RÚV
Þetta helst
Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.
No dejes de visitar la web del podcast y apoyar a su creador: www.ruv.is
¿Dónde escuchar?
Podcasts en la app Replaio Radio Muy prontoLos podcasts llegarán muy pronto a la app. Instálala ahora y sé el primero en descubrir una forma totalmente nueva de vivir los podcasts
Episodios
Svikin í Alicante 11.09.2026 15:00
Íslenskir ferðamenn hafa stigið fram og lýst reynslu sinni af því að hafa verið sviknir í viðskiptum með leiguhúsnæði í Alicante á Spáni. Fyrirtækið sem um ræðir heitir Sammlind og eigandi þess Samúel Jón Samúelsson. Fólkið hefur lýst því hvernig það borgaði mörg hundruð þúsund eða jafnvel milljónir fyrir leiguíbúðir sem það fékk svo aldrei. Gögn frá spænskum yfirvöldum og fréttir í þarlendum fjöl...
Umdeildu hafmeyjarbrotin sem enduðu sem stofustáss 10.09.2026 15:01
Tvö vegleg brot úr verkinu Hafmeyjunni eftir Nínu Sæmundsson eru þessa dagana til sýnis á Listasafni Reykjanesbæjar. Brotin hafa varðveist eftir að listaverkið var sprengt í loft upp á nýársnótt 1960. Á sýningunni kemur fram að brotin séu í einkaeigu en þó eru þau skráð sem eign Listasafn Reykjavíkur. Í Þetta helst verður sögð saga brota af einu umdeildasta listaverki Íslands, hvernig það var uppg...
MAST fjarlægir búfé af sveitabæ í Eyjafirði í þriðja sinn 09.09.2026 15:00
Matvælastofnun fjarlægði mörg hundruð dýr af sveitabænum Brimnesi í Eyjafirði í sumar vegna vanhirðu og slælegrar meðferðar. Bæði var um að ræða kindur, hross og hrúta segir bóndinn á bænum, Arnar Gústafsson. Hann segir stofnunina meðal annars hafa fjarlægt 450 kindur, 26 hrúta og 36 hross. Kindurnar voru færðar í sláturhús um helgina, segir Arnar, og hrútunum var lógað og þeir notaðir í moltu seg...
Fyrsta skrefið í að draga úr vægi verðtryggingar 07.09.2026 14:18
Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, greindi frá því í Vikulokunum á laugardaginn að frumvarp um að draga úr vægi verðtryggingar verði lagt fram í haust. Rætt er við Jón Bjarka Bentsson, aðalhagfræðing Íslandsbanka, og Jónas Atla Gunnarsson, hagfræðing Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar, um áhrif þess að takmarka lengri verðtryggð lán og setja skilyrði um lágmarks eigna...
Fjárfestar deila um hlutabréfaviðskipti í Sýn 04.09.2026 14:56
Félag Reynis Grétarssonar, Gavia Invers, stærsta hluthafi Sýnar hefur stefnt eiganda félagsins Ursus hf, Heiðar Guðjónssyni. Heiðar Guðjónsson er fyrrverandi forstjóri Sýnar og áður stjórnarformaður, sem lét af störfum og seldi allan hlut sinn í Sýn árið 2022 fyrir 2,2 milljarða króna. Félag Grétars, Gavia, keypti hlut Heiðars. Reynir Grétarsson og meðeigendur hans í Gavia telja að Heiðar hafi ley...
Eitt stærsta skattamál Íslandssögunnar: Gæti krafið bílaleigur um 25 milljarða 03.09.2026 14:41
Eitt stærsta mögulega skattamál Íslandssögunnar er nú á borði skattayfirvalda. Skatturinn hefur sent nokkrum bílaleigum hér á landi bréf og sagt þeim frá því að til skoðunar sé að krefja einhverjar þeirra um virðisaukaskatt af tekjum þeirra vegna sölu á vátryggingum aftur í tímann. Ef Skatturinn endurákvarðar skattgreiðslur þessara bílaleiga getur heildarupphæðin numið allt að 25 milljörðum króna....
Kastljósið beinist að Íslandi og krísu Evrópusambandsins 02.09.2026 15:29
,,Skilaboðin frá Íslandi”; ,,Þetta er synd fyrir Evrópu”; ,,Sterk tengsl Íslands við Evrópusamband fela í sér að niðurstaðan er ekki sambærileg við Brexit” eru nokkrar af þeim fyrirsögnum sem birst hafa í dagblöðum í Evrópu um þjóðaratkvæðagreiðsluna á Íslandi á laugardaginn. Ísland, og fréttir frá Íslandi, eru ekki til umfjöllunar í erlendum fjölmiðlum á hverjum degi. Síðustu daga hefur þetta hin...
