Brotkast ehf.

Brotkast - Brot úr þáttum og opnir þættir

Arts IS ↓ Επεισόδια: 1424

Brotkast er efnisveita þar sem dagskrárgerðarmenn eru óháðir auglýsendum og svara eingöngu til áskrifenda sinna. Þannig bjóðum við upp á heilbrigðari umræðu sem verður ekki nauðbeygð undir háværan hóp róttæklinga á Twitter. Hægt er að kaupa áskrift á brotkast.is þar sem allt efnið er inni með aðeins einni áskrift.

Μην παραλείψεις να επισκεφτείς τη σελίδα του podcast και να στηρίξεις τον δημιουργό: brotkast.is

Δημιουργός

Brotkast ehf.

Κατηγορία

Arts

Ιστοσελίδα του podcast

brotkast.is

Τελευταίο επεισόδιο

5 Οκτ 2026

Πού να ακούσεις;

Podcast στην εφαρμογή Replaio Radio Έρχεται σύντομα

Τα podcast έρχονται σύντομα στην εφαρμογή. Εγκατάστησέ την τώρα και δες πρώτος μια εντελώς νέα προσέγγιση στα podcast

Κατέβασέ το από το Google Play Δωρεάν εγκατάσταση Android σχεδόν 10 εκατ. λήψεις · βαθμολογία 4,8 iOS σύντομα

Επεισόδια

Hvað segja rannsóknir um innflytjendur og afbrot? | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E36 12.06.2026

Hafa innflytjendur meiri tilhneigingu til að fremja afbrot? Hvað segja rannsóknir frá Svíþjóð, Danmörku, Bretlandi og Bandaríkjunum? Og hvers vegna virðast niðurstöður vera svo ólíkar milli landa? Í þessu viðtali ræðir Frosti Logason við Margréti Valdimarsdóttur, doktor í afbrotafræði við Háskóla Íslands, sem var nýkomin af alþjóðlegri ráðstefnu í Stokkhólmi þar sem fjallað var um tengsl innflytje...

Ísland þyrfti veikari krónu áður en evran yrði tekin upp | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E35 11.06.2026

Konráð Guðjónsson hagfræðingur ræðir við Frosta Logason um mögulega upptöku evru á Íslandi og segir að staða Íslands sé ólík stöðu flestra ríkja sem hafa gengið inn í evrusvæðið. Í viðtalinu bendir hann á að Ísland sé nú þegar hluti af innri markaði Evrópu í gegnum EES-samninginn og að því sé óvíst hversu mikill viðskiptaábatinn af upptöku evru yrði. Hann telur jafnframt að Ísland myndi líklega þu...

Innflytjendamál ógni þjóðaröryggi | Harmageddon | S04E23 10.06.2026

Jonathan Hall, óháður eftirlitsaðili með hryðjuverkalöggjöf í Bretlandi, segir stjórnvöld þurfa að ræða tengsl innflytjendamála og þjóðaröryggis af meiri hreinskilni. Hann varar við að fjandsamleg ríki geti nýtt sér ólöglega innflytjendur og að einstaklingar sem hafa upplifað stríð og áföll geti í sumum tilvikum skapað aukna öryggisáhættu. Ummælin koma í kjölfar hnífaárásar í Belfast sem valdið he...

Ivan Kaufmann: Þorgerður Katrín sagði að ég ætti að selja Vélfag Íslendingi | Spjallið | S04E34 09.06.2026

Ivan Kaufmann hefur verið sakaður um að vera „leppur Rússa“ af íslenskum stjórnvöldum. Í þessu ítarlega viðtali við Frosta Logason segir Kaufmann sína hlið á Vélfagsmálinu í fyrsta sinn af fullum þunga. Kaufmann heldur því fram að íslensk stjórnvöld hafi aldrei sýnt honum nein gögn sem réttlættu aðgerðirnar gegn honum, þrátt fyrir að hann hafi lagt fram umfangsmikil gögn um eignarhald sitt og viðs...

Þorgerður Katrín: Af hverju vill hún leiða Ísland inn í ESB? | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E33 03.06.2026

Í þessu ítarlega viðtali sest Frosti Logason niður með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra til að ræða eitt stærsta pólitíska álitaefni samtímans: mögulega aðild Íslands að Evrópusambandinu. Þau fara yfir:• Hvort ríkisstjórnin hafi nægilegt umboð til að hefja ESB-vegferðina• Af hverju Þorgerður telur samningsstöðu Íslands sterkari nú en áður• Áhrif Donald Trump, Grænlandsmálsins og br...

Útilokun Miðflokksins stefna frá Valhöll | Harmageddon | S04E22 02.06.2026

Sjálfstæðisflokkurinn telur að leiðin upp úr sögulegu fylgishruni sé að ráðast gegn Miðflokki og mála hann upp sem óstjórntækan öfgaflokk. Þannig telur flokkurinn sig geta endurheimt stöðu sína sem fjöldahreifing skynsamra hægri manna. Einnig ræðum við í þessum þætti um skynsama stefnu NoBorders samtakanna um að íslenskt velferðarkerfi eigi að bjóða öll velkomin, rekstur Icelandair sem er ekki sam...

