RÚV

Þetta helst

News IS ↓ 773 episodios

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.

No dejes de visitar la web del podcast y apoyar a su creador: www.ruv.is

Autor

RÚV

Categoría

News

Web del podcast

www.ruv.is

Último episodio

20 de oct. de 2026

¿Dónde escuchar?

Podcasts en la app Replaio Radio Muy pronto

Los podcasts llegarán muy pronto a la app. Instálala ahora y sé el primero en descubrir una forma totalmente nueva de vivir los podcasts

Descárgala en Google Play Instálala gratis Android casi 10 M de descargas · valoración de 4,8 iOS muy pronto

Episodios

Ástarsagan í kastalanum: ,,Einhvern veginn varð Sigurður að ná henni vestur” 09.05.2025

Í áratugi hefur kastalahúsið á Arngerðareyri í Ísafirði vakið aðdáum og furðu fólks sem hefur farið um Djúpið. Bygging hússins leiddi til þess að kaupfélagið sem byggði húsið, og Sigurður Þórðarson stýrði, varð gjaldþrota árið 1934. Sigurður hafði þá búið í húsinu ásamt eiginkonu sinni Ástu Jónsdóttur í nokkur ár. Samtímamenn Sigurðar furðuðu sig á því af hverju þetta hús var byggt á þessum stað o...

Úlfar Þormóðs: „Hallærisleg sýning“ hjá Listasafni Íslands 08.05.2025

Sýning Listasafns Íslands á fölsuðum verkum er síðasta verk Ólafs Inga Jónssonar forvarðar fyrir safnið. Með henni vill hann vekja fólk til umhugsunar um hvernig verk í stóra málverkafölsunarmálinu voru fölsuð. Verkin voru á sínum tíma rakin til Gallerís Borgar. Úlfar Þormóðsson, stofnandi Gallerís Borgar, gefur ekki mikið fyrir þetta framtak Listasafns Íslands. Hann er að skrifa bók um sína hlið...

Spurningarnar sem vakna um starfslok Kára og arfleifð hans 07.05.2025

Brottrekstur Kára Stefánssonar hjá Íslenskri erfðagreiningu hefur verið mikið til umfjöllunar í fjölmiðlum síðustu daga. Starfslok hans eru ekki ennþá að fullu útskýrð. Eigandi íslenskrar erfðagreiningar, bandaríska lyfjaþróunarfyrirtækið Amgen, hefur ekki viljað svara spurningum um starfslokin nema að litlu leyti. Fyrirtækið hefur sagt að það hafi verið strategísk ákvörðun hjá fyrirtækinu að brey...

Skólar vilja ekki ClubDub vegna ummæla Brynjars 06.05.2025

Tónlistarmaðurinn Brynjar Barkarson, eða Lil Binni eins og hann kallar sig, birti á hugleiðingar sínar um innflytjendamál á samfélagsmiðlum í síðustu viku. Brynjar er annar tveggja meðlima í Club dub, sem er ein vinsælasta hljómsveit landsins. Viðbrögð við orðum Brynjars hafa vakið hörð viðbrögð og orðið til þess að bandið hans var afbókað af grunnskólaböllum í Reykjavík.

,,Tékkneski sfinxinn" sem vill flytja út vikur úr Kötlu 05.05.2025

Fyrirtæki tékkneska milljarðamæringins Daniel Kretinsky vill byggja tveggja kílómetra langa bryggju við Alviðruhamra á austanverðum Mýrdalssandi á Suðurlandi. Hann vill nota bryggjuna til að flytja út allt að fimm milljónir tonna af vikri frá Íslandi á ári. Umhverfismat á verkefninu stendur nú yfir. Efnið sem fyrirtækið vill flytja út um þess bryggju er gjóska sem féll til við eldgos í Kötlu árið...

