Tinna Gudrun Barkardottir
Sterk saman
Sterk saman er spjallþáttur þar sem fólk með reynslu kemur og segir söguna sína auk þess sem við fáum sérfræðinga og fagfólk í settið til okkar.
Besuch unbedingt die Website des Podcasts und unterstütze die Macher: podcasters.spotify.com
Autor
Tinna Gudrun Barkardottir
Kategorie
Podcast-Website
Neueste Folge
25. Okt 2026
Wo hören?
Podcasts in der App Replaio Radio Bald verfügbarPodcasts kommen bald in die App. Installiere sie jetzt und erlebe als Erster einen ganz neuen Blick auf Podcasts
Folgen
#41 Sigrún Sigurðar 05.03.2023 1:10:30
Sigrún er fertug kona úr Reykjavík sem átti eðlilega æsku og fjölskyldulífið var venjulegt, ef svo er hægt að segja. Um 10 ára aldur breyttist eitthvað og skólagangan varð erfið og áföll og erfiðleikar byrjuðu í hennar lífi. Hún segir sína sögu í þættinum.
#40 Rut Þorbjörns 26.02.2023 1:06:42
Rut er 23 ára stelpa úr höfuðborginni sem ólst upp hjá mömmu sinni að mestu, hún lýsir sér á skemmtilegan hátt, tekur lífinu hæfilega alvarlega og hefur yfirstígið margar hindranir þrátt fyrir ungan aldur. Hún segir söguna sína í þættinum.
#39 Tinna og Inga Hrönn - Hvernig getur fólk hafið ,,eðlilegt líf" eftir meðferð? 19.02.2023 1:08:45
Tinna og Inga Hrönn ræða hvað grípur fólk, ef eitthvað, eftir meðferð, áfangaheimilin sem í boði eru og hvað þarf betur að fara í þessum málum. Hvernig getur fólk hafið ,,eðlilegt líf" eftir meðferð?
#38 Thelma Björk 12.02.2023 1:32:45
Thelma er 48 ára tveggja barna móðir, eiginkona, dóttir og aðstandandi svo eitthvað sé nefnt. Hún leitaði huggunar í mat í fjölda ára en hefur í dag misst 90 kíló eftir hjáveituaðgerð og mikla sjálfsvinnu. Thelma segir okkur sögu sína frá sjónarhóli aðstandanda í þættinum.
#37 Adda Margrét 05.02.2023 1:11:51
Adda Margrét er 27 ára móðir og mikil áhugakona um húðflúr sem gengið hefur í gegnum margt á sinni lífsleið. Hún deilir sögunni sinni með okkur í þættinum.
#36 Tinna og Inga Hrönn - ofbeldi og fordómar innan kerfisins 29.01.2023 1:04:05
Tinna og Inga Hrönn taka fyrir ofbeldi af hendi lögreglu gagnvart jaðarsettum hópum, fordómum innan kerfisins ásamt ýmsu öðru í þættinum.
#35 Bjarki Steinn 22.01.2023 1:07:03
Bjarki Steinn er 29 ára Hafnfirðingur með bros sem birtir upp öll rými sem hann gengur inn í og nærveru sem hlýjar. Líf hans hefur þó ekki alltaf verið auðvelt og segir hann okku söguna sína í þættinum.
#34 Sigurbjörg Vera 15.01.2023 2:06:26
Sigurbjörg Vera er 27 ára landsbyggðatútta með góða nærveru og mikla útgeislun. Hún á stóra sögu sem hún segir okkur í þættinum.
#33 Biggi 25.12.2022 1:02:05
Biggi er 41 árs fjögurra barna faðir úr Garðabænum sem átti erfiða æsku, passaði aldrei inn í boxið sem samfélagið vill hafa okkur í og fór ungur að sýna mikla áhættuhegðun. Hann á stóra sögu sem hann segir okkur í þættinum.
#32 Ellisif 18.12.2022 2:04:27
Ellisif er fimm barna móðir, kona með stóra sögu og mikill sigurvegari.
#31 Alma Lind 11.12.2022 1:35:59
Alma Lind er 37 ára móðir og fyrirmynd, hörkutól sem hefur upplifað meira en góðu hófi gegnir. Alma segir okkur frá lífinu á götunni, hvernig kerfið braut hana niður, sigrum og sorgum.
#30 Sunna Kristinsdóttir 04.12.2022 2:26:27
Sunna Kristinsdóttir er 29 ára stelpa með stóran persónuleika, mikla persónutöfra og á mikla og stóra sögu sem hún segir okkur í þættinum.
#29 Köllum hana Birtu 27.11.2022 1:10:55
21 árs gömul stelpa sem við ætlum að kalla Birtu. Hugrökk, falleg, opin og á risa stóra sögu.
