DV
Fókus
Fókus er birtur í hljóði og mynd vikulega á dv.is. Þátturinn er í umsjón Guðrúnar Óskar Guðjónsdóttur.
¿Dónde escuchar?
Podcasts en la app Replaio Radio Muy prontoLos podcasts llegarán muy pronto a la app. Instálala ahora y sé el primero en descubrir una forma totalmente nueva de vivir los podcasts
Episodios
Svavar Elliði: Fór í hárígræðslu í Tyrklandi 08.05.2025 21:26
Tónlistarmaðurinn og kennarinn Svavar Elliði Svavarson kom nýlega heim frá Istanbúl í Tyrklandi, þar sem hann gekkst hann undir hárígræðslu á höfði. Hann segir frá öllu ferlinu, aðgerðinu og batanum í þættinum. Hann ræðir einnig stuttlega um tónlistarferilinn og fyrsta stefnumótið með unnustu sinni, sem byrjaði ansi erfiðlega en hann náði að rétta skútuna af og eiga þau í dag son.
Fanney: „Ég fann að ég þurfti að staldra aðeins við og hugsa: Hvað vil ég? Hver er ég?“ 30.04.2025 43:04
Fanney Skúladóttir, markaðsstjóri, er gestur vikunnar í Fókus. Fanney varð móðir ung. Hún var ólétt af sínu fyrsta barni sautján ára gömul, en sonur hennar er einmitt sautján ára í dag. Áratugur leið þar til hún eignaðist annað barn, en hún eignaðist tvær stúlkur með árs millibili. Fanney hefur því bæði átt börn með löngu millibili og svo mjög stuttu og hún segir að hið síðarnefnda hafi vissulega...
Dimmey Rós: Verða fyrir fordómum sem par 17.04.2025 17:18
Dimmey Rós Lúðvíksdóttir valdi hinseginleikann sem málstað til að vekja athygli á þegar hún keppti í Ungfrú Ísland í byrjun apríl. Hún þekkir það af eigin raun að verða fyrir fordómum en hún og kærasta hennar hafa þurft að þola mótlæti og áreiti vegna sambands þeirra. Dimmey er gestur vikunnar í Fókus, viðtalsþætti DV.
Garðar: „Þess vegna er þetta svona hættulegt, maður fer strax í sjálfsmorðshugleiðingar“ 10.04.2025 33:23
Garðar Eyfjörð hefur glímt við margskonar fíkn frá unglingsaldri og verið umkringdur alkóhólistum og fíklum allt sitt líf. En hann segir að það sé ein fíkn sem er verst, spilafíknin. Garðar birti myndband á TikTok fyrir stuttu þar sem hann ræddi um spilafíkn og vandanum sem blasir við okkur í dag þegar áhrifavaldar, rapparar og önnur þekkt andlit eru fengin til að auglýsa fjárhættu- og veðmálafyri...
Snædís Xyza: „Ég var alltaf hrædd að koma heim“ 04.04.2025 57:49
Snædís Xyza Mae Jónsdóttir er margverðlaunaður matreiðslumeistari og hefur verið hluti af íslenska kokkalandsliðinu frá árinu 2016. Hún var fyrirliði liðsins á heimsmeistaramótinu árið 2018 og á Ólympíuleikunum árið 2020 og kom þá Íslandi á verðlaunapall. Í dag starfar hún sem yfirmatreiðslumaður á Fröken Reykjavík Kithen & Bar og þjálfar íslenska kokkalandsliðið samhliða. Árangur Snædísar er...
Katrín Björk: Myndi frekar handþvo en að kaupa þvottavél á raðgreiðslu 27.03.2025 51:59
Katrín Björk Birgisdóttir, naglafræðingur, YouTube-ari, og sérlegur áhugamaður um sparnað, er gestur vikunnar í Fókus. Hún deilir góðum og einföldum sparnaðarráðum sem allir geta nýtt sér.
