Birna Sif Kristínardóttir, Bryndís Ottesen
Brestur
Spjall um allt og ekkert sem fylgir því að vera kona með ADHD
No dejes de visitar la web del podcast y apoyar a su creador: brestur.is
Autor
Birna Sif Kristínardóttir, Bryndís Ottesen
Categoría
Web del podcast
Último episodio
2 de jul. de 2024
¿Dónde escuchar?
Podcasts en la app Replaio Radio Muy prontoLos podcasts llegarán muy pronto a la app. Instálala ahora y sé el primero en descubrir una forma totalmente nueva de vivir los podcasts
Episodios
49. ADHD kulnun 10.10.2023 1:29:21
Við erum búnar að fresta þessum þætti í næstum því ár en haustlægðirnar sem herja á okkur Íslendinga öskruðu á umræðuna: ADHD og kulnun. Er fólk með vægan heilaskaða líklegra til að lenda í kulnun/örmögnun? Hvað veldur því að við erum líklegri til að spóla yfir okkur og leita okkur seinna hjálpar ? Þurfum við liðveislu? Brestssystur ræddu í 49. þætti um helstu einkenni örmögnunar, gagnleg bjargráð...
48. Hitt eða þetta? 03.10.2023 1:18:18
Við rýnum inn í hugarheim Brestssystra og sjáum hversu líkar nú eða ólíkar þær eru í raun. Eru þær launsystur í raun og veru, eða er önnur þeirra frá Venus og hin frá Plútó?
47. Í hjónabandi með ADHD 26.09.2023 1:40:44
Framhald af sambandsþættinum átti að vera stuttur og laggóður þáttur, en varð það svo alls ekki. Birna og Dísa lögðu spurningar fyrir sambýlismenn sína varðandi áskoranir þess að búa með ADHD heila. Ekki er vitað hvort Brestssystur séu enn giftar eftir upptöku þáttarins.
46. Getuleysi heilans 19.09.2023 1:17:43
Í þætti vikunnar kynntu Brestssystur komandi áskriftarpakka til leiks. Þar voru þær þó rétt að byrja og fljótt og örugglega fór Birna að leggja drög að sértrúarsöfnuðinum Móður náttúru, Bryndís að opna sig um curly girl method áráttu og farið var í gegnum sameiginlegt tilfinningaúrvinnsluátak pylsufrekjukasts. Þáttur vikunnar er semsagt stútfullur af allskyns fróðleik og fíflalátum eins og aðrar v...
45. Þátturinn um það sem er bannað - á ADHD lyfjum 12.09.2023 1:13:53
Það væri vel séð ef hægt væri að minnka kvart undan lyfjaþyrstu fólki með ADHD í apótekum, handtökur þess á rúntinum og virðingarleysi í sjónvarpinu, svo þetta geti verið síðasti lyfjaþáttur haustsins. En hvað má eiginlega og hvað má ekki á ADHD lyfjum? Í miklum galsa ræddu Birna og Bryndís um störf og fleira skemmtilegt sem ekki má sinna á ADHD lyfjum og sömuleiðis störf sem henta vel fyrir ADHD...
44. AUKAÞÁTTUR - Erum við öll á amfetamíni? Svar við Kastljósviðtali við Óttar Guðmundsson geðlækni 08.09.2023 1:01:11
Konur sáu sig knúnar til að rífa upp míkrafónana við dögurð eftir svefnlitla nótt.
43. Viðtal við Katrínu Eddu Þorsteinsdóttur 05.09.2023 1:22:15
Hvatvísi kattahvíslarinn, vélaverkfræðingurinn og einlægi samfélagamiðlaforkólfurinn Katrín Edda Þorsteinsdóttir heiðraði Brestssystur með nærveru sinni í þætti vikunnar. Umræðuefnið var að þessu sinni ADHD, líkt og í síðustu 42 þáttum.
42. Elvanse skortur 29.08.2023 50:37
Hvernig er lífið í Elvanse skorti ? Brestssystrum var heitt í hamsi í þætti dagsins vegna Elvanse skorts á Íslandi. Farið var yfir áhrif á daglegt líf þegar konur þurfa að helminga dagsskammt eða jafnvel taka lyfjalausa daga til að drýgja þau lyf sem til eru eins lengi og hægt er. Þátturinn er í boði NOW Þú færð 25% afslátt af öllum vörum frá NOW með kóðanum ´brestur´ Brestssytur mæla með Loop eyr...
41. Spurt og svarað 22.08.2023 1:11:37
Er til meira viðeigandi titill á hlaðvarpsþætti sem fjallar um ADHD? Að spyrja linnulausra spurninga liðlangan daginn er sérlegt ADHD-áhugamál, en annað og alls ekki síðra áhugamál er að fá að svara slíkum heilabrjótum. Þættinum bárust spurningar, áskorun sem Brestssystur létu ekki framhjá sér fara. Þátturinn er í boði - NOW: Þú færð 25% afslátt af öllum vörum frá Now með k...
