Tinna Gudrun Barkardottir
Sterk saman
Sterk saman er spjallþáttur þar sem fólk með reynslu kemur og segir söguna sína auk þess sem við fáum sérfræðinga og fagfólk í settið til okkar.
Besuch unbedingt die Website des Podcasts und unterstütze die Macher: podcasters.spotify.com
Autor
Tinna Gudrun Barkardottir
Kategorie
Podcast-Website
Neueste Folge
18. Okt 2026
Wo hören?
Podcasts in der App Replaio Radio Bald verfügbarPodcasts kommen bald in die App. Installiere sie jetzt und erlebe als Erster einen ganz neuen Blick auf Podcasts
Folgen
#193 Hilma - Hávarður Máni 18.10.2026 1:44:49
Hávarður Máni lést 2. september 2025 eftir að hafa verið fastur í geðrofi í rúmt ár. Hilma Dögg, móðir hans segir okkur söguna hans og ferlið eftir að hann lést.
#192 Klara - Geðdeild og fangelsið reyna að koma Anítu í gröfina 11.10.2026 1:58:43
Klara, móðir Anítu, sem nú er vistuð í einangrunarklefa á Hólmsheiði vegna plássleysis segir okkur frá stöðunni og meðferðinni sem dóttir hennar þarf að þola.
#191 Óskar Brynjólfsson 04.10.2026 1:47:37
Óskar er þriggja barna faðir að vestan sem ólst upp við mikinn alkóhólisma, rótleysi og vanrækslu. Hann byrjaði ungur í neyslu til að deifa eigin vanlíðan og flýja raunveruleikann. Hann hefur verið í bata í rúm fimm ár.
#190 Gugga Inga 13.09.2026 1:45:30
Guðbjörg Inga sem var þekkt áður sem önnur af tvíeykinu Jói og Gugga er búin að vera edrú og í bata í 15 ár. Hún byrjaði ung í neyslu og segir okkur sína sögu.
#189 Ísak Hafþórsson 06.09.2026 2:01:20
Ísak er 25 ára strákur úr Hafnarfirði sem passaði aldrei inn í skólakerfið og lenti í einelti. Hann leitaði mjög ungur í neyslu og fann þar fyrst frið og upplifði að tilheyra.
#188 Tómas Torres 30.08.2026 2:44:44
Tómas er 38 ára tveggja barna faðir sem fæddist í Bandaríkjunum þar sem mikil neysla og ofbeldi, af öllum toga, einkenndi heimilislífið og hans uppvöxt. Hann á stóra, mikla og átakanlega sögu.
#187 Fanney Barkardóttir 23.08.2026 1:24:01
Fanney er 38 ára gift, tveggja barna móðir sem hefur þurft að eiga við kerfið vegna eldri dóttur sinnar en fær hvergi aðstoð.
#186 Tinna Berg Damayanthi 16.08.2026 1:13:17
Tinna er 41 árs gift, fjögurra barna móðir sem var ættleidd frá Sri Lanka. Hún var lögð í einelti í grunnskóla og um átta ára aldur ættleiddu foreldrar hennar 12 ára dreng sem misnotaði hana kynferðislega.
#185 Hafdís Bára Óskarsdóttir 09.08.2026 2:40:37
Hafdís Bára er tveggja barna móðir og mikil sveitastelpa sem hefur gengið í gegnum hreint helvíti vegna seinni barnsföður síns. Löngu og ömurlegu ofbeldissambandi lauk með morðtilraun af hans hálfu.
#184 Edda Ósk 14.06.2026 3:01:53
Edda Ósk lenti í klóm ofbeldismanns sem sýndi fyrst sína réttu hlið eftir að hún var orðin ólétt af dóttur þeirra. Síðan hafa liðið 12 ár af ofbeldi en hún lokaði á allt eftir að dóttir hennar var tekin með í fíkniefnaviðskipti í desember.
#183 Kara Guðmunds - þakklát fyrir sársaukann 31.05.2026 2:24:16
Kara hefur lent í röðum áfalla sem hún hefur verið að vinna í síðustu ár. Áföllin eru stór og ná yfir mörg ár. Í dag er hún þakklát fyrir sársaukann og lærdóminn en hún hefur verið edrú í 11 ár.
