Unnur Borgþórsdóttir
Morðcastið
Morðcastið er podcast þar sem fjallað er um íslensk og erlend sakamál á léttum nótum. Þátturinn kemur út á hverjum fimmtudegi. Til að hafa samband:mordcastid@gmail.cominstagram.com/mordcastidtwitter.com/mordcastid
No dejes de visitar la web del podcast y apoyar a su creador: mordcastid.libsyn.com
Autor
Unnur Borgþórsdóttir
Categoría
Web del podcast
Último episodio
15 de oct. de 2026
¿Dónde escuchar?
Podcasts en la app Replaio Radio Muy prontoLos podcasts llegarán muy pronto a la app. Instálala ahora y sé el primero en descubrir una forma totalmente nueva de vivir los podcasts
Episodios
Orð dagsins er: Jógabuxur 29.05.2025 56:26
Góðan daginn þennan rigningardaginn! Öll vitum við nú að góðar buxur eru gulli betri. En eru góðar buxur virði heillar manneskju? Í Bandaríkjunum er ung og glæsileg kona sannfærð um það og því lendum við eins og alltaf í undarlegu en um leið áhugaverðu máli. Þátturinn er í boði Ristorante, Happy Hydrate og MFitness. Mál hefst: 10:44
Orð dagsins er: Lesblinda 22.05.2025 55:31
Góðan daginn þennan sólríka fimmtudaginn. Í þætti dagsins fer Unnur með okkur til Frakklands, fræðir okkur um staðhætti og kynnir okkur fyrir nokkrum misgáfulegum unglingum þar sem einn tekur alveg hræðilega ákvörðun. Í raun tekur þessi umræddi unglingur alveg hræðilega margar slæmar ákvarðanir. Réttarkerfið kannski líka reyndar, og jafnvel yfirvöld í heild. Jæja, þetta er allt alveg hræðilega sor...
Orð dagsins er: Dáleiðsla 15.05.2025 43:19
Í dag er það Florida man sem hefur aðeins of mikla trú á sér og sinni getur sem hefur kannski, veit það ekki, mögulega, áhrif á líf og störf fólksins í kringum sig. Er dáleiðsla faggrein? Þátturinn er í boði Happy Hydrate, Nettó, Ristorante og Ajax.
Orð dagsins er: Sunnudagaskóli 08.05.2025 48:05
Góðan daginn þennan fallega fimmtudaginn. Í fullkomnum heimi þá værum við öll örugg á okkar heimili með okkar fjölskyldu og vinum en mál dagsins sýnir svart á hvítu hvað þetta getur allt verið ömurlegt. Alltaf mjög áhugavert því miður en samt alveg absalút hræðilegt. Þáttur dagsins er í boði Better you, Happy Hydrate, Nettó, Ristorante og Findus. Mál hefst: 7:52
Orð dagsins er: Handari 01.05.2025 57:34
Á þessum degi verkalýðsins er viðeigandi að segja frá blómasölumanni og húsgagnasmiði sem kynntust og úr varð ein stór og góð fjölskylda. Nema auðvitað alls ekki og saga dagsins er skrítin, sorgleg og með geimveruívafi, þannig að það ætti að vera eitthvað fyrir öll. Þáttur dagsins er í boði Nettó, Ristorante, Happy Hydrate og Ajax. Mál hefst: 12:45
Orð dagsins er: Washington 27.03.2025 53:45
Góðan daginn, fimmtudaginn. Í þætti dagsins kynnumst við mörgum mjög merkilegum hliðum að einu og sama málinu, máli sem hefur ótrúlega fínan endi samt. Allavega jákvæðari en stundum, en allt er þetta auðvitað algjör hörmung. Svoleiðis. Þáttur dagsins er í boði Nettó, Better you Sjóvá, Happy Hydrate og Ristorante Mál hefst: 9:35
Bókaklúbburinn X Morðcastið - Sykur 25.03.2025 46:45
Í áttunda þætti Bókacastsins ræðum við um Sykur eftir Katrínu Júlíusdóttur.
