Búbblur & Bjór
Búbblur & Bjór
Birkir, Davíð og Þröstur hittast til þess að ræða um allt á milli himins og jarðar, Daði mætir við og við þegar það er ekki fótbolti í sjónvarpinu til þess að leggja málefnum misvel lið, sumt sem skiptir máli, annað sem skiptir engu máli, en oftast eitthvað sem skiptir ekki máli, en skiptir samt máli! Svo stundum gætu komið spennandi og áhugaverðir gestir í spjall. Podcastið sem er um allt og ekkert, skál!
No dejes de visitar la web del podcast y apoyar a su creador: bubblurogbjor.podbean.com
Autor
Búbblur & Bjór
Categoría
Web del podcast
Último episodio
1 de nov. de 2026
¿Dónde escuchar?
Podcasts en la app Replaio Radio Muy prontoLos podcasts llegarán muy pronto a la app. Instálala ahora y sé el primero en descubrir una forma totalmente nueva de vivir los podcasts
Episodios
Useless Information 03.11.2024 52:29
Eins og vanalega hefst þetta á vinalegu banter spjalli um daginn og veginn, til dæmis vinsæla spurningin, eruð þið byrjaðir að kaupa jólagjafir, af hverju fáum við svona fáar jólagjafir og af hverju erum við hættir að gefa hvor öðrum jólagjafir? Það eru ágætis ástæður fyrir því reyndar. En svo komum við með efni þáttarins, fáránlega mikið af óþarfa upplýsingum sem enginn þarf að vita. Til dæmis, h...
Hrekkjavaka 27.10.2024 56:24
Í þessum þætti tökum við fyrir Hrekkjavöku, eða Halloween sem er handan við hornið! Daði byrjar á því að segja okkur af hverju hrekkjavaka er til og af hverju hún er haldin, hann fer einnig yfir það hvernig Trick or Treat eða Grikk eða Gott verður fylgifiskur hrekkjavöku. Birkir segir okkur frá því þegar hann lagði óvart hendur á konu á hrekkjavöku íklæddur Scream búning, ekkert eðlilega steikt en...
Árið var ... 1994! 20.10.2024 1:08:26
Við byrjum þáttinn á smá ASMR bjórfroðu alveg óvart. Birkir mýkist upp og talar um hvað það er hollt að opna sig, eins og einhverjir vinir okkar gerðu á síðasta djammi, allir opnir með tilfinningar, Daði var þarna en var ekki að hlusta...what a guy! Birkir ræðir sína vegferð í því að tjá sig um tilfinningar og aðstæður og við hvetjum alla til þess að gera það! Svo förum við í málefni þáttarins, Ár...
Ógeðslega pirrandi 13.10.2024 1:06:56
Kaótískur þáttur með miðaldra karlmönnum sem láta allt fara í taugarnar á sér, og mæta í podcast til að tuða yfir því! Allavega, hinir heimsfrægu Herpes bræður sameinast í þessum þætti, bara gleði með það! Þátturinn byrjar á því að strákarnir gefa Daða misgóðar og misfurðulegar afmælisgjafir, svo er farið í málefni þáttarins...væl og pirring. Við pirrum okkur á öllu! Eru trúarbrögð heimskuleg og r...
Urban Legends 06.10.2024 40:08
Eðlilega byrjum við þennan þátt á því að ræða allt ruglið í kringum P Diddy, did Diddy do what they Diddily say Diddi did? Við köfum ofan í það hvort við myndum mæta í svona partý og færum svo umræðuna yfir í stutt spjall um Playboy partýin sálugu og fræga fólkið þar. Þá er það efni þáttarins, sem eru Urban Legends, er fjársjóður undir Skógarfossi, voru allir í The 27 club í raun myrtir, er Chupac...
Skrítnustu vörurnar 29.09.2024 44:55
Við byrjum þáttinn á því að ræða nýskeðan ísbjarnarblús á Íslandi, Birkir er með lausnina að koma þeim aftur heim, en hann vill fá borgað fyrir það, svo er það umræða þáttarins! Skrítnustu vörurnar, vörur sem eru eiginlega tilgangslausar og/eða skrítnar. Til dæmis Crocs grifflur, USB gæludýrasteinn, Glow in The Dark klósettpappír, geimverudildó sem verpir eggjum (ekki spyrja) og rafhlöður sem gang...
Hot Takes 22.09.2024 1:19:43
Jæja, þá er komið að hættulegasta þættinum okkar, hann byrjar sakleysislega en keyrir sig svo klárlega í gang, kannski að viðkvæmu blómin sleppi þessum. Við byrjum samt á því að ræða tanið hans Davíðs, Birkir segir okkur reynslusögu sem fjallar um það hversu stutt það væri að hann myndi kúka í sig í bílnum sínum. Svo taka Hot Takes við, hvað eru hot takes segirðu, það er eitthvað sem einhver hefur...
