RÚV Hlaðvörp

Silfrið

News IS ↓ 44 episodios

Sigríður Hagalín Björnsdóttir, Valgeir Örn Ragnarsson og Bergsteinn Sigurðsson fá til sín gesti til að kryfja með sér atburði liðinnar viku og pólitískt landslag hverju sinni. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

No dejes de visitar la web del podcast y apoyar a su creador: shows.acast.com

Autor

RÚV Hlaðvörp

Categoría

News

Web del podcast

shows.acast.com

Último episodio

28 de sep. de 2026

¿Dónde escuchar?

Podcasts en la app Replaio Radio Muy pronto

Los podcasts llegarán muy pronto a la app. Instálala ahora y sé el primero en descubrir una forma totalmente nueva de vivir los podcasts

Descárgala en Google Play Instálala gratis Android casi 10 M de descargas · valoración de 4,8 iOS muy pronto

Episodios

Siðferðislegt hugleysi og heimurinn í dag 28.09.2026

Ræða Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna vakti heimsathygli um helgina, þar sem hún sneri ásökunum Benjamíns Netanyahus um siðferðislegt hugleysi upp á hann sjálfan, og gagnrýndi þá þjóðarleiðtoga sem stunda stríðsrekstur og brot á alþjóðalögum. Silfrið verður helgað umræðu um framtíð alþjóðakerfisins, friðsamlegs samstarfs þjóða heims og stöðu Í...

Trumpískar vindmyllur og tjóðruð gervigreind 21.09.2026

Eftir öryggisbrest hjá OpenAI í sumar hafa forkólfar nokkurra stærstu tæknifyrirtækja heims kallað eftir því að hægt verði á þróuninni. Á sama tíma eru fjárfestingar í gervigreind og orkuöflun fyrir hana orðnar mikilvægur drifkraftur hagvaxtar í Bandaríkjunum og Kína. Hvaða áhrif hefði það á heimsbúskapinn - og Ísland - ef hægt yrði á kapphlaupinu? Og hversu mikla orkuöflun á kostnað náttúruauðlin...

Þessi þungu högg - sleggjan og hallalaus fjárlög 14.09.2026

Fjárlagafrumvarpið og þingmálaskrá vetrarins verða efst á baugi í Silfrinu í kvöld. Eru hallalaus fjárlög lykillinn að lægri verðbólgu eða eru skatta- og gjaldskrárhækkanir olía á eldinn?  Þingmennirnir Ása Berglind Hjálmarsdóttir, Hildur Sverrisdóttir, Sigurjón Þórðarson og Þórarinn Ingi Pétursson fara yfir stöðuna Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Ísland - hvað nú? Verkefnalistinn eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna 08.09.2026

Þjóðin hefur svarað spurningunni um það hvort hefja eigi á ný aðildarviðræður við ESB. Svarið var neitandi, en þó standa eftir margar spurningar sem þarf að svara á næstu misserum. Silfrið verður helgað þeim verkefnum sem framundan eru í hagkerfinu og samskiptum Íslands við umheiminn, m.a. í gegnum EES-samninginn og Atlantshafsbandalagið. Gestir verða Benedikt Gíslason, forstjóri Arion banka, Berg...

Formenn gera upp þjóðaratkvæðagreiðslu 01.09.2026

Meirihluti kjósenda hafnaði í gær að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Formenn stjórnmálaflokka á Alþingi gera þjóðaratkvæðagreiðsluna upp í Silfrinu. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Kjör almennings og viðsjár í veröldinni 01.09.2026

Kjósendur velta fyrir sér kostum og göllum þess að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið, hver áhrifin gætu orðið á kjör almennings í landinu, lífsgæði, verðlag og húsnæðismál. Þá bárust þær fréttir í vikunni að yfirhershöfðingi NATO vilji fast herlið á Íslandi. Gestir þáttarins eru Brynhildur Pétursdóttir framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna, Helga Rósa Másdóttir formaður Félags hjúkrunar...

Atvinnulífið, fullveldið og Evrópusambandið 01.09.2026

Fólkið og fyrirtækin í landinu velta fyrir sér kostum og göllum þess að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. En önnur verkefni bíða líka; forsendur kjarasamninga eru brostnar og óvíst hvernig megi berja í brestina svo samningarnir haldi. Þjóðaratkvæðagreiðslan hefur líka vakið þjóðina til umhugsunar um fullveldi sitt og sambandið við umheiminn. Gestir þáttarins eru Guðni Th. Jóhannesson...

