Tinna Gudrun Barkardottir
Sterk saman
Sterk saman er spjallþáttur þar sem fólk með reynslu kemur og segir söguna sína auk þess sem við fáum sérfræðinga og fagfólk í settið til okkar.
Besuch unbedingt die Website des Podcasts und unterstütze die Macher: podcasters.spotify.com
Autor
Tinna Gudrun Barkardottir
Kategorie
Podcast-Website
Neueste Folge
25. Okt 2026
Wo hören?
Podcasts in der App Replaio Radio Bald verfügbarPodcasts kommen bald in die App. Installiere sie jetzt und erlebe als Erster einen ganz neuen Blick auf Podcasts
Folgen
#66 Valkyrja Sandra 10.09.2023 1:21:56
Valkyrja Sandra er 34 ára, gift, þriggja barna móðir sem kynntist fyrst heilbrigðum samskiptum 27 ára gömul en þá kom eiginmaður hennar inn í líf hennar og "setti hana og elsta son hennar í bómul". Hún á langa og mikla sögu misnotkunar, ofbeldis og einmanaleika og tengslaleysis.
#65 Sigurjón Sindri 03.09.2023 1:18:48
Sigurjón Sindri er 32 ára ADHD strákur sem passaði ekki inn í box skólakerfisins sem krakki. Hann fékk þau skilaboð frá samfélaginu að hann væri ekki nóg en alltaf vann það með honum að vera sterkur félagslega og skemmtilegur. Hann á langa neyslusögu, hefur setið inni fyrir fíkniefnabrot og er í bata frá fíkn í dag.
#64 Iðunn 27.08.2023 1:52:02
Iðunn er ein af þessum sem hefur þurft að ganga í gegnum of mikið. Skólagangan gekk brösuglega sökum eineltis, hún greindist 16 ára með krabbamein og eftir það tók fíknin við. Hún er mögnuð, einstæð móðir sem lætur bókstaflega ekkert stoppa sig.
#63 Aðstandendur 20.08.2023 1:13:30
Í þættinum ræðum við aðstandendur, hlutverk þeirra innan fjölskyldna og hvernig sumir þeirra feta sömu braut en aðrir ekki. Eins og oft förum við einnig um víðan völl og höldum okkur ekki "on topic" allan tímann.
#62 Alexandra, 19 ára mögnuð stelpa! 13.08.2023 1:18:42
Alexandra Sif er 19 ára móðir, kærasta, systir og dóttir sem hefur þurft að upplifa margt á stuttri ævi. Hún missti föður sinn í sjálfsvígi í júní á þessu ári eftir að hann hafði gert allmargar tilraunir, þetta var þó öðruvísi, segir hún. Hún segir söguna sína, frá tilfinningunum, sorginni, reiðinni og því að vera barn alkahólista.
#61 Ragna Erlends 23.07.2023 2:48:45
Ragna er 43 ára, þriggja barna móðir sem hefur þurft að berjast með kjafti og klóm við kerfið. Margir Íslendingar kannast við söguna hennar en hafa ekki fengið að heyra hana. Hún eignaðist langveika dóttur, Ellu Dís, sem var ranglega greind á Íslandi og fékk rétta greiningu of seint. Hún segir söguna sína í þættinum.
#60 Melkorka Torfa 16.07.2023 1:24:22
Melkorka er alin upp í sveit, kynntist barnsföður sínum á Spáni þrátt fyrir að búa bæði í Hafnarfirði og halda þau allar hátíðir saman sem fjölskylda þrátt fyrir að leiðir þeirra hafi skilið fyrir mörgum árum, sem par. Melkorka á stóra sögu og förum við ofan í saumana í þættinum.
#59 Ásdís Birna 09.07.2023 1:11:43
Ásdís er 26 ára mamma, sálfræðinemi, kærasta og vinnur m.a. í málefnum heimilislausra. Hún á stóra sögu, er með ADHD, glímdi um tíma við þungan vímuefnavanda og bjó á götunni. Þekkir a eigin skinni að vera barn fanga og vill að kerfið grípi börn sem lenda í þeirri stöðu.
#58 Köllum hana Guggu 02.07.2023 1:09:58
Hún er á fimmtugsaldri, hún kemur ekki fram undir sínu nafni en köllum hana Guggu. Hún ólst upp hjá móður sem var ófær um að veita henni ást og umhyggju, rótleysi, ofbeldi, misnotkun og höfnun einkenndi lífið.
#57 Ofbeldi - okkar upplifun og reynsla 25.06.2023 1:11:53
Í þættinum ræðum við um okkar upplifun og reynslu af ofbeldi sem við höfum orðið fyrir og beitt. Aðeins almennt um ofbeldi og hvað gæti verið gagnlegt fyrir fólk að vita og gera sem aðstandendur þolenda sem dæmi.
#56 Björg Pétursdóttir 18.06.2023 1:44:03
Björg Pétursdóttir er 45 ára, einstæð móðir úr Reykjavík, söngkona og vinnur sem stuðningsfulltrúi í grunnskóla. Hún var lögð í gróft einelti alla sína grunnskólagöngu sem mótaði hana. Hún segir okkur söguna sína í þættinum.
