einkalifid

Einkalífið

Einkalífið eru þættir á Vísi þar sem rætt er við fólk sem skarar fram úr á sínu sviði. Hvort sem um er að ræða leikara, tónlistarfólk, afreksfólk í íþróttum, samfélagsmiðlastjörnur eða stjórnmálamenn, þá eru öll velkomin. Þáttastjórnendur eru Dóra Júlía Agnarsdóttir og Oddur Ævar Gunnarsson.

No dejes de visitar la web del podcast y apoyar a su creador: einkalifid.podbean.com

Autor

einkalifid

Categoría

Society

Web del podcast

einkalifid.podbean.com

Último episodio

1 de may. de 2025

¿Dónde escuchar?

Podcasts en la app Replaio Radio Muy pronto

Los podcasts llegarán muy pronto a la app. Instálala ahora y sé el primero en descubrir una forma totalmente nueva de vivir los podcasts

Descárgala en Google Play Instálala gratis Android casi 10 M de descargas · valoración de 4,8 iOS muy pronto

Episodios

Donna Cruz 01.05.2025

Áhrifavaldurinn, fegurðardrottninginn, húmoristinn, leikkonan og nú bráðum tölvunarfræðingurinn Donna Cruz hefur komið víða við á sínum ferli, ólst upp sem meðlimur sértrúarsafnaðarins Vottar Jehóva, var kosin vinsælasta stúlkan í Ungfrú Ísland og lék aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd sem hlaut mikið lof víða um heim. Donna Cruz er viðmælandi í Einkalífinu þar sem hún fer yfir uppeldisárin í Breið...

Sandra Barilli 17.04.2025

Leikkonan, umboðsmaðurinn og stuðboltinn Sandra Barilli skaust upp á íslenska stjörnuhimininn sem Molly í IceGuys og lífið gjörbreyttist í kjölfarið. Sandra, sem heitir í raun Sandra Gísladóttir, fer yfir skrautlegt og skemmtilegt líf sitt í Einkalífinu, ræðir æskuna, nafnabreytinguna eftir búsetu á Ítalíu, árin í London, ótrúlegt sjálfstæði sitt, sambandið við sjálfa sig, IceGuys ævintýrið og óta...

Ólafur Jóhann Steinsson 03.04.2025

Ólafur Jóhann Steinsson er útvarpsmaður og ein skærasta Tik-Tok stjarna landsins. Hann er nýbúinn í  hjartaaðgerð í Svíþjóð en hann lýsir þeim dögum sem þeim verstu í sínu lífi. Ólafur ræðir líka æskuna,  utanlandsferðirnar og upphafsskrefin á Tik-Tok svo fátt eitt sé nefnt.

Birnir Sigurðarson 20.03.2025

Rapparinn Birnir skaust upp á íslenska stjörnuhimininn árið 2017 og er með vinsælustu tónlistarmönnum landsins. Birnir, sem er þekktur fyrir yfirvegað viðmót og heldur persónulegu lífi sínu að mestu úr sviðsljósinu, er viðmælandi í Einkalífinu þar sem hann fer um víðan völl. Hann hefur ýmsa fjöruna sopið og farið í gegnum hæðir og lægðir lífsins en hefur sjaldan verið á betri stað en í dag. Hann r...

Brynjar Karl Sigurðsson 06.03.2025

Brynjar Karl Sigurðsson körfuknattleiksþjálfari Aþenu er einn athyglisverðasti þjálfari landsins. Hann ræðir æskuárin í Breiðholtinu, frelsissviptingu og árin í körfuboltanum þar sem hann varð ungur fyrir kynferðislegri áreitni. Brynjar ræðir líka árin í Bandaríkjunum, ævintýralega velgengni Sideline Sports og áhrifin sem barátta hans hefur haft á fjölskyldu hans.

Sonja Valdín 20.02.2025

Sonja Valdín, jafnan þekkt sem Sonja Story, skaust upp á stjörnuhimininn árið 2016 sem ein stærsta Snapchat stjarna landsins. Hún gerði garðinn frægan með Áttunni, var með tugþúsund fylgjenda, gaf út gríðarlega vinsæl lög og lék í bíómynd. Svo eyddi hún öllum samfélagsmiðlum og dró sig algjörlega í hlé. Sonja er viðmælandi í Einkalífinu sem er jafnframt hennar fyrsta viðtal í fjögur ár. Þar ræðir...

Birna Rún Eiríksdóttir 28.10.2024

Leikkonan og grínistinn Birna Rún Eiríksdóttir er viðmælandi í Einkalífinu. Birna Rún hefur komið víða að í leiklistinni, er einn vinsælasti veislustjóri landsins, er óhrædd við að berskjalda sig og standa uppi á sviði fyrir framan hóp fólks og segja brandara og tekur lífinu ekki of alvarlega. Hún talar hér hispurslaust um sjálfa sig, ADHD-ið, ferilinn, að hafa eignast barn átján ára, að bæta samb...