Eldsneytisverðið hækkar á ný 01.09.2026 17:35
Eflaust hafa hlustendur tekið eftir því að bensinverðið er hærra í dag en í gær – því tímabundin lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti féll úr gildi á miðnætti. Rætt er við Runólf Ólafsson, framkvæmdastjóra FÍB, Pál Gunnar Pálsson, forstjóra Samkeppniseftirlitsins, og Hjalta Óskarsson, hagfræðing. Þá er rætt við ökumenn á bensínstöðvum. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
Sýn hættir með kvöldfréttir eftir að ekkert varð af viðskiptum við Símann 31.08.2026 18:00
Sigríður Dögg Auðunsdóttir, formaður Blaðamannafélags Íslands, segir að sú ákvörðun stjórnenda Sýnar að hætta með sjónvarpsfréttir sé gríðarleg vonbrigði. Sýn greindi frá þessu í tilkynningu til Kauphallar Íslands núna í morgun. Síðasti kvöldfréttatími Sýnar verður í kvöld. Með þessu lýkur 40 ára samfelldri sögu kvöldfrétta á Sýn og fyrrirennara Sýnar, Stöðvar 2. Fyrsti fréttatíminn á Stöð 2 var s...
Lykilinnviðir og hættan af eldgosum 28.08.2026 14:51
Nýtt langtímahættumat vegna Reykjanesskaga sem Veðurstofa Íslands gerði sýnir að áhrifasvæði eldgosa ná allt frá Reykjanestá að Ölfusá og Hvalfirði. Á þessu svæði eru lykilinnviðir, meðal annars allar fjórar, stjóru jarðmarmavirkjanirnar á svæðinu: Reykjanesvirkjun, Svartsengisvirkjun, Hellisheiðarvirkjun og Nesjavallavirkjun. Eldgos í Hengli gæti haft mikil áhrif á þær. Halldór Halldórsson, örygg...
Slorævintýrið á Nýbýlaveginum 27.08.2026 15:14
Á Nýbýlaveginum í Kópavogi er matvöruverslunin Fiska þar sem yfirleitt er örtröð síðdegis og um helgar. Verslunin selur matvöru frá öllum heimshornum sem yfirleitt er ekki til í öðrum búðum. Tekjuaukningin hjá Fisku hefur verið ævintýraleg síðustu ár og hefur verslunin nú sprengt af sér húsnæðið í Kópavogi og er verið að tvöfalda það. Eigandinn, Árni Elvar Eyjólfsson, segir að veltan hafi sexfalda...
Stórveldið sem keypti fyrirtækið af skattakóngi Íslands 26.08.2026 15:00
Í ár var maður að nafni Daníel Sigurðsson skattakóngur Íslands. Hann greiddi 932 milljónir í fjármagnstekjuskatt í fyrra og var því með fjármagnstekjur upp á 4,3 milljarða króna. Ástæðan fyrir þessum himinháu fjármagnstekjum og skattgreiðslum í fyrra er sú að Daníel seldi 70 prósenta hlut í fyrirtæki sem hann stofnaði. Þetta fyrirtæki heitir DS Lausnir og sérhæfir sig í útleigu og þjónustu við byg...
Úrslitastund um líftíma kjarasamninga 25.08.2026 14:53
Á fimmtudaginn kemur í ljós hvort forsenduákvæði kjarasamninga haldi en þá birtir Hagstofan verðbólgutölur fyrir ágúst. Rætt er við Bergþóru Baldursdóttur, hagfræðing hjá Íslandsbanka, og Sigurð Pétursson, sagnfræðing, um stöðu mála. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
Þrefalda þyrlupallinn í Surtsey 24.08.2026 16:14
Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja samþykkti á fundi sínum í síðustu viku umsókn Surtseyjarfélagsins um að stækka þyrlupallinn í Surtsey úr 36 fermetrum í um 100. Bærinn fer með skipulagsvald í eynni og skipulagsfulltrúa verður falið að gefa út framkvæmdaleyfi - en hvers vegna að stækka pallinn og hvernig myndu slíkar framkvæmdir vera skipulagðar með tilliti til náttúruverndar? Rætt er við M...
Aska látinnar konu grafin upp í skjóli nætur 21.08.2026 15:42
Gröf Kristjöna Jónsdóttur Dinse í Sóllandi í Fossvogskirkjugarði var opnuð í skjóli nætur í júní í fyrra. Duftkerfið með jarðneskum leifum Kristjönu var grafið upp og stór hluti öskunnar var tekinn úr því eftir að kerið hafði verið brotið upp. Kristjana lést í nóvember 2024, rúmlega áttræð að aldri. Ummerki sáust við leiðið daginn eftir og var málið kært til lögreglu í kjölfarið. Að raska grafarhe...
Fiskur dagsins - loðna 20.08.2026 14:00
Af hverju borga Færeyingar og Norðmenn miklu hærra verð fyrir loðnu og makríl en Íslendingar? Er það vegna þess að á Íslandi kaupa sömu menn fisk og selja hann? Er verið að svindla á sjómönnum, sveitarfélögum og ríkissjóði, eða erum við bara með öðruvísi kerfi, sem skilar sömu niðurstöðu? Umsjón: Helgi Seljan
Er æskilegt að framleiða bætiefni úr hvalkjöti? 19.08.2026 12:24
Morgunblaðið greindi frá því í upphafi viku að Hvalur hf. ætlaði að hætta að selja Japönum hvalkjöt í bili en nýta kjöt af langreyðum þess í stað til framleiðslu á járnbætiefni. Í þætti dagsins beinum við sjónum að járnskorti og þeirri hugmynd að framleiða járnbætiefni úr hvalkjöti. Viðmælendur: Jóhanna Eyrún Torfadóttir, dósent í næringarfræði og verkefnastjóri hjá Landlæknisembættinu Edda Elísab...