#55 Elín Arna 11.06.2023 1:51:15
Elín Arna er mögnuð, 25 ára gömul stelpa sem ólst upp við óviðunandi aðstæður. Faðir hennar heitinn var andlega veikur, virkur alkahólisti og glímdi við spilafíkn auk þess að beita ofbeldi. Allt kerfið brást henni. Elín segir söguna sína í þættinum.
#54 Begga - Baráttan fyrir barnið, við kerfið pt.2 04.06.2023 1:15:38
Begga kom í þáttinn fyrir tæpu ári og sagði frá miklum barningi við kerfið fyrir eldri son sinn. Í þessum þætti ræðum við stöðu mála, hvað hefur breyst, ef eitthvað? Hvað gerir barnavernd og BUGL fyrir 9 ára barn í sjálfsvígshættu ásamt ýmsu öðru.
#53 Begga pt. 1 28.05.2023 1:01:39
Fyrri hluti sögu Berglindar, hluti tvö í næstu viku.
#52 Hannesína Scheving 21.05.2023 1:29:55
Hannesína er 55 ára móðir og amma sem hefur frá unga aldri þurft að hafa fyrir sínu. Hún ólst upp í mikilli óreglu, óöryggi og upplifði allt mögulegt sem börn eiga ekki að gera. Hún þróaði með sér fíkn seinna á lífsleiðinni og gerði hluti sem hún hélt hún myndi aldrei gera. Hannesína er mögnuð kona, klár, heiðarleg, jákvæð og sér hlutina út frá frábæru sjónarhorni.
#51 Hafrún - aukin notkun, yngri notendur, faraldur? 14.05.2023 1:16:53
Við Inga Hrönn fengum Hafrúnu til okkar í þessum þætti til að spjalla um hennar líf, skaðaminnkun, Ylju (neyslurými sem hún stýrði), aukna neyslu ungmenna á oxy, aðallega, hvernig þessi faraldur sem mikið er talað um horfir við þeim sem vinna næst notendum og margt fleira.
#50 Köllum hana Maríu 07.05.2023 2:02:27
María kýs að koma ekki fram undir réttu nafni til að vernda börnin sín fjögur. Hún ólst upp að stórum hluta innan kerfisins, foreldrar hennar alkahólistar og hún fetaði sjálf þeirra leið en rataði sem betur fer til baka. Hún á stóra sögu áfalla sem hún segir okkur.
#49 Heida 30.04.2023 1:35:26
Heida
#48 Svala - okkar uppáhalds Svala 23.04.2023 1:20:04
Okkar eina sanna Svala sem kennd er við skaðaminnkun kom í spjall til okkar Ingu og ræddum við málin með þrjá vinkla. Úr varð skemmtilegt, fræðandi og áhugavert spjall um hin ýmsu málefni.
#47 Soffía 16.04.2023 1:34:07
Soffía er mögnuð kona sem á stóra og átakanlega sögu.
#46 Sara Páls 09.04.2023 1:21:20
Sara Pálsdóttir er lögfræðingur, dáleiðari, heilari, tveggja barna móðir, fyrirlesari og margt fleira. Hún er í bata frá fíknisjúkdómi og átröskun auk þess að hjálpa fólki að ná frelsi frá alls kyns kvillum dags daglega. Hún segir söguna sína í þættinum.
#45 Elva Júlíusdóttir 02.04.2023 1:06:26
Elva Júlíusdóttir er 42 ára Hafnfirðingur og tveggja barna móðir sem lýsir sér sem kvíða- og þráhyggjubolta. Hún er í bata frá vímuefnavanda og átröskun. Hún segir söguna sína í þættinum.
#44 Ómar 26.03.2023 2:39:23
Ómar Guðmundsson er fertugur Hafnfirðingur sem á stóra áfalla- og batasögu. Hann hefur sterkar skoðanir á kerfinu og er í dag kominn í hlutverk aðstandanda ungs einstaklings í neyslu. Hann segir söguna sína í þættinum.
#43 Glansmyndir, neyslustolt - skömm og sektarkennd 19.03.2023 1:09:21
Glansmyndir og neyslustolt eru hugtök sem ekki eru mikið notuð í daglegu tali en vel þekkt innan ákveðins hóps. Hvað þýða þessi hugtök? Hvað fela þau í sér? Er hættulegt að fá glansmyndir af neyslutímanum sínum eða vera fastur í hjólförum neyslustolts? Við ræðum þessa hluti ásamt fleirum í þættinum.
#42 Gummi Fylkis 12.03.2023 1:10:25
Guðmundur Fylkisson eða Gummi Fylkis er lögreglumaður sem oftast er kenndur við strokubörn. Hann er magnaður karakter og virðingin fyrir krökkunum leynir sér ekki. Gummi kom í spjall og við ræddum hina ýmsu hluti.
Ähnliche Podcasts
Replaio ist kein Herausgeber von Podcasts; die Namen der Sendungen, Cover und Audioinhalte gehören ihren Autoren und werden über öffentliche RSS-Feeds verbreitet