenntar en hey! það má og ég meina ef undirbúningurinn var svona geggjaður þá er nú varla að ferðin klikki!
Horror, hafmeyjur og húsdýr 27.05.2026 53:37
Það ætti ekki að koma ykkur á óvart að við vinkonurnar fórum um víðan völl í upptökum vikunnar. Þyngdaraflið kom til tals, hafmeyjur, barnauppeldi og húsdýr. Mikið hlegið og við skemmtum okkur konunglega! Ef þið hafið gaman af þá megið þig endilega slást í hópinn á Instagram síðu okkar.
Táknmál, dúfur og nuddari frá helvíti 15.05.2026 48:25
Þessi þáttur var ansi strembin í fæðingu og má í raun segja að þetta hafi endað með keisara. En þetta hafðist á endanum og skemmtum við okkur konunglega! Við fórum yfir víðan völl. Eins og alltaf þá reynum við að finna húmorinn í áskorunum lífsins. Vonum þið njótið og ef þið viljið koma athugasemdum áleiðis þá erum við komnar með Instagram síðu - Thettareddastpodcast.
Andlit á glugga, félagar í skógi og murder mystery? 30.04.2026 35:48
Smá rannsóknarvinna hjá okkur stöllum! Hvað í ósköpunum erum við að lesa og syngja fyrir börnin okkar? Við ritrýndum þekktar sögur og kvæði sem við höfum flest lesið og sungið. Eftir að hafa rýnt í textana þá ætlum við mögulega að endurskoða hvað verður framvegis fyrir valinu!
Málsháttamálið mikla, klikkhaus í pontu og klósettpappírsskortur! 24.04.2026 56:00
Málsháttarmálinu miklu er nú formlega lokið. Að sjálfsögðu gekk það ekki alveg þrautarlaust fyrir sig. Við ræddum nokkrar fréttir úr liðinni viku og tímann sem klósettpappír var orðinn söluhæsta varan á Íslandi.
Hebreska og húllumhæ 17.04.2026 43:17
Enn og aftur er lagt af stað með plan en eins og okkur er lagið þá fórum við lengri leiðina. Samtalið fór frá Jerúsalem yfir til Góu og enduðum á mannanafnanefnd.
Sjálfsmildi, páskaeggjaskandall og málshættir 12.04.2026 45:53
Eins og vanalega þá fórum við um víðan völl. Byrjuðum á alvarlegri nótum sem endaði í skandal tengt páskunum og svo misstum við mögulega aðeins þráðinn!
Inga Sæland, Núvitund og Jarðafarasálmar 05.04.2026 37:43
Inga Sæland, Núvitund og Jarðafarasálmar
Barnaland, Pamela Anderson og Gulli Helga. 29.03.2026 57:32
Umræðuefni þáttarins fór um víðan völl. Við ræddum um Barnaland og samfélagsmiðla, misjafnan árangur okkar af googli og af hverju við ákváðum að byrja með podcast.
Podcasts similares
Replaio no es editor de podcasts; los nombres de los programas, las portadas y el audio pertenecen a sus autores y se distribuyen a través de canales RSS públicos