Stefán Þór Þorgeirsson
Heimsendir
Heimsendir eru þættir sem fjalla um Japan, japanska sögu og menningu. Þáttastjórnandinn Stefán Þór býr ásamt fjölskyldu sinni í Japan og segir okkur frá lífinu þar - hvernig það er að vera leikari í Japan, hvaða tækifæri eru að finna og hvaða áskorunum fólk þarf að mæta í landi hinnar rísandi sólar. Heimsendir byrjaði sem umræðuþáttur um mismunandi sviðsmyndir heimsenda - allt frá gervigreind til uppvakninga, líftækni til heimsstyrjaldar. Nú þegar Stefán Þór er búsettur í Japan er fókusinn færður þangað en inn á milli má finna heimsendatengt efni á borð við uppgang gervigreindar, geópólitík Au...
Wo hören?
Podcasts in der App Replaio Radio Bald verfügbarPodcasts kommen bald in die App. Installiere sie jetzt und erlebe als Erster einen ganz neuen Blick auf Podcasts
Folgen
#27 Meiri kapítalismi með Ásthildi Úu Sigurðardóttur 01.02.2022 1:21:34
Er ekki bara best að kjósa kapítalismann? Eða hvað, þurfum við kannski að endurskoða kerfið? Í þessum þætti ræðum við Ásthildur Úa Sigurðardóttir, leikkona, um kapítalismann í nærtæku samhengi. Hvernig kemur hann fyrir í okkar daglega lífi? Hverjir eru helstu gallarnir og hvernig gætum við breytt því? Kæru hlustendur, kíkið á Instagram reikninginn: heimsendir_podcast, og follow-ið! Einnig Facebook...
#26 Kapítalisminn með Ólafi Kjarani Árnasyni 25.01.2022 1:13:50
Er kapítalismi rót alls ills? Erum við að sigla inn í heimsendi auðvaldsins? Eða er kapítalisminn kannski besta efnahagsstefnan sem fundist hefur? Ættum við að berjast gegn honum eða með honum? Til þess að leita svara fæ ég til mín Ólaf Kjaran Árnason, ráðgjafa og hagfræðing. Saman skoðum við kerfið í sögulegu samhengi og berum saman við heimsendaspár nútímans. Gott fólk, kíkið á Instagram reiknin...
#25 Sítenging með Arnari Dan Kristjánssyni 18.01.2022 1:21:50
Eruð þér límd við skjáinn? Er símtækið besti vinur þinn? Í þessum þætti ræðum við Arnar Dan Kristjánsson, leikari, um sítengingu og skilgreiningu hennar. Einnig ræðum við hreyfingu og kyrrsetu, rækt og stöðnun, samfélagsmiðla og útivist. Þá kíkir Mark Zuckerberg í heimsókn með Meta-bókina sína og boðar heimsendi. Kæru hlustendur, kíkið á Instagram reikninginn "heimsendir_podcast"... (smá hræsni ka...
#24 Samsæriskenningar og sveppir með Grétu Arnarsdóttur 11.01.2022 1:30:44
QAnon, Illuminati, Eðlufólkið, Tungllendingin, 9/11, Covid-19, bólusetningar, etc. Allt feik? Í þessum þætti ræðum við Gréta Arnarsdóttir samsæriskenningar og af hverju fólk aðhyllist þær, sérstaklega núna á tímum veirunnar miklu. Síðan skoðum við sveppi, bæði æta og óæta, í matargerð og til hugbreytingar. All things shroom. Kæra preppnation, kíkið á Instagram og fylgið "heimsendir_podcast" þar s...
#23 Loftsteinar og náttúruleysi með Almari Blæ Sigurjónssyni 04.01.2022 1:45:41
Loftsteinar eru relevant. Af hverju? Jú, vegna þess að þeir eru stærsta ógn mannkynsins. Nýverið kom til dæmis út bíómynd sem fjallar að mestu leyti um loftstein. Síðan er það náttúran og náttúruleysi - ekki getuleysi, það kemur seinna, heldur skortur á tengingu við náttúruna. Þarf að borgarvæða náttúruna eða náttúruvæða borgina? Til þess að ræða þessa snilld fæ ég til mín góðkunningja þáttarins,...