40. ADHD og skóla(ó)skipulag 15.08.2023 1:18:11
Fertugasti þáttur Brests er fyrsti þáttur Brests undir hatti Hljóðkirkjunnar - þvílík gleði! Í þættinum senda Brestssystur hugheilar stuðningskveðjur til námsmanna nær og fjær sem um þessar mundir eru að hreinskrifa stundaskrár í nýjar skipulagsbækur og litaraða pennaveskjum. Systurnar rifja upp ADHD-flækjustig fyrrum skólaganga og hvort, og þá hvernig, þær myndu tækla skólabekkinn í dag með betri...
39. ADHD-vænir vinnustaðir 08.08.2023 59:43
Brestsystur hafa stokkið í ýmis hlutverk á vinnumarkaðinum, allt frá sorphirðu yfir í gógódansara. Þegar það uppgvötaðist u.þ.b. 5 tímum fyrir brottför Birnu frá Barcelona að enn ætti eftir að taka upp eitt stykki þátt, var því tilvalið að líta yfir farinn veg á vinnumarkaði og rýna í hversu ADHD-væn störfin hafa verið. Hafa fleiri velt vöngum yfir hvort tollgæsla og ofursamkennd sé vænleg samsetn...
38. Hjólabrestur, bit og bjórsmakk 01.08.2023 1:00:25
Þáttur sem er eins kaótískur og titill hans ber til kynna. Hlustendur fá suðræn umhverfishljóð beint í æð úr einhverjum af fjölmögum almenningsgörðum Barselónaborgar, þar sem tvær konur með alla heimsins bresti brögðuðu á bjór eftir hjólreiðaferð sem átti að vera 10 mínútur en endaði óvart í 90. Hljóðperrar eru hvattir til að spóla fram um 16 mínútur vilji þeir ögra eyrum sínum með ögn skárri hljó...
37. Brestur í Barcelona 25.07.2023 51:55
Í svitabaði og sangríuslökun beint frá Barcelona er eirðarleysi, lyfjaofskömmtun, freknur, nærföt og túttufrelsi það helsta í fréttum. Þátturinn er í boði - NOW : Þú færð 25% afslátt af öllum vörum frá Now með kóðanum 'brestur' - Blush : Nældu þér í miða á Vottaður tottari Þá mæla Brestssystur með Loop eyrnatöppum fyrir öll þau s...
36. Brestur í orlofi 18.07.2023 1:18:17
Í þætti dagsins taka Birna og Bryndís lauflétt spjall um áskoranir tengdar sumarfríinu. Maður þarf jú alltaf að taka brestina sína með sér í sumarfríið. Þær láta þó þar ekki við sitja heldur taka þær einnig fyrir tannholdsbólgur, tittlinga, nenni mér ekki móment og margt margt fleira. Sumsé, þáttur sem enginn má láta framhjá sér fara. Þátturinn er í boði - NOW : Þú færð 25% afsl...
35. Jákvæða ADHD leiðsögukonan - Perla Magnúsdóttir 11.07.2023 1:03:25
Brestssystur hafa mögulega fundið jákvæðustu og peppuðustu leiðsögukonu landsins! Perla Magnúsdóttir er ferðamálafræðingur og leiðsögukona sem hefur tekist að virkja ADHD krafta sína í eigin fyrirtækjarekstri. Starf hennar er að sjá til þess að aðrir fái að njóta á ferðalögum sínum og fær á meðan að ferðast bæði innanlands og út fyrir landsteinana. Birna, Bryndís og Perla spjölluðu um krísustjórnu...
34. ADHD og samkennd 04.07.2023 1:19:19
Góð samkennd, ofur-samkennd, skaðleg samkennd og bara allskonar samkennd ásamt upplestri frá fyrstu kynnum Birnu og Bryndísar. Þátturinn er í boði - NOW: Þú færð 25% afslátt af öllum vörum frá Now með kóðanum 'brestur' - Blush: Nældu þér í miða á Vottaður tottari Þá mæla Brestssystur með Loop eyrnatöppum fyrir öll þau sem vilja hlúa að eyrum og geðhei...
33. Fjandans frestunaráráttan 27.06.2023 1:16:45
Eru allir með ADHD sóðabrækur? Hvort er betra að dreifa verkefnaálagi jafnt og þétt yfir lengri tíma, eða bíða þar til skilafrestsadrenalínið kikkar inn? Hvernig ætli hljómsveitarstjórinn líti út? Hvað hétu aftur föndurþættirnir vinsælu sem sýndir voru á RÚV fyrir jólin á tíunda áratugnum? Eru nokkuð til föndurhlaðvörp ? Hverjar eru bestu hárvörurnar fyrir curly girl method? Það má segja að ADHD h...