Skrítnir sjúkdómar 15.09.2024 43:35
Birkir byrjar þáttinn á því að væla yfir bakverkjum, enda kominn vel yfir fertugt. Við tökum Davíð aðeins í drithornið, bara fastir liðir. Svo tökum við umræðu þáttarins um skrítna sjúkdóma. Til dæmis hraðöldrunarsjúkdóm, Cotard´s heilkennið þar sem fólk er fullvisst um að það sé látið, þótt það sé það ekki, Kluver-Buxy heilkennið sem orsakar fullt af óþarfa káfi! Treeman syndrome, já, googlið bar...
Fræga fólkið 08.09.2024 54:49
Við byrjum þáttinn á tæknilegum örðugleikum, bara gaman að því. En í þessum þætti ætlum við að þræða hinn flókna og stundum dökka heim fræga fólksins. Við förum yfir það hverjir eru vonda fólkið, ofbeldisseggir og misnotarar, hverjir eru hreinlega bara fávitar, en þátturinn er ekki bara á neikvæðu nótunum, því við könnum líka hvaða fræga fólk er bara doldið næs! Daði dæmir Michael Jackson, Birkir...
Ólympíuleikarnir 01.09.2024 49:48
Í þessum þætti ætlum við að fara rétt ofan í sögu Ólympíuleikanna á okkar sérstaka hráa hátt. Við byrjum á að stikla á því skemmtilega úr þeim síðustu og förum svo yfir hinar furðulegustu „íþróttir“ sem voru eitt sinn inni í þessum leikum. Eins og dúfu skotkeppni, nei, ekki leirdúfu skotkeppni, heldur dúfu skotkeppni! Púðluhundasnyrting sem 128 keppendur tóku þátt í, það voru veittar medalíur fyri...
Heppnasta fólk í heimi 25.08.2024 45:22
Í þessum þætti förum við yfir heppnasta fólk í heimi, sem flest hafa naumlega sluppið frá dauðanum á ótrúlegan hátt, og sumir oftar en einu sinni, jafnvel átta sinnum og ættu bara að vera heima hjá sér umvafin í bómul og búbbluplast. Hver var svo klár að þjappa dýnamít með járnkarli? Hver lifði af tvær kjarnorkusprengjur á fjórum dögum? Hvernig er að sogast út úr flugvél og hvað gerirðu þegar þú f...
Disney 18.08.2024 55:57
Það er mikið um glens og grín í þessum þætti eins og alltaf þegar Herpes bræður mæta, Davíð og Þröstur. Við losnum ekki við þá, þeir bara mæta aftur og aftur! Birkir byrjar þáttinn á því að kasta fram sinni hugmynd að framhaldslífi hvolpasveitarinnar fyrir eldri kynslóðir, eiginlega bara mjög góð hugmynd að bíómynd. Svo klúðrar hann brandara sem hann fékk gefins. En svo förum við í umræðu þáttarin...
Íslenska Jackass 11.08.2024 48:10
Í þessum þætti gefst ykkur tækifæri á að kynnast aðeins skuggalegri fortíð þáttastjórnenda. Fyrst tökum við létt spjall um þessa blessuðu endalausu Ólympíuleika á léttum nótum og Birkir talar um að hann ætli að taka jákvætt ár þrátt fyrir íslenska sumarið sé að drepa hann tilfinningalega. Við ætlum að rifja upp gömul strákapör í hópnum Krass sem var hið íslenska Jackass, byrjuðum meira að segja á...
Skrítnir fundnir hlutir 04.08.2024 53:51
Birkir byrjar á því að tala um sitt sjötta skilningarvit sem tengist klósettferðum Daða. Frekar einkennilegt... En í þessum þætti förum við yfir skrítna hluti sem hafa fundist á jörðinni. Hlutir eins og hinn dularfulli London hamar, Baghdad battery sem er 2.000 ára gömul rafhlaða, fjársjóður sem fannst undan ströndum Ísraels, nokkrir 2 metra háir Lego kallar sem hafa fundist á ströndum við Ameríku...
Viðtal: Frosti Logason 28.07.2024 1:38:40
Við fengum hlaðvarpsmógúlinn Frosta Logason til okkar í skemmtilegt spjall þar sem við förum til dæmis yfir Mínus ferilinn og rokk ævintýrin, hvernig það var að túra með Papa Roach og hita upp fyrir bönd eins og Incubus, Muse, Velvet Revolver, Metallica og fleiri. Við ræðum einnig um woke kúltúrinn á Íslandi, Big Pharma, Trumpismann, sjóævintýri Frosta, hlaðvarpsheiminn og margt fleira. Skemmtileg...
Skemmtilegar staðreyndir 21.07.2024 1:00:31
Hellum okkur í tilgangslausa fróðleikinn! Hversu þung eru ský! Vatn er ekki blautt! HA! Heilinn á þér er stanslaust að borða sjálfan sig, hver var hauslausi Mike sem lifði vel og lengi...hauslaus. Hvað eru margir með þriðju geirvörtuna, af hverju frýs heitt vatn hraðar en kalt vatn og af hverju klæjar okkur í húðina!!! Þú færð svör við helstu mysteríum lífsins í þessum þætti, svo hendir Daði í lei...