#182 Fjögurra barna móðir flýr ofbeldi 24.05.2026 57:23
Hún er 44 ára fjögurra barna móðir og hjúkrunarfræðingur sem segir okkur frá ofbeldissambandi sem braut hana niður, sneri börnum og barnaverndarkerfinu gegn henni og börnum hennar.
#181 Sindri Daði 17.05.2026 2:23:35
Sindri Daði er 48 ára gamall faðir númer eitt, tvö og þrjú. Hann á stóra fortíð og sögu en frábært líf í dag.
#180 Ragna Guðrún 10.05.2026 1:09:42
Ragna Guðrún er 23 ára stelpa með BS í sálfræði. Hún er barn alkóhólista og faðir hennar tók eigið líf árið 2018 eftir harða baráttu við sinn sjúkdóm.
#179 Ólafur Egilsson 03.05.2026 59:53
Ólafur Egill Egilsson er þjóðþekktur fyrir sín verk innan kvikmyndageirans og leikhúsanna. Hann er aðstandandi og hefur skoðanir á málefninu. Hann segir okkur sína sögu.
# 178 Bjartur Hrafn Jóhannsson 19.04.2026 1:08:56
Bjartur Hrafn er 26 ára strákur sem ólst upp við erfiðar aðstæður og í fósturkerfinu frá átta ára aldri. Hann leiddist ungur út í neyslu en kerfið brást á marga vegu.
#177 Björg Magnúsdóttir 12.04.2026 57:26
Björg Magnúsdóttir er 41 árs oddviti Viðreisnar í Reykjavík. Hún er á slæmri íslensku no bullshit kona sem vill láta verkin tala, koma inn og stytta alla ferla og setja fólk í fyrsta sæti. Við áttum gott spjall.
#176 Dómurinn, ferlið, biðin og líðanin 29.03.2026 1:03:53
Tinna segir frá þessu ferli sem dómsmálið hefur verið eftir líkamsárás árið 2022. Hvernig kerfið vinnur með gerendum og gegn þolendum. Margt nýtt sem ekki hefur verið sagt frá áður.
#175 Brynja Ýr Baugs 22.03.2026 1:06:38
Brynja Ýr Baugsdóttir er móðir drengs sem aðeins 17 ára lenti í alvarlegu ofbeldissambandi með 18 ára stelpu. Hún vill opna umræðuna um að strákar og menn lendi líka í ofbeldi.
#174 Blanca 15.03.2026 1:05:57
Blanca, eins og hún kallar sig, flutti frá Vestmannaeyjum sjö ára eftir áföll. Hún byrjaði að deyfa sig með áfengi og hassi aðeins tíu ára.
#173 Elín Auður Eyfjörð 08.03.2026 2:08:15
Elín er 24 ára stelpa úr Garðabænum sem ólst upp við vanrækslu og andlegt ofbeldi. Hún þróaði snemma með sér fíknihegðun sem byrjaði með mat en endaði í áfengi og lyfjum eftir magaermisaðgerð.
#172 Ingibjörg Einars 01.03.2026 1:20:20
Ingibjörg er móðir sem hefur gengið í gegnum margt. Hún fer ekki fögrum orðum um kerfið sem hefur brugðist henni og fimmtán ára syni hennar illa.
#171 Barbie 22.02.2026 1:47:16
Barbie er 37 ára stelpa sem á stóra og átakanlega sögu frá því hún var skírð yfir kistu afa síns og til dagsins í dag.
#170 Nonni Lobo og týndu börnin 08.02.2026 1:36:26
Nonni Lobo hefur verið óstöðvandi í að berjast fyrir týndu börnunum eftir andlát sonar síns á Stuðlum. Hann þekkir stöðuna betur en flestir.
#169 Þórdís Rögn 01.02.2026 1:06:50
Þórdís Rögn Jónsdóttir hannaði og bjó til Bata - appið eftir að litli frændi hennar lést eftir ofskömmtun. Hún og samstarfsmenn hennar vinna í samstarfi við meðferðaraðila.
Ähnliche Podcasts
Replaio ist kein Herausgeber von Podcasts; die Namen der Sendungen, Cover und Audioinhalte gehören ihren Autoren und werden über öffentliche RSS-Feeds verbreitet