Ágúst Halldórsson
Stjáni
Stjáni á Emmunni segir frá öllu milli himins og jarðar. Línan á að vera æviágrip í Vestmannaeyjum. En Stjáni á það til að fara allt aðrar leiðir en hann á að fara. Bæði í sögum og skoðunum. Ef þú ert viðkvæm manneskja fyrir gömlum karli sem er sama hvað öllum öðrum finnst. Mælum við með að fólk stilli yfir á Bylgjuna.
No dejes de visitar la web del podcast y apoyar a su creador: podcasters.spotify.com
Autor
Ágúst Halldórsson
Categoría
Web del podcast
Último episodio
25 de jun. de 2025
¿Dónde escuchar?
Podcasts en la app Replaio Radio Muy prontoLos podcasts llegarán muy pronto a la app. Instálala ahora y sé el primero en descubrir una forma totalmente nueva de vivir los podcasts
Episodios
9. þáttur - Þetta er vísindalega sannað! 25.06.2025 1:01:43
Stjáni var að drekka sinn fjórða Collab þegar þátturinn var tekinn upp. Pínu víraður en í topp formi. Farið yfir húsasmíðina á Illugagötunni þar sem Stjáni byggði sér og fjölskyldunni hús. Pólitíkin og boðorðin tvö sem hann bjó til sjálfur. 11. Aldrei segja aldrei. 12. Ekki treysta þingmönnum og ráðherrum. Veit ekki hvað Móses myndi segja við þessu en við fáum örugglega aldrei svar við þeirri spur...
8. þáttur - Sjanghæjaður Ríkharður Zóëga 02.06.2025 1:16:50
Fyrsti gestur í Stjána í hliðarverkefninu sem við köllum “Inn fyrir landhelgi”. Það er fyrrum bóhemlistamaðurinn Ríkharður Zóëga kokkur sem við sjanghæjuðum í spjall. Hann fer yfir gamlar og nýjar sögur. Hvernig hann endaði á eyjunni og hvar þetta allt saman byrjaði. Allt upp á tíu í þessum þætti.
7. þáttur - Norskir brjóstdropar við kulnun? 22.05.2025 51:34
Farið var um víðan veg. Báðir hálfslappir af flensu en látum það ekkert á okkur fá. Gott spjall þangað til við fórum í veiðileyfagjaldið. Þá náðum við púlsinum hjá Stjána heldur betur upp.
6. þáttur - Villi Túlípani og baðlón kynt með líkbrennslu 07.05.2025 54:50
Stjáni fer yfir hugmyndir hvernig Vestmannaeyjar geta orðið frumkvöðlar í líkbrennslu. Hvernig gömlu skipstjórarnir vissu að staðsetningin á Landeyjahöfn var vitlaus frá upphafi og fullt af fróðleik eins og gera má ráð fyrir. Ætluðum að fara í húsasmíðina á Illugagötu og hvernig hann náði í Emmu konuna sína. En töluðum of mikið og stefnum á það í næsta þætti.
5. þáttur - Kolagrill og tvær rúllur 28.04.2025 50:00
Stjáni kemur á óvart og biður mig um að fara ekki í viðfangsefni þáttarins fyrr en í næsta þætti. Svo þessi er út um allt. Spurningar sem gleymdust og redding.
4. þáttur - Ris og sala útgerðarmannsins 19.04.2025 57:16
Útgerðarsagan. Kvótakerfið. Baráttan við fiskvinnsluna. Eigin fiskvinnsla. Upphaf gámaútfluttnings og fróðleikur um lífið.
3. þáttur - Sjávarháski sunnan við Surtsey 09.04.2025 1:01:25
Stjáni fer yfir fyrstu árin sem skipstjóri og byrjunina á útgerðinni. Hvað varð til þess að hann og pabbi hans töluðust ekki við í langan tíma og sjávarháska sem hann lenti í sem skipstjóri á Leó VE 400.
2. þáttur - Milli landa og laga 04.04.2025 1:03:19
Stjáni fer yfir fyrstu sporin í sjómennskunni, siglingarnar, tónlistina og hvernig hægt er að drepa í sér sæðið í nokkra klukkutíma bara með heitu vatni.
1. þáttur - Bernskuspor 29.03.2025 48:44
Stjáni fer yfir fyrsta hluta ævi sinnar. Frá fæðingarárinu 1946 að unglingsaldri. Einnig er erfitt að stoppa okkar mann þegar hann fer á flug svo það er farið um víðan völl.
Podcasts similares
Replaio no es editor de podcasts; los nombres de los programas, las portadas y el audio pertenecen a sus autores y se distribuyen a través de canales RSS públicos