Stefán Þór Þorgeirsson
Heimsendir
Heimsendir eru þættir sem fjalla um Japan, japanska sögu og menningu. Þáttastjórnandinn Stefán Þór býr ásamt fjölskyldu sinni í Japan og segir okkur frá lífinu þar - hvernig það er að vera leikari í Japan, hvaða tækifæri eru að finna og hvaða áskorunum fólk þarf að mæta í landi hinnar rísandi sólar. Heimsendir byrjaði sem umræðuþáttur um mismunandi sviðsmyndir heimsenda - allt frá gervigreind til uppvakninga, líftækni til heimsstyrjaldar. Nú þegar Stefán Þór er búsettur í Japan er fókusinn færður þangað en inn á milli má finna heimsendatengt efni á borð við uppgang gervigreindar, geópólitík Au...
Wo hören?
Podcasts in der App Replaio Radio Bald verfügbarPodcasts kommen bald in die App. Installiere sie jetzt und erlebe als Erster einen ganz neuen Blick auf Podcasts
Folgen
#52 Framtíð Japans með Early Saisoku 23.08.2022 54:59
Early Saisoku er tónlistarmaður frá Sapporo sem varði stórum hluta ævi sinnar í Tokyo. Þar kynntist hann björtum sem og dekkri hliðum borgarinnar sem vill ekki sofa. Í þessum þætti ræðum við stórborgina og partýlífið, kosti og galla við japanskt samfélag og mögulega framtíð landsins. ENGLISH. Early Saisoku is a musician from Sapporo who spent a big part of his life in Tokyo where he got to know i...
#51 Lífið í Tokyo - Kína, Taiwan og frumraun í japönsku leikhúsi 16.08.2022 54:37
Kína og Taiwan, hvað er nú það? Mörg okkar hafa heyrt fréttaflutning síðustu vikna um mögulega innrás Kína í Taiwan, um heimsókn Nancy Pelosi og heræfingar, jafnvel um mögulega þriðju heimsstyrjöldina, en hvar og hvernig byrjaði samband Kína og Taiwan? Af hverju er það samband nú stirrt? Verður stríð eða status quo? Í þessum þætti skoðum við sögu Taiwan og samband þess við meginlandið. Önnur umræð...
#50 Lífið í Tokyo - Mun Mt. Fuji gjósa? 02.08.2022 55:35
Mt. Fuji, eða Fuji-san á japönsku, er virkt eldfjall og sömuleiðis hæsti tindur Japans með 3.776m hæð yfir sjávarmáli. Fuji-san er aðeins um 100km frá Tokyo og sumir vísindamenn segja að eldgos geti hafist á næstu árum eða áratugum. Spurningin er: hvað geta íbúar Japans gert og enn fremur hvort maður eigi yfirleitt að undirbúa sig? Er kannski bara betra að slaka á og mæta örlögunum? Í þessum þætt...
#49 Tíska og tónlist með David Alejandro Ossorio 19.07.2022 1:00:13
David Alejandro Ossorio er tónlistarmaður og frumkvöðull í fatahönnun. Ég kynntist honum fyrir 10 árum þegar við vorum í skiptinámi í Hokkaido en nú erum við báðir orðnir Tokyobúar. Umræðuefni þáttarins eru tíska og tónlist í Tokyo, háskólanám, japönsk fyrirtæki, partýmenning í Japan og margt fleira. Þetta er fyrsti þáttur Heimsendis á ensku og ég vona innilega að þið njótið vel. David Alejandro...
#48 Lífið í Tokyo - Morðið á Shinzo Abe 12.07.2022 1:04:20
Shinzo Abe var forsætisráðherra Japans frá 2006-2007 og svo aftur 2012-2020. Hann var meðlimur í Liberal Democratic Party sem er stærsti stjórnmálaflokkur Japans. Þann 8. júlí 2022 var hann myrtur á kosningaviðburði í borginni Nara í vesturhluta Japan. Kæri hlustandi, takk fyrir að hlusta. Mig langar að biðja um lítinn greiða: að taka mynd af þér að hlusta á þáttinn og tagga heimsendir_podcast á...