Bakslagið #38 - Jakob Bjarnar 01.06.2026

Jón Þormar, Helgi Bjarnason og Jakob Bjarnar ræða málin.

Segir að Heiða Björg hafi útrýmt heimilisleysi í Reykjavík | Fullorðins | S03E16 31.05.2026

Ragnar Erling Hermannsson hefur barist fyrir málefnum heimilislausra í nokkur ár og hefur háð baráttu við fíkniefnadjöfulinn. Hann segir okkur sína sögu í þættinum í dag. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Missti báða foreldra sína með stuttu millibili skömmu eftir fermingu | Fullorðins | S03E15 29.05.2026

Ingibjörg Birna Ársælsdóttir missti báða foreldra sína úr krabbameini, þegar hún var sjálf bara táningur. Í þætti dagsins segir hún okkur frá því hvernig hún komst í gegnum árin á eftir og hvað hún gerði til að búa sér til fallegt og farsælt líf. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Sjálfstæðisflokkurinn ekki hægriflokkur | Harmageddon | S04E21 27.05.2026

Kjósendur Sjálfstæðflokksins vakna nú upp við þann veruleika að þeir hafa kosið enn eina vinstristjórnina í Reykjavík. Flokkurinn virtist vera ná sér eftir erfitt gengi undanfarið en nú þarf kraftaverk að gerast í Reykjavík til að kjósendur muni treysta flokknum aftur á næstu árum. Jafnvel grjótharðir, innmúraðir Sjálfstæðismenn þurfa nú að fara horfast í augu við þá staðreynd að forysta flokksins...

Ævintýraprinsinn Björgvin Halldórsson | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E32 27.05.2026

Jakob Frímann Magnússon er nýjasti gestur Spjallsins með Frosta Logasyni. Hann fer hér yfir kynni sín af Björgvini Halldórsyni heitnum en þeir félagar tengdust vinaböndum í gegnum tónlistina og spannaði sú vinátta marga áratugi. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Bjórkast #37 - Frosti Sigurjónsson 25.05.2026

Jón Þormar, Helgi Bjarnason, Sverrir Helgason og Frosti Sigurjónsson ræða málin.

Sjálfstæðisflokkurinn ekki kosinn til að vinna til vinstri | Harmageddon | S04E20 22.05.2026

Þrátt fyrir að enginn málefnaleg rök liggi fyrir því, þá er Sjálfstæðisflokkurinn leitandi logandi ljósi af ástæðum til að vinna ekki með Miðflokki. Enginn kjósandi Sjálfstæðisflokks ber þá ósk í brjósti að flokkurinn vinni til vinstri og Viðreisn hefur ekkert að bjóða flokknum annað en ágreining um nokkur af helstu málefnum kosninganna. Samt hefur Sjálfstæðisflokkurinn enn ekki hafið viðræður við...

Brottfararstöð nauðsynleg | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E31 20.05.2026

Dómsmálaráðherra Íslands, Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, er gestur Frosta Logasonar í ítarlegu og umdeildu viðtali um helstu hitamál íslenskra stjórnmála. Í viðtalinu ræðir Þorbjörg meðal annars um hertari stefnu ríkisstjórnarinnar í útlendingamálum, fyrirhugaða brottfararstöð fyrir þá sem hafa fengið synjun um vernd, skipulagða brotastarfsemi, netveðmál, öryggi samfélagsins og stöðu réttarker...

Sjálfstæðisflokkur undir þrýstingi Vóksins | Harmageddon | S04E19 18.05.2026

Í Harmageddon þætti dagsins förum við yfir niðurstöðu borgarstjórnarkosninganna. Kjósendur gáfu til kynna skýran vilja til þess að breytt yrði um stefnu og gáfu Sjálfstæðisflokki og Miðflokki meirihluta atkvæða til þess. Líklegt er þó að Sjálfstæðisflokkur muni ekki virða þennan vilja kjósenda sinna, heldur eigi eftir að bjóða varadekkjum fyrri meirihluta upp í dans. Við förum yfir málið í Harmage...

Bjórkast #36 - Þórarinn Hjartarson 18.05.2026

Helgi Bjarnason, Sverrir Helgason og Þórarinn Hjartarson ræða niðurstöður sveitastjórnakosninga og fleira.

Mun ekki hætta fyrr enn sannleikurinn kemur í ljós | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E30 15.05.2026

Páll Steingrímsson, fyrrverandi skipstjóri hjá Samherja, er nýjasti gestur Spjallsins með Frosta Logasyni. Héraðsdómur sýknaði nýverið ríkisútvarpið og Þóru Arnórsdóttur, fyrrverandi ritstjóra Kveiks, af kröfum Páls en hann fór fram á miskabætur vegna ætlaðra brota starfsmanna Rúv gegn friðhelgi einkalífs hans. Páll hefur ákveðið að áfrýja málinu til Landsréttar auk þess sem hann hefur tilkynnt RÚ...