#22 Jólin með Starkaði Péturssyni 28.12.2021 1:24:53
Jó-olin, jó-olin, a-alls staðar. Starkaður Pétursson, AKA. Anthony Stark, mætti í sérstakt jólaspjall þar sem við kryfjum jólin og hefðirnar í kringum þau. Vissulega koma áramótin við sögu og sömuleiðis samanburður við japanskar jóla- og áramótahefðir. Heimsendir óskar landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári!
#21 Fordómar og samskiptaleysi með Fannari Arnarssyni 21.12.2021 1:21:21
Fordómar eru stórt umræðuefni, og sérstaklega mikilvægt til umræðu á 21. öldinni. En hvað eru fordómar og hvaðan koma þeir? Hvernig tengjast samskipti inn í heim fordóma? Enn fremur, getur samskiptaleysi leitt til þeirra? Við Fannar Arnarsson, leikari og fyrrverandi bekkjarbróðir, leitumst við að varpa ljósi á þessar spurningar og fleiri. Kæri hlustandi, ég minni á að skilja eftir umsögn og gefa e...
#20 Samskipti og háskólanám með Önnu Guðrúnu og Júlíu Kolbrúnu 14.12.2021 1:27:35
Hver er munurinn á samskiptum og samfélagsmiðlum? Er verið að þróa nýtt tungumál á netinu? Þurfa allir að fara í háskóla? Í þessum þætti fæ ég til mín dansarana Önnu Guðrúnu Tómasdóttur og Júlíu Kolbrúnu Sigurðardóttur til að leita svara við ofangreindum spurningum og fleirum. Við ræðum meðal annars TikTok og dans, iðnnám og háskóla. Loks lítum við til framtíðar og skoðum hvaða hlut samskipti munu...
#19 Líftækni með Daníel Takefusa Þórissyni 07.12.2021 1:38:13
CRISPR, Gain-of-Function og GMO. Líftækni er ein mikilvægasta grein vísindanna. Hún á sérstaklega vel við á tímum Covid. En hvað er líftækni og að hvaða leiti kemur hún okkur við? Í þessum þætti ræðum við Daníel Takefusa Þórisson, verkfræðimenntaður leikari, ýmiss vandamál og mögulegar lausnir tengdar líftækni. Við tölum einnig um tækniþróun almennt og komum vissulega að góðkunningjum þáttarins; g...
#18 Heimsendir Maya og plánetan Nibiru með Davíð Þór Katrínarsyni 30.11.2021 1:30:59
Hvað varð um heimsendi ársins 2012? Hvað myndi gerast ef önnur pláneta rækist á Jörðina? Hver byggði píramídana? Í þessum þætti ræðum við Davíð Þór Katrínarson, leikari, um heimsendaspár ársins 2012, dagatal Mayanna, Erik von Daniken, Plánetu X og hvað myndi gerast ef við ættum bara 6 mánuði eftir ólifaða. Kæri hlustandi, endilega hentu í Follow á Spotify og gefðu einkunn og umsögn á Apple Podca...
#17 Geðsjúkdómar og gervigreind með Jónasi Alfreð Birkissyni 23.11.2021 1:50:33
Brimfullur þáttur af pælingum! Við Jónas Alfreð Birkisson, leikari, tökum fyrir stóru málin og ræðum meðal annars ADHD greiningar, einangrun og þunglyndi, hversu erfitt það er að vinna heima hjá sér, jákvæðar og neikvæðar hliðar á gervigreindinni og framtíð vinnunnar. Kæri hlustandi, ég vil biðja þig að gefa þáttunum einkunn á Apple Podcasts, jafnvel skilja eftir umsögn, og henda svo í "Follow" á...
#16 Draugar með Björk Guðmundsdóttur 16.11.2021 1:17:41
Eru draugar til? Hvernig er biðstofa Himnaríkis? En Helvítis? Hreinsunareldur, paranormal investigators, draugaský og latneskar þulur. Við Björk Guðmundsdóttir, leikkona og grínisti, ræðum ýmislegt er viðkemur vofum, afturgöngum og draugum. Kæri hlustandi, Nr. 1 - kíktu á Facebook hópinn Heimsendir. Nr. 2 - hentu í follow á Spotify og/eða einkunn og umsögn á Apple Podcasts. Merci very bien!