Orð dagsins er: Michigan 20.03.2025 50:50
Góðan daginn þennan ágæta fimmtudaginn. Það er enn einn partýsjúki unglingurinn í þætti dagsins. Hann vildi bara hafa gaman, en varð heldur betur ekki kápan úr því klæðinu. Þáttur dagsins er í boði Ristorante, Nettó, Better you, Happy Hydrate og Mfitness. Mál hefst: 9:40
Orð dagsins er: Skólaball 13.03.2025 50:35
Góðan daginn þennan fallega fimmtudaginn. Í þætti dagsins langaði segir Unnur frá ungum dreng sem langaði bara á skólaball að hafa gaman, dansa mikið með vel gelað hár og rakspíra en öðrum drulluspöðum tókst að eyðileggja það og líf gríðarlega margra í kjölfarið. Mál hefst: 09:00 Þáttur dagsins er í boði Happy Hydrate, Better You, Sjóvá, Nettó og Ristorante.
Orð dagsins er: Partýgosi 06.03.2025 45:57
Í Missouri finnst ungur maður liggjandi á grúfu á háskólasvæði eftir góða partýnótt. Því miður ekki bara búinn að tjútta of mikið og í ljós kemur að flækjustig lífs hans er töluvert. Þáttur dagsins er í boði Ristorante, Nettó , Better You, Happy Hydrate og Smartsocks .
Orð dagsins er: Pikkla 27.02.2025 33:40
Góðan daginn, fimmtudaginn! Þáttur dagsins er kannski ekki mjög langur en listi fórnarlamba er það þó, því miður. Við förum til Prússlands, pikklum og sútum, hneykslumst og tuðum. Þáttur dagsins er í boði: Nettó, Ristorante, Better you, Happy Hydrate og Sjóvá. Mál hefst: 09:00 Óklipptan þátt má finna inná www.pardus.is/mordcastid
Bókacastið X Morðcastið - Grænmetisætan 25.02.2025 45:54
Í sjöunda þætti Bókacastsins ræðum við um Grænmetisætuna eftir Han Kang
Orð dagsins er: Boðskort 20.02.2025 1:02:39
Það er the land down under í dag. Unglingsstelpu er boðið í partý. Loksins! Spennt og glöð heldur hún af stað en auðvitað endar það ekki eins fallega og vel og það hefði átt að enda. Þátturinn er í boði Ristorante, Nettó, Happy Hydrate, Swiss Miss, Better You og Smartsocks. Mál hefst: 10:22
Orð dagsins er: Hárlokkur 13.02.2025 1:25:22
Góðan daginn, fimmtudaginn. Í þætti dagsins segir Unnur okkur frá ótrúlega undarlegu máli sem teygir sig frá Noregi til Ísrael. Um hvippinn og hvappinn en fyrst og fremst um margar undarlegar aðstæður og slæmar ákvarðanir. Þáttur dagsins er í boði Sjóvá, Happy Hydrate, Swiss Miss, Nettó, Ristorante og Better you. Mál hefst: 13:17
Orð dagsins er: Traktor 06.02.2025 1:08:59
Í þætti dagsins heimsækjum við England hennar hátignar drottningarinnar alveg frá byrjun síðustu aldar og fram til dagsins í dag. Kynnumst lítilli fjölskyldu í litlum bæ mjög náið og heyrum hvað dreif misfallegt á daga þeirra. Þátturinn er í boði Better You, Happy Hydrate, MFitness, Nettó og Ristorante. Mál hefst: 14:03
Orð dagsins er: Skipalakk 30.01.2025 52:46
Góðan daginn, fimmtudaginn! Það eina sem er verra en algjör sorgarsaga með ömurlegum endi er þegar umrædd sorgarsaga varðar börn. Í þætti dagsins kynnumst við manni sem hefði gjarnan mátt taka betri ákvarðanir og jafnvel hugsa sig tvisvar um. Þáttur dagsins er í boði Better you, Happy Hydrate, Isavia ANS, Nettó, Mfitness,Ristorante, Sjóvá, Smart Socks og Swiss Miss Mál hefst: 12:15
Bókacastið X Morðcastið - Lungu 28.01.2025 45:41
Sjötti þáttur Bókacastsins, í dag ræðum við bókina Lungu eftir Pedro Gunnlaug Garcia.