#47 Leiklist í Tokyo með Thelmu Rún Heimisdóttur 05.07.2022 1:10:54
Gestur þáttarins er Thelma Rún Heimisdóttir, leikari og framleiðandi í Tokyo. Við ræðum meðal annars leiklistarsenuna í Japan, tækifæri fyrir útlendinga sem og áskoranir þess að búa í stórborg. Lífið er list og borg hinna 37 milljón sála er okkar leiksvið. Kæri hlustandi, einn tiny little greiði: taktu mynd af þér að hlusta á hlaðvarpið og taggaðu heimsendir_podcast á Instagram! Takk fyrir það o...
#46 Lífið í Tokyo - Er her í Japan? 28.06.2022 58:23
Er her í Japan? Já og nei. Skiptir það einhverju máli? Já, því sumir vilja meina að Austur-Asía sé að sigla ákveðinn ólgusjó þegar kemur að alþjóðasamskiptum. Það er Kína og Taíwan, Suður- og Norður-Kórea, Japan og Rússland og fleiri hlekkir í flókinni tengslakeðju sem einkennir heimshlutann. Önnur umræðuefni þáttarins eru af léttari toga; veiðiferðir í Japan, portúgölsk áhrif í tungumálinu og ram...
#45 Framtíð hafsins með Ingibjörgu Björgvinsdóttur 21.06.2022 1:09:59
Hafið er mikilvægt, það er bara þannig. Ísland og Japan eiga það sameiginlegt að vera þjóðir tengdar hafinu og auðlindum þess. Gestur þáttarins er Ingibjörg Björgvinsdóttir, doktorsnemi við Tokyo University of Marine Science and Technology. Við ræðum hafrannsóknir í Japan, tækifæri og ógnir, snertifleti landanna tveggja, og almennt um framtíð hafsins. Kæri hlustandi, komdu í Facebook hópinn Heims...
#44 Lífið í Tokyo - Yakuza og japanskt leikhús 14.06.2022 1:00:11
Yakuza er hin japanska mafía og ég hef ekki orðið var við hana áður, fyrr en nú. Svo fór ég í japanskt leikhús og hóf rannsókn mína á því hvernig japanskt leikhús er frábrugðið vestrænu leikhúsi. Önnur umræðuefni þáttarins eru síðan eyjastefna Japans, japanska í bíómyndum, upphífingar bannaðar, og margt fleira. Kæri hlustandi, ef þú hefur gaman af Heimsendi máttu endilega segja vinum eða fjölskyld...
#43 Lífið í Tokyo - Lífvörður fyrir Gucci 07.06.2022 47:14
Hvernig er að vera leikari í Japan? Hvernig verkefni eru í boði? Svarið er: alls konar, þar á meðal verkefni sem lífvörður/lyftuhnappur á Gucci viðburði. Í þessum þætti fjallar Stefán Þór um lífið í Tokyo og hvernig það er að vera íslendingur í stærstu borg heims. Meðal umræðupunkta eru; frægð í Japönsku sjónvarpi, forræðishyggja, lestarhljóð og enska með japönskum hreim. Kæri hlustandi, vilt þú s...
#42 Fólksfækkun í Japan með Höskuldi Hrafni Guttormssyni 31.05.2022 1:06:23
30% japana eru 65 ára og eldri. Hvað þýðir það nú? Er Japan rísandi sól eða hnignandi stórveldi? Í þessum þætti ræðum við Höskuldur Hrafn Guttormsson, viðskiptafræðingur í Tokyo, um fólksfækkun í Japan, fortíð þess og framtíð. Við ræðum um menninguna, siði og venjur, og hvernig það er að vera útlendingur í Japan. Kæri hlustandi, komdu með á Instagram reikninginn heimsendir_podcast fyrir myndir og...
#41 Heimsendir er kominn til Japan! 24.05.2022 49:07
THIS IS BIG! Heimsendir hefur flutt höfuðstöðvarnar til Tokyo, Japan. Í þessum þætti ræðir Stefán Þór við sjálfan sig um ferðina til Japan (með kött meðferðis), nýja hverfið og íbúðina, og almennt um mannlífið í Tokyo. Kæri hlustandi, næstu þættir verða góð blanda af viðtölum við gesti, solo-session um lífið í Tokyo, og mögulega nokkrum handritsþáttum í stíl útvarpsleikhúss (enn í þróun). Ég hlak...