Svona kom saga Manongs til rithöfundarins Sjóns 18.08.2026 15:19
Í þættinum í gær var sagt frá sögu Suður-Afríkumannsins Johannes Manong hér á Íslandi á árunum 1964 og 1965. Manong lenti í kynþáttaofbeldi frá nýnasistum á Íslandi þegar hann vildi setjast hér að til að leggja stund á tannlækningar og var hrakinn frá landinu. Bréf með hakakrossi var sent til Manongs og haldin var krossbrenna fyrir utan Stúdentagarðana sem var í fjölmiðlum sögð minna á aðferðir Ku...
Saga Suður-Afríkumannsins sem lenti í nýnasistum á Íslandi 17.08.2026 15:33
Í lok árs 1964 kom tæplega þrítugur Suður-Afríkumaður hingað til lands og vildi fá inngöngu í Háskóla Íslands. Hann hét Johannes Manong og hafði lent í pólitískum ofsóknum í Suður-Afríku á dögum aðskilnaðarstefnunnar samkvæmt fréttum í blöðum frá þessum tíma. Áður en Johannes Manong kom til Íslands eftir að hafa flúið frá Suður-Afríku sendi hann bréf á undan sér til Stúdentaráðs Háskóla Íslands og...
Opnun hringvegarins um Ísland og upphaf vegasjoppumenningar 14.08.2026 16:50
Sagnfræðingurinn Arnþór Gunnarsson hefur skrifað bók um hringveginn um Ísland. Þar fjallar hann fjallar um það hvaða áhrif opnun hringvegar um Ísland hafði fyrir landann. Hringvegurinn varð til sem heild árið 1974 þegar þjóðvegur landsins var tengdur í hring með opnun brúar yfir Skeiðará á Suðurlandi. Bókin er gefin út í nýrri seríu frá Sögufélaginu þar sem fjallað er um söguleg mál í stuttum, aðg...
Fréttirnar í viðtalinu við Björgólf Thor 13.08.2026 16:00
Í júlí var sagt frá því að auðmaðurinn Björgólfur Thor Björgólfsson hefði flutt lögheimili sitt frá Bretlandi til borgarinnar Mílanó á Norður-Ítalíu. Í viðtali við fréttaveituna Bloomberg sagði Björgólfur Thor frá því að skattalegar ástæður væru fyrir þessum flutningi þar sem ríkisstjórn Verkamannaflokksins hefði breytt aldagömlu skattkerfi sem var hagstætt alþjóðlegum fjárfestum. Björgólfur Thor...
Almyrkvinn 1954 12.08.2026 14:09
Í þætti dagsins beinum við sjónum að almyrkva á sólu sumarið 1954. Rætt er við Gunnstein Gunnarsson, lækni, sem fór með föður sínum að fylgjast með myrkvanum, þá sextán ára. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
Sjálfsmorð Schraders á hafi úti 11.08.2026 17:00
Í þættinum í dag er sagt frá afdrifum þýsk-bandaríska uppfinningamannsins og milljónamæringsins Georg Schrader sem dvaldi á Akureyri á árunum 1912 til 1915. Í nóvember árið 1915 skaut Schrader sig á þilfarinu á síldarbátnum Helga Magra sem hann hafði fengið far með til Noregs. Fyrri heimsstyrjöldin var þá í fullum gangi og Schrader var illa haldinn af taugasjúkdómi. Í þættinum í gær var sagt frá þ...
Dularfulli uppfinningamaðurinn sem elskaði íslenska hestinn 10.08.2026 16:59
Þýsk-bandarískur uppfinningamaður, Georg Schrader, sem fann upp frægasta loftventil í heimi dvaldi síðustu þrjú æviárin á Akureyri í upphafi síðustu aldar. Hann bjó á hóteli allan tímann og bað vertinn um að sjá til þess að alltaf væri til kampavín á hótelinu. Af hverju Schrader kom til Íslands til að byrja með liggur ekki fyllilega fyrir. Ásgeir Jónsson, rithöfundur og seðlabankastjóri, hefur kyn...
Staðan á leigumarkaði í ljósi breytinga í New York 30.06.2026 15:48
Í Þetta helst í dag er sjónum beint að stöðunni á leigumarkaði hér á landi. Ákveðið var að frysta leiguverð í New York í lok síðustu viku. Væri æskilegt að fara svipaða leið hér? Rætt er við Kristínu Amalíu Líndal, hagfræðing hjá HMS, og Yngva Ómar Sigrúnarson, formann Samtaka leigjenda. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
Podcasts similares
Replaio no es editor de podcasts; los nombres de los programas, las portadas y el audio pertenecen a sus autores y se distribuyen a través de canales RSS públicos