#28 Kidda Svarfdal 20.11.2022 1:19:10
Kidda Svarfdal er fertug sveitastelpa sem hefur gengið í gegnum ýmislegt til að komast á þann stað sem hún er í dag.
#27 Guðrún, móðir Heklu Lindar 13.11.2022 1:07:22
Guðrún Haraldsdóttir er móðir Heklu Lindar heitinnar en hún lést þann 9. apríl 2019 í höndunum á lögreglu, aðeins 25 ára gömul. Guðrún segir okkur sögu Heklu Lindar og frá þessum harmleik í þættinum.
#26 Friðrik Agni 06.11.2022 1:06:34
Friðrik Agni er dansari, fyrirsæta, strákur úr Reykjavík og með ofsalega góða nærveru. Hann hefur unnið mikla sjálfsvinnu eftir stór áföll á unglingsárunum, unnið með átröskun, glansmyndir á samfélagsmiðlum og margt fleira sem við spjöllum um í þættinum.
#25 Rósa í Skjólinu 30.10.2022 52:28
Rósa er forstöðukona í Skjólinu, úrræði fyrir heimilislausar konur. Hún ræddi um málefnið, úrræðið sem er á vegum kirkjunnar og sitt eigið líf í þættinum.
#24 Unnur Edda 23.10.2022 56:54
Unnur Edda Björnsdóttir er 33 ára, tveggja barna móðir og unnusta sem á áfallasögu allt frá barnæsku. Hún segir okkur sína sögu í þættinum.
#22 Renata Sara 09.10.2022 1:28:15
Renata Sara er 23 ára stelpa sem á stóra sögu þrátt fyrir ungan aldur. Hún var ballerína úr Breiðholtinu sem passaði hvergi inn, bjó hjá kaþólskum nunnum í New York og strippaði í Berlín svo fátt eitt sé nefnt. Hún segir okkur söguna sína og hvernig hún fékk aðstoð við andlegum veikindum og átröskun eftir sjálfsvígstilraun.
#21 Inga Lind 02.10.2022 1:39:57
Inga Lind er mögnuð kona með útgeislun og bros sem birtir upp heilu herbergin. Hún á stóra sögu, þolandi ofbeldis í æsku, misnotkun, vanræksla, neysla til margra ára, fangelsisvist og beina brautin. Hún segir okkur sína sögu.
#20 Ögmundur Þorgrímsson 25.09.2022 58:05
Ögmundur Þorgrímsson gerði rannsókn í mastersnámi sínu í félagsráðgjöf sem heitir "Aðgerðir stjórnvalda til að hefta neyslu ólöglegra vímuefna: Áhrif þeirra á einstaklinga innan íslensks samfélags. Við ræddum m.a. rannsóknina, hvað kom í ljós og hvað þarf að gera betur.
#19 Auður Vilhjálms 18.09.2022 1:03:41
Auður er 37 ára, tveggja barna móðir úr Breiðholti. Hún á stóra og mikla sögu en aðeins 14 ára upplifði hún fyrst að búa á götunni. Í dag hefur hún verið edrú í 15 ár.
#18 Raggi Turner 12.09.2022 1:06:20
Ragnar Erling Hermannsson eða Raggi Turner er magnaður karakter með stóra sögu. Hann segir söguna sína auk þess að tala um fíkn, sína reynslu, hvað þarf að gera og nýja félagið "að rótunum" sem hann stofnaði fyrir stuttu.
#17 Ólafía Mjöll 07.08.2022 54:49
Ólafía Mjöll er fertug, tveggja barna móðir og amma úr Hafnarfirði. Árið 2009 fór hún í einfalda aðgerð til að láta fjarlægja gallblöðruna en röð læknamistaka gerði það að verkum að hún hefur verið föst í hjólastól í 13 ár. Hún segir okkur söguna sína, frá því að vera 27 ára fiðrildi sem gerði allt sem henni datt í hug yfir í að vakna alfarið getulaus og eiga að vera send á sambýli.
#16 Tryggvi Rafnsson - Geðveikt spjall 17.07.2022 1:19:46
Tryggvi Rafns er Hafnfirðingur eins og þeir gerast bestir, heimsfrægur þar og vel þekktur á öðrum stöðum. Hann er menntaður leikari frá Englandi og segir okkur söguna sína um baráttuna við andleg veikindi og hvernig hann lenti á botninum fyrir rúmu ári síðan og ákvað að biðja um aðstoð.
Ähnliche Podcasts
Replaio ist kein Herausgeber von Podcasts; die Namen der Sendungen, Cover und Audioinhalte gehören ihren Autoren und werden über öffentliche RSS-Feeds verbreitet