Formenn takast á um aðildarviðræður 01.09.2026

Silfrið hefur göngu sína á ný að loknu sumarleyfi. Það styttist í þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB. Formenn stjórnmálaflokka á Alþingi -  Kristrún Frostadóttir, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Inga Sæland, Guðrún Hafsteinsdóttir, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Lilja Alfreðsdóttir - mætast í beinni útsendingu. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

36. þáttur: Um hvað yrði samið í nýjum aðildarviðræðum? 09.06.2026

Hvað gerist ef þjóðin greiðir atkvæði með því að hefja aftur aðildarviðræður við Evrópusambandið 29. ágúst? Stefán Haukur Jóhannesson sendiherra og aðalsamningamaður Íslands í aðildarviðræðunum 2009-2013 segir frá samningaferlinu og því ferli sem tekur við ákveði Íslendingar að ganga aftur að samningaborðinu. Í síðari hluta þáttarins koma Gylfi Magnússon hagfræðiprófessor við HÍ, Margrét Einarsdót...

35. þáttur: Hvað myndi það þýða fyrir Ísland að ganga í Evrópusambandið 05.06.2026

Í þætti kvöldsins verður rætt um hvað það myndi þýða fyrir Ísland að ganga  í Evrópusambandið. Gestir þáttarins: Dagur B. Eggertsson þingmaður Samfylkingarinnar Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra úr Viðreisn Lilja D. Alfreðsdóttir formaður Framsóknarflokksins Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

34. þáttur: Örmagna oddvitar gera upp kosningar 18.05.2026

Silfrið verður á sunnudagskvöldi í þessari viku vegna sveitarstjórnarkosninga. Oddvitar þeirra sjö framboða sem náðu kjöri í Reykjavík fara yfir kosningaúrslitin og ræða hugsanlegar meirihlutamyndanir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

33. þáttur: Um hvað er kosið? Sveitarstjórnarmálin í fókus 12.05.2026

Þjóðin gengur til kosninga eftir fimm daga, en um hvað er kosið? Reyndir sveitarstjórnarjaxlar spá í kosningaspilin og skiptast á reynslusögum; þau Birkir Jón Jónsson, Grímur Atlason, Heiða Kristín Helgadóttir og Ragnheiður Ríkharðsdóttir. Sigríður Hagalín Björnsdóttir hefur umsjón með þættinum. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

32. þáttur: Kosningabaráttan á fullu 05.05.2026

Í fyrri hlutanum rýnum við sveitarstjórnarkosningarnar sem fara fram eftir tæpar tvær vikur. Gestir: Sunna Sæmundsdóttir fréttastjóri á fréttastofu Sýnar Eva Marín Hlynsdóttir prófessor í stjórnmálafræði Magnús Geir Eyjólfsson þingfréttamaður RÚV Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir ráðgjafi Í seinni hlutanum er rætt við blaðamanninn og rithöfundinn Evan Osnos um stöðuna í bandarískum stjórnmálum. Hosted...

31. þáttur: Umhverfisumræðan sem hvarf 28.04.2026

Um 2500 manns eru talin hafa tekið þátt í Grænu göngunni 2026 á sumardaginn fyrsta. Stjórnvöld voru harðlega gagnrýnd fyrir áherslur sínar í umhverfis- og orkumálum, og fyrir að standa ekki vörð um íslenska náttúru. Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra mætir í Silfrið ásamt Þorgerði Maríu Þorbjarnardóttur formanni Landverndar, Höllu Hrund Logadóttur þingmanni Framsóknarflo...

30. þáttur: Dökk mynd dregin upp af sjávarútvegi 21.04.2026

Gestir Silfursins eru Eyrún Magnúsdóttir, ritstjóri Gímaldsins, Gréta María Grétarsdóttir, verkfræðingur og fyrrverandi framkvæmdastjóri Prís, Halldór Halldórsson, forstjóri Íslenska kalkþörungafélagsins og Svandís Svavarsdóttir, fyrrverandi formaður Vg. Umfjöllun Berlinske um íslenskan sjávarútveg vakti mikla athygli um helgina. Þar dregin upp dökk mynd af greininni og pólitískum ítökum útgerðari...

29. þáttur: Forsætisráðherra ræðir efnahagsmálin 14.04.2026

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra er í viðtali í fyrri hluta þáttarins um stöðu efnahagsmála. Í seinni hlutanum höldum við áfram að ræða við oddvita framboða í borgarstjórnarkosningunum í Reykjavík. Gestir: Silja Sóley Birgisdóttir, Sósíalistaflokkur Íslands Ingimar Þór Friðriksson, Góðan daginn framboðið Sigfús Aðalsteinsson, Borgin okkar. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more info...

28. þáttur: Bjarni Benediktsson kallar eftir þjóðarsátt 01.04.2026

Bjarni Benediktsson, fyrrverandi forsætis- og fjármálaráðherra, er nýráðinn framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Hann fer yfir stöðuna í efnahagsmálum, forsendur kjarasamninga, og hvað þurfi að gerast að hans mati til að kveða niður verðbólgu og stýrivexti. Efnahagsmálin eru áfram til umræðu í vettvangi dagsins. Gestir eru Ásgeir Brynjar Torfason, ritstjóri Vísbendingar, Bjarnheiður Hallsdótti...

