Söguskoðun hlaðvarp

Söguskoðun

Andri Jónsson og Ólafur Hersir Arnaldsson ræða sögu og sagnfræðileg málefni á léttu nótunum. 

Autor

Söguskoðun hlaðvarp

Categoría

History

Web del podcast

www.soguskodun.com

Último episodio

7 de jul. de 2026

¿Dónde escuchar?

Podcasts en la app Replaio Radio Muy pronto

Los podcasts llegarán muy pronto a la app. Instálala ahora y sé el primero en descubrir una forma totalmente nueva de vivir los podcasts

Descárgala en Google Play Instálala gratis Android 5 M+ de descargas · valoración de 4,8 iOS muy pronto

Episodios

101 - Á söguslóðum: Orrustan um Narvik 1940 20.12.2024

Í framhaldi af hundrað þátta hittingi Söguskoðunarmanna í Norður-Noregi lögðu hlaðvarpsmenn land undir fót og héldu í vettvangsferð á söguslóður í Narvik.  Þann 9. apríl 1940 gerðu Þjóðverjar innrás í Danmörku og Noreg. Danmörk féll strax, en upphófst þá þriggja mánaða barátta um Noreg. Baráttan um Noreg hófst og lauk í Narvik, litlum hafnarbæ í Norður-Noregi þar sem sænskt járn hefur ætíð verið f...

99 - Síonisminn og stofnun Ísraelsríkis 1948 II. hluti 06.12.2024

Í þættinum í dag ræða Andri og Ólafur sögulegan aðdraganda stofnun Ísraelsríkis árið 1948, en stofnun þess ríkis átti heldur betur eftir að draga dilk á eftir sér og gerir enn. Síonisminn (eða Zíonisminn) er þjóðernishyggja Gyðinga, sem byggir á þeirri hugmynd að Gyðingar, sem öldum saman bjuggu innan um annað fólk í Evrópu, Asíu og í Afríku, ættu sér sögulegt heimaland í Palestínu og ættu að stof...

98 - Síonisminn og stofnun Ísraelsríkis 1948 I. hluti 06.12.2024

Í þættinum í dag ræða Andri og Ólafur sögulegan aðdraganda stofnun Ísraelsríkis árið 1948, en stofnun þess ríkis átti heldur betur eftir að draga dilk á eftir sér og gerir enn. Síonisminn (eða Zíonisminn) er þjóðernishyggja Gyðinga, sem byggir á þeirri hugmynd að Gyðingar, sem öldum saman bjuggu innan um annað fólk í Evrópu, Asíu og í Afríku, ættu sér sögulegt heimaland í Palestínu og ættu að stof...

97 - Saurmál á miðöldum 22.11.2024

Varúð! Þessi þáttur er helgaður mannaúrgangi. Ólafur og Andri halda áfram að velta fyrir sér mýtunni um hinar "myrku miðaldir" og að þessu sinni um ímynd okkar um að Evrópubúar miðalda hafi lifað í eintómum óhreinindum og sjúkdómum.  Voru vatsveitur, skólp, almenningssalerni og baðhús Rómverja af betri gæðum enn hjá miðaldamönnum? Var almennt hreinlæti á miðöldum verra en fyrri og seinni...

96 - Mólok og barnafórnir Föníkumanna 31.10.2024

Í tilefni hrekkjavökunnar komu Söguskoðunarmenn saman til að draga fram óhugnað úr fortíðinni.  Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér: Soguskodun.com | soguskodun@gmail.com Einnig á Facebook og Youtube . Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér .

95 - Föníka, fyrsta verslunarveldi fornaldar 25.10.2024

Í þættinum í dag komu Ólafur og Andri saman til að tala hið forna samfélag Föníkumanna við botn Miðjarðarhafs, en gullöld þeirra var á tímabilinu 1000-800 f.kr.  Föníkumenn voru fólk sem bjó á því svæði sem í dag er Líbanon. Deilt er um hvort kalla megi Föníka "þjóð" og samheldið menningarsamfélag, eða samansafn borgríkja. Mjög fáar skriflegar heimildir eru til um Föníka, og mest er til...