#40 Bylting með Ragnari Bragasyni 17.05.2022 1:26:28
Bylting og Heimsendir. Hvort kemur á undan og hvort á eftir? Í þessum þætti ræðum við Ragnar Bragason, leikstjóri og höfundur, meðal annars um þáttaseríuna Heimsendir og tengingar við frönsku byltinguna, um svartsýni og bjartsýni nútímans, kvikmyndagerð, háskólanám og margt fleira. Kæri hlustandi, TILKYNNING: Heimsendir heldur til Japan og þaðan er ýmislegt nýtt í vændum. Takk fyrir að hlusta!
#39 Pólland, Ítalía og heimsendir með Ólafi Ásgeirssyni 03.05.2022 1:13:57
Gestur þáttarins er Ólafur Ásgeirsson, leikari og meðlimur leikhópsins PóliS. Við förum um víðan völl og ræðum meðal annars vinnustaðamenningu, tungumál og heimsenda í skáldskap. Þá snertum við á loftslagsmálum (air-battle), sýndarveruleika og framtíð Íslands. Kæri hlustandi, smá tilkynning: fljótlega heldur Heimsendir á vit ævintýranna í Japan og mun halda áfram útsendingum frá höfuðborg hinnar r...
#38 Saga mannkyns og líftækni með Ísarri Nikulási Gunnarssyni 19.04.2022 1:29:49
Hvaðan komum við? Hver er munurinn á Homo erectus og Homo neanderthalensis? Hvernig tengist þetta líftækni? Í þessum þætti fæ ég til mín Ísarr Nikulás Gunnarsson sem er líftæknifræðingur og meistaranemi við Cambridge-háskóla. Við byrjum fyrir milljónum ára og þræðum mannkynssöguna, með stórum stökkum þó, til framtíðar. Við skoðum líftækni 21. aldarinnar, tækifæri og ógnir. Kæri hlustandi, kíktu á...
#37 Kína með Guðbjörgu Ríkey Thoroddsen Hauksdóttur 12.04.2022 1:04:06
Kína er fjölmennasta land heimsins. Það hefur verið miðpunktur mikilla breytinga og uppbyggingar síðustu áratugi. Í þessum þætti skoðum við Guðbjörg Ríkey Thoroddsen Hauksdóttir, doktorsnemi, Kína og stöðu þess í alþjóðlegu samhengi. Þá förum við yfir næstu áratugi og skoðum mögulegar áskoranir sem Kína þarf að mæta. Kæri hlustandi, kíktu á Instagram reikninginn: heimsendir_podcast, fyrir myndir a...
#36 Svefn með Árna Beinteini Árnasyni 05.04.2022 1:22:58
Er Matthew Walker mættur í klefann? Nei, ennþá betra: Árni Beinteinn Árnason, leikari með meiru, er mættur til að deila reynslu sinni af svefnvenjum og svefnleysi og öllu þar á milli. Við förum um víðan völl og snertum á magnesíum, japönskum futon-dýnum, rauðgleraugum og sömuleiðis ýmsu alls ótengdu svefni. Kæri hlustandi, Heimsendir er í stöðugri þróun og þú getur tekið þátt í þróuninni á Facebo...
#35 Lífið með Hákoni Jóhannessyni 29.03.2022 1:22:16
Hver er munurinn á leik og starfi? Eru áhugamál mikilvæg? Hvað gera salaryman í Japan? Við Hákon Jóhannesson ræðum lífið og tilveruna, nútíð og framtíð, og mikilvægi vinnu og peninga inn í þetta heildarsamhengi. Kæri hlustandi, ég vek athygli á Facebook hópnum Heimsendir þar sem þú getur haft áhrif á efni þáttanna, og Instagram-ið heimsendir_podcast þar sem myndir af viðmælendum birtast í mikilli...
#34 Rafmagnslaus heimur með Bergi Þór Ingólfssyni 22.03.2022 1:36:19
Árið 2024 verður gríðarstórt sólgos sem veldur alvarlegum segulstormi á Jörðu. Raftæki hætta að virka og samfélag manna fer aftur um árþúsund í þróun. Hvað gerist næst? Í þessum þætti ræðum við Bergur Þór Ingólfsson, leikari og leikstjóri, um rafmagnslausan heim. Þá ræðum við wifi-leysi og hvort það myndi ekki bara gera okkur gott. Önnur þemu eru meðal annars fortíðarþrá, undirbúningur fyrir heims...
