Tal
Eftirmál
Fyrrum fréttakonurnar Þórhildur Þorkels og Nadine Yaghi rifja upp áhugaverð fréttamál og fjalla um þau á mannlegum nótum.
Μην παραλείψεις να επισκεφτείς τη σελίδα του podcast και να στηρίξεις τον δημιουργό: www.buzzsprout.com
Δημιουργός
Tal
Κατηγορία
Ιστοσελίδα του podcast
Τελευταίο επεισόδιο
19 Νοε 2026
Πού να ακούσεις;
Podcast στην εφαρμογή Replaio Radio Έρχεται σύντομαΤα podcast έρχονται σύντομα στην εφαρμογή. Εγκατάστησέ την τώρα και δες πρώτος μια εντελώς νέα προσέγγιση στα podcast
Επεισόδια
Önnur mál 6# Rannsóknir lögreglu á barnaníðsefni og ýmsir lausir endar 19.11.2026 16:01
Þetta er sýnishorn af þættinum ➡️ Skráðu þig í áskrift á eftirmal.is til að hlusta á þáttinn í fullri lengd⬅️ Hverjir eru það sem þurfa að skoða barnaníðsefni þegar slík mál eru til rannsóknar hjá lögreglu? Bylgja Hrönn Baldursdóttir yfirmaður kynferðisbrotadeildar Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hefur starfað við að yfirfara barnaníðsefni um árabil. Hún ræðir við okkur í þættina um hvernig hún...
Keikó - háhyrningurinn sem hreyfði við heimsbyggðinni 12.11.2026 1:26:44
Háhyrningurinn Keikó sigraði hjörtu heimsbyggðarinnar í kvikmyndinni Free Willy. Talað var um að hann væri frægasti Íslendingurinn á tímabili og var hvalurinn fastagestur í fréttum um árabil. En þegar hann var fluttur til Vestmannaeyja frá Bandaríkjunum, þar sem átti að hleypa honum aftur í sitt náttúrulega umhverfi, spruttu upp ýmsar spurningar um dýravelferð, pólitíska hagsmuni og himinháar peni...
Önnur mál #4 - Beint úr dómsal í Eltihrellismálinu og dætur Lúðvíks Pétursonar ætla ekki að gefast upp 05.11.2026 20:39
Þetta er sýnishorn af þættinum ➡️ Skráðu þig í áskrift á eftirmal.is til að hlusta á þáttinn í fullri lengd⬅️ Við fórum í Héraðsdóm Reykjaness til að fylgjast með aðalmeðferð í máli meinta eltihrellisins Írisar Helgu Jónatansdóttur. Spennan í réttarsalnum var áþreifanleg. Við förum ítarlega yfir stöðuna í réttarhöldunum. Í þættinum ræðum við einnig við dætur Lúðvíks Péturssonar sem féll ofan í sp...
Morðið á Hrafnhildi Lilju Georgsdóttur 29.10.2026 1:00:16
Hrafnhildur Lilja Georgsdóttir var vinamörg og ævintýagjörn ung kona frá Ólafsfirði sem fór í ferðalag til Dóminíska lýðveldisins í Karíbahafi árið 2008. Hún skilaði sér aldrei heim því eftir stutta dvöl í landinu var hún myrt á hrottafenginn hátt. Eftir stendur fjölskylda Hrafnhildar Lilju í sárum öllum þessum árum síðar og ótal stórum spurningum er enn ósvarað. Þrátt fyrir að fjórir hefðu verið...
Önnur mál #3 - Réttarhöld yfir íslenskum eltihrelli nálgast 22.10.2026 12:32
➡️ Skráðu þig í áskrift á eftirmal.is til að hlusta á þáttinn í fullri lengd⬅️ Íslensk kona á fertugsaldri var í vor ákærð fyrir kerfisbundið umsáturseinelti gegn nokkrum karlmönnum og fjölskyldum þeirra. Einnig var hún ákærð fyrir skjalafals, rangar sakargiftir, hótanir, ærumeiðingar og barnaverndarbrot. Málið hefur vakið mikla athygli, lýsingar fórnarlamba konunnar eru lyginni líkastar og minna...
Nágrannaerjur og níðstöng við Esjurætur 15.10.2026 1:07:07
Í maí 2022 vaknaði Kristjana Þórarinsdóttir upp við að búið var að reisa níðstöng með afhöfðuðum hesti við heimili hennar. Nokkrum árum áður hafði fjölskyldan látið drauminn um að flytja í sveit rætast og sest að á Skrauthólum við Esjurætur. En draumurinn breyttist fljótlega í martröð þar sem andleg málefni, frjálsar ástir, nakið fólk og nágrannaerjur enduðu með ósköpum. Kristjana fer yfir þetta u...
Önnur mál #2 Börn Johns Snorra tjá sig í fyrsta sinn 08.10.2026 19:00
➡️ Skráðu þig í áskrift á eftirmal.is til að hlusta á þáttinn í fullri lengd⬅️ Í þessum þætti fara elstu börn Johns Snorra Sigurjónssonar yfir hinstu för föður síns á K2 í Pakistan. Málið hefur undanfarið verið í umræðunni eftir að heimildarmynd um málið fór í sýningu. Ættingjar Johns Snorra hafa hingað til ekki tjáð sig um ferðina en börn hans opna sig hér í fyrsta sinn um atburðarásina, biðina ó...