Gugga í gúmmíbát 14.10.2024

Guðrún Svava Egilsdóttir, betur þekkt sem Gugga í gúmmíbát, skaust nýverið upp á stjörnuhimininn og er rísandi stjarna í samfélagsmiðlaheiminum. Gugga, eins og hún er alltaf kölluð, leggur mikið upp úr jákvæðu hugarfari, er dugleg að hvetja aðrar stelpur áfram og fer sínar eigin leiðir óháð áliti annarra. Hún er viðmælandi í Einkalífinu þar sem hún ræðir vegferð sína, erfið áföll, að fagna líkama...

Stefán Einar Stefánsson 26.09.2024

Stefán Einar Stefánsson fjölmiðlamaður og fyrrverandi verkalýðsforingi er gestur Einkalífsins að þessu sinni. Hann segir frá uppvaxtarárunum úti á landi og ákvörðun sinni um að fara í guðfræði. Hann segir líka frá tíma sínum í VR, óvæginni umfjöllun um eiginkonu hans og ástæður þess að hann fer gjarnan mikinn í opinberri umræðu þar sem hann hefur verið uppnefndur „siðlausi siðfræðingurinn.“ Stefán...

Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir 19.09.2024

Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir hefur verið á lista BBC yfir áhrifamestu konur Bretlands, mætt í sjónvarpsviðtöl til stærstu sjónvarpsstöðva í heimi og vakið athygli fyrir skelegga mannréttindabaráttu sína fyrir hönd hinsegin samfélagsins undanfarin ár. Ugla er viðmælandi í Einkalífinu og ræðir þar æskuna í sveitinni, hinseginleikann, ástina, ákvörðunina um að flytja til Bretlands og hver...

Ingólfur Valur Þrastarson 05.09.2024

Ingólfur Valur Þrastarson byrjaði á OnlyFans í Covid eftir að hafa misst vinnuna. Hann segir að þar skipti samtöl um mörk og virðingu megin máli og sér fyrir sér að halda áfram þar um ókomna tíð. Ingólfur Valur er viðmælandi í Einkalífinu þar sem hann ræðir meðal annars þetta og sömuleiðis barnæskuna, erfið unglingsár, föðurhlutverkið, hugmyndir annarra um skömm, samfélagsmiðla, baráttumál á samfé...

Mari Järsk 06.06.2024

Ofurhlauparinn og nýbakaði Íslandsmeistarinn Mari Järsk á að baki sér viðburðaríka ævi sem er sannarlega ekki áfallalaus en hún tileinkar sér mikið æðruleysi og jákvætt hugarfar. Mari er viðmælandi í Einkalífinu þar sem hún ræðir um ástina, æskuna, hlaupin, nýjasta metið, hugarfarið, ómetanlega vináttu, lærdóm frá lífinu og svo margt fleira. 

Frosti Logason 09.05.2024

Frosti Logason fjölmiðlamaður er gestur Einkalífsins að þessu sinni og segir frá tímanum þar sem fyrrverandi kærasta hans steig fram í viðtali og sakaði hann um hótanir og andlegt ofbeldi. Hann segir frá tíma sínum á sjónum og stofnun eigin miðils, Brotkasts. Frosti ræðir umfjöllun sína um Eddu Falak og segist ekki hafa haft hana á heilanum. Hann ræðir líka fjölskyldulífið og væntanlega endurkomu...

Kristrún Frostadóttir 25.04.2024

Kristrún Frostadóttir er intróvert að eðlisfari sem var dregin út úr skelinni þegar foreldrar hennar fluttu til Bretlands. Hún ræðir æskuna í Fossvogi og spænskuskólann í San Sebastián þar sem hún kynntist fyrstu ástinni sem býr nú í Íran. Hún ræðir lífið á þingi og hvernig það fer saman að ala upp ung börn á meðan hún reisir Samfylkinguna upp úr öskustónni. 

Guðrún Ýr Eyfjörð (GDRN) 11.04.2024

Tónlistarkonan og leikkonan Guðrún Ýr Eyfjörð, betur þekkt sem GDRN, er viðmælandi í Einkalífinu. GDRN skaust upp á stjörnuhimininn árið 2017 og það má með sanni segja að líf hennar hafi verið tilviljanakennt. Hún stefndi á atvinnumennsku í fótbolta frá ungum aldri en slasaðist og fór því í tónlistarnám. Hún gaf út plötu án þess að hafa sungið fyrir framan fólk, fór með aðalhlutverk í Netflix serí...

Þorsteinn V. Einarsson 28.03.2024

Þorsteinn V. Einarsson kynjafræðingur er fótboltakappi að fornu fari sem lenti í erfiðleikum vegna fíkniefnanotkunar. Hann fann beinu brautina í kynjafræðinni en segir bakslag í umræðunni hafa haft sín áhrif á andlega heilsu hans. Þá ræðir hann fjölmiðlastorminn sem varð í kringum bók hans og eiginkonu hans Huldu Tölgyes um þriðju vaktina í aðdraganda síðustu jóla og áhrifin sem málið hafði á hann...