Það sem trekkir Justin Bieber í Fljótin 02.05.2025

Justin Bieber dvelur nú á lúxushótelinu Depplum í Fljótunum í Skagafirði. Í þættinum forvitnumst við um það sem trekkir fólk eins og hann á þennan afskekkta stað. Við ræðum um áhrifin sem ferðaþjónusta fyrir ríka fólkið hefur á litla sveit eins og Fljótin. Þar sem veðráttan er miskunnarlaus, vegir afleiddir og margir bændur hafa brugðið búi. Um svipað leyti og grunnskólinn lagðist af urðu þyrlur o...

Novatormennirnir í njósnaupptökunum 30.04.2025

Í um 15 ár hafa tveir nánustu samstarfsmenn Björgólfs Thors Björgólfssonar fjárfestis og ríkasta manns Íslands verið tiltölulega lítið til umfjöllunar í fjölmiðlum miðað við hvað þeir eru umsvifamiklir. Þetta eru þeir Birgir Már Ragnarsson og Andri Sveinsson sem unnu lengi með Björgólfi Thor hjá fjárfestingarfélaginu Novator. Stundum hafa þeir verið kallaðir vinstri og hægri hönd Björgólfs Thors....

Fólkið sem elskar Fjarðarkaup 29.04.2025

Verslunin Fjarðarkaup í Hafnarfirði er eins og hálfgert tímahylki, því þar er allt svolítið uppá gamla mátann. Starfsfólk í rauðum sloppum á gólfinu tilbúið til að aðstoða viðskiptavininn með hvað sem er. Fjarðarkaup hefur hvorki farið í útrás né í netverslun. Það er persónuleg þjónusta og gott vöruúrval sem þeir bræður, Sveinn og Gísli Sigurbergssynir, leggja áherslu á í sínum verslunarrekstri. O...

Auglýsingaherferð SFS vekur hörð viðbrögð og umræður 28.04.2025

Auglýsingaherferð Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) þar sem fyrirliggjandi veiðigjaldafrumvarp ríkisstjórnarinnar er gagnrýnt hefur vakið mikla athygli. Um er að ræða myndbönd sem tekin er upp í fjórum sjávarútvegsbæjum á landsbyggðinni þar sem ungt fólk lýsir jákvæðum áhrifum kvótakerfisins og útgerðanna á viðkomandi samfélög. Bæirnir þar sem myndböndin eru tekin upp eru: Eskifjörður, Grund...

Tímamót í meðhöndlun á Alzheimer 25.04.2025

Talið er að amk 6000 manns glími við heilabilun á Íslandi. Því þykir fagnaðarefni að lyfið Leqembi hafi fengið markaðsleyfi hér á landi. Lyfið er sagt það fyrsta sem virðist hafa áhrif á undirliggjandi ferli Alzheimer-sjúkdómsins. Öldrunarlæknar tala um tímamót í viðeign við þennan ömurlega sjúkdóm. Við spyrjum þær Helgu Eyólfsdóttur yfirlækni minnismóttökunnar og öldrunarlækninn Steinunni Þórðard...

Minnisvarði um stórhuga ,,aristókrata" 23.04.2025

,,Kastalinn” svokallaði á Arngerðareyri í Ísafirði á Vestfjörðum hefur um áratugaskeið vakið aðdáun og furðu. Kaupfélagsstjórinn Sigurður Þórðarson lét hið pínulitla Kaupfélag Nauteyrarhrepps reisa húsið yfir sig fyrir tæpum hundrað árum. Bygging hússins leiddi til þess að kaupfélagið varð gjaldþrota. Til þess að skilja af hverju í ósköpunum þetta litla kaupfélag byggði þennan steinsteypta kassa í...

,,Þeir vilja drepa mig" 16.04.2025

Íslensk stjórnvöld sendu sextán ára gamlan dreng frá Kolumbíu í lögreglufylgd til heimalands síns í október í fyrra. Hann var sendur úr landi ásamt föður drengsins sem hafði beitt hann ofbeldi og afsalað sér forræði yfir honum. Drengurinn bjó einn á götunni í höfuðborg Kólumbíu, Bogatá, í einn mánuð eftir komuna til landsins þar sem faðir hans yfirgaf hann samstundis. Bogatá er ein hættulegasta bo...