#33 COVID speciale og Japan með Stefáni Þór Þorgeirssyni 15.03.2022 48:37
There's always a first time. Podcastari talar við sjálfan sig - frétt til næsta bæjar! Í þessum þætti geri ég upp COVID fyrir fullt og allt, og svo hættum við bara að hugsa um það. Ég fer einnig yfir árið 2022 og hvers má vænta frá TOKYO! Kæri hlustandi, kíktu á hópinn Heimsendir á Facebook þar sem þú getur komið með innlegg í umræðuna og haft áhrif á þættina. Einnig minni ég á heimsendir_podcast...
#32 Trúarbrögð með Halldóru Geirharðsdóttur 08.03.2022 1:19:28
Jesus is King. Allahu akbar. Namaste. Trúarbrögð eru allt um kring og spila líklega stærra hlutverk í okkar lífi en við höldum. Í þessum þætti ræðum við Halldóra Geirharðsdóttir meðal annars um uppruna trúarbragða, leit að okkar eigin trú, og regluverk og kerfi nútímans. Kæri hlustandi, kíktu á Instagram reikninginn: heimsendir_podcast fyrir hálfteiknaðar myndir af viðmælendum. Svo minni ég á Fac...
#31 Hvernig bregst fólk við heimsendi með Kjartani Darra Kristjánssyni 01.03.2022 1:32:53
24.2.2022 - Rússland ræðst inn í Úkraínu. Í þessum þætti ræðum við Kjartan Darri Kristjánsson, leikari, um stríð og ástæður þess, zombie apocalypse, geimverur, loftsteina og hvernig fólk bregst við svona aðstæðum. Hvort við hjálpum öðrum eða hugsum um okkur sjálf. Kæri hlustandi, endilega kíktu á Instagram reikninginn: heimsendir_podcast, til að fá listilega unnar myndir af viðmælendum. Einnig min...
#30 Geimstríð með Arnmundi Ernst Backman 22.02.2022 1:28:28
Stríð í geimnum: Er það Kína gegn Bandaríkjunum, eða mannkynið gegn geimverum? Í þessum þætti skoðum við Arnmundur Ernst Backman, leikari, geimstríð og hvernig það hefur birst í umræðu og skáldskap. Þá ræðum við eðlisfræðipælingar, vísindaskáldskap, hnattræna hlýnun og margt fleira. Kæri hlustandi, ef þú ert að lesa þetta þá bið ég þig að fara inná Apple Podcasts og skilja eftir umsögn. Það er mik...
#29 Alheimurinn með Steinunni Arinbjarnardóttur 15.02.2022 1:27:44
Hvað er stærsta umræðuefni í heimi? Svar: Það sem er stærst í heiminum - Alheimurinn sjálfur. Er Alheimurinn endalaus eða er hægt að fara út fyrir endimörkin eins og Bósi ljósár? Í þessum þætti ræðum við Steinunn Arinbjarnardóttir, leikkona, um upphaf og endi Alheimsins, hvað kom áður og hvað kemur á eftir. Ef þig langar að spæla egg á enninu á þér, þá er þessi þáttur fyrir þig! Kæri hlustandi, en...
#28 Líkamsrækt og geðsjúkdómar með Steineyju Skúladóttur 08.02.2022 1:24:33
Er pílukast líkamsrækt? Hver er besta æfingin? Hvað ertu að maxa í réttstöðu? Í þessum þætti ræðum við Steiney Skúladóttir um tengls milli líkamsræktar og geðsjúkdóma og hvort geðsjúkdómar séu algengari hérlendis en annars staðar. Kæri hlustandi, keyrðu inná Apple Podcasts og hentu í umsögn og einkunn! Það er mikil hjálp og tekur aðeins mínútu af tíma þínum. That's all, folks!
Ähnliche Podcasts
Replaio ist kein Herausgeber von Podcasts; die Namen der Sendungen, Cover und Audioinhalte gehören ihren Autoren und werden über öffentliche RSS-Feeds verbreitet