Birkir kemur frá Tene! 14.07.2024 40:25
Dáðasti sonur Íslands (að eigin sögn) snýr aftur heim eftir tveggja vikna skelfingarútlegð! Birkir ferðaprinsessa snýr tilbaka frá Tenerife og er ansi svipaður Ross úr Friends þegar hann fór í misheppnaða brúnkuspreyið. Birkir segir okkur aðeins frá klikkuðu villunni sem hann gisti í og færði sig svo á 5 stjörnu hótel með nektarnýlendu á þakinu sem hann sver að hann heimsótti ekki, villa er auðvit...
The 80´s 07.07.2024 48:25
Þáttur dagsins er eiginlega búbblur, bjór og Jager! Við byrjum á ranti um hunda út af einhverju, það bara byrjaði einhvernveginn, Daði talar um hundaárás sem hann lenti í og Birkir segir okkur frá því þegar hann rétt slapp frá mannætuvillihundum á Krít. En svo er það málefni þáttarins, the 80´s eða áttundi áratugurinn! Hvor er svalari, Gen X eða Millennials? Hver man ekki eftir VHS, floppy diskum,...
Skrítnar íþróttir 30.06.2024 46:16
Í þessum þætti förum við yfir skrítnar íþróttagreinar eins og Chess boxing, Camel jumping, Man Vs Horse maraþon, Cheeserolling, Wife carrying, Fireball football og Beer mile, en allt eru þetta viðurkenndar greinar í sínu landi, eða eins viðurkenndar og hægt er, þetta er brot af því sem við förum yfir, við ræðum einnig stórafreksíþróttaferlana okkar, hefði Birkir endað í landsliðinu í körfubolta? G...
Kvikmyndablaður 23.06.2024 40:34
Við sitjum uppi með Davíð og Þröst, þeir hreinlega neita að yfirgefa stúdíóið, þeir taka þátt í umræðuefni þessa þáttar sem er blaður og þvaður um hinar og þessar kvikmyndir, og allt þetta í lýsingu manna sem eru allir komnir vel í glas. Hver er hin fullkomna mynd? Hvaða myndir þolum við ekki? Hvaða myndir eru okkar Guilty Pleasure, og af hverju getur Birkir ekki sagt Guilty Pleasure og Saving Pri...
The Noughties 16.06.2024 54:55
Í þessum þætti förum við yfir The 2000´s eða The Noughties eins og það kallast víst. Ja hvað gerðist? Sem dæmi af því sem við förum yfir er það að iPodinn mætti, myspace, netflix, hrunið, rosalegir sjónvarpsþættir fóru af stað, svakalegar bíómyndir, Halli í Botnleðju hefði getað verið trommarinn í Coldplay og við sluppum með skrekkinn þar sem að Y2K varð ekki að raunveruleika, en hvað í raun var þ...
Húmor 09.06.2024 1:09:37
Davíð og Þröstur heimsækja okkur í þessum þætti til að tala um húmor! Þú vilt ekki missa af þessum þar sem við förum í geggjaða pabbabrandarakeppni! Vissir þú að það var hláturfaraldur árið 1962? Hann var töluvert skemmtilegri en Covid. Þarf maður virkilega að hafa svo miklar áhyggjur af Cancellation Nation? Við rifjum upp vandræðalegar sögur af okkur úr fortíðinni sem tengjast prumpi, lituðum hök...
Blæti 02.06.2024 41:38
Blæti! Hvað er blæti, hvernig blæti eru til? Dr. Birkir og Dr. Daði leggjast hér yfir hin ýmsu blæti mannkynsins. Sumt skrítið, annað eitthvað annað, hér er enginn að dæma, við erum bara að velta steinum og hafa gaman. Stórar spurningar sem við svörum er t.d. hvað er soft vore, hvað er hard vore, hvað er gasmasking blæti, við förum yfir þetta allt saman og miklu fleira. Við hringjum einnig í góðvi...
Supernatural 26.05.2024 53:16
Hér ræðum við um hið yfirnáttúrulega, það hljómaði bara eitthvað svo miklu betur að skíra þáttinn „Supernatural“ frekar en „Yfirnáttúrulegt“. Þabbaraþannig! En í þessum þætti fáum við góða gesti, þá Davíð og Þröst sem voru með okkur í trúmálsþættinum sem fékk rosalegar góðar viðtökur og eiginlega bara sló í gegn! Núna tökum við fyrir t.d. drauga, vampírur, varúlfa, uppvakninga (zombies), Bigfoot s...
B&B Gameshow 19.05.2024 31:35
Sennilega einn misheppnaðasti örþáttur sem hefur verið tekinn upp. Það er séns að við höfum verið aðeins í glasi og galsa, við förum í nokkra leiki eins og hvort myndirðu frekar, viljiði ekki vita hvaða vin Birkir myndi vilja að Daði myndi drepa ef hann þyrfti þess (mjög steikt dæmi)...og getur Daði hætt að drekka? Birkir stingur upp á samheitaleik til að athuga hversu tengdir við erum, svo er auð...
Podcasts similares
Replaio no es editor de podcasts; los nombres de los programas, las portadas y el audio pertenecen a sus autores y se distribuyen a través de canales RSS públicos