#15 Hnattræn hlýnun með Rakel Ýr Stefánsdóttur 09.11.2021 1:26:57
THIS IS BIG. Hnattræn hlýnun er heimsendir sem flestir kannast við. COP26, Greta Thunberg, mataræði og matarsóun, orkuframleiðsla, samgöngur, að versla föt eður ei, og fleira. Við Rakel Ýr Stefánsdóttir, listakona, tæklum þetta stóra mál í þættinum en athugum þó að umræðan er alls ekki tæmandi enda ein stærsta áskorun mannkyns til þessa. Hlustandi góður, endilega kíktu á Facebook hópinn Heimsendi...
#14 Meiri geimverur með Fjölni Gíslasyni 02.11.2021 1:22:13
Þversögn Fermis, Kardashev skalinn, svarthol og Einstein. Í þessum þætti tökumst við Fjölnir Gíslason, leikari, á við heilabrot og sófapælingar um geimverur. Við ræðum einnig stóra filterinn (e. Great Filter) sem fylgir umræðuefninu geimverur en hann hefur áður komið til tals í þætti #4. Loks koma við sögu vinsæl þemu á borð við gervigreind, framtíð vinnunnar og hnattræna hlýnun. Kæri hlustandi,...
#13 Skrímsli og ófreskjur með Helga Grími Hermannssyni 26.10.2021 1:18:38
Skrímsli, ófreskjur, kynjaverur og fleira. Eru skrímsli til? Ef svo er, hvar halda þau sig? Í þessum þætti ræðum við Helgi Grímur Hermannsson, sviðshöfundur og leikstjóri, allt milli himins og jarðar er viðkemur skrímslum. Við förum einnig út fyrir grunnþemað og ræðum fiskveiðar og lögsögu, goðafræði, kortagerð og plastmengun. Kæri hlustandi, endilega taktu þátt í umræðum á Facebook hópnum "Heims...
#12 Nútíminn með Nilla 19.10.2021 1:14:46
Covid-19, óreiða í alþjóðasamfélaginu, kristnilegar dómsdagsspár, fall Fésbókarinnar og fleira. Erum við að stefna í heimsendi? Eða stefnum við kannski inn í post-covid blómaskeið með tilheyrandi faðmlögum og mannlegum tengslum? Til að taka á þessum spurningum og fleirum fæ ég til mín góðvin þáttarins, Níels Thibaud Girerd. Við veltum nútímanum fyrir okkur, ferðumst til fortíðar og framtíðar, og...
#11 Vampírur með Kristrúnu Kolbrúnardóttur 05.10.2021 1:20:19
Hver vill ekki verða vampíra? Þær eru nettar, eilífar, með einfalt mataræði og kunna jafnvel að fljúga. En þær eiga sér líka dekkri hliðar; upprisa frá dauðum til að herja á saklausa þorpsbúa, bitsmit á fólki án þess að spyrja um leyfi, óhófleg áhrif á stjórnmál vegna langrar ævi sinnar. Í þessum þætti fæ ég til mín Kristrúnu Kolbrúnardóttir til að ræða allt er viðkemur vampírum. Við fjöllum meðal...
#10 Apokalypsis með Hákoni Erni Helgasyni 28.09.2021 1:16:12
Hafið þér syndgað? Hafið þér stundað saurlifnað? Örvæntu þá, því Dómsdagur er í nánd. Í þessum þætti fjöllum við Hákon Örn Helgason, sviðslistamaður, um Kristnitrú, Opinberunarbók Jóhannesar og biblískan heimsendi. Önnur umræðuefni eru Japanska Rokkkirkjan og kynlíf fyrir/eftir hjónavígslu, hamfarahlýnun Jarðar, Vindáshlíð og Kanye West. Hlustandi góður, skelltu þér á Facebook og skráðu þig í hó...
#9 Leikhúsið með Erni Gauta Jóhannssyni 21.09.2021 1:17:16
Er leikhúsið dautt? Af hverju fer ungt fólk ekki oftar í leikhús? Netflix > Leikhús? Við, Örn Gauti Jóhannsson leikari, leitum svara við þessum mikilvægu spurningum. Við hvetjum fólk jafnframt til að skella sér í leikhús núna eftir Covid-þurrkinn. Ef þig, hlustandi góður, langar að taka þátt í umræðunni hvet ég þig til að ganga til liðs við umræðuhópinn: "Heimsendir" á Facebook. Sjáumst þar!