Orð dagsins er: Skrúðgarðyrkja 23.01.2025 1:19:05
Við förum víðsvegar um Kaliforníufylki í þætti dagsins. Maður spilar golf, maður siglir báti, maður er algjör drullusokkur og konan hans geldur fyrir það. Þátturinn er í boði Nettó, Happy Hydrate, Ristorante, Sjóvá, Better You og Isavia ANS. Mál hefst: 18:27
Orð dagsins er: Belís 16.01.2025 42:10
Góðan daginn, fimmtudaginn. Bylgja er komin aftur eftir langa bið, en í máli dagsins segir Unnur henni frá yngsta kvenmorðingja Bretlands, sem finnst hnífur vera staðlaður aukahlutur. Algjörlega ömurlegt alltsaman en sannarlega mjög merkilegt. Þáttur dagsins er í boði Swiss miss, Better You, Happy Hydrate, Ristorante, Nettó og Smart Socks. Mál hefst: 15:50
Orð dagsins er: Ítalía 09.01.2025 1:01:39
Góðan daginn, fimmtudaginn. Í þætti dagsins mætir Sigríður Fanney og vermir sæti Bylgju. Hún segir okkur frá allskonar skemmtilegu en líka miklum hrottaskap tengdum Ítalíu. Alveg hræðilegt þetta cast eins og við vitum. Þáttur dagsins er í boði Better You, Mfitness, Isavia ANS, Nettó, Ristorante og Happy Hydrate. Mál hefst: 20:25, samt er einhvernveginn mjög lítið óþarfa spjall. Skrítið.
Orð dagsins er: Berserker 02.01.2025 59:43
Að vera 12-13 ára bjáni er eitt, að vera 16-17 ára nýnasisti er annað. Sagan af Freeman fjölskyldumorðunum er gríðarlega sorgleg og ömurleg saga, áhugaverð vissulega en fyrst og fremst hræðileg. Mál hefst: 10:00 Þáttur dagsins er í boði: Ristorante, Nettó, Happy Hydrate, Swiss Miss, Sjóvá og Better you. Óklipptan þátt má finna inná www.pardus.is/mordcastid
Bókacastið X Morðcastið - Múffa 31.12.2024 51:08
Fimmti þáttur Bókacastsins sem er eiginlegur bókaklúbbur Morðcastsins. Í dag ræðum við bókina Múffa eftir Jónas Reyni Gunnarsson
Orð dagsins er: Taco Bell 26.12.2024 58:20
Góðan daginn, fimmtudaginn. Unglingar, Taco Bell, trylltir trúðar og að sjálfsögðu Bandaríkin. Í rauninni allt það besta sem til er, en í þessu tilfelli það versta. Þáttur dagsins er í boði: Happy Hydrate, Ristorante, Pennans, Swiss Miss og Nettó Mál hefst: 11:48
Orð dagsins er: Amazon 19.12.2024 1:09:48
Góðan daginn, fimmtudaginn. Góð kaup á Amazon eru gulli betri og þá er gott að nóg sé af góðum meðmælum fyrir vöruna. Maðurinn sem við fjöllum um í dag hefði gjarnan mátt setja punktinn þar og ekki nota ákveðnar vörur sem hann pantaði af Amazon, en það er víst ekki hægt að biðja um allt. Mál hefst: 11:18 Þáttur dagsins er í boði: Pennans, Ristorante, Nettó, Happy Hydrate og Isavia ANS
Orð dagsins er: Bókasafn 12.12.2024 48:27
Góðan daginn, fimmtudaginn. Hvað er betra en að hanga á góðu bókasafni og skrolla? Það var töluvert af því í þessum þætti og Google Earth kemur líka við sögu. Þáttur dagsins er í boði: Ristorante, Happy Hydrate, Mfitness, Nettó og Pennans. Mál hefst: 14:20
Podcasts similares
Replaio no es editor de podcasts; los nombres de los programas, las portadas y el audio pertenecen a sus autores y se distribuyen a través de canales RSS públicos