Tinna Gudrun Barkardottir
Sterk saman
Sterk saman er spjallþáttur þar sem fólk með reynslu kemur og segir söguna sína auk þess sem við fáum sérfræðinga og fagfólk í settið til okkar.
Besuch unbedingt die Website des Podcasts und unterstütze die Macher: podcasters.spotify.com
Autor
Tinna Gudrun Barkardottir
Kategorie
Podcast-Website
Neueste Folge
25. Okt 2026
Wo hören?
Podcasts in der App Replaio Radio Bald verfügbarPodcasts kommen bald in die App. Installiere sie jetzt und erlebe als Erster einen ganz neuen Blick auf Podcasts
Folgen
#92 Ingibergur 10.03.2024 1:36:13
Ingibergur er eiginmaður, faðir og afi sem hefur verið edrú í 36 ár, fyrstu 13 árin á hnefanum en síðan í bata, Hann er skemmtilegur, opinn, einlægur og fyndinn. Hann er með fjórða stigs krabbamein og lifir í núinu.
#91 Sigmar Guðmundsson 03.03.2024 1:07:44
Sigmar Guðmundsson, þingmaður, er mikill talsmaður þess að betur sé gert fyrir okkar jaðarsetta fólk og peningar séu settir í meðferðarúrræði hér á landi. Við Inga fengum hann í spjall.
#89 Aron Mímir 18.02.2024 1:09:23
Aron Mímir er annar helmingur Götustráka, einlægur og á stóra sögu sem hann hefur unnið vel í undanfarin tvö ár. Hann lenti í einelti sem barn, fór ungur að nota stera og var alkahólisti frá fyrsta sopa, eins og hann segir sjálfur. Snemma á fullorðinsárum lenti hann í stóru áfalli sem hefur mótað hann mikið.
#88 Thelma Hulda 11.02.2024 1:33:56
Thelma er þrítug móðir, hjúkrunarfræðingur og tannsmiður sem lenti í stóru áfalli þegar maðurinn hennar og barnsfaðir tók eigið líf aðeins 26 ára. Hún fer með okkur í gegnum áfallið, undanfarann, ferlið eftir og lífið í dag.
#87 Sólveig Lind - móðir í baráttu 04.02.2024 1:26:22
Sólveig er móðir 17 ára einhverfs drengs með fjölþættan vanda og áhættuhegðun. Hann fékk greiningu 4 ára. Baráttan við skólakerfið, barnavernd. Hann var tekinn og settur í Klettabæ og upplifði hún valdníðslu og niðurlægingu.
#86 Bjarki Viðars 28.01.2024 1:23:49
Bjarki er 33 ára faðir og annar helmingur Götustráka. Hann ólst upp á Akranesi þar sem hann lenti í grófu einelti og flúði svo slæma líðan í vímuefni og klám. Hann hefur verið í bata í rúm tvö ár og fer með okkur í gegnum söguna sína.
#85 TW! Nafnlaus 34 ára kona með stóra sögu! 21.01.2024 1:31:04
34 ára gömul kona segir sögu sína af ofbeldi, geðsjúkdómum, fíkn, framkomu kerfisins, nauðgunum, misnotkun starfsmanns í grunnskóla sem síðar varð lögreglustjóri og margt fleira.
#84 Maríanna Sigtryggs 14.01.2024 1:01:01
Maríanna er 47 ára móðir og verðandi amma sem er háð morfíni og glímir við heimilisleysi. Hún hefur alfarið náð að fjarlægja sig glæpum og líferni sem tengist undirheimum eftir að hafa komist í skömmtun en nú stefnir kerfið á að senda hana aftur þangað.
#83 Rakel Sara 07.01.2024 1:37:46
Rakel Sara er 34 ára stelpukona sem á stóra sögu. Hún er ein af stelpunum sem voru á Laugalandi og var hún þar lengst allra. Áfallasagan byrjar mun fyrr samt sem áður og mótar hana mikið.
#82 Aðstandendur 01.01.2024 1:13:30
Hvað er betra en að byrja nýtt ár á smá umræðu um aðstandendur og það sem þeim fylgir? Margir setja sér ný markmið. Hér er ágætis stuðningur.
#81 Teitur Guðbjörns 25.12.2023 1:01:04
Teitur er 31 árs peyi frá Vestmannaeyjum sem slegið hefur í gegn á TikTok. Hann átti góða æsku og skilur sjálfur ekki hvernig hann endaði þar sem hann gerði, á Hólmsheiði, fyrir smygl.
#80 Halla Björg 17.12.2023 1:54:28
Halla er 33 ára, fimm barna móðir sem á stóra sögu. Hún varð móðir 16 ára, hefur átt edrú tímabil og lifað fjölskyldulífi, misst allt, lent á götunni, gert ljóta hluti í neyslu en lifir fallegu lífi í dag.