Fegurðardrottningin Sóldís Vala - Lærði að standa með sjálfri sér 20.03.2025 26:50
Fegurðardrottningin Sóldís Vala Ívarsdóttir var valin Ungfrú Ísland 2024 í ágúst í fyrra. Hún fór til Mexíkó og keppti fyrir hönd Íslands í Miss Universe og segir ferlið hafa kennt henni margt, eins og að standa með sjálfri sér. Sóldís var yngsti keppandinn úti í Mexíkó og segir að hún hafi alveg þurft að leggja hart að sér til að vinna sér inn virðingu annarra keppanda sem litu á hana hornauga sö...
Árni Björn: „Við verðum alveg vör við það að fólk er byrjað að slúðra í kringum okkur“ 13.03.2025 52:59
Fasteignasalinn og vaxtaræktarkappinn Árni Björn Kristjánsson er gestur vikunnar í Fókus. Árni lifði og hrærðist í CrossFit-heiminum í rúmlega tólf ár. Hann æfði, keppti og þjálfaði en lífið breyttist fyrir nokkrum árum. Hann fór að huga meira að andlegri heilsu, fór til sálfræðings og fór að líta meira inn á við. Hann færði sig yfir í vaxtarrækt og er nú að undirbúa sig fyrir fyrsta mót sitt í va...
Kristjana Björk – Stekkur beint í djúpu laugina og stofnar nýtt fyrirtæki 06.03.2025 48:33
Frumkvöðullinn Kristjana Björk Barðdal er gestur vikunnar í Fókus, spjallþætti DV.Hún er að stofna nýtt fyrirtæki með Guðmundi Birki Pálmasyni, betur þekktur sem Gummi Kíró, en hún hefur verið að starfa sem umboðsmaður hans síðan í sumar. Nú opna þau áhrifavaldaumboðsskrifstofuna Atelier Agency. Kristjana ræðir um þetta nýja ævintýri, ferðalagið sem skilaði henni á þann stað sem hún er í dag, lífi...
BIRGO: Hún fékk að sjá mig og kvaddi svo þennan heim 27.02.2025 17:55
Söngkonan Birgitta Ólafsdóttir, eða BIRGO eins og hún er betur þekkt, söng sig inn í hjörtu landsmanna og Eurovision aðdáenda um alla Evrópu á fyrra undanúrslitakvöldi Söngvakeppni sjónvarpsins. Það er óhætt að segja að Eurovision samfélagið hafi nötrað eftir að hún komst ekki áfram í úrslit í kjölfar símakosningar. Birgitta er gestur vikunnar í Fókus og ræðir um keppnina, viðbrögð fólks, þakklæti...
Hera Rún - „Ég hugsaði: Nú er minn tími kominn“ 20.02.2025 37:42
Hera Rún Ragnarsdóttir er leikkona, athafnakona, hlaðvarpsstjórnandi, móðir og svo margt meira. Í þættinum opnar hún sig um erfiða æsku, eineltið sem mótaði hana og hvernig henni tókst að vinna sig í gegnum það. Hún leggur áherslu á mikilvægi þess að tala um einelti en hún glímdi við sjálfsvígshugsanir sem barn sem henni finnst skelfileg tilhugsun. Hún segir frá sjálfsvinnunni sem hún hefur verið...
Þórhildur – Tantra, sambönd og kynlíf 13.02.2025 53:13
Kynlífs- og sambandsmarkþjálfinn Þórhildur Magnúsdóttir er gestur vikunnar í Fókus, spjallþætti DV. Þórhildur er fyrsti gestur Fókuss til að koma aftur en mikið hefur gerst síðastliðna átján mánuði. Hún hefur sankað að sér meiri þekkingu og er að klára markþjálfaranám. Hún byrjaði að iðka tantra sem hefur verið eins konar rauði þráðurinn í lífi hennar í gegnum árin. Í þættinum ræðir hún um þjálfun...
Vala um systurmissinn: „Það var ótrúlegt að alast upp með henni og mín mesta gæfa“ 06.02.2025 43:35
Viðskipta- og markaðssérfræðingurinn Valgerður Anna Einarsdóttir, kölluð Vala, er gestur vikunnar í Fókus. Vala hannaði Lífið er núna húfurnar í ár fyrir Kraft, sem er stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem hefur greinst með krabbamein og aðstandendur þeirra. Hönnun húfanna er innblásin af verkum systur Völu, Þórunnar Maríu Einarsdóttur, sem var prjónahönnuður og listakona undir nafninu Tóta Van Helzi...