Edition-málið 01.10.2026 1:59:57
Fá mál hafa vakið jafn mikla athygli og óhug og Edition málið svokallaða. Frönsk fjölskylda, hjón og 29 ára dóttir þeirra, komu hingað til lands júní 2025 í þeim tilgangi að fremja sjálfsvíg saman á Edition lúxushótelinu. Þegar lögregla kom á vettvang á voru eiginmaður og dóttir Ming Ting Mancel látin af völdum stungusára, en Ming Ting sjálf lifði af. Hún afplánar nú 12 ára fangelsisdóm í fangels...
Önnur mál #1- Birna Brjánsdóttir, harmleikur á Nýbýlavegi og hver var Catherine Mancel? 01.10.2026 26:18
➡️Skráðu þig í áskrift á eftirmal.is til að hlusta á þáttinn í fullri lengd⬅️ Nadine og Þórhildur fara um víðan völl í Öðrum málum. Í þessum þætti ræða þær við Leif Halldórsson rannsóknarlögreglumann sem rifar upp hvarf Birnu Brjánsdóttur, yfirheyrslur yfir Thomasi Möller Olsen og fleiri eftirminnileg mál frá hans ferli. Þá förum við yfir lausa enda í Edition-málinu.
** SÉRSTÖK TILKYNNING ** 30.09.2026 5:27
Þórhildur og Nadine kynna spennandi breytingar og glænýtt systurhlaðvarp Eftirmála - Önnur mál. ➡️ Skráðu þig í áskrift á eftirmal.is
Hryðjuverkamálið 28.07.2026 1:43:33
Sérsveit ríkislögreglustjóra fór í umfangsmiklar aðgerðir í september 2021 og gerði upptæk þrívíddarprentuð vopn sem talið var að væru ætluð til að fremja hryðjuverk hér á landi. Tveir menn voru handteknir og ákærðir fyrir tilraun til hryðjuverka sem er einsdæmi í íslenskri réttarsögu. Í kjölfarið velktist málið um í réttarkerfinu í fjögur ár og í ljós kom að ekki var allt sem sýndist. Við ræðum v...
Leiðangur Johns Snorra á K2 22.07.2026 1:19:27
Leiðangur Johns Snorra Sigurjónssonar á K2, hættulegasta fjall jarðar, í febrúar 2021 átti eftir að reynast örlagaríkur. Hann freistaði þess að verða fyrstur manna til að klífa fjallið að vetrarlagi og þjóðin bæði fylgdist með undirbúningnum að ferðinni og hélt niðri í sér andanum þegar hætti að heyrast frá honum. Farið var í umfangsmiklar leitaraðgerðir á þessu miskunarlausa fjalli í Pakistan, þa...
Ashley Madison og Vodafone-lekinn 13.07.2026 57:50
Stórtækasta innrás í einkalíf Íslendinga sem nokkru sinni hefur átt sér stað var þegar tölvuþrjótar láku tugþúsundum sms skilaboðum Íslendinga á netið í Vodafone-lekanum árið 2013. Hver sem er gat þannig flett upp persónulegum málum fólks um allt á milli himins og jarðar. Tveimur árum síðar voru svo viðkvæmar persónuupplýsingar yfir 100 Íslendinga sem skráðir voru á framhjáhaldssíðuna Ashley Madis...
Krýsuvíkurmálið 07.07.2026 1:12:18
Haustið 2024 fór hrollur um þjóðina þegar karlmaður á fimmtugsaldri var handtekinn grunaður um að hafa orðið tíu ára dóttur sinni að bana skammt frá Krýsuvíkurvegi. Ýmsar sögusagnir fóru á flug og enn eru spurningar sem lögreglan fékk aldrei svör við. Atburðarásin vakti líka um stórar spurningar um stöðu geðheilbrigðismála hér á landi. Leifur Halldórsson rannsóknarlögreglumaður fór með rannsókn þe...
Morðið á Hannesi Þór Helgasyni 01.04.2026 1:29:33
Fá sakamálmál hafa haft jafn mikil áhrif á íslensku þjóðina og morðið á Hannesi Þór Helgasyni árið 2010. Morðið var einstaklega hrottafengið og þaulskipulagt auk þess sem nokkuð langan tíma tók að upplýsa það. Gunnar Rúnar Sigurþórsson játaði verknaðinn en hann var hugfanginn af kærustu Hannesar og hafði fyrir morðið sett ástarjátningu til hennar á YouTube. Patrik Atlason, systursonur Hannesar, va...
Rock star Supernova ævintýrið 16.02.2026 1:05:43
Átta þúsund manns tóku á móti Magna Ásgeirssyni í Smáralind þegar hann snéri heim eftir þátttöku í raunveruleikaþættinum Rock Star Supernova. Þjóðin stóð á öndinni í þrjá mánuði, vaknaði á nóttunni til að kjósa og samkeppnisaðilar á markaði fóru í samstillt átak til að koma sem flestum atkvæðum í gegnum símakosningu. Magni lenti í fjórða sæti í keppninni en við heimkomu færði ráðherra honum gjöf...