,,Skilyrði” stjórnenda Janusar: Starfsmenn áttu að fá sömu laun hjá ríkinu 15.04.2025

Stjórnendur fyrirtækisins Janusar settu íslenska ríkinu fjölþætt skilyrði í viðræðum um mögulegan nýjan samning við Sjúkratryggingar Íslands. Skilyrðin voru meðal annars þau að eftir að íslenska ríkið myndi taka Janus yfir yrði starfsemin að öllu leyti óbreytt. Þá er átt við sama skipulag, stjórnun og starfsmannahald. Eitt af því sem fólst í skilyrðunum var að engar breytingar yrðu gerðar á kjörum...

Óvæntar upplýsingar um háhyrningamálið 14.04.2025

Þegar Þetta helst hafði lokið þriggja þátta umfjöllun um háhyrningaveiðar Sædýrasafnsins, þá barst þættinum óvæntur tölvupóstur frá hlustanda. Pósturinn var frá hinni 21 árs gömlu Sigrúnu Helgudóttur sem hefur skrásett örlög hvers einasta háhyrnings sem veiddur var við Íslandsstrendur. Og Sigrún færði okkur fréttir. Umsjón: Þóra Tómasdóttir

Fólkið sem flýr pólitískar ofsóknir í Venesúela 11.04.2025

Íslendingar hafa fengið innsýn í harðari og hættulegri veruleika en fólk á að venjast hér á landi í gegnum fjölda Venesúelabúa sem hafa flutt til Íslands á liðnum árum. Sumir þessara Venesúelabúa hafa sagt sögur sínar í fjölmiðlum þar sem þeir greina frá því að þeir hafi tekið þátt í pólitísku starfi í heimalandinu. Þeir hafa sagt frá því að í kjölfarið að hafi þeir lent í ofsóknum einræðisherrans...

„Kominn tími til að vísa Ísrael úr keppni“ 10.04.2025

Íslenska kvennalandsliðið í handbolta spilar nú tvo leiki við ísraelska landsliðið um laust sæti á heimsmeistaramóti sem fram fer í Þýskalandi og Hollandi í haust. Íþróttafréttamennirnir Valur Páll Eiríksson og Einar Örn Jónsson segja öskrandi tvískinnung að Rússum sé vísað úr alþjóðlegum íþróttamótum á meðan Ísrael fær að taka þátt.

„Í tísku“að kyrkja konur 09.04.2025

Ungir menn virðast í auknum mæli taka ungar konur kverkataki og þrengja að öndunarvegi þeirra. Kyrkingar eða „choking“ virðast sífellt fyrirferðameiri í klámi. Í þessum þætti heyrum við í konu sem hefur orðið ítrekuðum kverkatökum og áhyggjur fagfólks af áhrifum kláms. Viðmælendur: Jenný Kristín Valberg, Drífa Snædal, Þóra Jónasóttir, Marta Kristín Hreiðarsdóttir og Jón Gunnar Þórhallsson. Umsjón:...

Íslenskir háhyrningar enn sýningargripir í dýragörðum 08.04.2025

Í þriðja þætti um háhyrningaveiðar og viðskipti Sædýrasafnsins fáum við að heyra lýsingar forstöðumanns safnsins á því hvernig veiðarnar fóru fram. Afleiðingar af þessum veiðum eru endalausar deilur milli dýraverndunarsinna, hvalasérfræðinga og dýragarða víða um heim. Viðmælendur: Sigursteinn Másson og Edda Elísabet Magnúsdóttir. Umsjón: Þóra Tómasdóttir

Hrun á hlutabréfamörkuðum um allan heim 07.04.2025

Kauphallir um allan heim eru rauðglóandi eftir að Donald Trump forseti Bandaríkjanna snarhækkaði tolla á innfluttar vörur í síðustu viku. Hörður Ægisson viðskiptablaðamaður skýrir hvernig áhrif tollastríðsins birtast okkur á mörkuðum í dag. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson.