#8 Vísindaskáldskapur með Ninnu Pálmadóttur 14.09.2021 1:11:13
Vísindaskáldskapur er mögulega það besta sem komið hefur fyrir kvikmyndir, sem og aðra miðla. Með honum getum við ímyndað okkur framtíðina og fortíðina. Við getum leitað svara við spurningum á borð við; Hvað er það að vera mennskur? Hvaðan komum við og hvað verður um okkur? Til að svara meðal annars þessum spurningum fæ ég til mín Ninnu Pálmadóttur, leikstjóra með meiru. Einnig veltum við því fyri...
#7 Funky stöff með Tuma Gonzo Björnssyni 07.09.2021 1:17:15
Hver er mest basic heimsendirinn? Hnattræn hlýnun, kannski kjarnorkustyrjöld. En hver er þá minnst basic heimsendirinn? Leikstjórinn, sviðshöfundurinn, listamaðurinn og litli sonurinn Tumi Gonzo Björnsson mætir til mín að ræða allt milli himins og jarðar er viðkemur fáheyrðum heimsendaspám. Hvað ef allir í heiminum væru með sama andlitið? Væri það andlit Nicolas Cage? Hvað ef Covid-19 sjúkdómurin...
#6 Dauðinn með Almari Blæ Sigurjónssyni og Önnulísu Hermannsdóttur 31.08.2021 1:22:11
Dauðinn er stórt umræðuefni - hvar á maður að byrja? Jú, með því að finna tvo snillinga sem hafa varið ófáum stundum í vangaveltur um dauðann. Almar Blær Sigurjónsson, leikari, og Annalísa Hermannsdóttir, sviðshöfundur, leikstjóri og tónlistarkona, koma til mín að ræða lífið og dauðann. Við leitumst við að svara spurningum á borð við; Hvað gerist þegar við deyjum? Er eðlilegt að hugsa um dauðann?...
#5 Þriðja heimsstyrjöldin með Gunnari Smára Jóhannessyni 24.08.2021 1:18:27
Gunnar Smári Jóhannesson, leikari og Tálknfirðingur, kemur til mín að ræða möguleikann á þriðju heimsstyrjöldinni. Við veltum vöngum yfir mögulegum ástæðum þess að stríð brjótist út, mannlegum mistökum, framtíð hernaðar og vopna og meira til. Þetta er stórt og flókið umræðuefni en við vonum að út frá þessu spjalli höfum við náð að vekja hlustendur til umhugsunar um framtíðina. Þurfum við að varas...
#4 Geimverur með Ellen M. Bæhrenz 27.07.2021 1:20:22
Við vitum að það eru milljarðar stjarna í Vetrarbrautinni. Við vitum að meðal þeirra leynist mikill fjöldi reikistjarna á borð við Jörðina okkar. Ef við göngum út frá því að líkt og á Jörðinni geti líf sprottið upp á öðrum reikistjörnum er ekki úr vegi að segja að það sé nokkuð líklegt að geimverur séu til. En hvar eru þær? Í þessum þætti fæ ég leikkonuna Ellen M. Bæhrenz til liðs við mig til að...
#3 Sértrúarsöfnuðir með Tómasi Helga Baldurssyni 20.07.2021 1:20:28
Í þriðja þætti Heimsendis ræðum við Tómas Helgi Baldursson um sértrúarsöfnuði og okkar reynslu af þeim úr daglegu lífi. Við ræðum aðallega um söfnuði í Japan, Bandaríkjunum og á Íslandi. Einnig skoðum við ástæður þess að fólk gengur í slíka söfnuði. Heimsendir er hlaðvarp þar sem tekin eru fyrir alls konar málefni sem eiga það sameiginlegt að geta á einn eða annan hátt leitt til endaloka þessa he...
Ähnliche Podcasts
Replaio ist kein Herausgeber von Podcasts; die Namen der Sendungen, Cover und Audioinhalte gehören ihren Autoren und werden über öffentliche RSS-Feeds verbreitet