Stebbi Jak – Fann frelsi eftir að hann fór á fund með árásarmanni sínum 30.01.2025 36:17
Tónlistarmaðurinn Stefán Jakobsson er gestur vikunnar í Fókus. Það er margt spennandi á döfinni hjá Stefáni, sem margir þekkja sem Stebba Jak, en hann mun stíga á svið á fyrra undanúrslitakvöldi Söngvakeppni sjónvarpsins þann 8. febrúar næstkomandi. Í þættinum fer Stefán um víðan völl. Hann ræðir um Söngvakeppnina, ævintýrið sem því fylgir, lífið og ástina, en hann opnar sig einnig um alvarlega lí...
Kristín Tómas: „Konur taka frekar ákvörðun um skilnað heldur en karlar“ 23.01.2025 46:47
Kristín Tómasdóttir er fjölskyldumeðferðarfræðingur sem sérhæfir sig í parameðferð og metsöluhöfundur. Hún ræðir um allt sem tengist samböndum í þættinum. Eins og algeng vandamál í parasamböndum, hvernig er hægt að bæta samskipti og svarar spurningunni hvort það sé hægt að halda áfram í sambandi eftir framhjáhald eða trúnaðarbrest. Allt þetta og svo miklu meira í þætti vikunnar.
Davíð Goði: Barðist til að lifa fyrir ófæddan son sinn 16.01.2025 40:32
Kvikmyndagerðamaðurinn, framleiðandinn og ljósmyndarinn Davíð Goði Þorvarðarson er gestur vikunnar í Fókus, spjallþætti DV. Davíð Goði er 27 ára gamall og fyrir ári síðan var veröld hans snúið á hvolf. Hann greindist með óútskýrðan sjúkdóm en fyrir það hafði hann alla tíð verið heilsuhraustur. „Ég er í rauninni eini á landinu sem er með þetta og mögulega bara einn af þeim fáu í heiminum. Það eru e...
Helgi Jean – Rakst harkalega á vegg miðlífskrísunnar 10.01.2025 58:03
Helgi Jean Claessen, hlaðvarpskóngur, lífsstílsþjálfi og rekstrarmaður, rakst harkalega á vegg miðlífskrísunnar árið 2023. Síðasta ár fór í að vinna sig í gegnum krísuna og kom hann út úr henni sterkari en nokkurn tíma áður. Hann aðstoðar nú aðra sem eru að ganga í gegnum erfiðleika, en hann tekur að sér lífsstílsþjálfun fyrir hópa, auk þess að vera annar umsjónarmaður vinsæla hlaðvarpsins Hæhæ –...
HeilsuErla – Góð ráð til að standa við markmiðin á nýju ári 02.01.2025 28:51
Heilsumarkþjálfinn Erla Guðmundsdóttir er gestur í fyrsta þætti ársins. Við ræddum um áramótaheit en flestir gefast upp á fyrstu vikum ársins. Erla gefur hlustendum góð ráð til að standa við markmiðin. Hún ræðir einnig um mismunandi þætti heilsu, „heilsusérfræðinga“ á netinu og ýmislegt annað, eins og hvers vegna konum á besta aldri gengur oft illa að létta sig. Erla ræðir einnig einlæg um það þeg...
Áramótaspá Ellý Ármanns fyrir 2025 26.12.2024 33:35
Spákonan Ellý Ármanns er gestur vikunnar í þessum skemmtilega þætti. Við fengum hana til að spá fyrir mörgum landsþekktum einstaklingum eins og fyrrverandi forsetahjónunum, Valkyrjunum, Katrínu Jakobsdóttur, Þórði Snæ Júlíussyni, World Class-fjölskyldunni, Línu Birgittu og Gumma Kíró, Sveindísi Jane og fleiri!