„Skammarleg saga“ af sölu háhyrninga í dýragarða 04.04.2025

Háhyrningar sem veiddir voru við strendur Íslands og seldir í dýragarða, eignuðust afkvæmi sem nú er tekist á um hvað eigi að gera við. Þeir hafa verið í dýragörðum alla ævi og náð háum aldri. Við ræðum við Eddu Elísabetu Magnúsdóttur, Sigurstein Másson og Ragnhildi Jónsdóttur. Þetta er annar þáttur af þremur um háhyrningaviðskiptin. Umsjón Þóra Tómasdóttir.

Átök um íslenska háhyrninga í dýragörðum 03.04.2025

Dýraverndunarsinnar hafa boðað til mótmæla við sædýrasafnið í Antibes í Frakklandi um helgina. Ástæðan er að til stendur að flytja tvo íslensk-ættaða háhyrninga úr garðinum og í dýragarðinn Loro Parque á Tenerife. Málið hefur farið fyrir franska dómsstóla en algjör óvissa ríkir um framtíð dýranna. Saga háhyrninganna er skrítnari en þig grunar. Þóra Tómasdóttir ræðir við Ragnhildi Jónsdóttur sem ól...

Gagnrýna Air Atlanta fyrir verktakasamninga við flugvirkja 02.04.2025

Flugvirkjafélag Íslands er ósátt við flugfélagið Air Atlanta vegna þess að það hefur ekki viljað ráða flugvirkja sem launþega nema að litlu leyti. Aðrir eru meðal annars starfsmenn hjá áhafnarleigunni Airborne á Möltu. Fjallað hefur verið um flugfélagið Air Atlanta í tveimur þáttum af Þetta helst síðaastliðina viku. Sá þriðji er þessi hér. Eftir að fyrsti þátturinn af Þetta helst um Air Atlanta va...

Njósnir Kínverja og viðskiptatengsl við Ísland 01.04.2025

Blaðamaðurinn Helgi Steinar Gunnlaugsson hefur stúderað Kína öll sín fullorðinsár. Hann lærði alþjóðasamskipti í Pekíng og er einn fárra Íslendinga sem talar reiprennandi kínversku. Við ætlum að spyrja hann út í tollastríðið Bandaríkjanna og Kína, viðskiptatengsl Íslands og Kína og ekki síst, njósnir Kínverja á Íslandi sem ríkislögreglustjóri hefur áhyggjur af. Umsjón: Þóra Tómasdóttir

Air Atlanta hefur greitt út 23 milljarða til eigenda 31.03.2025

Air Atlanta hefur um árabil haft erlendar flugfreyjur í vinnu hjá sér í gegnum starfsmannaleigu á Möltu. Flugfreyjurnar eru meðal annars frá löndum eins og Indonesíu og Malasíu. Þær eru með um 50 dollara, tæplega, sjö þúsund krónur, í laun á dag, Baldvin Már Hermannsson forstjóri Air Atlanta segir í svari við spurningum Þetta helst um launakjör flugfreyjanna að erfitt sé að bera laun saman á milli...

Guðmundur Ingi feginn að vera með vinnu 28.03.2025

Guðmundur Ingi Kristinsson, nýr menntamálaráðherra, er 69 ára gamall með ríkulega lífsreynslu. Hann hefur setið á þingi fyrir Flokk fólksins síðan 2017 en svo á hann líka að baki reynslu sem er ekki auðvelt að gera skil í hefðbundinni ferilskrá. Reynslu af því að verða fyrir slysum, þurfa að reiða sig á almannatryggingakerfið og ekki síst, vinna sig aftur út í atvinnulífið eftir langa fjarveru. Á...

Escucha el podcast Þetta helst en Replaio

Radio y podcasts en una sola app - gratis y sin registro. Instálala hoy y no te pierdas el estreno

Descárgala en Google Play

Replaio no es editor de podcasts; los nombres de los programas, las portadas y el audio pertenecen a sus autores y se distribuyen a través de canales RSS públicos