94 - Keltnesk kristni og uppruni Íslendinga 11.10.2024

Í þættinum í dag ræða Andri og Ólafur keltneska kristni, eða írsku miðaldakirkjuna og hugmyndir manna um möguleg áhrif hennar á Íslandi á landnámsöld. Oft hefur því verið haldið fram að keltnesk kristni hafi verið sérstök og frábrugðin öðrum hlutum kristindómsins á ármiðöldum. Írska kirkjan er kölluð klausturkirkja, þar sem ábótar höfðu meiri völd á kostnað biskupa og þar með kaþólsku kirkjunnar í...

93 - Hugmyndasaga, PTSD og andleg heilsa 27.09.2024

Hlaðvarpsmenn komu saman í dag til að ræða áfallastreituröskun (PTSD) og hugmyndasögulegan bakgrunn þess fyrirbæris í tengslum við hernað, og önnur tengd málefni. Í heimildum koma fyrir frásagnir af hegðun í tenglsum við hernað sem fræðimenn vilja stundum tengja við áfallastreituröskun og aðra nútímakvilla. Einnig má nefna heimþrá, nostalgíu, dansveiki, tunglsýki og suð-austur-asískar púkaofsóknir...

92 - Kommúnistaflokkur Íslands 06.09.2024

Í þættinum í dag ræða Andri og Ólafur um íslensku kommúnistahreyfinguna á millistríðsárunum og Kommúnistaflokk Íslands.  Eftir að hreyfing sósíalista á heimsvísu klofnaði í kjölfar fyrri heimsstyrjaldar og rússnesku byltingarinnar störfuðu sovéthollir byltingarsinnar á Íslandi innan Alþýðuflokksins á 3. áratugnum. Árið 1930 var Kommúnistaflokkurinn stofnaður, en hann var deild i Alþjóðasambandi ko...

91 - Nýlendur og nýlendustríð í Norður-Ameríku 23.08.2024

Þátturinn byrjar á 53. mínútu. Söguskoðunarmenn snúa aftur eftir sumarið til að taka gott spjall um nýlendur Englendinga og Frakka í Norður-Ameríku á síðari hluta 18. aldar.  Englendingar komu á fót nýlendum sínum þrettán meðfram austurströnd Norður-Ameríku á 17. öld. Frakkar settu á stofn gríðarstóra nýlendu meðfram Mississippifljóti frá Louisiana í suðri, og í norðri á því svæði sem í dag er Que...

90 - Sól og sagnfræði 05.07.2024

Í síðasta þætti hlaðvarpsins fyrir sumarfrí ræðum við um sagnfræði, herinn, hlaðvörp, bækur og fleira og fleira. Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér: Soguskodun.com | soguskodun@gmail.com Einnig á Facebook og Youtube . Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér .

89 - Um Júgóslavíu 1918-1941 08.06.2024

Andri og Ólafur komu saman til að ræða um Júgóslavíu sem sögulegt fyrirbrigði, stofnun hennar og fyrstu áratugi þess ríkis 1918-1941. Júgóslavía (Konungsríki Serba, Króata og Slóvena) varð til 1. desember 1918 við samruna Serbíu, Svartfjallalands, og suður-slavnesku landsvæðanna sem áður höfðu tilheyrt Austurríki-Ungverjalandi, Króatíu, Slóveníu og Bosníu. Ríkið var afleiðing Friðarráðstefnunnar í...