Nýtt faraldursleikrit sett á svið | Harmageddon | S04E18 13.05.2026

Í þætti dagsins förum við yfir fyrstu fréttir af hinni skelfilegu hantaveiru en undirbúningur Alþjóðlegu heilbrigðismálastofnunarinnar fyrir næsta faraldur er nú í fullum gangi. Þá fjöllum við einnig um aktívistablaðamenn sem skrifa um Miðflokkinn og áherlsur Samfylkingarinnar á aukna hinseginfræðslu í grunn- og leikskólum fyrir borgarstjórnarkosningarnar um helgina. Þá skoðum við einnig bestu og...

Segir útgöngu geta orðið „praktískt ómögulega“ eftir upptöku evru | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E29 11.05.2026

Frosti Sigurjónsson er nýjasti gestur Spjallsins með Frosta Logasyni. Hann hefur nýverið gefið út Bókina um Evrópusambandið – hvað er í pakkanum, sem hann segir ekki vera áróðursrit um kosti eða galla ESB, heldur tilraun til að útskýra með hlutlægum hætti hvernig sambandið sé uppbyggt og hvaða skuldbindingar fylgi aðild. Í samtalinu fer Frosti meðal annars yfir evruna, fullveldi, kostnað við inngö...

Smyglaði 1,5 kílói af hassi til Íslands árið 1972 | Fullorðins | S03E14 10.05.2026

Ingibergur Sigurðsson er með 4. stigs krabbamein og veit að hann á skammt eftir ólifað. Í þætti dagsins segir hann okkur frá lífi sínu, erfiðri æsku og hvernig er að sættast við það sem ekki fæst breytt. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Túrbókrabbamein eftir bólusetningar | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E28 07.05.2026

Ute Krüger er þýskur læknir og meinafræðingur með 25 ára starfsreynslu. Á árunum 2005-2023 starfaði hún sem læknir við brjóstameinagreiningu, þar af í átta ár við rannsóknir á brjóstakrabbameini við Háskólann í Lundi. Haustið 2021, eftir að byrjað var að dreifa bóluefnum við Covid-19, tók hún eftir að sjúklingar með brjóstakrabbamein voru með óvenjulegar breytingar í vefjum, nokkuð sem hún hafði a...

Segir bæinn bera ósanngjarna byrði af hælisleitendum | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E27 07.05.2026

Einar Geir Þorsteinsson, oddviti Miðflokksins í Hafnarfirði, er nýjasti gestur Spjallsins með Frosta Logasyni. Einar segir að heildarkostnaður Hafnarfjarðar vegna móttöku flóttamanna og/eða hælisleitenda hafi numið rúmlega 4,3 milljörðum króna á árunum 2020 til maí 2025, samkvæmt gögnum sem flokkurinn fékk nýlega frá bænum. Einar segir að Hafnarfjörður sé búinn að vera einn stærsti þjónustuaðili r...

Sóttvarnarfasismi leiddur í lög á Íslandi | Harmageddon | S04E17 06.05.2026

Í þætti dagsins fjöllum við um ný og umdeild sóttvarnarlög sem benda til þess að við höfum ekkert lært af mistökum covid-tímabilsins. Við ræðum einnig um sviksemi í mannréttindabransanum og falskar baráttur gegn svokallaðri hatursorðræðu. Þá fjöllum við um mögulegan meirihluta Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks í Reykjavík og skoðum í lokin skaðleg áhrif óhóflegrar fíkniefnaneyslu á tónlistarsköpun...

Jeremy R. Hammond, idependent journalist | Arnar Þór | S03E09 | Full episode 05.05.2026

The public is being dumbed down through state propaganda designed to manufacture consent. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Fólk sækist eftir að komast á bæturnar | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E26 04.05.2026

Lárus Guðmundsson, fyrrverandi knattspyrnuhetja og oddviti Miðflokksins í Garðabæ, er nýjasti gestur Spjallsins með Frosta Logasyni. Hann hefur lengi verið ötull talsmaður þess að útlendingamál á Íslandi verði tekin fastari tökum og því ekki undarlegt að hann hafi gengið til liðs við Miðflokkinn. Lárus segir Garðabæ vera orðið alltof skuldsett bæjarfélag og talar fyrir auknu aðhaldi í rekstri bæja...

Άκου το podcast Brotkast - Brot úr þáttum og opnir þættir στο Replaio

Ραδιόφωνο και podcast σε μία εφαρμογή - δωρεάν, χωρίς εγγραφή. Εγκατάστησέ την σήμερα και μη χάσεις την πρεμιέρα

Κατέβασέ το από το Google Play

Το Replaio δεν είναι εκδότης podcast - τα ονόματα των εκπομπών, τα εξώφυλλα και ο ήχος ανήκουν στους δημιουργούς τους και διανέμονται μέσω δημόσιων ροών RSS