27. þáttur: Vextir hækka á ný og oddvitar ræða borgarmálin 24.03.2026

Seðlabankinn hefur hækkað vexti í fyrsta sinn í tvö og hálft ár. Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri kemur til að ræða ákvörðunina og hvert stefnir í efnahagsmálunum. Síðari hluti þáttarins er helgaður borgarpólitíkinni með oddvitunum Ara Edwald frá Miðflokki, Einari Þorsteinsson frá Framsóknarflokki, Kristni Jóni Ólafssyni Pírata og Sönnu Magdalenu Mörtudóttur frá Vinstrinu. Umsjón með þættinum hefur...

26. þáttur: Oddvitar í borgarstjórnarkosningum og uppgangur atNorth á Íslandi 19.03.2026

Í dag eru tveir mánuðir í sveitarstjórnarkosningar og í þætti kvöldsins er rætt við oddvita þriggja framboða í Reykjavík. Björg Magnúsdóttir oddviti Viðreisnar Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins Pétur H. Marteinsson oddviti Samfylkingarinnar Í seinni hluta þáttarins er rætt við Eyjólf Magnús Kristinsson forstjóra atNorth. Fyrirtækið rekur gagnaver hér á landi og á Norðurlöndunum og v...

25. þáttur: Stefnt að kosningu um ESB í sumar 10.03.2026

Ríkisstjórnin stefnir á að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður að ESB í sumarlok. Reikna má með að Evrópumál verði fyrirferðarmikil þangað til en hart var tekist um þau á Alþingi í dag. Fulltrúar allra flokka á þingi koma í Silfrið að þessu sinni: Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Guðrún Hafsteinsdóttir, Ásthildur Lóa Þórsdóttir, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Guðmundur Ari Sigurjónsson og...

24.þáttur: Stríð í Miðausturlöndum 03.03.2026

Stríð er hafið í Miðausturlöndum eftir árás Bandaríkjanna og Ísraels á Íran. Hverjar eru ástæðurnar, og hverjar gætu afleiðingarnar orðið? Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

23. þáttur: Gervigreind þróast á áður óþekktum hraða 25.02.2026

Þróun gervigreindar verður sífellt hraðari og áhrif hennar á samfélagið og vinnumarkaðinn að verða greinilegri. Vitum við hvert stefnir og erum við tilbúin? Gestir: Andri Snær Magnason rithöfundur Anna Sigríður Islind, prófessor í tölvunarfræði við HR Lilja Dögg Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Almannaróms. Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra Hosted on Acast. See acast.com/priva...

22. þáttur: Tvöfaldi lásinn og staðan í efnahagsmálum 17.02.2026

Silfrið er helgað efnahagsmálum í kvöld. Gestir okkar eru Gestir þáttarins eru Daði Már Kristófersson, fjármálaráðherra, Ásta Fjeldsted, forstjóri Festi, Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, hagfræðingur BSRB, og Katrín Ólafsdóttir, dósent í hagfræði við HR. Tekist er á um tengingu almannatrygginga við launavísitölu á þingi, Það ætlar að reynast erfitt að koma verðbólgunni niður og stýrivextir eru háir...

21. þáttur: Epstein-skjölin og framtíð Framsóknarflokksins 10.02.2026

Epstein-skjölin hafa afhjúpað tengsl auðjöfra, stjórnmálamanna og frægðarfólks víða um heim við bandaríska kynferðisbrotamanninn Jeffrey Epstein, og margir valdsmenn riða til falls, einkum í Bretlandi og Noregi. Hversu víðfeðm voru tengslin, og ná þau alla leið til Íslands? Hulda Þórisdóttir stjórnmálafræðiprófessor, Herdís Sigurgrímsdóttir stjórnmálafræðingur og Jón Trausti Reynisson blaðamaður r...

20. þáttur: Kristrún Frostadóttir: Geigaði sleggjan? Og hvert stefnir í Evrópumálum? 03.02.2026

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra ræðir verðbólguskot og blikur á lofti í efnahagsmálum. Síðari hluti þáttarins er helgaður umræðu um aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið. Ríkisstjórnin ætlar að leggja fram þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðnanna, en hlé var gert á þeim árið 2013. Ragnhildur Helgadóttir lögfræðingur og rektor HR, sem átti sæti í samningan...

Escucha el podcast Silfrið en Replaio

Radio y podcasts en una sola app - gratis y sin registro. Instálala hoy y no te pierdas el estreno

Descárgala en Google Play

Replaio no es editor de podcasts; los nombres de los programas, las portadas y el audio pertenecen a sus autores y se distribuyen a través de canales RSS públicos