88 - Austurríki-Ungverjaland í fyrri heimsstyrjöld 31.05.2024

Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri um síðustu ár Austurríkis-Ungverjalands og þáttöku þess í fyrri heimsstyrjöld.  Austurríki-Ungverjaland var eitt þeirra gömlu keisaradæma sem féll eftir stríðið mikla 1914-1918, og tvístraðist í hin ýmsu þjóðríki. Fyrri heimsstyrjöld hófst þegar Austurríki-Ungverjaland lýsti yfir stríði gegn Serbíu eftir morðið á austurríska ríkiserfingjanum Franz Ferdinand í...

87 - Oppenheimer og kjarnorkusprengjan 10.05.2024

Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri um J. Robert Oppenheimer og fæðingu kjarnorskusprengjunnar Ólafur las bókina American Prometheus: The Triumph and Tragedy of J. Robert Oppenheimer eftir Kai Bird and Martin J. Sherwin en eftir henni var gerð kvikmynd um vísindamanninn með sínar ýmsu hliðar sem fékk mikla athygli á síðasta ári. Kjarnorkusprengjan var afrakstur rannsókna vísindamanna frá mörgum...

86 - Konstantínus mikli 03.05.2024

Í þættinum í dag ræða Söguskoðunarmenn rómarkeisarann Konstantínus I, sem er einn þeirra sem fengið hafa nafnbótina hinn mikli .  Konstantínus ruddist til valda í Rómaveldi árið 306 eftir talsvert valdabrölt innan fjórveldisins sem Díókletíanus kom á laggirnar eftir þriðju aldar kreppuna. Hann varð einvaldur árið 324 og ríkti sem slíkur í 19 ár. Var hann þaulsetnasti rómarkeisarinn á eftir Ágústus...

85 - Þriðju aldar kreppan í Rómaveldi 19.04.2024

Í þættinum í dag ræða Andri og Ólafur sögu Rómverska keisaradæmisins á 3. öld e. kr. en þá geisaði hin svonefnda þriðju aldar kreppa, sem varð ríkinu næstum að falli. Rómaveldi þanndist talsvert út á öldunum í kringum kristsburð. Fyrstu tvær aldir keisaradæmisins eru stundum talin gullöld ríkisins, en á 3. öldinni virtist allt ætla að fara á versta veg fyrir Rómverja. Á "tímabili herkeisarann...

84 - Reconquista 08.03.2024

Í framhaldi af umræðum okkar um Al-Andalus ræðum við  í þættinum í dag um "endurheimtina", eða reconquista , þegar kristnu ríkin á Íberíuskaga endurheimtu land Vísigota úr höndum múslíma. Reconquista var ekki eitt stríð, heldur aldalöng hægfara barátta - af og á - á milli hinna ýmsu ríkja múslíma og kristnu konungsríkjanna, Astúrías, Navarra, Kastillíu, Aragon, León og Portúgals. Endurhe...

83 - Al-Andalus: Veldi múslima á Spáni 02.03.2024

Í þættinum í dag ræða Andri og Ólafur veldi múslima á Spáni 711-1492.  Á 7. og 8. öld breiddist íslam leiftursnökkt út frá Arabíu í allar áttir. Árið 711 féll ríki Vísigota á Íberíuskaga fyrir Aröbum og Berbum frá Norður-Afríku, og á nokkrum árum lögðu múslimar nánast allan skagann undir sig.  Ríki múslima á Spáni var kallað Al-Andalús. Það var hluti av heimsveldi Umayyada, um tíma sjálfstætt emír...

82 - Um stríðslög og stríðsglæpi 16.02.2024

Þátturinn byrjar á 7. mínútu. Í framhaldi af umræðum okkar um Rauða krossinn ræða Söguskoðunarmenn í dag um málefni tengd Genfarsáttmálanum og öðrum alþjóðareglum sem gilda í stríði.  Menn hafa frá örófi alda reynt að hafa einhverjar hömlur á framgangi hernaðar. Í Evrópu á fornöld og á miðöldum þróaðist kenningin um réttlátt stríð, en á 19. og 20. öld urðu til umfangsmiklar alþjóðareglur um stríð...