Eygló Mjöll – Tíu hamingjusöm ár og fjögur börn eftir fyrsta stefnumótið á Litla-Hrauni 19.12.2024 1:03:11
TW: Umræða um sjálfsskaða Eygló Mjöll Óladóttir er gestur vikunnar í Fókus. Hún er fjögurra barna móðir, það elsta er átta ára og það yngsta er fimm mánaða. Hver meðganga og fæðing var öðruvísi. Hún segir einnig frá upphafi sambands hennar og unnusta hennar, en þegar þau kynntust sat hann inni á Litla-Hrauni og fór fyrsta stefnumótið fram innan veggja fangelsisins. Eygló opnar sig einnig um erfiðl...
Anton Bjarki – Greindist með mjög sjaldgæft krabbamein í miðju sköpunarferli 12.12.2024 18:11
Fatahönnuðurinn Anton Bjarki Olsen er gestur vikunnar í Fókus. Hann gaf út forvorlínu fyrir 2025 út í byrjun desember. Línan er mjög persónuleg fyrir hann en hann greindist með mjög sjaldgæfa tegund krabbameins í miðju sköpunarferli. Í sumar kom í ljós að æxli, sem læknar höfðu áður sagt að væri góðkynja, væri illkynja. Á þeim tímapunkti hafði Anton verið með æxlið það lengi í fætinum að hann væri...
Svava Kristín: „Ég gæti ekki gefið barninu mínu betri og dýrmætari gjöf“ 05.12.2024 44:17
Svava Kristín Grétarsdóttir, íþróttafréttakona á Stöð 2, er búsett í Reykjavík en getur ekki beðið að flytja aftur á heimaslóðir. Hún er fædd og uppalin í Vestmannaeyjum og ætlar að gefa dóttur sinni þá dýrmætu gjöf að alast upp á eyjunni fögru. Hún eignaðist dóttur sína með aðstoð nútímatækni í janúar. Hún segir lífið leika við þær mæðgur og að það sé yndislegt að vera móðir. Svava Kristín er það...
Götustrákurinn Aron: „Það er svo vont að vera þessi gaur sem er að burðast með allan heiminn“ 28.11.2024 39:52
Götustrákurinn Aron Mímir Gylfason, eða Ronni Turbo Gonni eins og hann er þekktur á samfélagsmiðlum, hefur gengið í gegnum dimma dali til að komast á þann stað sem hann er í dag. Hann ræðir í þættinum um æskuna, upphaf neyslunnar og vítahringinn sem hann fann sig í. Þegar hann var tvítugur átti hann von á barni og sá spenntur fyrir sér föðurhlutverkið. Barnið fæddist andvana eftir tuttugustu viku...
Birna á mann í fangelsi – „Við giftumst í blíðu og stríðu“ 21.11.2024 57:28
Birna Ólafsdóttir hefur um skeið barist fyrir réttindum aðstandenda fanga, sér í lagi barna fanga, en málefnið stendur henni nærri. „Þetta snertir mig persónulega því maðurinn minn situr inni, faðir barnanna minna,“ segir hún. Eiginmaður Birnu, Ólafur Ágúst Hraundal, var dæmdur til tíu ára fangelsisvistar í fyrra fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot og skipulagða brotastarfsemi. Hann var handtekinn í...
Valentína: Fortíðin fær ekki að skilgreina mig 14.11.2024 47:44
Þjálfarinn og fitness-keppandinn Valentína Hrefnudóttir er gestur vikunnar í Fókus. Í þættinum ræðir hún um fortíðina, áföll og sjálfsvinnuna sem hefur gert henni að þeirri konu sem hún er í dag. Mikið hefur gengið á í lífi Valentínu, hún hefur glímt við átröskun og fíknivanda en náði bata og er í dag edrú og heilbrigð. Á barnsaldri varð hún fyrir ofbeldi og sleit samskiptum við blóðföður sinn þeg...
Podcasts similares
Replaio no es editor de podcasts; los nombres de los programas, las portadas y el audio pertenecen a sus autores y se distribuyen a través de canales RSS públicos