#79 Dagbjört - aðstandandi 10.12.2023 1:14:16
Dagbjört er fjögurra barna móðir. Hún er aðstandandi veiks alkahólista og hefur verið aðstandandi allt sitt líf en hún fæddist inn í alkahólíska fjölskyldu. Hún hefur gengið í gegnum fleiri stór áföll, misst barn og horfir nú upp á son sinn veslast upp í sjúkdómi sem kerfið metur annars flokks.
#78 Vændiskona segir söguna sína! 03.12.2023 59:51
32 ára kona úr Reykjavík sem stundaði vændi - og er þolandi vændis réttara sagt, segir sögu sína. Hún segir vændisheiminn mun stærri og grimmari hér á landi en fólk geri sér almennt grein fyrir. Valdamiklir menn nýti sér oft mikið veikar stúlkur og konur.
#77 Kristján Halldór 26.11.2023 1:16:28
Kristján er 43 ára faðir að norðan sem á langa sögu í neyslu vímuefna, ofbeldis og glæpa en hefur í dag snúið lífi sínu við og skilur sjálfan sig betur.
#76 Gunnar Ingi 19.11.2023 1:42:58
Gunnar Ingi er þrítugur pabbi í bata frá fíknisjúkdómi. Hann var ungur farinn að flýja erfiðar tilfinningar. Hann segir okkur sína sögu ásamt upplifun á kerfinu í þættinum.
#75 Triggerar í bland 12.11.2023 1:17:58
Hvað eru triggerar fyrir fíkn? Hvað er fíkn? Af hverju hættir fólk ekki bara að nota vímuefni fyrst það veit það getur ekki stoppað? Hvað triggerar hvað? Munurinn á edrú og vera í bata. Ásamt öðru..
#74 Sara Rós - Lífsstefna 05.11.2023 1:47:02
Sara Rós er 35 ára eiginkona og móðir tveggja einhverfra drengja. Hún átti sjálf erfitt andlega á unglingsárum og leiddist út í neyslu vímuefna. 18 ára eignaðist hún son sem breytti öllu. Sara og eiginmaður hafa þurft að berjast við kerfið sem hefur brugðist báðum sonum þeirra á alla mögulega vegu.
#73 Tolli Morthens 29.10.2023 1:20:32
Tolla þekkja flestir. Hann varð edrú 1995 og hefur síðan hjálpað fjölda fólks. Við ræðum fíknina, fangelsin og hvað hann gerir þar auk þess sem Batahúsið og lífstíll Tolla kemur til tals.
#72 Valgerður Sif 22.10.2023 1:17:17
Valgerður Sif er 33 ára móðir og eiginkona sem hefur barist við höfnunartilfinningu og lágt sjálfsmat frá blautu barnsbeini. Hún er ættleidd, innan fjölskyldu, horfði upp á mikið ofbeldi, lenti í ofbeldi og hefur unnið mikið í sér.
#71 Áslaug Júlíusdóttir 15.10.2023 1:39:26
Áslaug Júlíusdóttir er þrítug, gift, tveggja barna móðir sem lætur fortíðina ekki skilgreina sig í dag. Hún komst lifandi út úr heimi vændis og neyslu í Bandaríkjunum og nýtir nú reynslu sína til góðs.
#70 Karen Eir 08.10.2023 1:05:24
Karen lenti í þeirri ömurlegu lífsreynslu að vinur hennar, þáverandi, nauðgaði henni. Hún kærði sex mánuðum síðar en til allrar hamingju hafði hún farið á bráðamóttöku eftir nóttina örlagaríku.
#69 Sigurþóra Bergs 01.10.2023 1:12:57
Sigurþóra Bergsdóttir er stofnandi og framkvæmdarstjóri Bergsins headspace, sem nefnt er eftir syni hennar, Bergi Snæ sem féll fyrir eigin hendi. Bergur hafði lent í alvarlegu kynferðisofbeldi af hendi ungs manns sem er vel þekktur fyrir sín brot sem og önnur.
#68 Hildur - móðir Ölmu 24.09.2023 1:34:31
Hildur Pálsdóttir er móðir Ölmu heitinnar en hún lést aðeins 15 ára gömul eftir að hafa tekið of stóran skammt af efninu contalgin. Hún segir sögu þeirra í þættinum.
#67 Þorbjörg - aðstandandi 17.09.2023 1:19:02
Þorbjörg er uppkomið barn alkahólista. Hún talar um að skila skömminni þar sem hún ólst upp við mjög slæmar aðstæður en allt hennar umhverfi varð meðvirkt ástandinu og gerði illt verra. Skólakerfið, bæjarfélagið, barnavernd og fólkið í kring brást.
Ähnliche Podcasts
Replaio ist kein Herausgeber von Podcasts; die Namen der Sendungen, Cover und Audioinhalte gehören ihren Autoren und werden über öffentliche RSS-Feeds verbreitet