81 - Rauði krossinn 09.02.2024

Í þættinum í dag ræða Andri og Ólafur sögu Rauða krossins, frá stofnun hans árið 1863 og fram á miðja 20. öld, en á þessu  ári eru einmitt 100 ár síðan landsdeild Rauða krossins á Íslandi var stofnuð í desember 1924.   Rauði krossinn er ein stærstu mannúðarsamtök heims með starfsemi öllum ríkjum heims. Höfuðstöðvar alþjóðahreyfingar Rauða krossins hafa alltaf verið í Genf í Sviss, en Alþjóðaráð Ra...

80 - Gítarþátturinn 26.01.2024

Í tilefni af 80. þætti hlaðvarpsins bregðum við út af vananum og ræðum eitthvað allt, allt annað... Við kynnum einnig til leiks nýja vefsíðu þáttarins: Soguskodun.com . Söguskoðun er einnig á Facebook , og á Youtube .  Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér: Soguskodun.com | soguskodun@gmail.com Einnig á Facebook og Youtube . Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér .

79 - Íslömsku "púðurveldin": Safavídar, Mógúlar og Ottómanar 12.01.2024

Ólafur og Andri settust niður til að ræða þrjú íslömsk ríki á árnýjöld; Ottómanaríkið, Safavídaríkið í Persíu og Mógúlaríkið á Indlandi, sem stundum hafa verið flokkuð til hinna svokölluðu "púðurvelda", eða gunpowder empires .  Hugtakið er eignað bandarísku heimssögusagnfræðingunum Marshall Hodgson og William McNiell, en þá var vísað til ýmissa þátta sem þessi þrjú ríki áttu sameiginlega...

78 - Krímstríðið 1853-1856 05.01.2024

Andri og Ólafur ræða í þessum þætti gang og afleiðingar Krímstríðsins 1853-1856 milli Rússa annars vegar og Frakka, Breta, Tyrkja og Sardiníumanna hins vegar.  Krímstríðið var fyrsta styrjöldin sem háð var á milli evrópsku stórveldanna eftir Vínarfundinn 1815. Hún var einnig fyrsta stórveldastríðið í Evrópu eftir að iðnbyltingin hóf innreið sína með tilheyrandi tækninýjungum. Þetta var svo að segj...

77 - Evrópski konsertinn og aðdragandi Krímstríðsins 29.12.2023

Þátturinn byrjar á 18 mínútu. Í þættinum í dag ræða Andri og Ólafur aðdraganda Krímstríðsins 1853-1856 og hið pólitíska landslag Vínarfundarins í Evrópu sem komið var á laggirnar 1815 þegar Napóleon var yfirbugaður.  Styrjöldin var háð á milli Rússneska keisaradæmisins og bandalags Frakka, Breta, Sardiníumanna og Tyrkja, en hún batt enda á áratuga langt friðartímabil í Evrópu sem kennt hefur verið...

76 - Jólaþáttur 2023 - Hinn sögulegi Jesús 25.12.2023

Í tilefni jólanna komu Söguskoðunarmenn saman til að ræða Jesú Jósefsson frá Nasaret, en hann fæddist (samkvæmt vestrænni hefð) á þessum degi fyrir 2727 árum, nánar tiltekið árið u.þ.b. 4 fyrir okkar tímatal. Ólafur setti upp guðfræðingagleraugun og fór yfir helstu atriði um hinn sögulega Jesú í tilefni dagsins. Eins eins og flestir vita var Jesús krossfestur árið c.a. 30, og eftir hans dag varð t...

Escucha el podcast Söguskoðun en Replaio

Radio y podcasts en una sola app - gratis y sin registro. Instálala hoy y no te pierdas el estreno

Descárgala en Google Play

Replaio no es editor de podcasts; los nombres de los programas, las portadas y el audio pertenecen a sus autores y se distribuyen a través de canales RSS públicos