32. Hvaða áhrif hefur ógreint ADHD á samfélagið? 20.06.2023 1:07:11
Birna og Bryndís bæta fjárhag ríkissjóðs á 65 mínútum. Léttur snúningur á þjóðfélagsmálum í þætti vikunnar sem er í boði: - NOW: Þú færð 25% afslátt af öllum vörum frá Now með kóðanum 'brestur' - Blush: Nældu þér í miða á Vottaður tottari hér Samfélagsmiðlar hlaðvarpsins: Brestur á Instagram Spjallið umræðuhópur...
31. Ég nenni mér ekki 13.06.2023 1:03:49
Háþrýstidælur, háspennubakstur, handlagnar húsfreyjur og hyperfókusáverkar. Nenni mér ekki afrek vikunnar voru svo mörg að þau fylltu heilan þátt. Njótið vel. Þátturinn er í boði - NOW: Þú færð 25% afslátt af öllum vörum frá Now með kóðanum 'brestur' - Blush: Nældu þér í miða á Vottaður tottari hér Samfélagsmiðlar hlaðvarpsins: Brestur á Instagr...
30. Skemmdar konur með lélegt stöðu- og hreyfiskyn 06.06.2023 1:08:38
Þegar ADHD fer að valda konum krónískum bólgum, liða- og vöðvaveseni er gott að vera með hlaðvarp til að ranta um vanhæfni ADHD heilans. Birna og Bryndís fara yfir minnisstæðustu nenni mér ekki atvik vikunnar, líkamsstöður úr Hringadrottinssögu og byltingu fyrir hönd kvenna með ADHD. Stiklað á þeim stóru semsagt. Þátturinn er í boði NOW og Blush - næld...
29. Live Show - Brestur x Now með Ásu Ninnu 30.05.2023 1:11:26
Hvað er skemmtilegra en að tala mjög mikið í hlaðvarpi? Tala mjög mikið í hlaðvarpi með áhorfendur! Í þættinum má heyra upptöku af Live Showi Brests í boði Now sem fór fram í H verslun á dögunum. Ása Ninna Pétursdóttir fjölmiðlakona var viðmælandi þáttarins þar sem rætt var um margvíslegar áskoranir út frá ADHD í tengslum við á andlegt og líkamlegt heilbrigði. Í bland við einlægt og áhrifamikið sp...
28. ADHD og kynlíf - Spjallað við Indíönu Rós kynfræðing 23.05.2023 1:23:40
Miðvikudaginn 24. maí klukkan 20:00 verður Brestur með Live Show í H-verslun í boði Now . Frítt er á viðburðinn, nánari upplýsingar hér . Ætli kynlíf og almennt kynheilbrigði geti vafist fyrir fólki með ADHD? Þegar tvær hvatvísar konur tala um kynlíf er vissara að hafa fagaðila, sem einnig er hvatvís, á hliðarlínunni. Í þætti dagsins eiga Birna og Bryndís stórskemmtilegt spjall við Indíönu Rós kyn...
27. ADHD | DHDA - Þversagnir 16.05.2023 1:02:07
Að hafa of mikinn skilning á tilfinningum annara en engan skilning á eigin tilfinningum, að þrífast best í rútínu en hata rútínu, að þurfa svigrúm til að vinna úr tilfinningum en skilja ekki þegar aðrir þurfa það. Að vera með ADHD er stundum bara ein stór þversögn. Í þættinum eru líka upplýsingar um væntanlegt Live Show í H verslun í boði NOW, en þátturinn er í boði NOW og ...
26. Stýrifærnisbrestur og ADHD útúrsnúningar 09.05.2023 57:54
Gleðilegt hálft ár af Bresti! Þegar tvær konur með arfaslaka stýrifærni reyna að taka upp þátt um stýrifærni má svo sem alveg búast við því að spjallið fari frekar út í Bretsútrás til Færeyja, ný auglýsingastef, daginn sem Dísa hataði alla, Hoppkapphlaup í boði Birnu og margt fleira. Stútfullur hálfsárs afmælisgalsaþáttur í boði NOW og Blush - nældu þér í vörur fr...
25. Grímulaus ADHD lífstíll með Bjargeyju Ingólfsdóttur 02.05.2023 1:28:23
Bjargey Ingólfsdóttir er fararstjóri, fyrirlesari, félagsráðgjafi og fæðingardoula svo lengi mætti telja. Í 25. þætti Brests spjölluðu Birna og Bryndís við Bjargeyju um hyperfókus líðandi stundar, hvað varð til þess að hún hætti að gera það sem henni finnst leiðinlegt og öll þau spennandi verkefni sem hafa komið til hennar síðan. Þessi magnaði þáttur er í boði NOW og Blush...
Podcasts similares
Replaio no es editor de podcasts; los nombres de los programas, las portadas y el audio pertenecen a sus autores y se distribuyen a través de canales RSS públicos