Ástrós Traustadóttir 14.03.2024

Dansarinn, áhrifavaldurinn og raunveruleikastjarnan Ástrós Traustadóttir var einungis 16 ára gömul þegar hún flutti erlendis til þess að leggja fyrir sig atvinnumennsku í dansi og varð Frakklandsmeistari í dansinum 17 ára. Nokkrum árum síðar lenti hún á vegg eftir að hafa glímt lengi við átröskun sem varð til þess að hún leitaði sér hjálpar og flutti heim. Ástrós er viðmælandi í Einkalífinu þar se...

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir 01.03.2024

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir þingmaður Pírata er skilnaðarbarn sem flutti reglulega í æsku. Hún varð fyrir einelti og Idol-ævintýri hennar lauk í sjúkrabíl. Arndís er gestur Einkalífsins og ræðir líka ástina, Eurovision, örlagaríka ferð á Kíkí og áhrifin sem málið hafði á fjölskyldu hennar. Einkalífið er í samstarfi við Mist. 

Brynjar Steinn Gylfason 16.02.2024

Raunveruleika- og samfélagsmiðlastjarnan Brynjar Steinn, jafnan þekktur sem Binni Glee, skaust upp á stjörnuhimininn árið 2016 og hefur vakið athygli landsmanna á sjónvarpsskjánum í þáttunum Æði. Binni segist hafa glímt við félagskvíða og ofþyngd alla sína ævi og fór í míní-hjáveitu aðgerð í fyrra sem hann segir hafa breytt lífi sínu. Hann ræðir um lífið eftir aðgerðina, fjölbreyttar hliðar frægða...

Una Torfadóttir 09.11.2023

Söngkonan Una Torfadóttir kom eins og stormsveipur inn í íslenskt tónlistarlíf á síðasta ári. Una er gestur Einkalífsins þar sem hún ræðir æskuheimilið í Vesturbænum, tónelska fjölskyldu sína, samband sitt við móður sína Svandísi Svavarsdóttur, hvernig það var að koma fram á Arnarhóli í kvennaverkfalli, lífshættulegt krabbamein sitt, innblásturinn að lögunum og femínismann og framtíðina.

Felix Bergsson 02.11.2023

Leikarinn, fjölmiðlamaðurinn, söngvarinn, Eurovision sérfræðingurinn og lífskúnstnerinn Felix Bergsson fann ungur að árum að það ætti vel við hann að vera á sviðinu fyrir framan fjölda fólks. Felix Bergsson er viðmælandi í Einkalífinu þar sem hann ræðir meðal annars um  uppvaxtarárin á Blönduósi, hvernig hann fór frá því að hafa engan áhuga á Eurovision yfir í að heillast algjörlega og verða leiðt...

Kamilla Einarsdóttir 26.10.2023

Kamilla Einars er nýjasti gestur Einkalífsins á Vísi. Hún ræðir meðal annars barnæskuna í Hlíðunum, fjölskylduna sem í eru miklir rithöfundar og innblásturinn að bókum sínum. Kamilla er þekkt fyrir húmor og ræðir eigið hispursleysi á samfélagsmiðlum. Hún ræðir líka veikindi móður sinnar og hvernig fjölskyldan hefur tekist á við þau með jákvæðnina að vopni.

Bassi Maraj 19.10.2023

Lífið gjörbreyttist hjá raunveruleikastjörnunni og rapparanum Bassa Maraj þegar hann samþykkti að vera með í einum þætti af Æði. Nú eru seríurnar orðnar fimm og hefur Bassi verið í öllum þáttum. Bassi er viðmælandi í Einkalífinu þar sem hann ræðir um ferilinn, að koma út úr skápnum, ást sína á eldri borgurum og hundum, að leita stöðugt í grínið, óþægilega athygli, föðurmissinn og fleira.

Tanja Ýr Ástþórsdóttir 12.10.2023

Athafnarkonan Tanja Ýr Ástþórsdóttir er ein af upprunalegu áhrifavöldum landsins en hún var fljót að uppgötva tækifærin sem fylgdu samfélagsmiðlum. Tanja er viðmælandi í Einkalífinu þar sem hún ræðir meðal annars um ástina, lífið í Bretlandi, mikilvægi samskipta, að hafa verið í sviðsljósinu lengi, reynslu sína af Ungfrú Ísland, að halda ákveðnum hlutum fyrir sig, að stofna fyrirtæki, vera óhrædd...

Óskar Logi Ágústsson 05.10.2023

Óskar Logi er nýjasti gestur Einka­lífsins á Vísi. Þar ræðir hann barn­æskuna á Álfta­nesi, stofnun Vinta­ge Caravan og öll sau­tján árin sem sveitin hefur starfað. Hann ræðir líka sitt per­sónu­lega líf, þar á meðal frá­fall bróður síns Stefáns Jörgen Ágústs­sonar sem lést árið 2018 eftir lang­varandi andleg veikindi. 

Escucha el podcast Einkalífið en Replaio

Radio y podcasts en una sola app - gratis y sin registro. Instálala hoy y no te pierdas el estreno

Descárgala en Google Play

Replaio no es editor de podcasts; los nombres de los programas, las portadas y el audio pertenecen a sus autores y se distribuyen a través de canales RSS públicos