Wok On málið / Quang Le 02.02.2026 1:14:22
Quang Le, veitingamaðurinn umsvifamikli sem breytti nafni sínu í Davíð Viðarsson, er grunaður um peningaþvætti, mansal, skipulagða glæpastarfsemi og fleira. Hann var handtekinn árið 2024 en bíður enn dóms í málinu sem kennt er við veitingastaðinn Wok On þar sem hann var einn eigenda. Málið er talið vera umfangsmesta mansalsmál Íslandssögunnar, teygir anga sína í ótal áttir og tekur óvænta stefnu o...
PIP brjóstapúðamálið 19.01.2026 54:00
Yfir 400 íslenskar konur fengu grædda í sig ólöglega silikonpúða á árunum 2000-2010 frá fyrirtækinu PIP. Í brjóstapúðunum var iðnaðarsilikon í stað læknisfræðilegs silikons og voru þeir í mörgum tilvikum byrjaðir að leka. Í Eftirmálum förum við yfir þetta risastóra svikamál og ræðum við eina þeirra sem fékk púðana grædda í sig með skelfilegum afleiðingum. Málið er enn í gangi fyrir dómstólum meira...
Skáksambandsmálið 06.01.2026 1:08:31
Sérsveitin réðist inn í húsnæði Skáksambands Íslands með látum í janúar 2018 eftir að dularfullur pakki barst þangað. Um svipað leyti féll íslensk kona fram af svölum á heimili sínu á Spáni og lamaðist. Þessi atvik og fleiri urðu hluti af Skáksambandsmálinu svokallaða, marglaga sakamáli sem líkist einna helst kvikmyndahandriti. Í þættinum förum við yfir atburðarásina með fréttamanninum Sunnu Sæmun...
Raðmorðinginn og íslenska eiginkonan 22.12.2025 1:01:01
Rex Heuermann, sem grunaður er um að vera einn mesti raðmorðingi í sögu Bandaríkjanna, er giftur íslenskri konu að nafni Ása Ellerup og hefur nokkrum sinnum komið hingað til lands. Hann er talinn hafa myrt fjölda kvenna á Gilgo ströndinni í New Jersey og bíður nú réttahalda vestanhafs. Talið er að hann hafi framið einhver ódæðisverkanna á meðan Ása var í fríi með börn þeirra á Íslandi. Við förum y...
Hvarf Lúðvíks Péturssonar í Grindavík 08.12.2025 1:08:28
Í dimmum og köldum janúarmánuði árið 2024 átti sér stað hræðilegt slys í Grindavík þegar jörðin opnaðist og Lúðvík Pétursson, verktaki sem var við gröfuvinnu á svæðinu, hvarf ofan í sprunguna. Þjóðin stóð á öndinni á meðan fordæmalaus leit fór fram í stórhættulegum aðstæðum. Í þættinum er rætt við dætur Lúðvíks sem vilja endurheimta líkamsleifar föður síns. Styrktaraðilar Eftirmála eru: -NOLA snyr...
Braggamálið 18.02.2025 45:53
Það hefði líklega fáa grunað að uppbygging á gömlum bragga í Nauthólsvík yrði eitt stærsta fréttamál ársins 2018, en það varð raunin. Braggamálið setti samfélagið á hliðina þegar í ljós kom að kostnaður við framkvæmdina hafði farið langt fram úr öllu hófi, meðal annars vegna höfundaréttavarinna stráa sem plantað hafði verið fyrir framan braggann. Þátturinn er í boði: Nettó Duck & Rose Sjö...
Gýgjarhólsmálið 03.02.2025 53:23
Í mars 2018 kom upp morðmál á sveitabænum Gýgjarhóli II í uppsveitum Árnessýslu þegar maður varð bróður sínum að bana með hrottafengnum hætti. Málið lamaði samfélagið í sveitinni og fjölskylda bræðranna sat eftir í sárum. Í þættinum fara börn fórnarlambsins yfir áfallið, baráttuna fyrir dómstólum og hvernig líf þeirra breyttist þennan örlagaríka dag. Þátturinn er í boði: Nettó Duck & Ros...
Flugslysið í Skerjafirði 20.01.2025 48:42
Í ágúst árið 2000 hrapaði lítil flugvél í sjóinn í Skerjafirði í Reykjavík með sex manns innanborðs. Fólkið var á leið heim eftir Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum þegar vélin hætti við lendingu á síðustu stundu. Flugslysið vakti strax upp stórar spurningar og varð að risastóru fréttamáli þar sem aðstandendur fórnarlambanna tóku rannsóknina í eigin hendur til að komast að sannleikanum. Friðrik Þór Guðmun...
Παρόμοια podcast
Το Replaio δεν είναι εκδότης podcast - τα ονόματα των εκπομπών, τα εξώφυλλα και ο ήχος ανήκουν στους δημιουργούς τους και διανέμονται μέσω δημόσιων ροών RSS